Helgarpósturinn - 13.08.1987, Page 21

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Page 21
HP spáir í þá sem líklegast er aö verði bronsaöir í náinni framtíð Geir Hallgrímsson. Maðurinn með arnarnefið, pólitíkusinn sem sestur er á helgan stein Seðlabankans — stytta rís á Keflavíkurflugvelli. Ragnar Halldórsson. Vegleg álstytta rís í Straumsvík. "O c 3 E xo D O 2 *iZ xO VERÐUM STYTTUMIM! Davíð Scheving Thorsteinsson iönrek- andi með meiru. Hann verður reistur á stórri Svalafernu, en þá er ekki öll sag- an sögð (sjá Jón Pál Sigmarsson). Fólk veröur náttúrulega að gera eitthvað afskaplega merkilegt til að verða ,,bronsað“ — eða vera eitthvað mikilvœgt, hafa sagt eitt- hvað af viti, kannski ort stuðlaðar vísur vel yfir meðaltali í magni talið og að gœðum. Pegar sumt fólk er nefnt á nafn eru það fyrstu að segja sem herra. Senn kemur að því að Hvalfjarð- arhreppur láti bronsa Halldór við ESSO-sjoppuna ef ekki við sjálfa hval- stööina í Hvalfirði. Jón Páll Sigmarsson, sterkasti maður alheims. Stytta rís af honum á lóð Sól- ar hf. í Þverholti, þar sem hann jafn- hattar styttuna af Davíð Scheving á Svalafernunni. svo: „Parna er á ferð gott styttu- efni — hvers vegna hefur viðkom- andi ekki verið bronsaður fyrr?" í flóði framtíðarstyttanna verður af nógu að taka, því á íslandi eru og hafa verið óhemjumargir merkismenn og -konur. Við flýtum okkur að bæta kvenkyninu við, því stytta af konu er enn óþekkt fyrirbæri hér í borginni, nema þá sem puðandi og gjörsamlega óþekktir vatnsberar. En nú eru runnir upp tímar jafnréttisins a la Jóhanna Sigurðardóttir og því verða hagsýnar húsmæður vonandi bronsaðar villt og galið út um holt og hæðir. Sumt fólk er dæmt tii að verða bronsað. Forsetarnir okkar verða bronsaðir og ekki úr vegi að Vigdís ríði á vað kvenna — ásamt með Ragnhildi Helgadóttur og Auði Auðuns, fyrsta kvenráð- herranum. Það þarf ekki að deila um það, að þorskastríðshetjurnar verði bronsaðar, allar með tölu, og fyrstur væntanlega Guðmundur Kjœrnested —■ við verðum að hafa okkar stríðshetjur eins og siðuðum þjóðfélögum sæmir. Nú þegar Mosfellssveit er orðinn að kaup- stað eru síðustu forvöð fyrir borg- ina að verða á undan og koma fyrir bronsstyttu af Halldóri Laxness á einhverjum góðum stað og Pórbergur Þórðarson er sjálf- sagður í porti gamla miðbæjar- skólans. Hér höfum við nefnt fólk sem er svo sjálfsagt í styttuformi að tekur vart tali. Eins er það með „óþekkta" þennan og hinn. Vitaskuld verður fulltrúi atvinnu- veganna bronsaður nafnlaus og glæsilegur. Miðað við stöðu mála nú og eftir því sem efni standa til spáum við því að fulltrúi atvinnu- veganna verði „óþekkti tölvufrœð- ingurinn". Það verður náttúrulega erfitt í fyrstu að uppfylla kvennakvótann og rétt að konur slái ekki slöku við að fremja hetjudáðir svo ekki skapist vandræði af. Óhætt er að hefja þegar vinnu við styttu af alheimsfegurðardrottningu okkar, Hólmfríði Karlsdóttur, og koma henni (styttunni) fyrir á lóð Út- flutningsráðs við Lágmúla. Fleiri kvenskörungar koma fljótlega upp í hugann, eins og söngdúettinn Árni Johnsen. Hinn fallni þingmaður sér styttu sína rísa einmanalega í Bjarnarey... Pálmi Jónsson Hagkaupsmógúll. Að sjálfsögðu rís stytta af honum (Kringl- unni, með pálmann í höndunum. Guðrún A. Símonar og Þuríður Páls, María Markan og rithöfund- arnir Guðrún frá Lundi og Svava Jakobs. Nóg er aftur á móti af sjálfsögðum kandídötum af karl- kyni. Nánast hver einasti stjórn- málamaður gerir kraftaverk á hverjum degi og eru einna efst á |baugi Steingrímur Hermannsson, jsem verður bronsaður í sundskýlu 'við sundlaugarbakka, Halldór Ásgrímsson við hvalstöðina í Hvalfirði og Geir Hallgrímsson á Keflavíkurflugvelli. Ásmundur