Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 10
HP Ritstjórar: Halldór Halldórsson Helgi Már Arthursson Ritstjórnarfulltrúar: Egill Helgason Sigmundur Ernir Rúnarsson. Blaöamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir, Áslaug Ásgeirsdóttir, Friörik Þór Guömundsson, Garöar Sverrisson, Gunnar Smári Egilsson, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson, Salvör Nordal. Ljósmyndir: Jim Smart. Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson Prófarkir: Sigríöur H. Gunnarsdóttir. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson. Skrifstofustjóri: Garöar Jensson. Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson. Auglýsingar: Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir. Dreifing: Garðar Jensson Guörún Geirsdóttir Afgreiösla: Bryndís Hilmarsdóttir. Sendingar: Ástríður Helga Jónsdóttir. Ritstjórn og augiýsingar eru í Ármúla 36, Reykjavík, sími 681511. Afgreiðsla og skrifstofa eru í Ármúla 36, sími 68 15 11. Útgefandi: Goögá hf. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaöaprent hf. LEIÐARI Blómlegt mannlíf eða háttstemmd helgi Þingvellir eru skuggsjá íslenskrar sögu, en jafnvel án tillits til sögufrægðar er allt þar „sem stórfenglegt listaverk...eitt hið fegursta og merkilegasta á öllu íslandi", sagði sænskur jarðfræðingur sem ferðað- ist hér um byggðir og óbyggðir landsins um miðja síðustu öld. Vissulega eru þetta orð að sönnu — náttúrufegurð Þingvalla er einstök og ítök staðarins í þjóðinni eru slík aö þangað hópumst við á sögulegum stundum; alþingishátíðum, lýðveldisdög- um, landnámsafmælum og væntanlega kristnitökuafmælum. Helgarpósturinn greinir í dag, fyrstur fjölmiðla, frá nýjum hugmyndum Þing- vallanefndar um framtíð þjóðgarðsins. Þessar hugmyndir hafa verið í bígerð í nokkur ár, en nú með haustinu er ráðgert að kynna þær fyrir alþingismönnum og væntanlega almenningi líka. Hins vegar skýtur það kannski skökku við, þegar þjóð- garður er annars vegar, að áætlanir þessar skuli ekki vera ávöxtur frjórrar og opinnar umræðu, heldur hefur hvílt yfir þeim hin mesta leynd. En þetta er líka viðkvæmt mál, gæti ein- hver sagt. Og það er rétt — á Þingvöllum má ekki flana að neinu. Það sést til dæmis best á „jólatrjánum" sem þar var plantað fyrir rúmri hálfri öld í fullkomnu skeyting- arleysi við flóru staðarins. Og það sést líka á þeim fjölmörgu sumarbústööum sem settir voru þar niður innan lögfestrar þjóð- garðsgirðingar og sitja þar enn í Hallinum, einum fegursta stað við Þingvallavatn. Það hefur sumsé ýmislegt farið úrskeiðis á Þingvöllum og kannski fýsir Þingvalla- nefnd að bæta fyrir það. En ekki vill Helg- arpósturinn samt ganga svo langt að taka undir þau ummæli Hrafns Gunnlaugs- sonar að staðurinn sé nánast ónýtur. Helgarpósturinn hefur fyrir því traustar heimildir að meðal þess sem Þingvalla- nefnd vill koma í verk á næstu áratugum sé að rífa húsakostinn niðri á grundunum við vatnið, Hótel Valhöll, viðbyggingar og úthýsi. í staðinn er ætlunin að reisa mikiö mannvirki á gjárbarminum vestan sigdals- ins — við látum liggja milli hluta hvort það verður glerhýsi, monthús fyrir Alþingi ell- egar gagnleg upplýsingamiðstöð. Öll þessi viðhorf koma fram í umfjöllun Helg- arpóstsins. Hins vegar er ekki laust við að sú spurning vakni hvað vaki fyrir Þingvalla- nefnd þegar upplýsist að hún hefur líka horn í síðu tjaldstæða, sem eru á svoköll- uðum Leirum. Þingvellir eru helgur staður, en allri helgi hljóta að vera takmörk sett. Þingvellir eru ekki kirkja, eins og mætti ætla af erindi sem Þingvallaprestur og þjóðgarðsvörður hélt fyrir fáeinum árum. Þar á að vera blómlegt og frjálslegt mannlíf og þótt þar séu stöku sinnum „drykkjugleði og glasa- glaumur" ætlum við að svo hafi ekki síður verið á gullaldarskeiðinu þjóðveldisöld. Þingvallanefnd verður að gera það upp við sig hvort hún vill laða sauðsvartan almúg- ann að þessu „stórfenglega listaverki" ellegar fæla hann frá. Háttstemmdur há- tíðleiki