Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 14
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYND JIM SMART
14 HELGARPÓSTURINN
Suerrir Stormsker mátti velja
hvort hann færi til spákonu eða
léti gera stjörnukortið sitt. Hann
valdi stjörnukortið. Sagðist einu
sinni hafa farið til spákonu og
hefði litla trú á þeim. Spákonan
hefði sagt að hann ætti stóran
bláan bíl. Hann átti Volkswagen-
bjöllu.
Gunnlaugur Gudmundsson
stjörnuspekingur gerði stjörnukort
og framvindukort fyrir Sverri. Peir
mæltu sér mót og hugmyndin var
að Gunnlaugur útskýrði kortið
fyrir Sverri, enda sagði hann úti-
lokað að birta úr því án útskýr-
inga. Umræðurnar þróuðust hins
vegar út í stórskemmtileg skoð-
anaskipti um stjörnuspeki. Við
leyfum ykkur að fyigjast með
samræðunum:
SMAMUNASAMUR,
ARASARGJARN OG
FEIMINN
Gunnlaugur: „Þótt þú sért í
meyjarmerkinu er í raun um að
ræða blöndun á mörguin
merkjum. Þú ert meyja, hrútur og
krabbi með sterkan úranus og
plútó.“
„...sem þýðir?“ spurði Sverrir.
„í grunneðlinu ertu meyja, sem
þýðir að þú ert mjög smámuna-
samur og nákvæmur og hefur gott
auga fyrir smáatriðum. Meyjan er
mjög gagnrýnin, jafnt á sjálfa sig
sem aðra. Hrúturinn bendir til
ákveðinnar árásargirni, þ.e. þú
hefur gaman af að „skjóta á“ fólk
og umhverfið og krabbinn sýnir
að þú ert viðkvæmur og feiminn.
Þetta er sem sé blanda af smá-
munasemi, árásargirni og feimni.
Svo ertu úranus á sól, og úranus
orkar þannig að þú hatar kerfi og
reglur, vilt vera öðruvísi og frum-
legur."
Suerrir: Er það ekki spurning um
vilja? Annaðhvort eru menn
þannig eða ekki?“
Gunnlaugur: „En þú ert þannig
hvort sem þú vilt eða ekki! Fólk
sem er úranus vill fara eigin leiðir,
það er grunnatriðið. Þú þolir til
dæmis ekki hefðir. Það er hefð að
hafa jólatré á jólunum, en maður
sem er úranus segir: „Af hverju á
maður að vera með jólatré? Ég
ætla ekki að hafa jólatré, ég ætla
að vera með vaskafat. Ég ætla
ekki að láta setja mig inn i ákveð-
ið mynstur."
Suerrir: En spilar úranus í rauninni
einhverja stóra rullu í mínu Iífi?“
Gunnlaugur: Já, þegar þú fæðist
er hann í samstöðu við sólina. Þú
ert með sól, plútó, venus og
úranus í einni mynd. Það túlkast í
stuttu máli svona: Þú ert í grunn-
atriðum jarðbundinn {sól), smá-
munasamur (meyja), uppreisnar-
gjarn (úranus), hefur listrænt eðli
(venus) og plútó sýnir að þú hefur
mikla sjálfsgagnrýni. Það mætti
því kalla þig „feiminn einfara"."
SS: „En eru erfðafræðin og upp-
eldisleg áhrif ekki í rauninni
stærsti punkturinn og skipta
miklu meira máli er stjörnurnar?"
GG: „Nei, ef þú talar við fólk sem
á mörg börn þá segja margir að
börnin séu öll mismunandi
persónuleikar strax frá upphafi.
Það er upplagið. í sambandi við
erfðaþáttinn þá erfir fólk oft
stjörnukort, erfir merkin."
SVERRIR ÓLAFSSON STORMSKER
F. 6.9.1963 kl. 1.00 í Reykjavík.
Lýsing Gunnlaugs Guömundssonar á Sverri.
„Þrátt fyrir stríðni, gagnrýni og ögrandi stíl er Sverrir inn við beinið einlægur,
hlýr og indæll persónuleiki. Hann er lýsandi dæmi um meyju, hrút og krabba.
Ástæðan fyrir framkomu hans út á við er sú að hann þolir ekki hræsni og yfir-
borðsmennsku, óttast það í raun, og þetta er hans aðferð til að forðast að
lenda í yfirborðslegri giansveröld poppsins."
Gunnlaugur Guðmundsson og
Sverrir Stormsker skoða
stjörnukort Sverris og skiptast á
skoðunum um gildi stjörnu-
spekinnar.
