Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 35
strönd í nokkurn veginn beinni línu
sem myndar þá eins konar virkis-
vegg fyrir framan borgina. Þetta var
mjög algengt áður. Annars er það
ekki okkar hönnun sem ákvarðar
þetta heldur skipulag götunnar og
hugmyndir skipuleggjenda um
þessa áberandi framhlið Reykjavík-
ur frá sjónum séð. Þarna verða há
hús, en á milli koma líka lægri hús
sem byrgja ekki sýn fyrir eldri húsin
sem standa ofar í holtinu. Holtið
mun síðan hlú á móti að stóru hús-
unum svo þau skaga ekkert upp úr.“
— Skúlagötuskipulagið uppkom-
ið mun gjörbreyta svip borgarinnar
frá flóanum séð, þetta er áberandi
framhlið eins og þú sagðir, hvernig
líst þér á þetta skipulag?
„Við erum þarna að tala um mjög
miklar byggingarframkvæmdir svo
að segja í miðbæ Reykjavíkur. Þetta
verður gífurlega mikil byggð. Ef við
miðum við hvernig þetta er í dag,
alls kyns skemmur og hús að hruni
komin og auð svæði á milli, þá held
ég að allt sem getur komið í staðinn
verði „grand“, laglegt og jákvætt."
— Manni finnst í gegnum árin að
heildarskipulag, sérstaklega í eldri
borgarhlutum, nái illa fram að
ganga. Það hefur verið hætt í miðju
kafi þegar ný stjórnvöld eða nýjar
hugmyndir hafa komið fram. Niður-
staðan verður furðulegur bland-
stíll."
GAMLI MIÐBÆRINN
MAGNAST
„Já, þú þekkir Iðnaðarmannahús-
ið við Hallveigarstíg, það stendur
þar eins og illa gerður hlutur í
gömlu borgarhverfi, eins og lítil
eyja. Húsið tilheyrir allt öðru skipu-
lagi og allt annarri hugsun. Morgun-
blaðshúsið stendur alltaf örlítið
skakkt við Aðalstrætisgötuna vegna
Suðurgötunnar sem þangað átti að
ná. Þetta er auðvitað mjög bagalegt.
Einu sinni var allt skipulagt með
þarfir bilsins í huga. Það voru bíla-
brýr hér þvers og kruss, sem betur
fer urðu þær aldrei að veruleika.
Þannig er það líka happ að skipulög-
um af þessu tagi var ekki framfylgt.
Við Skúlagötuna mun skapast að
mínu mati skemmtileg heildar-
mynd, ef skipulaginu verður fylgt til
enda. Utan frá séð er Skúlagatan eitt
af andlitum Reykjavíkur. Hún er
ekki beysin í dag. Það blasir ekkert
fögur sjón við þeim sem koma með
skemmtiferðaskipum inn á ytri
höfnina í Reykjavík."
— Hvað með mannlífssjónarmið,
er mögulegt að gera umhverfið
mannlegt og skemmtilegt sam-
kvæmt þessu skipuiagi?
„Ég vil frekar horfa á þetta frá
öðru sjónarhorni. Mér finnst hitt
miklu merkilegra við þetta skipu-
lag, hversu nálægt miðbæ Reykja-
víkur húsin munu standa. Það hafa
nánast engar íbúðir verið byggðar
svo nærri miðbænum í fjölda ára
fyrir utan nokkrar íbúðir í húsinu
við hlið Hótels Borgar. Með þessum
húsum bætist við þrjú hundruð
manna byggð og mikið fjölmenni
bætist svo við þegar allt skipulagið
verður komið. Þessir íbúar koma til
með að nýta sér nálægðina við
Laugaveginn og miðbæinn. Þetta
mun gefa gamla miðbænum endur-
nýjaðan kraft og það finnst mér ekki
síst stórkostlegt. Við vinnum með
umhverfið í kringum húsin, búum til
útivistarsvæði með grasi, gangstétt-
um og görðum. Hér eru allt aðrir
hlutir á ferð en til dæmis uppi í
Breiðholti, hér eru möguleikarnir
ailt aðrir.“
HLUTVERK ARKITEKTA
„Við arkitektar byggjum ekki
nema svona tíu prósent af íbúða-
markaði hér á íslandi, önnur hús
eru verk byggingarfræðinga og
annarra tæknimenntaðra manna.
