Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 21.04.1988, Blaðsíða 28
tónlist? Þarna mátti finna tvo mikla messuþætti, Gloríu og Credo, sem eru gjörólíkir. Hjálmar nálgast text- ann á frumlegan og nútímalegan hátt, sem er í fullu samræmi við trú- arlegar vangaveltur hugsandi manna á okkar tímum. Ég vona að hann semji messuna til enda. Þá voru líka tvö yndisleg bænavers: Maríusonur mér er kalt, sem er gömul þjóðvísa, og svo engilbænin Ave María. Þetta eru einföld kórlög og inniieg; bæði perlur. Þá voru líka á efnisskrá Kvöldvís- ur um sumarmál við mikið ljóð Stef- áns Harðar Grímssonar sem endar svona: ... hljóð og fögur sem minn- ing / hrein og hvít eins og bæn. Þetta er ægifagurt kórlag, þrungið alvöru og fortíðarþrá. Þar eins og oftar minnir hugsunin nokkuð á Jón Leifs og er það ekki að undra. ís- lensk tónskáld geta ekki litið fram- hjá þeim manni. Lauffali var síðasta ljóð Snorra Hjartarsonar og samdi Hjálmar verðugt lag við það, sem flutt var við útför skáldsins. Halldór Vilhelmsson söng við undirleik Marteins H. Friðrikssonar. Hjálmar er á besta aldri og hefur nú þegar haft glæsilegan tónskálda- feril. Hann er meira en efnilegur — hann er ungur meistari. I verkum hans kristallast vandamál nútíma- tónlistar og þar með allrar listsköp- unar á vorum tímum, og tilvistar- vandamál allra manna. Það má segja að hann sé öflugur fulltrúi póstmódernismans. Hann hefur skrifað sig frá hreinræktuðum rað- stíl eða seríalisma til valkostastíls þar sem öll stílbrögð og tónlistar- reynsla rúmast hlið við hlið. Og um- fram allt forðast hann að lifa í fíla- beinsturni glæsieinangrunar. Hjálmar finnur til í stormum sinna tíma og reynir að skapa list, eins og Adrian Leverkúhn dreymdi um: List sem er heilbrigð á sálinni og er dús við mannkynið. Atli Heimir Sveinsson Sinfóníutónleikar Það var gott að fá Gilbert Levine hingað aftur eftir fimm ára fjarveru. Honum fylgdi alltaf gustur, og þar sem hann var nærri voru jafnan stór- atburðir í aðsigi. Undirritaður er honum eiliflega þakklátur fyrir frá- bæra stjórn hans á Silkitrommunni. Það voru ekki allir jafnhrifnir af Gil- bert og reynt var að standa á móti því að hann heimsækti okkur. En í millitíðinni hefur Gilbert „slegið í gegn“ eða „meikaða", og það all- rækilega: Hann er nú m.a. aðal- hljómsveitarstjóri Fílharmóníu- hljómsveitarinnar í Krakov; er hann fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem gegnir leiðandi stöðu í menningar- lífi austantjaldslands. Hann er eftir- maður fornvinar okkar Bohdans Wodiczko, en hann hóf sinn glæsi- lega feril í Krakov. Þar í borg hefur Krysztof Penderecki aðsetur, eitt þekktasta tónskáld vorra tíma, en hann kemur hingað á næstu Lista- hátíð og stjórnar einu stórverka sinna, Pólsku sálumessunni. Og Gilbert kemur líka og stjórnar Sinfó. Og nú ætti sambandið ekki að rofna úr þessu. Tónleikarnir hófust á Haustspili eftir Leif Þórarinsson frá árinu 1983. Þetta er saknaðarfull sorgarmúsík, en um leið dramatísk og tjáningar- rík. Leifur hefur verið að breytast og hér er hann kominn langt frá hinum kaldhamraða og meitlaða röðunar- stíl sem lengi einkenndi verk hans. En handbragðleikni og smekkvísi eru ávallt með miklum ágætum. Leifur reikar um tónlistarsöguna í þessu verki með „ósjálfráðum ívitn- unum“ eins og hann segir sjálfur. Og allt skeður þetta undir slikju tempr- aðra hljómsveitarlita. Ég bíð með óþreyiu eftir nýjum og stórum hljómsveitarverkum frá hendi Leifs. Þá kom Don Kíóte eftir Richard Strauss og sögumaður var sellósnill- ingurinn Mischa Maisky. Hann lék af mikilli snilld og leiðandi fólk í Sinfó átti mjög fallegar strófur í kammermúsíkköflunum með hon- um. Hljómsveitin fór á kostum og er þetta þó með erfiðari raddskrám. Gilbert Levine stjórnaði af öryggi og krafti. Og sama var að segja um síð- asta verkið á efnisskránni, Sjöundu sinfóníu Beethovens: hún var leikin af geysilegum eldmóði, líkt og ver- öldin öll lyftist í feikilegum gleði- dansi. Og það er í samræmi við hug- myndir Beethovens, sem var hömlulaus í snilld sinni þegar best lét. Atli Heimir Sveinsson - Við hja Lumex gerum fleira en að selja listræn- an Ijósabúnað, kaupun- um fylgir fagleg ráðgjöf um val og uppsetningu á réttri lýsingu. Gerðu kröf- ur og leitaðu til Lúmex. VERSLUN-RAFVORUR-TEIKNISTOFA SidumúJal2-sínii91-688388-108Reykjavík BORTÆKNI SF % n B 5 VÉLALEIGA - VERKTAKAR Nýbýlavegi 22 (Dalbrekkumegin), Kópavogi Sfmar 46980—46899 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.