Morgunblaðið - 08.10.1967, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKT. 1967
r:
Kuldahúfur
Glæsilegt úrval nýkomið.
Hattabúð Reykjavíkur.
Laugavegi 10.
Söltunarstúlkur
vantar til Seyðisfjarðar.
STRÖNDIN, sími 56 og 175.
Á dótturina í skólann:
Drumella-úlpán
Loðúlpa, hlý og falleg, nr. 34—40, stór nr.
Fæst aðeins hjá okkur.
Buxna-dragtir
Vandaðar, hlýjar og fallegar, margar stgerðir og
litir á 5 til 12 ára.
Vatteraðar regnkápur
Margir litir. Nr. 38—39—40.
Vetrarkápur
Fallegt úrval á 6—14 ára.
KOTRA
Skólavörðustíg 22C — Sími 19970.
Ingvar Pálmason,
skipstjóri, sjötugur
ÞRÓUN í&lenzkra fiskveiða á
þessari öld hefir verið æði stiór
brotin, þegar á allar aðstæður
er litið. Það sem er næst okkur
er sú miíkla sóknarlota, setm stað
ið hefur yfir í síldveiðunum um
nær áratugs skeið og borið hef-
ið svo ríkulegan ávöxt. Svo
sem jafnan áður hefir þessi sókn
verið borin uppi af einstökum
dugnaðarmönnum í hópi skip-
stjórnanmanna og útgerðar-
manna, sem studdir hafa verið
dugmiklum sjómönnum.
Einn þeirra manna, sem hér
hafa átt hlut að, stendur í dag
á sjötugu. Er það Ingvar Pálma
son, skipstjóri
Ingvar fæddist að Nesi í Norð-
firði og ólst þar upp og mun
hann raunar hafa verið búsett-
ur þar lengi fram yfir fertugt.
Á fyrstu áratugum aldarinn-
ar, uppvaxtarárum og fyrstu
manndómsárum Ingvars, var
fiskisæld á Austfjörðum og út
gerð tók þar að blómgast. Fór
Ingvar kornungur á sjóinn og
síðan í Stýrimannaskólann. Var
hann skipstjóri á öllum stærð-
um fiskiskipa um áratuga skeið
og toom snemma í Ijós, að hann
var fiskimaður góður. Minnist
ég þess þegar frá æskuárum
mínum á Norðfirði, að ég heyrði
talað um hann í hópi fremstu
manna á því sviði. Síðar varð
Ingvar svo í hópi beztu afla-
manna á siíldveiðunum.
Nú er það ekki ætlun mín að
VINNA
Tvær stúlkur óskast til matreiðslu og þjónustu-
starfa. Sérherbergi og fæði. Upplýsingar í sendi-
ráði Bandaríkjanna, Laufásvegi 21, sími 24083.
Síldarsöltun, mikil vinna
Söltunarstöðina Borgir vantar strax nokkrar góðar
síldarstúlkur til Raufarhafnar og síðar Seyðisfjarð-
ar, einnig unga reglusama pilta, til að salta.
Öll söltun fer fram í húsi. Fríar ferðir.
Nánari uppýsingar í símum 32799 og 22643.
JÓN Þ. ÁRNASON.
Höfum fengið nýja sendingu af hinum
viðurkenndu rafmagnsorgelum
„Solina“ og
„Eminent“500 de lux
Einkaumboð:
RADIÓVAL
Linnetsstíg 1 — Sími 52070, Hafnarfirði.
VIT A-albúmin vinsœlu
Enn ein sending komin
Utanbæjarmenn, skrifið eftir ókeypis
12 síðna verðlista yfir vörur okkar.
FRIMERKJASALAN S.F.
Týsgötu 1. — Sími 21170,
Tékkneskt Tékkneskt
postulin postulín
Matar- og kaffistellin
með haustlaufunum komin aftur.
Jón Hannesson & Co.
Skólavörðustíg 1A — Sími 15821.
