Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 2
Ferð þú núna á Stjörnuna? Jónas R. Jónsson dagskrárstjóri Ljósvakans „Nei, ég fer ekki á Stjörnuna!" Langar þig aö breyta til og fara í eitthvað annað starf en við fjölmiðla? „Já, ég gæti alveg hugsað mér að breyta til." Er fjölmiðlastarfið kannski ekki eins skemmtilegt og það hljómar? „Jú, það er skemmtilegt starf. Þetta er eins og öll skemmtileg vinna að hún er krefjandi en númer eitt, tvö og þrjú er þetta vinna." En hefurðu eitthvert sérstakt starf í huga sem þig lang- ar að taka aö þér? „Nei, ekki nema hvað mig hefur lengi langað til að opna veitingastað, en ég veit ekki hvort ég læt verða.af því núna." Veitingastað með einhverjum sérstökum réttum? „Já, ekki af danska skólanum eins og allir eru með hérna! Ég hef ákveðna fyrirmynd í huga þar sem matur yrði fram- reiddur á sérstakan hátt." Hvað fór úrskeiðis hjá ykkur á Ljósvakanum? „Við lékum of vandaða tónlist og sá hópur sem kann að meta það virðist ekki vera mjög stór." Var tónlistin of vönduð að þinu mati? „Já, ég held að óhætt sé að fullyrða það. Við stíluðum inn á of þröngan markað, of ákveðna stefnu, og upp á síðkastið vorum við með mjög mikið af klassískri tónlist, og sá hópur virðist ekki vera stór sem hlustar á klassík. Hins vegar hafði Ljósvakinn þakkláta og trygga hlustendur." Bendir þetta kannski til að sá hópur sem er á móti sí- bylju sé í rauninni ekki til? „Nei, ég held nú að hann sé til, en hins vegar er hann fá- mennur. I honum er aðallega eldra fólk, sem virðist ekki hlusta eins mikið á útvarp og yngra fólkið. Það kemur fram í hlustendakönnunni að milli kl. 12 og 1 á daginn bætist hópur fólks við hlustendur ríkisútvarpsins. Af því fólki sem spurt var í könnuninni voru ekki nema 10—15% sem hlust- uðu á útvarp að jafnaði, en hlustunin jókst um meira en helming í hádeginu. Þá var meirihluti hlustenda eldra fólk. — Persónulega er ég þó ekki sannfærður um gildi skoðana- kannana, sem byggðar eru á jafnlítilli svörun og raun varð á í þessari hlustendakönnun." Er fjölmiðlamarkaöurinn þá orðinn mettur? „Já, sæmilega mettur mundi ég telja." Hlustar þú sjálfur mikið á útvarp? „Já, ég hlusta mikið á útvarp, mest á Ljósvakann." Og hvaö gerirðu þá núna? „Nú fer ég aftur að hlusta á eigin CD-diska — og á Bylgj- una." Hvað finnst þér skemmtilegast að hlusta á? „Mér finnst skemmtilegast að hlusta á tónlist, einkum jazz. Ég hlusta einkum á útvarp á daginn og þá fyrst og fremst af tæknilegum ástæðum. Það er hluti af starfi mínu. Þess vegna hef ég ekki tíma til að setjast niður og hlusta á til dæmis viðtalsþætti. Á kvöldin hlusta ég ekki mikið á útvarp." Hvað tekur núna við hjá þér? „Ég veit það raunverulega ekki, nema hvað ég fer í tón- listarvinnu á næstunni. — Þetta með veitingastaðinn verð- ur varla að veruleika strax. Ég hafði ætlað mér að geyma framkvæmdir þess draums til elliáranna — og mér sýnist þau ekki komin enn!" Samkvæmt nýrri hlustendakönnun kom í Ijós að lítið er hlustað á útvarpsstöðina Ljósvakann, dótturfyrirtæki Bylgjunnar. Á mánu- daginn tóku forráðamenn útvarpsstöðvarinnar þá ákvörðun aö Ljósvakinn yrði lagður niður frá og með næstkomandi mánudegi, 25.epríl. Jónas R. Jónsson var dagskrárstjóri Ljósvakans. FYRST OG FREMST OG ein saga svona í vorkuldun- um. Maður að nafni Úlfur Helgi vatt sér inn í Idnadarbankann um daginn og ætlaði að fá sér ávís- anahefti með mynd af sér í. Það væri kannski ekki í frásögur færandi ef hann hefði ekki dregið upp mynd af úlfi sem hann vildi fá í heftið sitt. Honum