Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 16
EFTIR JÓN GEIR ÞORMAR TEIKNING JÓN ÓSKAR an Reykjanesskaga, stór-Reykja- víkursvæðið, Kjalarnes og Akranes. Ennfremur verpa þeir svolítið í Leirársveit, Hvalfirði og fyrir austan fjall (sjá mynd). Oft hefur það heyrst að star- inn hreki aðrar fuglategundir á brott þegar hann sest að og hafa skógarþrestirnir í Reykjavík verið nefndir í því sambandi. Enda er starinn mjög harður af sér, frekur og duglegur. Ævar Petersen sagði að þegar um væri að ræða matargjafir að vetri væru star- arnir yfirgnæfandi, réðust jafnvel á dúfur, sem eru miklu stærri fuglar, og hrektu þær á brott. í sjálfu sér væri mjög erfitt að segja til um hvort skógarþröst- um hefði fækkað hér á landi. Stararnir hefðu yfirtekið suma náttstaði skógarþrasta og þeir orðið að fara eitthvað annað, en þar með væri ekki sagt að þeim hefði fækkað. Það gæti verið að þrestirnir færu að meira leyti til útlanda á veturna nú orðið, en varpstofninn á sumrin þyrfti ekki að vera minni fyrir það. Fleiri þættir blönduðust inn í þetta dæmi. STARAFLÓIN Það sem fyrst og fremst hefur valdið því að starinn er illa þokk- aður er flóin sem fylgir honum. Staraflóin lifir að vísu á mörgum tegundum fugla en vegna þess hve starinn er gefinn fyrir að verpa í nágrenni við mannabú- staði, jafnvel í húsum manna, berst flóin oftar á menn frá störum en öðrum fuglum. Ef menn vilja forðast starann er um að gera að byrgja vel öll op inn í húsið á einhvern hátt, jafnvel hin smæstu göt, því það er ótrúlegt hvað starinn kemst víða. Lítil hætta er á flóaplágu fyrsta árið sem stari verpir í mannabústöðum. Varhugavert er að loka innganginum í hreiðrið þannig að fuglinn komist ekki inn og mælst er til þess af mannúðar- og fuglaverndar- ástæðum að ekki séu gerðar ráðstafanir gegn staranum fyrr að varptíma loknum. Þá er rétt að hreinsa hreiðurstæðið, eitra með skordýraeitri og loka vendi- lega fyrir gatið. Aðalvandamálin skapast næsta vor á eftir ef hreiðrið er ekki hreinsað. Þetta stafar af því að flærnar sem lifa á staranum verpa eggjum í hreiðrið. Lirfurnar sem skríða úr eggjunum lifa á lífrænum efnum í hreiðrinu og halda áfram að þroskast eftir að fuglinn er farinn úr hreiðrinu, púpa sig og leggjast í vetrar- dvala. Flærnar eru um það bil fullvaxta þegar von er á star- anum í hreiðriö næsta vor og bíða hungraðar, hundruðum saman, eftir því að geta sogið úr honum blóðið. Ef komu starans seinkar eða lokað hefur verið fyrir gatið án þess að þrífa hreiðrið vel leita þær inn í húsið og leggjast á næstu blóöheitu skepnu sem þær komast í tæri við, mannskepnuna. Flóabit eru mjög óþægileg bit sem valda miklum kláða og geta komið hvar sem er á líkamann. Þegar maðurinn hefur á annað borð verið bitinn er ekki mikið hægt að gera við því. Það sem gildir er að komast fyrir upp- sprettuna, starahreiðrið. annan fótinn fram fyrir hinn, en hoppar ekki eins og t.d. skógar- þrestirnir. Störum hefur fjölgað mjög í Evrópu á þessari öld og þeir breiðst víða út. Er ísland dæmi um aukna útbreiðslu staranna. Ljóst er að þeir hafa um langan aldur flækst annað slagið hingað til lands og hafa komið hingað svo til árlega frá því um alda- mót, er menn fóru að gefa þessu gaum að einhverju verulegu leyti. Stararnir sem hingað koma hrekjast líklega af leið frá Skandinavíu til Bretlands. Þessa leið fljúga fuglarnir frá því í lok september þar til fyrstu viku í nóvember. Algengast er að starar komi hingað í október og passar það ágætlega við að þeir hrekjist af áðurgreindri leið vegna suðaustanvinda. Fuglarnir hafa svo vetursetu hér á landi. Óalgengara er að starar komi hingað að vor- eða sumarlagi, þó að slíkt sé ekki óþekkt. STARINN BREIÐIST ÚT Líklegt er að starar hafi verið byrjaðir að verpa í Hornafirði fyrir 7947, en þar fannst fyrsta starahreiðrið með eggjum það tiltekna ár. Um samfellt stara- varp hefur verið að ræða þar allar götur síðan. Varpið í