Morgunblaðið - 04.05.1967, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.05.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1967. 5 Leikfélag Akureyrar 50 ára Hátiðasýning á Jónsmessu- draumi eftir W. Shakespeare LEIKFÉLAG Akureyrar var srtofnað 19. apríl árið 1917 og er því nýlega orðið 50 ára. Af því tilefni sýnir félagið sjónleikinn Jónsmessudraum eftir William Shakespeare í íslenzkum snilld- •rbúnjngi Helga Hálfdánarson- ar, og er vandað til sýningar- innar eins og framast var unnt. Leikstjóri er Raghnildur Stein- grímsdóttir, leiktjaldamálari Aðalsteinn Vestmann og ljósa- meistari Árni Valur Vigósson. Dansa sömdu og æfðu Margrét Rögnvaldsdóttir og Ragnheiður Stefánsdóttir. Hátiðasýningin verður laugar- daginn 6. maí og einungis fyrir boðsgesti félagsins. Laugardag- inn 7. maí verður afmælishóf að Hótel KEA, en frumsýning sunnudaginn 8. maí. Af ýmsum ástæðum verður að hraða sýn- ingum, m.a. verða búningarnir, sem flestir eru fengnir að láni frá Englandi, ekki til afnota nema maímánuð. Sýningum hef- ir og seinkað vegna ýmissa ó- happa og jafnvel slysa. Jónsmessudraumur er 122. verkefni Leikfélags Akureyrar frá upphafi, og hátíðasýningin verður 1223. sýningarkvöld fé- lagsins. Ekki er svo að skilja, að engin leikstarfsemi hafi ver- ið hér í bænum fyrir daga Leik- félagsins. Fyrst er vitað um sjón- leikahald um 1850, er Narfi eftir Sigurð Pétursson sýslumann var sýndur. Margir einstaklingar og áhugamannahópar hafa haldið merkinu uppi á ýmsum tímurn, slitrótt þó, og nokkur félög hafa verið stofnuð beinlínis í því skyni að gangast fyrir leiksýn- ingum, svo sem Comediufélagið (um 1864), Gleðileikjafélagið (stofnað 1875), Gaman og alvara (1882—1886) og Leikfélag Akur- eyrar hið eldra (1907—1912). Þá hafa Templarar oift stutt vel leik listarlíf hér, m.a. reistu þeir á sínum tíma (1906—1907) leikhús það, sém enn er notað og jafnan hefir verið aðalaðsetur Leikfé- lags Akureyrar. í fyrstu stjórn L.A. voru þess- ir: Júlíus Havsteen, form., Hall- grímur Valdemarsson og Sigurð- ur. E. Hlíðar, en gjaldkeri utan stjórnar var Jóhannes Jónasson. Af stofnendum eru nú aðeins 3 á lífi, Gísli R. Magnússon, Tryggvi Jónatansson (báðir á Akureyri) og Hallgrímur Sig- tryggsson, nú búsettur í Rvík. Alls hafa verið 18 formenn, lengsit Hallgrímur Valdemarsson, hinn óþreytandi áhugamaður um hag og gengi félagsins, sem lát- inn er fyrjr nokkrum árum. Leikstjórar hafa verið margir, en flestum sýningum hafa stjórn að þeir Jón Norðfjörð, Ágúst Kvaran, Haraldur Björnsson, Ragnhildur Steingrímsdóttir og Guðmundur Gunnansson. Heiðursfélagar Leikfélags Ak- ureyrar eru fimm: Ágúst Kvar- an, Björn Sigmundsson, Svava Jónsdóttir og hjónin Sigurjóna Jakobsdóttir og Þorsteinn M. Jónsson. Síðar 1 sumar mun koma út veglegt og vandað a&nælisrit, prýtt fjölda mynda, og sér Har- aldur Sigurðsson um útgáfu þess. Hann er jafnframt fram- kvæmdastjóri afmælishátíða- •haldanna. Stjórn L.A. skipa nú: Jón •Ingimarsson, formaður, Kjartan Ólafsson, ritari og Kristján Kristjánsson, gjaldkeri. Vara- formaður er Guðmundur Gunn- arsson. Sv. P. ALLTMEÐ Berklavörn Reykjavík heldur Félagsvist í Skátaheimilinu við Snorrabraut laugardaginn 6. maí. — Síðasta spilakvöld vetrarins. Góð verðlann. — Mætið vel og stundvíslega. Afmælisrit IMenntaskól- ans í Reykjavík 120 ára RYA-TEPPIN kotnin aftur í miklu úrvali 6 stærðir. Ennfremur handofin indversk teppi og skozkmynztraðar Wilton mottur. Verzlunin IVfanchester SKÓLAVÖRÐUSTÍG 4. SKÓLAFÉLAG Menntaskólans i Reykjavík hefur gefið út af- mælisrit í tilefni 120 ára afmæl- is skólans. Forepj all skrifar Baldur Guðlaugsson, inspector scolae. Nokkrir fyrrum nemendur við skólann skrifa endurminningar frá verunni þar. Eru það: Séra Sigurbjörn Á. Gislason, dr. Sig- urður Nordal, Sigurður Gríms- son, lögfræðinígur, séra Gunnar Árnason, Sigurður Stefánsson, menntaskólakennari, Sverrir Kristjánsson, sagnfræðingur, Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra, Skúli Thoroddsen, læknir, Gunnar Norland, menntaskólakennari, Thor Vil- hjálmsson, rithöfundur, Vigdís