Morgunblaðið - 05.01.1964, Side 31
ií'.l’ ,<ter ,i!
Sunnudagur 5. jan. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
31
— Gull íslands
Framh. af bls. 32
Plumet, sem Samivel hafði
með sér til íslands. Eru þetta
ákaflega fallegar og sérkenni
legar myndir og prentun á
þeim frábær. Taka þeir félag-
ar flest viðfangsefnin mjög
persónulegum tökum og eru
margar myndirnar sjálfstæð
listaverk.
Bókin er gefin út af bókaút-
gáfunni Arthaud í París, og
verður eins og aðrar bækur
Samivels þýdd á ensku og
þýzku. Segir útgefandi á bóka
kápu að nafnið ísland tákni
enn í eyrum of margra Erópu
búa litla, gráleita, fátæklega,
og líflausa eyju, hálftínda í
kuldaþoku heimskautsins. —
Þetta sé raunverulega alrangt,
þar eð ísland sé eins og þriðj
ungur Frakklands að stærð,
með lifandi jarðvegi, búið ó-
viðjafnanlegri litadýrð, ó-
mældum víðáttum og sólar-
dýrð, ísland sé fyrst og fremst
land náttúruundra, krystal-
tærra linda eða freyðandi
risafossa, fuglamergð, eld-
fjalla, jökla, stórkostlegra
eyðilegra stranda umluktra
höfum ólgandi af lífi, þar sem
selir og hvalir leika sér enn-
þá, Það sé ennþá eyja víking
anna, hinna ævintýraþyrstu
sjómanna, þaðan sem skip
Eiriks rauða héldu áður til
að finna Grænland og Norður
Ameríku. Það er Sögueyjan,
með frásögnum og hetjusög-
um, sem enn birtast í formi
nútíma bókmennta. Það sé
eyja þar sem býr hugrökk lítil
þjóð skálda og framkvæmda
samra manna, bezt merintaða
fólks í heiminum, er haldi
fast við gamlar erfðir og sé
þó í framsveit nútímaþjóða.
Og þessa þjóð kynni Samivei
í bókinni um „gull lslands“.
Er fengur að því, þar eð les-
endahópur hans er yfirleitt
menntafólk meginlandsins.
Jafnframt því hefur höfund-
ur gert kvikmynd frá íslandi
og er markaður kvikmynda
hans einnig félög mennta-
manna í Evrópu.
Danskennara-
samband stofnað
FÖSTUDAGINN 20. desember
sl. komu danskennarar saman að
Rauðagerði 10, og stofnuðu með
sér stéttarfélag. Félagið heitir
Danskennarasamband íslands,
skammstafað D. S.Í., og er lög-
heimili þess og varnarþing í
Reykjavík.
Félagið starfar í eftirtöldum
deildum: Ballet, samkvæmis- og
barnadönsum, step og akrobatik.
Þeir einir geta orðið meðlimir
félagsins, sem lokið hafa viður:
kenndu innlendu eða erlendu
(kennaraprófi í einhverjum af
framantöldum greinum.
Tilgangur félagsins er:
a) Að efla og samræma dans-
menntun í landinu.
b) Að gæta hagsmuna félags-
manna út á við og inn á við.
c) Að efla stéttvísi meðal dans-
kennara.
d) Að koma í veg fyrir að rétt-
ur félagsmanna sé fyrir borð
1 borinn í atvinnumálum.
e) Að auka dansmenntun félags-
manna.
Um kl. 9 í gærmorgun, |
’ laugardag, lentu f jórir bílar |
' í árekstri á mótum Skúlagötu
|og Vitastígs. Var hér um aft-
i anákeyrslur í hálku að ræða |
[ Bílarnir skemmdust aliir lít-1
'iilega, og sýnir myndin þrjá (
þeirra á árekstursstað.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
Viggó Jónsson
Fór hægt yfir brúna
og sá dauf hjólför
VIGGÓ JÓN8SON frá Víði-
hóli á Hólsfjöllum og Jón
Stefánsson í Möðrudal komu
að bílnum, sem valt út af veg-
inum við brúna á Bægisá á
gamlársdag. Þeir félagar voru
á jeppa á leið til Reykjavítour
og átti blaðið tal um þetta
við Viggó í sína í gær, en það
þykir einstök heppni að þeir
félagar skyldu veita hjólför-
unum út af veginum athygli
og vita þannig um mennina
niðri í árgilinu. Viggó sagði:
— Við vorum á leið suður.