GG: „Já já, enda veit ég núna að
EKKERT AÐ MARKA
SS: „Það var nú þáttur í sjónvarp-
inu um daginn þar sem talað var
um að venus og mars og allt þetta
hefði lítið að segja."
GG: „Sá sem talaði hefur ekki
haft þekkingu á stjörnuspeki. Það
hafa verið gerð stjörnukort eftir
starfsstéttum og þau sýna fram á
það að ef mars er á ákveðnum
stað þá hafa menn orðið afreks-
menn, til dæmis í íþróttum.
íþróttamenn og viðskiptamenn
eru til dæmis með mars á mið-
himni, prestar, stjórnmálamenn og
leikarar með júpíter á sama stað
og rithöfundar og listamenn með
tunglið og læknar og viðskipta-
menn með satúrnus. Það eru til
ákveðnar grunnforsendur á bak
við þetta. Stjörnuspekin er auðvit-
að ekki alsjáandi, menn hafa
frjálsan vilja til að fara með.
Stjörnuspekin er grunnurinn,
síðan hefurðu frjálsan vilja, svo
koma umhverfið og uppeldið."
SS: „Ég hef nú oft verið að kíkja í
hinar og þessar stjörnumerkja-
bækur og maður er nú með
glampann í öðru auganu meðan
maður les þessar bækur. Ekkert af
því sem ég hef lesið um meyjar-
merkið á við mig!“
GG: „Ég held nú samt að eitthvað
af því passi við þig!“
SS: „Þetta getur verið kórrétt
þannig, en ég hef tilhneigingu til
að líta svo á að þú hafir vitað
nokkuð mikið um mig áður en þú
gerðir kortið."
GG: „Nei nei, málið er það að það
er ekkert til sem heitir bara
meyja. Það verður að taka heild-
ina. Ég var búinn að koma auga á
úranusinn í þér, en ekki til dæmis
krabbann. Meyjan í þér er þannig
að það kemur fram smámunasemi
í þér. Þegar þú semur lag eða
texta er ég viss um að þú getur
legið yfir einni nótu eða einu orði
í langan tíma áður en þú ert
ánægður."
SS: „Það flokka ég nú bara undir
listrænan metnað sem Halldór
Laxness hefur líka og hann er í
nautinu."
GG: „Já auðvitað er þetta rétt, en
það hafa ekki allir fullkomnunar-
áráttu. Meyjan hefur hana. Ef þú
rennir augum yfir kortið þitt þá
sérðu hér að þú er mjög einkenn-
andi meyja. Þú ert jarðbundinn og
krítískur, enda kemurðu að kort-
inu með mjög gagnrýnu viðhorfi!
Þú hefur fullkomnunarþörf og
gerir miklar kröfur. Átt það til að
rífa sjálfan þig niður. Síðan kemur
hér venus sem sýnir áhuga á list-
um, úranus — boðberi nýrrar
tækni, frumlegur, uppfinninga-
samur... Þessu þarftu að blanda
saman. Þú vilt ekki láta setja þig á
bás.“
SS: „Nei það er ekki málið. Mér
finnst bara ekki liggja nógu
sterkur grunnur undir stjörnuspek-
inni. Til dæmis er miklu lógískara
að líta á það sem svo — ef við
tökum þetta frá grunni — að alveg
frá því örvefir fóru að þróast hefur
þetta verið að færast upp á við.
Eitt Ieiðir af öðru, þetta er bara
orsakasamhengi. Þess vegna vil ég
líta svo á að erfðafræðin skipti
meira máli, ásamt uppeldi, heldur
en það hvaða stjörnur fara í
kringum á fæðingartímanum. Af
hverju ættu þær að hafa svona
mikil áhrif á mannlegan huga?“
GG: „Stjörnurnar hafa ekki áhrif.
Eitt stærsta vandamálið við að
vera stjörnuspekingur er að fólk
hefur fullt af teoríum um stjörnu-
speki án þess að hafa kynnt sér
hana. Þarna færir þú rök án þess
að þú vitir hvað þú ert að tala
um.“
4000 ÁRA TRÚ Á
STJÖRNUSPEKI
SANNAR EKKERT!
SS: „Það er alveg rétt, en þetta er
bara „common sense" í fljótu
bragði!"