og helgi eru ekki til þess fallin að gera Þingvelli aðlaðandi í augum nútíma- fólks. BREF TIL RITSTJORNAR Deila JDhússins og Sigiingamálastofnunar Leigusamningur í fullu gildi ualdskra PÓSTS OG SlMA DREIFBYLIÐ MEB 25 % LEYNIAFSLÁ1 TOFNUNIN GETUR EKKI M/tLT SKREFIN SAMKVÆMT NÝJU GJALDSKRANNI. ÞESS VEGNA ER DTRA IRINGJA FRA RETKJAVfK UT A LAND EN FRA LANDSBYGGOINNI TIL RETKJAVIKUR oluveröur hávabi vard er PÖ*t- Og slmamálastofnunin t<ygg«Arm«in I uun vcrl*•« gmíu Mumunurinn á verðitimtAla nulli umi borð og Ibii é «*>;**? v™' 7 «*>:m sreiatfíusLTia srr ifnhítoa hœkkun var 611 skrefamœlmg a mnanlands- lnRarnar lii IVHll o* slma ilungu klukkan aex og iil rllclu i kvðldln. A um i kv«ldin 'rnlölum Slokkuö upp. Slmlöl um kvöld, nœlurog helg- upp I BorgarrAðimcnn. »m tx-srum líma fr til dirmis ódýrara a« r mma wöi, tru „út lyrsM Mptt mald Ííirc/- ““ ÍJJSJ.'SaíjjjjSSSJSJgít Vegna greinar sem birtist í síðasta HP og fjallaði um deilur milli Sigl- ingamálastofnunar og JL-hússins, en stofnunin leigir húsnœði af Lofti Jónssyni, eins og fram kom i grein- Siglingamála situr og skelfu inni, hafði Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri samband við blaðiö og vildi að eftirfarandi kœmi fram. I greininni segir að Loftur Jónsson hafi rift leigusamningi sem í gildi er til ársins 1982. Slíkt mun ekki vera hægt, því leigusali getur ekki ein- hliða rift leigusamningi. Slíkt hefur verið reynt í þrígang, en dómstólar hafa alltaf synjað staðfestingar á þessari riftun og neitaö að bera stofnunina út, vegna þess að sakir sem bornar hafa verið á hana hafa ekki reynst þess eðlis að slíkt yrði gert. Siglingamálastjóri vildi enn- fremur mótmæla því að stofnunin hefði gengið illa um húsið, sagði að það væru bara fullyrðingar húseig- enda sem ekki stæðust að hans mati, enda hefði hann ekki sótt mál- ið á þeim forsendum. Að auki sagði siglingamálastjóri að það væri ekkert fararsnið á sér og sínum mönnum, enda væri samningurinn enn í fullu gildi og stofnunin sæti með fullum rétti í húsinu. Hún hefði ekkert af sér brotið að hans mati og þær skærur og erjur sem nefndur væru í greininni væru að hans mati ein- hliða, stofnunin hefði ekkert gert hvorki til að kynda undir né ala á ófriði. KK. Vegna skrifa Helgarpóstsins 6. ágúst sl. um 25% leyniafslátt Póst- og símamálastofnunarinnar til íbúa dreifbýlisins er við hæfi að eftirfar- andi komi fram: Þegar gerðar eru eins miklar breytingar á gjaldskrá og uröu 1. júlí sl. tekur það talsverðan tíma að framkvæma allar þær breytingar sem gera þarf á símstöðvum um land allt. Til þess að notendur væru ekki látnir greiða of hátt gjald ikveðinn tíma var tekin ákvörðun um að gera strax allar aðrar breytingar en þær að taka upp þrískiptan taxta, þ.e. dagtaxta, kvöldtaxta og nætur- taxta, en til þess þurfti búnað sem ekki var til nema fyrir stærstu sím- stöðvar í upphafi. Nú eru þessar breytingar langt komnar og er búist við að fram- kvæmdum við þær ljúki á öllu land- inu í næstu viku. Þá verður alls stað- ar farið eftir gildandi gjaldskrá. Reykjavík 7. ágúst 1987 f.h. Póst- og símamálastofnunar Jóhann Hjálmarsson blaðafulltrúi LAIISNIR A SKÁKÞRAUTUM Eftir dobl vesturs og útspilið er há- spilaskiptingin nokkuð Ijós. Austur á tígulás og vestur getur ekki átt t.d. ÁD í hjarta. Þá hefði hann farið upp með ásinn. Svo... ♦ Á107653 KG96 <0 — + Á95 ♦ — ♦ — 9? Á10742 D53 O KG64 O Á1087532 + K1064 + G87 ♦ KDG9842 C> 8 O D9 + D32 . . .Þú stingur upp kóngnum í blindum. Trompar næst hjarta. Tígull á tromp og hjarta enn tromp- að. Tromp á blindan og hjartagosa næst spilað og laufi kastað heima. Vestur getur þess vegna leyft okkur að eiga slaginn því hann er enda- spilaður, ef hann fer inn. Vörnin á báðum borðum var góð. Vestur ,,sér“ að félagi hans á hjarta- drottningu aðra eða þriðju og það er uppgjöf að fara upp með ásinn. Drottningin er þá trompuð niður og tvö niðurköst nást. AUGLÝSINGASÍMI 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.