Félagsheimiii Heimdallar
opið í lcvöld
rekja æviferil Ingvars, enda
brestur mig til þess persónu-
legan kunnugleika og mikill
hluti þess tímabils svo langt um
liðinn, að það var fyrir þann
tíma, að' ég fór verulega að
fylgjast með á þessu sviði.
Ég vildi hinsvegar minnast
hér eins þáttar ævistarfs Ing-
vars, sem ég þefckti vel til og
ég tel, að eigi að geymast.
Á síldarleysistímabilinu eftir
1944 og fram á síðari hluta
sjötta tugsins var mjög leitað
eftir nýjum leiðum sem verða
mættu til endurreisnar síldveið
unum. Voru margar nýjar hug-
myndir uppi um nýja veiði-
tækni, aukna síldarleit o. fl.
Um nokkurra ára skeið, milli
1950 og 1960, var Fiskifélaginu
faiið að annast vissa þætti þessi
ara máli, fyrir hönd jávarút-
málaráðuneytisins. Starfaði Ing
var þá með oik'kur um hríð.
'Svo var það veturinn 1956—
56, að Ingvar var staddur vest-
ur í New York og varð þá á-
skynja um notkun nýrrar gerð
ar af fflotvörpu við síildveiðar
vestur á Kyrrahafsströnd. Skrif
aði hann mér um þetta og lét
í ljós mikinn áhuga á að kynna
sér þessa nýjung. Varð úr, að
hann var styrktur til fararinn-
ar. Flotvörpuna og notkun henn
ar kynnti hann sér vei og þótti
hún merkileg en það var ann-
að, sem hann varð áskynja um
í þessari ferð, sem átti eftir að
hafa margfalt meiri þýðingu.
Var það kraftblökkin góða, sem
þá var nýlega tekin í notkun
við herpinótaveiðar á Kyrra-
hafsströndinni. Þessu lýsti hann
skilmerkilega í skýrslu, sem birt-
it í 8. tbl. Ægis 1956. Var Ingv-
ar ekki í neinum vafa um, eft-
ir að hann hafði séð kraft'blökk
ina í notkun, að hér var komið
tæki, sem bæti haft mikla þýð
ingu fyrir okkar síldveiðar. Átti-
það og eftir að rætast.
Árangurinn af þessari ferð
Ingvars var að kraftblökk var
keypt til landsins og hann var
með að gera fyrstu tilraunirnar
með hana á mb. Böðvari. sem
var í eigu Haraldar Böðvarsson
ar & Co. Var þetta vorið 1957.
En oft er það svo, að nýjungar
sanna efcki gildi sitt við fyrstu
tilraunir O'g enn leið nokkur
tími þar til kraftblökkin hélt
innreið sína. Hefir sú saga verið
rakin áður og er vel kunn. En
mér fannst rétt að nota tæki-
færið nú við sjötugsafmæli
Ingvars Pálmasonar að rifja
stuttlega upp þann þátt, sem
hann átti í því, að þetta þarfa
tæki og sú tækni, sem því er
samfara, barst hér til lands fyr
ir rúmum áratug.
En leiðir Ingvars og kraft-
blakkarinnar áttu eftir að
liggja saman aftur því á seinni
árum hefir það orðið hlutverk
hans að búa síldveiðiflotann
þessu tæki, en hann veitir nú
forstöðu fyrirtæki, em annast
innflutning á kraftblökkum og
raunar öðrum tækjum fyrir
fisfcMotann. Nýtur sín þar sem
bezt má verða hinn náni kunn-
ugleiki Ingvars á öllum veiðh
skap og aðstæðum um borð í
fiskisfcipum.
Ingvar er nú staddur erlend
is og sendi ég honum mínar
beztu árnaðaróskir og það með,
að hann megi enn lengi sinna
sínum störfum og hugðarefnum
til gagns fyrir íslenœkar fisk-
veiðar.
Davíð Ólafsson.