Þannig er þetta því miður, sérstak-
lega vegna þess hve gæðin eru bág-
borin víða. Við fáum iðulega inn á
borð til okkar teikningar af reistum
húsum og erum beðin að gera eitt-
hvað fyrir þau. Oftast er ekkert
hægt að gera nema með gífurlegum
tilkostnaði, vegna þess að það húsið
varð aldrei neitt neitt. Arkitektar
hér fá svona tvö prósent af bygging-
arkostnaði fyrir að hanna hús. Þetta
er auðvitað sáralítið hlutfall, þetta
er sama upphæð og fasteignasali
fær fyrir að selja það. 1 Sviss eru koll-
egar okkar með 15 til 17 prósent
byggingarkostnaðar. Þeir geta dúll-
að sér við að teikna eitt einbýlishús
í heilt ár. Þegar fólk lætur hanna hús
sín á annað borð á ekki að skipta
máli hvort það borgar 100 þúsund
krónur eða 200 fyrir, þegar húsið
sjálft á að kosta yfir 10 milljónir. Ef
fólk sparar hönnunarkostnað er
það að spara á algjörlega vitlausum
enda. En þetta gerist og niðurstaðan
er heilu hverfin sem eru afar sorg-
leg, því þau eru svo illa hönnuð. Eg
veit ekki hvað við arkitektar getum
gert til að breyta þessu. Kannski ætt-
um við að ráða auglýsingastofu í
áróðursherferð . . .
Við höfðum góða þróun í bygging-
armálum fram til 1950, eins og sést
á mörgum eldri hverfum frá þeim
tíma, til dæmis Hávallagötu og
Garðastræti, en upp úr því er eins og
verði sprenging og það fer bara allt
í rugl. Það er eins og hver arkitekt
og hönnuður komi heim og þykist
vita allt um leið og hann setur fótinn
á fósturjörðina."
UMGJÖRÐ MANNLÍFS
— Það virðist alveg vanta
arkitektaumræðu hér.
„Þetta á sér skýringu í menntun
arkitekta. Við erum ekki með skóla
hér og við förum til Danmerkur,
Frakklands, Þýskalands, Ítalíu,
Mexíkó, Bandaríkjanna, út um allan
heim. Það er svo sem ágætt út af fyr-
ir sig, maður verður fyrir áhrifum
frá því landi sem maður dvelur i og
kemur heim með erlenda strauma
og mismunandi stíl. En þetta gerir
það að verkum að ísland týnist
kannski á meðan. Og heim komin
getum við varla talað saman séum
við menntuð hvert í sínu landinu,
vegna þess að við höfum svo ólíka
menntun og bakgrunn. Ef við tölum
um danska arkítekta veit sá Banda-
rikjamenntaði ekkert um hann og
eins öfugt. Grunnnám hér, eða eftir-
menntun, kannski tvö til þrjú ár,
myndi gjörbreyta þessu. Þá myndi
skapast umræðugrundvöllur meðal
arkitekta. Niðurstaðan yrði síðan
einhvers konar samruni í hönnun
og mynd íslenskra byggða yrði heil-
legri.“
— Mér sýnist á allra nýjustu skipu-
lagstillögum að það eigi að gera til-
raun til að skapa heillega mynd
hverfa og gatna. Svo veit maður
ekki hvað gerist í raun.
„Ég hef þá von og reyndar trú að
við séum frekar að þróast fram á
veginn en afturábak. Að hverfa-
skipulög og byggingar í framtíðinni
stefni að þvi að skapa mannlífinu
fallegri og skemmtilegri umgjörð.
Skúlagötuskipulagið er vonandi
hluti af því.“
Skúlajgatan mun á næstu árum gjörbreyta um
svip. I sumar ris fyrsti áfanai nýs skipufags
sem ajörbreytir andliti Reykjavíkur ut á
Faxaflóann.
\/
1
!
i
1
i
□
□
i
□
n
□
J. .L _-JJ . K/
HELGARPÓSTURINN 35