Um 5 leytið komum við að
Bægisárbrúxvni. Það var orðið
dimmt, vegurinn var hélaður
og nokkurt svell undir, en
ekki þó mjög hált. Við tökum
þá eftir bílföirum, sem virtust
liggja út af veginum. Þau
voru heldur dauf og maður
tekur ver eftir í myrkri, en
óg fór hægt á brúna og sá
þau því. Eftir að við komum
yfir brúna, opnaði ég hurð-
ina og heyrði þá mennina
kalla á hjálp. Þeir höfðu orð-
ið bílsins varir og kölluðu.
Ég beindi vasaljósinu niður
brattan og um 6 m fyrir neð-
an kom ég auga á bílinn.
Piltarnir tveir voru fastir í
flakinu, fæturnir klemmdir og
þeim mæddi blóðrás, einkum
öðrum. En þetta eru hraustir
strákar og voru með fullri
meðvitund. Ekki vistsu þeir
hve lengi þeir höfðu verið
þannig. Þeir gátu sagt mér
hvar vökvatj akkurinn var
geymdur. Ég byrjaði að tékka
sundur stýrishúsið til að losa
þá, en félagi minn hljóp á
næsta bæ, sem ekki er löng
leið, til að ná í hjálp. Einnig
tókst mér að stöðva mjólikur-
bíl, sem fór um veginn.
Það liðu um 45 mín. þar til
við höfðum náð piltunum úr
flakinu. Lögreglan á Akur-
eyri, sjúkrabíll og læknir
komu eftir um klukkutíma.
Þeir fluttu piltana á sjúkra-
húsið á Akureyri.
— Hvenær fór næsti bíll á
eftir ykkur um veginn?
— Um það bil 15 mín.
seinna, en hann fór framhjá.
Rétt á eftir kom mjólkurbíll-
inn, sem ég stöðvaði.
Viggo og félagi hans héldu
svo áfram vestur í Skagafjörð,
og síðan til Reykjavíkur, þar
sem hann kvaðst ætla að fá
sér vinnu.
Flugfreyjur
Vér oskum a?S ráíSa íslðnzkar
stulkur, sem flugfreyjur til
starfa á flugleiðum utan U.S. A.
Fyrstu 6 mánuðina eru launin
kr. 13. 000. 00 á mánuði, síðar
geta þau orðið kr. 26. 000. 00.
Einungis ógiftar stulkur koma til greina
o£ verða þær. að uppfylla eftirfarandi
lagmarksskilyrði :
Aldur : 21-27 ára. Hæ’ð : 158-173 cm
Þyngd : 50-63 kg. Menntun : Gagnfræða
próf eða önnur hliðstæð ménntun. Goð
kunnatta í ensku ásamt einu öðr u erlendu
tungumáli ér nauðsynleg.
Þær stálkur, sem til ^reina koma',verða
að sækjá 5 vikna namskeið, ser að
kostnaðarlausu, í aðalstöðvum félagsins
í New York, áður en endanleg ráðning á
sér stað.
Skriflegar umsóknir berist skrifstófu
Pan American, Hafnarstr. 19 Reykjavík
fyrir 7.jan. 1964. Umsækjendur komi
til viðtals í HÓtel Sögu, miðvikudaginn
8. janáar kl. 10. 00 - 17.00.
A.MERÍCA.IV
ma
í þessi blaðahverfi vantar
Morgunblaðið nú þegar ungl-
inga, röska krakka eða eldraj
fólk til að bera blaðið til kaup
enda þess.
II
Grenimelur - Greftisg. II -
Austurbrún - Skeggjag. og
Rauðarárstíg 20-42 ■
Snorrabraut sunnanverða
og Auðarstræti - Skúlagata
Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðsins eða
skrifstofu.
ffaigtiitfrlafrifr
Sími 2 2 4 8 0