GG: „Það er löngu þekkt að þeir
sem fæðast í ágúst hafa eitthvert
sameiginlegt persónueinkenni. Og
af hverju er það? Ég veit að
vísindamenn segja að það sanni
ekkert vísindalega þótt stjörnu-
spekin hafi verið við lýði í 4000
ár. En af hverju er þetta svona?“
SS: „Það sannar ekkert ágæti
stjörnuspekinnar þótt hún hafi
verið til fyrir mörg þúsund árum
því menn hafa trúað á drauga í
mörg hundruð þúsund ef ekki
milljón ár! En hvaða máli skiptir í
hvaða merki fólk er fætt?“
GG: „Málið er það að við þekkjum
hreyfilögmál pláneta, þess vegna
notum við þau. Það er svo gott að
fylgjast með stjörnunum. Hreyfan-
leiki plánetanna hefur áhrif á sólu.
Ég er ekki þeirrar skoðunar að
það séu nein áhrif, heldur að það
stóra endurspeglist í því litla og
öfugt. Þú hefur alveg jafnmikil
áhrif á pláneturnar og þær á þig.“
SS: „En þegar þetta er sett í svona
stórt samhengi þá er verið að gera
ráð fyrir að einhver ein skitin
mannvera sé eitthvert algjört
„must“ í tilverunni, sem hún er
ekki. Sjáið bara þegar einhver
tekur sig til og drepur mörg
hundruð þúsund manns. Svo fyrir
utan það að heimurinn er saman-
byggður af örvitum sem skipta
litlu máli.“
GG: „En þær spegla heiminn samt
sem áður og það breytir stjörnu-
spekinni ekki neitt. Þú segir að
það sé lógískt að erfðir hafi áhrif.
Er ekki líka lógískt að það skipti
máli á hvaða árstíma maður er
fæddur? Heldurðu að fyrsta skynj-
un barns hvort það er vetur eða
sumar hafi ekki áhrif á persónu-
leika þess?“
SS: „Ég held það skipti engu máli
hvort maður er fæddur í myrkri
eða sól. Það getur verið slökkt í
herberginu svo það skiptir litlu
máli hvort það er sól úti eða
ekki."
GG: „Fyrir mér ertu einmitt núna
að sýna fram á meyjareðlið. Þú
pikkar út ýmis rök og gagnrýnir.
Þetta sýnir að þú ert úranus og
plútó. Þú hefur gaman af að rífa
niður..."
SS: „Nei alls ekki. Ég mundi segja
að ég væri mjög uppbyggingar-
sinnaður!"
ÞÚ ERT SVO MIKIL
MEYJA!
GG:....þú hefur gaman af að rífa
niður en getur líka verið já-
kvæður. Þú ert flókinn persónu-
leiki. Úranús hefur líka alltaf
gaman af að hafa rétt fyrir sér".
SS: „Það hafa allir. Þú hefur líka
gaman af að hafa rétt fyrir þér!“
ég hef rétt fyrir mér! Eg er bara
að reyna að sýna þér fram á það.
En þú ert svo mikil meyja, jarð-
bundinn í eðli þínu, að þú þarft að
fá áþreifanlega sönnun.
Hlustaðu nú: „...sjálfsupptekinn og
frekur og átt erfitt með að hlusta
á skoðanir annarra"."
SS: „Nei, þetta er sko ekki rétt. Ég
væri ekki að ræða við þig ef ég
vildi ekki hlusta á skoðanir
annarra, þótt ég sé ekki endilega
sammála! Ég held að persóna
hvers manns sé alltof margbrotin
og flókin, að ómögulegt sé að
setja hana undir áhrif stjarna í
milljón kílómetra fjarlægð. Það
þarf svo lítið til að setja eina
manneskju út af laginu og þá
skiptir engu máli hvort hún er
meyja, bogmaður eða naut.“
GG: „Stjörnuspekin er í raun nátt-
úrutæki sem þú getur notað til að
finna náttúrulegan rytma þinn og
komast nær sjálfum þér, ef upp-
eldið eða umhverfið hafa ýtt þér í
burt frá sjálfum þér."
SS: „Ég trúi ekki að það sé hægt
að leggja plagg fyrir sæmilega
margbrotna manneskju og benda
henni á leiðir til að ná sambandi
við sjálfa sig.“
GG: „Jú ég geri það. Ég vinn við
það.“
SS: „Það hlýtur þá að vera mjög
erfið vinna! Er það ekki bara fólk
sem efast um eigin getu, finnur sig
vanmáttugt? Það er eins og fólk sé
að reyna að þefa uppi hæfileika
sem ekki eru fyrir hendi?"
GG: „Alls ekki. Sumir kannski en
fæstir. Fólk getur fundið hjá sér
löngun til að gera eitthvað en fær
enga hvatningu frá fjölskyldu. Það
er mannlegt eðli að leita staðfest-
ingar á einhverjum hæfileikum ef
fólk er óöruggt. Þú ert svolítið
öfgafullur."
