Helgarpósturinn - 13.08.1987, Qupperneq 26
Og
Gullfoss, Geysir
Ásmundarsafn: Dæmi um
abstraktlist Ásmundar
Sveinssonar myndir Jim
Smart.
íslenskir listamenn
Ásgrímssafn: Flótti und-
an eldgosi er eitt verk-
anna á sumarsýningunni.
verkum og í safninu er að finna mik-
inn fjölda verka sem ólík eru inn-
byrðis. Höggmyndirnar og skúlptúr-
arnir eru til sýnis bæði í húsinu
sjálfu, þar sem listamaðurinn bjó,
svo og í skemmunni bak við það.
Einnig eru höggmyndir í garðinum
og eru sumar þeirra notaðar sem
klifurgrind af börnunum.
Á Kjarvalsstöðum eru sýningar-
salir Reykjavíkurborgar og þar
geymir hún safnið sitt. Það er þó
ekki til sýnis stöðugt heldur eru
haldnar þar ýmiss konar sýningar
árið um kring. Einu sinni á ári er þó
sett upp Kjarvalssýning og stendur
ein slík yfir þessa dagana. Verkin á
þessari sýningu hafa fæst verið sýnd
opinberlega áður. Mikið er um
teikningar og eru þær misvel farnar
eftir að hafa verið í geymslu í mörg
ár. Nokkrar eru rifr.ar bak við glerið
og horn og fleiri búta vantar á sum-
ar. En aðdáendur Kjarvals ættu ekki
að missa af þessari sýningu.
Fyrstu söfnin þrjú eru mest sótt af
erlendum ferðamönnum á sumrin
og skólafólki á veturna. Það virðist
eins og íslendingum finnist þetta
vera of nálægt sér til að það sé gam-
an að fara þangað, það er helst þeg-
ar við fáum útlendinga í heimsókn
að okkur finnst nauðsyn að sýna
þeim að við séum ekki einhverjir
eskimóar og förum að sýna þeim
verk frægustu listamannanna svo
og Gullfoss, Geysi og Heklu. Og
Kjarvalsstaðir eru undantekningin
sem sannar regluna en þar er líka
alltaf verið að skipta um sýningar.
Kjarval: Guðmundur
Sveinsson. Kolateikning.
Listasafn Einars Jónssonar, Ás-
mundarsafn, Asgrímssafn og Kjar-
valsstaöir eiga þad sameiginlegt ad
bera nöfn fjögurra af frœgustu lista-
mönnum Islands en fátt er annad
sameiginlegt.
Ásgrímssafn er í Bergstaðastræt-
inu og þar eru verk Ásgríms Jóns-
sonar sýnd. Verkum er skipt út
þrisvar á ári, á sumrin, á veturna og
svo eru settar upp skólasýningar.
Þar eru teikningar úr þjóðsögunum
í hávegum hafðar. Safnið er lítið og
lætur lítið yfir sér. Þar er einnig til
sýnis sá hluti hússins sem listamað-
urinn bjó í og bækur hans, málara-
dót og fleira. Ásgrímur ánafnaði ís-
lensku þjóðinni listaverk sín og
einnig húsið í Bergstaðastrætinu og
eiga myndirnar að vera í húsinu
þangað til byggt verður listasafn
sem getur tekið við myndunum.
Listasafn Einars Jónssonar er við
Njarðargötuna þar sem listamaður-
inn reisti sér hús. Hann gerði sem
Ásgrímur og gaf þjóðinni ævistarf
sitt svo og húsið sem hann reisti yfir
verkin sín. Nú er talsvert af verkum
listamannsins til sýnis úti í garðin-
um í kringum húsið en frummynd-
irnar, sem gerðar voru í gifs, geymd-
ar inni. Verið er að vinna í því að
gera afsteypur af höggmyndum Ein-
ars og stefnan er að sem flestar
þeirra verði til sýnis í garðinum.
Asmundarsafn í Sigtúninu hefur
að geyma verk Ásmundar Sveins-
sonar myndhöggvara. Hann arf-
leiddi borgina að eignum sínum og
26 HELGARPÓSTURINN