Finnbogadóttir, kennari, Sveinn Einarsson, leikhússtjóri og Böðvar Guðmundsson, stud mag. Þá eru greinar eftir nokkra núverandi nemendur skólans. Baldur Guðlaugsson skrifar stutt ágrip af sögu skólans, Pétur Gunnarsson um Herranótt, Mótmæla „Kísilgúrvegi46 Mývatnssveit 21. apríl 1067. ALMENNUR sveitarfundur haldinn í Skjólbrekku 19. apríl 1967 vill harðlega mótmœla þéim ráðstöfunum opinberra aðila, sem hafa það í för með sér, að utan- héraðsmenn taka atvinnu af Þingeyingum, svo sem við lagn- ingu hins svonefnda „kísilgúr- vegar" og við byggingu íbúðar- húsa fyrir kisilgúrverksmiðjuna. Fundurinn telur það sjálfsagða réttlætiskröfu, að heimamenn fái að sitja fyrir allri slíkri atvinnu, og að verk séu ekki boðin út fyrr en fullreynt sé, að heimamenn treysti sér ekki til þess að vinna þaiu fyrir sanngjarnt verð — enda er slí'kt í fullu samræmi við gefin loforð ábyrgra aðila. Ofanskráð tiUaga sem kom fram á almennum sveitarfundi í Mývatnssveit var samþykkt í einu hljóði .Sveitarstjórn og aðr ir aðilar sem að tillögunni stóðu, óska eftir að Morgunblaðið birti hana. — Jóhannes. Daníel Þórarinsson um bókasöfn og bókhlöðu skólans, Vigfús Ásigeirsson um Framtíðina, Vil- mundur Gylfason um Skólablað- ið og hlutverk þess, Kristinn Ein arsson grein er nefnist Litið við á Landsbókasafni og Helgi Skúli Kjartansson grein er nefnd ist Menntaskólinn í Reykjavík anno domini 1967. — Einnig er í ritinu grein eftir Guðrúnu Helgadóttur, fulltrúa og samtal við Einar Magnússon, rektor, skráð af Þórarni Eldjárn. Ritið er 107 bls. að stærð í stóru broti, prýtt fjölda mynd- um. Framkvæmdastjóri sölumaður Framkvæmdastjóri óskast fyrir fyrirtæki sem verzlar með útgerðarvörur og aðrar skyldar vörur. Nauðsynlegt að viðkomandi sé vanur sölumennsku. Sameign gæti komið til greina. Góð laun — frjálst starfsvið. Umsóknir leggist inn á afgr. Morgunblaðsins fyrir 10/5 1967, merkt: „Framkvæmdastjóri — sölumað- ur — 2493“. Með umsóknina verður farið sem trúnaðarmál. Verzlunarhúsnæði í Árbæjar- hverfi til leigu Höfum til leigu húsnæði fyrir verzlanir og þjón- ustufyrirtæki í nýrri, glæsilegri verzlunarmiðstöð, sem nú er að rísa í vesturhluta Árhæjarhverfis. Húsnæðið er hentugt m. a. fyrir vefnaðarvöruverzl- un, efnalaug, rakarastofu, hárgreiðslustofu, tann- læknastofu, bóka- og ritfangaverzlun, snyrtivöru- verzlun og blómabúð. Þeir aðilar, sem óska nánari upplýsinga, svo og þeir, sem þegar hafa óskað eftir aðstöðu í húsinu eru beðnir að hafa samband við skrifstofu vora sem veitir allar nánari upplýsingar. □°D0JSS OD(0 D H □ HARALDUR MAGNÚSSON Viöskiptafræöingur Tjarnargötu 16, simi 2 09 25 og 2 00 25 , A NÆSTUNNI ferma aklp vor til íslands, sem hér jegit: ANTWERPEN: Marietje Böhmer 13. mai Seeadler 20. maí Askja 23. maí ** Marietje Böhmer 91. bmí HAMBURG: Skógafoss 11. mal Goðafoss 19. mai. *• Skógafoss 30. maL ROTTERDAM: Skógafoss 8. maf Goðafoss 16. maí ** Skógafoss 26. maí LEITH: Gullfoss 19. mai I Mánafoss 23. maí •* 9 Gullfoss 12. júni JLONDON: 3 J Mánafoss 5. maí •* ií Marietje Böhmer 10. mí j Seeadler 23. maí j Askja 26. maí ** ’ Marietje BÖhmer 2. júnl. 1 HULL: Rannö 5. mal Mánafoss 8. maí *• Marietje Böhmer 18. mat Seeadler 25. maí Askja 29. mai ** j Marietje Böhmer 5. júnl j NEW YORK: | Brúarfoss 8. maí Tungufoss 17. maí* Selfoss 2. júní ! GAUTABORG: Reykjafoss 18. mai Fjallfoss 23. maí** j Mánafoss 29. maí ** j KAUPMANNAHÖFN: j Dettifoss 12. maí j Gullfoss 17. maí > Fjallfoss 20. maí *• ! Mánafoss 27. maí ** ! Gullfoss 10. júní J KRISTIANSAND: j Reykjafoss 20. mai j Mánafoss 24. maí *• jOSLO: Reykjafoss 22. maí ;BERGEN: Fjallfoss 25. maí *• í KOTKA Dettifoss um 8. mai Lagarfoss um 2. júnl I VENTSPILS: Dettifoss 10. maí Lagarfoss um 38. mal i GDYNIA: Atzmaut 10. maí Bakkafoss um 31. mal í * Skipið losar á öllum aðaL höfnum Reykjavík, íca- firði, Akureyri og Reyðar- firði. Norðfirði.----—~ j •* Skipið losar á öllum aðal- höfnum auk þess i Vest- mannaeyjum, Siglufirði, Húsavík, Seyðisfirði Norðfirði. Skip, sem ekki eru merkt með stjörnu losa í Reykja- VÍli. EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.