Horna- firði er nokkuð sérstakt. Starinn hefur þar orpið úti í eyjunum við náttúrulegar kringumstæður frekar en í húsum mannanna. Jafnframt þessu borða stararnir náttúrulega fæðu í fjörunni frekar en að elta brauðið og sorpið í bænum. Þetta á aðallega við um sumartímann. í Reykjavík hófst staravarp í kringum 1960 en vegna „hag- stæðra" veðurskilyrða barst óvenjumikið af flækingsstörum hingað til lands á þeim árum. Síðan hafa starar orpið árlega í Reykjavík. Fyrstu árin áttu þeir erfitt uppdrattar og fjolgaði hægt en um og upp úr 1970 varð fjölgun þeirra mjög ör. Tíu ár eru síðan starar voru síðast taldir með skipulegum hætti í Reykjavík. Sú talning fór þannig fram að fuglarnir voru taldir þar sem þeir „nátta" sig í hópum og fjöldinn áætlaður út frá því. Samkvæmt talningunni var fjöldi varppara í Reykjavík á bilinu 500—1.000 og heildarfjöldi star- anna um 2.500. Ævar Petersen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræði- stofnun íslands, sagðist halda að svipaður fjöldi stara væri í borg- inni nú og fyrir 10 árum; ef eitt- hvað væri þá hefði þeim fækkað. Það gæti stafað af því að þeir hefðu dreifst út fyrir borgina (sjá línurit). Eftir 1970 hafa starar breiðst út frá Reykjavík. Landnám þeirra hefur gengið hægt vegna að- gerða mannfólksins til þess að halda þeim í skefjum. Nú nær varpsvæði stara yfir norðanverð- Staöir þar sem sést hefur til stara (spjaldskrá NÍ). Fengiö úr ritgerö Skarphéöins Þórissonar. Nef starans er dökkt á veturna en sítrónugult á sumrin. Ung- arnir eru grábrúnir. Starar „nátta" sig oft saman í stórum hópum, þá sérstaklega á haustin og veturna, þ.e. þeir safnast saman á ákveðna staði á kvöldin og setjast að yfir nóttina. Sem dæmi um stóra náttstaði starans í Reykjavík má nefna Skógræktarstöðina í Fossvogi, stúku knattspyrnuvallarins í Laugardal og norðurgafl Há- skólabíós. Á þessum stöðum má oft sjá þá svo hundruðum skipt- ir. Ennfremur eru stararnir oft margir saman í ætisleit. Þeir sem til þekkja segja star- ann vera duglegan, harðgeran og kvikan fugl. Hann er jafnvel sagður „gáfaður" vegna hermi- krákueiginleika sinna og er fjar- skyldur krumma, þeim athugula fugli. Það er gaman að kynna sér þá lyndiseinkunn sem staranum er gefin. Hann er sagður félags- lyndur en þrætugjarn. Margir kunna vel við þennan áhuga- verða söngfugl í kringum sig. Fleirum er þó meinilla við star- ann vegna flóarinnar sem nærist á honum og leggst stundum á menn, hefur reyndar reynst plága á fjölmörgum heimilum hér í borg. Starinn telst til spörfugla. Hann er vanalega yfir 20 cm að lengd, með langt og oddhvasst nef, stutt stél og hvassydda vængi. Staranum er þannig lýst að hann sé svartur ásýndum, með blárauðri og eirgrænni málmslikju. Á veturna er hann alsettur Ijósum dílum, aðallega á bringu og hálsi, og á þetta sérstaklega við um kvenfuglinn. # EFTIRHERMA Söngfugl er starinn ágætur. Það hljóð sem hann gefur vana- lega frá sér er eitthvað í líkingu við „tsjír". Að auki kemur frá honum aragrúi annarra hljóða, þegar hann flautar eða þegar það hlakkar í honum, og mynda hljóðin langt samfellt söngstef. Situr hann oft syngjandi í trjám, á húsþökum eða reykháfum. Starinn er rnikil eftirherma. Hægt er að kenna honum að segja nokkur orð úr mannamál- inu, en fáar fuglategundir geta lært það. Einnig getur hann hermt furðuvel eftir kalli og söng ýmissa annarra fugla. Komið hefur fyrir snemma á vorin að fólk hefur talið sig heyra lóusöng ofan af húsmæni. Þegar betur er að gáð hefur komið í Ijós að um stara er að ræða. Það sem líklega hefur gerst er að lóur hafa flogið syngjandi yfir og stararnir tekið hljóðin upp með það sama. Vegna þessa hefur oft verið talað um starann sem „gáfaðan" fugl. En fleira kemur þar til. Hann tilheyrir þeim armi spörfuglanna sem talinn er vera kominn lengst á þróunarbraut- inni. Ennfremur gengur hann eins og mennirnir, þ.e. setur 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.