Stefánsson hlýtur þau örlög að verða bronsaður í Garðastræti. Senn líður að því að styttan af Ingólfi Arnarsyni verði tekin*niður og flutt í Arbæjarsafnið, en í stað- inn rís stytta af Jóhannesi Nordal Seðlabankastjóra. Gömlu stjórn- málarefirnir hljóta bráðum að fara að sjást; Gylfi Þ. Gylfason með handritin á háskólalóðinni, Lúðvík Jósefsson með gleraugun góðu í annarri hendinni en lax í hinni. Albert Guðmundsson er dæmdur tii að rísa einhvers staðar með „litla manninn" sér við hlið líkt og séra Friðrik Friðriksson. Albert rís að sjálfsögðu við hlið huldusteins- ins við Valhöll, en væntanleg risa- stytta af Davíð Oddssyni mun rísa í Oskjuhlíðinni og snúast í hringi með veitingahús í úfnum koil- inum. Á þessu leikur enginn vafi og undirbúningsvinna þegar hafin. Þar innan dyra mun rísa stytta af tónskáidinu Sigfúsi Halldórssyni í flugulíki. Fyrir framan skattstofuna í Reykjavík mun rísa vegleg stytta af skattakónginum Porvaldi Guðmundssyni í Síld og Fisk, en stytta af fyrrverandi skattakóngi, Pálma Jónssyni, rís brátt í nýju Kringlunni — þar er reyndar fyrir sjö metra hátt pálmairé. Og í til- efni heimsmælikvarðaárangurs skákmanna mun stytta af Friðrik Ólafssyni ríða á það vað. En á lóð Sólar hf. við Þverholt mun rísa einhver glæsilegasta stytta bæjar- ins, stytta af Jótii Páli Sigmarssyni þar sem hann lyftir vinnuveitanda sínum, Davíð Scheving Thorsteins- syni, upp úr meðalmennskunni. Ragnar Halldórsson í ÍSAL verður hins vegar aldrei bronsaður — heldur álaður suður í Straumsvík. 20 HELGARPÓSTURINN Davíð Oddsson borgarstjóri. Þegar eru uppi hugmyndir um að stytta af hon- um rísi í Tjörninni út af nýja ráðhúsinu, en sjálfur mun hann samkvæmt óá- reiðanlegum heimildum hafa haft orð á því að risastór stytta rísi í Öskjuhlíð- inni með veitingahúsi í hárinu. Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndamóg- úll. Deilt er um hvort styttan af honum eigi að rísa við náttúruspjöllin hjá Geysi eða náttúruspjöllin við Gullfoss — já, eða þá í Svíþjóð. Albert Guðmundsson, hinn fallni ráð- herra og (loksins) formaður stjórn- málaflokks. Ef hann rís ekki á lóð Val- hallar hjá huldusteininum, þá rís hann í anddyri Hótels Borgar og meira en það — hann verður með litla manninn með sér, svipað og séra Friðrik Friðriksson. ÁsmundurStefánsson. Hans stytta lít- ur dagsins Ijós í Garðastræti. Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri. Ingólfur Arnarson verður tekinn niður og settur á Árbæjarsafnið — Jóhann- es leysir hann af. Halldór H. Jónsson, stjórnakóngur (s- lands. Framleiddar verða fjölmargar styttur af honum og reistar við hvert einasta af þeim mörgu fyrirtækjum sem hann hefur átt aðild aö. Þær veg- legustu verða við álverið, Eimskipafé- lagið og ísl. aðalverktaka. Jón Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri. Styttan rís við endurvarpsstöð Pósts og síma í Skálafelli. Friðrik Ólafsson skákmeistari og þing- stjóri. Kominn tími til að skákmenn fái styttu og auðvitað verður Friðrik að' vera fyrstur. Ýmislegt kemur til greina, t.d. að hún rísi við Sjómannaskólann, þar sem hann tefld i við Larsen á sínum tíma. Hólmfríður Karlsdóttir alheimsfegurð- ardrottning. Ekki öfundsvert né auð- velt listamanni að ná fegurðinni, en stytta kemur og rís á lóð Útflutnings- ráðs við Lágmúla. Ómar Ragnarsson sjónvarpsstjarna og grínari. Hugmyndin er að reisa styttu af honum á landi Uppsala, en sumir vilja hafa hana við Reykjavíkur- flugvöll og enn fremur hefur Esjan ver- ið nefnd á nafn. 8 ÖLL INNLEND OG ERLEND BANKAVIÐSKIPTI. LAUNAREIKNINGUR MEÐ BANKAKORTI. HRAÐBANKI. FERÐATRYGGING. VISA GREIÐSLUKORT. SKULDAVÁTRYGGING. SÍMI: 689600. HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.