Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 40

Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 40
Stöðvar 2 þekkja hinn vinsæla þátt Bjargvættinn, eða „Equalizer" eins og þættirnir heita á frummál- inu. Nú munu þeir sem best þekkja til gangs mála hjá SAÁ vera farnir að kalla Ámunda Ámundason þessu auknefni og er hann aldrei kallaður annað en Bjargvættur- inn. Svo mjög hefur Ámunda tekist aö grynnka á byggingarskuldum þeim sem SÁÁ var með á bakinu. Og það hefur ekki tekið ..Bjargvætt- inn" nema rúmt ár að snúa vörn í sókn. Geri aðrir betur. . . ÍEiinn af ófáum toppmönn- um sem vikið hafa úr stöðum sínum á undanförnum dögum er Jón H. Bergs, forstjóri Sláturfélags Suð- urlands. Uppgefnar ástæður eru skoðanaágreiningur sem viðkom- andi vilja ekki skýra nánar. Það er hins vegar Ijóst að rekstur SS hefur ekki gengið vel og hefur heyrst að rekstrartap á Nýjabæ hafi verið 60 milljónir króna á síðasta ári. Þá er þvi einnig hvíslað að SS ætli að hætta rekstri nokkurra smásölu- verslana sinna hér í höfuöborginni og að um 200 starfsmenn SS megi eiga von á uppsagnarbréfi á næst- unni. . . ^^^VÍargir hafa orðið til að undrast kappið sem hlaupið er í Magnús L. Sveinsson, forseta borgarstjórnar Reykjavíkur og for- manns VR, í verkfallsmálum versl- unarmanna, enda VR ekki þekkt fyrir verkföll og harðar aðgerðir undir stjórn Magnúsar. Þeir sem gerst þekkja til innan Sjálfstæðis- flokksins telja að ein skýring á verkfallsumsvifunum, þ.e. þegar umhyggjunni fyrir láglaunafólkinu sleppir, sé að Magnús L. ætli sér stærri hlut á vettvangi Alþýðu- sambands íslands og meiri völd en hann hefur haft hingað til við Grensásveg. Benda menn í þessu sambandi á að í haust sé ASÍ-þing og að allar forsendur í samfylkingu for- ystumanna á þeim bæ hafi brostið með útreiðinni sem Ásmundur Stefánsson hlaut í alþingiskosn- ingum á síðasta ári og því fylgistapi sem Alþýðubandalagið varð fyrir. Það er e.t.v. ekki út í hött að verk- fallsátökin í VR séu forleikurinn í stærri átökum i verkalýðsforystunni þegar líður á árið. . . vitir mmtÁ Frá því að Victor VPC kom á markaðinn hefur hún verið mest selda einmenningstölvan á ísl- andi. Á tímabilinu frá ágúst 1986 til ágúst 1987 hafa hátt á þriðja þúsund Victor tölvur verið teknar í notkun hér á landi. Það segir meira en flest orð um vinsaeldir, ágæti og fjölhæfni Victor tölvanna. VictorVPC III er nýjasta einmenningstölvan í Victor fjölskyldunni. Hún er AT samhæfð og hentar því vel fyrirtækjum og stofnun- um. VPC III er með byltingarkenndri nýjung sem felur í sér möguleika á 30 mb færanlegum viðbótardiski, svokölluðum ADD-PACK, sem smellt er í tölvuna með einu handtaki. Sér- lega hagkvæmt við afritatöku og þegar færa þarf upplýsingar á milli tölva, s.s. fyrir endurskoðendur o.þ.h. Einnig fáanleg með 60 mb hörðum diski (samtals 90 mb með ADD-PACK). Victor tölvurnar eru nú í notkun í öll- um greinum atvinnulífsins og reynast einstaklega vel við erfiðar aðstæður. Helstu ástæður vinsældanna eru án efa afkastageta, stærra vinnslu- og geymsluminni, falleg hönnun, hag- stætt verð og síðast en ekki síst góð þjónusta. Bilanatíðnin er einhver sú lægsta sem þekkist, þrátt fyrir að Victor hafi rutt brautina með fjölmarg- ar nýjungar. Og nú fylgir MS-Windows Write & Paint forritið öllum Victor tölvum sem eru með harðan disk. Þrjár gerðir Victor einmenningstölva eru nú fáanlegar: Victor VPC Ile, Victor V 286 ogVictorVPC III. Victor þjónar stofnunum og fyrirtækj- um í iðnaði, sjávarútvegi, landbúnaði, verslun, þjónustu sem og mennta- stofnunum, námsmönnum og ein- staklingum. Victor getur örugglega orðið þér að liði líka. Athugaðu málið og kynntu þér Victor örlítið betur - þú verður ekki svikinn af því! EinarJ. Skúlasonhf. Grensásvegi 10, sími 68-69-33 OPIÐ virka daga kl. 9—18 laugardaga kl. 10—12 innréttinga- húsiö Háteigsvegi 3 Sími 27344 f’Jddhús med 12 mánaða M

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.