var neitað um þetta í afgreiðslunni og þegar maðurinn vildi halda þessu til streitu fór málið til markaðssviðs bankans og endaði að lokum hjá einum af bankastjórunum sem neitaði að taka þessa beiðni alvar- lega. Náunginn hefur nú ákveðið að hætta viðskiptum við bankann. Það fyndnasta i málinu er þó að Úlfur segir að Iðnaðarbankinn hafi vísað sér á Búnaðarbankann í þessum efnum. Maður hefði nú haldið að þetta væri sjálfsögð þjónusta. . . I LISTAPÓSTI Boston-blaðsins The Tech er viðtal við bandarísku poppsöngkonuna Sinead O'Connor, sem mun hafa náð miklum vinsældum þar vestra, a.m.k. í Boston. Þar er spjallað fram og aftur um feril söngkon- unnar og lífsskoðanir, framtíðina og samtíð og þannig áfram sikk sakk fram og aftur grástrætið. Söngkonan nefnir meðal annars áhrifavalda sína í tónlistinni og þar komum við Islendingar inn í myndina: „What does she like? — Rap. I usually listen to Michael Jackson, the Smiths, Stump and the Sugarcubes, an Icelandic band that’s out right now that’s absolutely ... brilliant.” Hún nefnir hér þá ágætu sveit Sykurmolana og bætir meira að segja sérstak- lega við:...íslensk hljómsveit sem sker sig úr í dag, ég meina, hreint út sagt ... frábær." Svo mörg voru þau orð. Hinar litlu plötur Sykurmolanna fást í hljómplötu- verslunum í Boston sem öðrum borgum Bandaríkjanna og seljast þokkalega. Fyrsta stóra plata Sykurmolanna er væntanleg í næstu viku... FOLK, sem sendir mikið af bréfum, fær fljótt leið á því að skrifa nafn sitt og heimilisfang aftan á umslag eftir umslag eftir umslag eftir umslag... Það verða því eflaust margir glaðir, þegar þeir rekast á auglýsingu sem hangir uppi í verslun Pennans i Austurstræti. Þar er þreyttum bréfriturum nefnilega boðið að skrásetja nafn sitt og aðrar nauðsynlegar upplýsingar sem síðan verði prentaðar á mörg hundruð litla miða til að líma á umslög og aðrar sendingar. Viðskiptavinur, sem við fréttum af, lét ekki segja sér þetta tvisvar. Hann sagði afgreiðslustúlkunni hvað standa ætti á límmiðanum, greiddi henni 1.700 krónur og beið síðan þolinmóður eftir því að þriggja vikna afgreiðslufresturinn liði. Síðan eru hins vegar liðnir tveir mánuðir og ekkert bólar á miðunum góðu. Svo „okkar rnaður" skrifar enn og skrifar og skrifar og skrifar... UM daginn var á einni útvarps- stöðinni símatími (aldrei þessu vant) og ekkert merkilegt við það nema kannski hvað það er ómerkilegt. Þar var fólki gefinn kostur á að benda væntanlegum þátttakendum í Júróvisjón á hvernig þeir ættu helst að vera klæddir. Fólk fékk upplýsingar um hvernig sviðið á að vera, svart og svo ekki annað. Síðan var bara að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn. Nú er spurningin í sjálfu sér ekkert sérlega mikilsverð; hvort Sverrir Stormsker klæðist þessum eða hinum skónum. Það er hins vegar merkilegt hvernig dagskrárgerðarmönnum getur dottið annað eins í hug. Var ekki talað um fyrir einhverjum árum að menn hefðu tognað á heila ef þeir þóttu lítt stíga í vitið... ! 5TÓR orð' ER &RRR9 í>TILL IN6VK +1RRFN5te HELGARPUSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR Ráöhúsmáliö grafið Fimur á fæti og tungu viö fyrstu skóflustungu. Með Guörúnu P. er í pontu hann sté allar púðurkerlingar sprungu. Niöri „Samkvœmt öruggum heimildum DV mun Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður Breiðabliks, verða um kyrrl hjá félaginu en skipta um félag ella.“ STEFÁN KRISTJÁNSSON, BLAÐAMAÐUR Á DV i FRETT UM HANDKNATTLEIK Á MÁNUDAGINN 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.