Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 29

Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 29
llFimmtudaginn 7. apríl kærðu þær Ingibjörg Hafstað og Magda- lena Schram tímaritið Samúel vegna forsíðumyndar á aprílhefti tímaritsins. Kæruna sendu þær rannsóknarlögreglustjóra, Boga Nílssyni, í pósti sama dag. Þær Ingibjörg og Magdalena töldu efni forsíðunnar brjóta í bága við 210. gr. almennra hegningarlaga, sem fjall- ar um dreifingu og útbreiðslu kláms. Bogi Nílsson taldi í samtali við HP, að málið hefði farið frá RLR til saksóknara. Síðan hefur hvorki heyrst stuna né hósti vegna málsins. Það voru skjótari viðbrögðin þar á bæ í Spegilsmálinu sællar minn- ingar, en þá var líka guðlast með í spilinu. . . A ^^TBUþjoðlegu samtökin Amn- esty International, sem fylgjast með mannréttindabrotum um allan heim, eru með öfluga deild hér á landi, sem notið hefur velvildar og stuðnings flestra aðila í þjóðfélag- inu. Nú hefur óvænt hindrun orðið á vegi samtakanna hér. Þannig er að fréttum af mannréttindabrotum er nú gjarnan dreift á myndböndum. Með nýju tollaiögunum verður undantekningarlaust að borga toll af slíkri vöru. Það er þó ekki það versta. Tollpóststofan var engan veginn undir slíkar breytingar búin og afgreiðsla gengur þar grátlega seint. Því þurfa ýmsir starfsmenn fé- laga og stofnana að eyða miklu af Krydd er kjarni fœdunnar -ÍVuufi/ SKIPHOLTI 1 SÍMAR 23737 OG 23738 starfstíma sínum á biðstofu stofnun- arinnar og fylla þar út skýrslur, flóknar og viðamiklar. Einstakling- ar geta fengið aðstoð, en ef félaga- samtök eiga í hlut er aðstoðin felld niður og i staðinn afhentur þykkur doðrantur til að læra á „sýstemið”. Starfsmaður Amnesty telur að leita þurfi austur fyrir tjald til að finna hliðstæðu í skriffinnsku og hömlum á upplýsingaefni. Það er svo heldur broslegt, að ef efni myndbandanna væri sent í gegnum gervihnött væri hægt að taka þetta upp í stofunni heima hjá sér — og án þess að borga toll... Veldu rétt, hafðu allt á þurru í þínum bílakaupum ÞAÐ ER UMDEILANLEGT HVER SÉ „besti bíll í heimi6í en við fullyrðum að Daihatsu er og hefur verið einn besti endursölubíllinn á íslandi, ódýr í rekstri og hefur staðist íslenskar aðstæður með sóma síðastliðin 10 ár. Vandaðu valið Daihatsu er rökréttur valkostur Daihatsu Charade 3 dyra, 4 gíra TS, kr. 429.900. 5 dyra, 4 gíra CS, kr. 444.900. Öll okkar verð miðast við að bifreiðin sé skráð og tilbúin til afhendingar. Metallic litur og ný númer eru ekki innifalin í verði. SÖLUUMBGÐ: Rúsínan í pylsuendanum Vandað útvarps- og kassettutæki innifalið í verðinu. 25% útborgun og eftirstöðvar á allt að 30 mánuðum Njarðvík, símar: 92-14044, 92-11811 Akureyri, símar: 96-27255, 96-23213 BRIMBORG HF. ÁRMÚLA 23, RVlK, SlMAR: 685870 og 681733 AUK/SlA K95-46 ora 1 grænmetí FERSKT OG LJÚFFENGT! HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.