SS: „Nei, alls ekki. Það er skóla-
bókardæmi um sjálfan mig að vilja
fara aðra leið en fjölskyldan hefði
kosið. Hins vegar þurfti ég hvorki
að leita til sálfræðings né stjörnu-
spekings!“
GG: „Þú ert úranus, mjög frekur
og gast risið upp gegn þessu.
Veistu, að þú ert smart útgáfa af
stjörnukortinu þínu! Dæmigerð
meyja og plútó. Þú rífur niður og
ert mjög neikvæður. Plútópersónu-
leiki og meyja lýsa sér með því að
þau vilja hreinsa út sorpið. Þú
horfir raunsæjum augum á nei-
kvæðar hliðar lífsins. Eins og
Helgarpósturinn. Hann er í raun-
inni plútó-blað! Veltir ofan af spill-
ingunni í jákvæðum tilgangi.
Þannig ert þú líka."
SS: „Það er ekkert neikvætt að
horfa á neikvæðar hliðar! Var svo
ekki einhver sem söng: „Horfðu á
björtu hliðarnar?!" En það hljóta
margir aðrir að horfa gagnrýnum
augum á lífið þótt þeir séu ekki í
meyjarmerkinu!"
GG: rÞeir eru þá „Plútó" eins og
þú. Ég kalla þá annaðhvort
„garðyrkjumenn", menn sem reyta
arfa, eða „öskukalla", menn sem
eru í sorpinu."
SS: „Ertu núna að tala um mig
sem Eurovision-mann??!"
GG: „Nei, en þú horfir á sorpið í
mannlífinu í þeim tilgangi að
hreinsa það í burtu. Það er hluti af
persónuleika þínum."
SS: „Það flokka ég undir að ég sé
jákvæður en ekki neikvæður..."
GG: „Já, ef þú passar þig á að
festast ekki í því.“
SS: „Þá hlýtur Jesú að hafa verið
óskaplega mikill Plútó."
GG: „Þarna get ég sýnt þér fram á
hvað stjörnuspekin getur gert fyrir
þig. Þú keyrir kannski of mikið á
því að vera neikvæður og þá
getur stjörnukortið þitt bent þér á
það þannig að þú varist það. Þú
rífur sjálfan þig örugglega í spað,
því þú horfir ekki bara á nei-
kvæðar hliðar lífsins, heldur einn-
ig þínar eigin neikvæðu hliðar."
SS: „Það hljóta allir að vera gagn-
rýnir. En það er ekki þar með sagt
að menn dragi sjálfa sig niður. Það
hef ég aldrei nokkurn tíma gert.“
ER MÉR ILLA VIÐ
ATHYGLI!
GG: „Svo ertu með minnimáttar-
kennd. Þú ert með mikilmennsku-
brjálæði af því þú ert með minni-
máttarkennd. Þú ert mjög feiminn,
sem er rísandi krabbi. Þér er illa
við athygli."
SS: „Er mér illa við athygli? Nei,
þá sæti ég sko ekki hér. Eg er
athyglissjúkur. Ég þrái að fá mynd
af mér í Helgarpóstinn!"
GG: „En að hluta til er þér illa við
athygli Hluti af þinni kerskni er
að þú hefur þróað hana sem
vörn."
SS: „Þá hef ég alltaf verið mjög
þroskaður því ég hef verið svona
frá því ég var barn."
GG: „Þú hefur gaman af að vera á
móti. Þú hefur gaman af að ögra
mér, gaman af að ögra umhverf-
inu. Það er í hrútseðli þínu að
vera á móti.“
SS: „Ég er ekki á móti bara til að
vera á móti!“
Þrátt fyrir ýmsar mótbárur var
Sverrir sammála þeirri lýsingu
sem stjörnukortið gaf af honum.
Sérstaklega þegar kom að lýsingu
á skapferli, sem við skulum láta
liggja milli hluta! En hvað segir
Gunnlaugur um 30. apríl^ daginn
sem Sverrir keppir fyrir Islands
hönd í Dublin?!
„Ég spái aldrei neinu, en þann
dag er júpíter í mjög hagstæðri
afstöðu við sól, og nú er vel-
gengnistími í lífi þínu," sagði hann
við Sverri. „Það ættu ekki að
verða nein vonbrigði fyrir þig
persónulega og þú ættir að koma
út úr þessu með sæmd. Hins
vegar get ég ekki spáð og veit því
ekkert í hvað sæti þú lendir. Þú
hefðir átt að velja spákonuna!"
HELGARPÓSTURINN 15