Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 12
ULTRA
GLOSS
_ Ekkert venjulegt bílabón
X8*\ heldur glerhörö lakkbrynja!
VEIST
ÞÚ
MUNINN?
ULTRA GLOSS er eini bón-
gljáinn, fáanlegur á íslenskum
bensínsölum, sem þolir þvott
með tjörueyði. Þar með rætist
draumur bónara, um að glans og
glæsilegt útlit geti enst mánuð-
um saman.
Utsölustaöir:
£sso) stöövarnar.
fréttastofu sjónvarpsins eftir að
Ingva Hrafni Jónssyni fréttastjóra
var sagt upp störfum. Mun sérstak-
lega vera einhver titringur meðal
þeirra sem Ingvi Hrafn réð að stofn-
uninni. Stuttu áður en Markús Örn
Antonsson sagði fréttastjóranum
upp munu „yngri” starfsmenn
fréttastofunnar hafa reynt undir-
skriftasöfnun til stuðnings frétta-
stjóranum og stóð Hallur Hallsson
fréttamaður fyrir því. Undirtektir
voru, skv. heimildum HP, frekar
dræmar og munu eldri og reyndari
menn hafa færst undan að skrá sig á
listann og þótti fyrrnefnda hópnum
það súrt í broti. . .
isíklegt er talið að margir sæki
um starf fréttastjóra sjónvarps um
leið og það verður auglýst laust til
umsóknar. Menn kunnugir innvið-
Sennilega
LOFTORKU húsin eru í stuttu máli eitt það besta sem
húsbyggjendum býðst!
Einingarnar frá LOFTORKU hafa engar fastar stærðir,
auðveldlega má aðiaga þær hvaða húsateikningu sem
■
LOFTORKU húsin eru íslensk framleiðsla úr íslensku
byggingarefni, framleidd við bestu hugsanlegu að-
stæður og henta vel íslensku veðurfari.
er.
LOFTORKA framleiðir húsin og setur þau upp á bygg-
ingarstað, steypir loftplötu og gengur frá þaki.
LOFTORKU húsin eru úr vönduðum steinsteyptum ein-
ingum, sem springa ekki. Einingarnar eru vel einang-
raðar, samlokur með innbyggðum raflögn-
um, falla þétt saman og eru með varanlegri
ytri og innri áferð. Einingarnar eru steyptar
og járnabundnar saman á byggingarstað.
Framleiðslutími er stuttur, samsetning
húsanna er traust og varanieg.
LOFTORKA skilar þér traustu og vönduðu einingahúsi
á þvf byggingarstigi sem þér hentar.
Ef þú ert í byggingarhugleiðingum kynntu
þér LOFTORKU húsin, nútímalegan og
traustan byggingarmáta.
Hringið í síma 91-84090 eða 93-7113 og fáið
sendar ítarlegar upplýsingar um húsin frá
LOFTORKU.
oftorka sf. Borgamesi, simi 93-7113, kvöidsími 93-7155 Reykjavík, sími 91-83522, kvöldsimi 91-667211.
um á fréttastofu sjónvarps telja full-
víst, að settur fréttastjóri, Helgi H.
Jónsson, muni sækja um. Sigrún
Stefánsdóttir þykir sömuleiðis lík-
legur umsækjandi. Þáeru þegar
komin á loft nöfn Boga Ágústsson-
ar, Einars Sigurðssonar, fyrrver-
andi útvarpsstjóra á Bylgjunni, og
Ögmundar Jónassonar. Víst er að
útvarpsstjóra, Markúsi Erni
Antonssyni, sem hefur endanlegt
vald í málinu, verður nokkur vandi
á höndum þegar gengið verður frá
ráðningu nýja fréttastjórans og talið
líklegt að hann vandi val sitt vel og
taki sér lengri tíma en hann gerði
þegar Ingvi Hrafn var ráðinn á sín-
um tíma. . .
|k|
B ú líður að því að „Kaffi-
baunamálið” svokallaða komi fyr-
ir Hæstarétt, en málið verður dóm-
tekið þann 4. maí. Stjórn SÍS var á
sínum tíma, svo sem skiljanlegt má
telja, ekki par ánægð með niður-
stöðu Sakadóms Reykjavíkur,
sem komst að þeirri niðurstöðu að
um fjársvik og gjaldeyrislagabrot
hefði verið að ræða og að blekking-
um hefði verið beitt í viðskiptum SIS
við Kaffibrennslu Akureyrar.
Kjarni þessa máls var sá hvort SÍS
annaðist umöoðsviðskipti fyrir
KA, eða hvort um svokölluð versl-
unarkaup hefði verið að ræða.
Sakadómur taldi að um umboðsvið-
skipti hefði verið að ræða og sak-
felldi á þeirri grundvallarforsendu.
Þar sem stjórn SÍS sætti sig ekki við
þessa niðurstöðu höfðu þeir Guð-
jón B. Ólafsson og Valur Arn-
þórsson forgöngu um að fá þriðja
aðila til að gera úttekt á eðli þeirra
viðskipta sem áttu sér stað og þar
með hvort dómsniðurstaða Saka-
dóms væri rétt. Til verksins var
fenginn Guðmundur Einarsson
verkfræðingur og fór hann í gegn-
um feril þessara viðskipta frá
1979—1981. í stuttu máli var niður-
staða Guðmundar sú, eftir að hafa
leitað umsagnar hjá Ríkisendur-
skoðun, gjaldeyriseftirliti Seðla-
banka, tollstjóra, lagadeild og
viðskiptadeild HI og Verslunar-
ráði íslands, að hér væri ekki um
umboðsviðskipti að ræða og að
RLR, ákæruvaldið og Sakadómur
skildu einfaldlega ekki eðli viðskipt-
anna. Sakfelling hefði því verið
byggð á röngum forsendum og mis-
skilningi og því ekki um rétta niður-
stöðu að ræða. Það verður fróðlegt
að fylgjast með málsmeðferð Kaffi-
baunamálsins fyrir Hæstarétti og
hvort rétturinn tekur tillit til þessar-
ar niðurstöðu Guðmundar . . .
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.91-31815/686915
AKUREYRI:...96-21715/23515
BORGARNES:.........93-7618
BLÖNOUÓS:.....95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR: ....96-71489
HÚSAVÍK:....96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ......97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIROI: ..97-8303
interRervt
12 HELGARPÓSTURINN