Morgunblaðið - 19.06.1968, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1968
13
Fjaðrir, f jaðrablöð, hljóðkútar
púströr o. fl. varahlutir
í margar gerðir bifreiðn
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegj 168 . Sími 24180
50 KRÓNA
VELTAN
vinsamlega gerið
skil í dag
Skrifstofa stuðningsmanna
G. T., Pósthússtræti.
Samantfha Eggar varð fræg
fyrir leik sinn í þessu hlut-
verki og hefur fram að þessu
aðeins sézt hér í litlum hlutverk
um. Leikur hún framúrskarandi
vel. Framleiðandi og leikstjóri
er hinn kunni William Wyler,
sem þekktur er fyrir betri gerð
Hollywood mynda. Er mynd
þessi í mörgu frábrugðin hans
fyrri myndum, en án efa ein sú
bezta.
ÓS.
RALEIGH
KING SIZE FILTER
Leið nútímamannsins til ekta
tóbaksbragðsins frá Ameríku
ÓLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM:
STJÖRNUBÍÓ
FÓRNARLAMB SAFNARANS
(The Collector)
Kvikmynd þessi er mörgum
kunn af umtali, áður en sýn-
ingar hófust hér, þar sem hún
hefur almennt fengið mjög góða
dóma erlendis. Segir myndin ein
kennilega sögu, af ungum manni,
sem vinnur stórfé í íþróttaget-
raun, Hættir hann störfum sem
bankamaður, fær sér hús úti í
sveit og sinnir sínu mikla hugð-
arefni, sem er söfnun fiðrilda.
En hann hefur annað hugðar-
efni. Hann hefur femgið ofurást
á stúlku úr heimaborg sinni, sem
er í listaskóla í London. Innrétt-
ar hann kjallara í húsinu, ræn-
ir stúlkunni og geymir hana þar.
Ætlar hann þannig að fá félags-
skap og skilning mannlegrar
veru, sem hann telur sig ekki
geta náð, í venjulegu mannlegu
samfélagi. Óttast hann að verða
hlægilegur og ekki skilinn, nema
með áframhaldandi kynningu.
Hann kemur af lítt menntuðu
lágstéttafólki, en faðir stúlkunn
ar er læknir. í brezku þjóðfé-
lagi staðfestir þetta mikið djúp
á milli þeirra. Hún talar með
þeim málhreim, sem við almennt
köllum brezkan, þó um sé að
ræða tiltölulega sjaldgæft yfir-
stétta og menntamannafyrirbæri
en hann talar málýsku, sem mig
skortir þekkingu til að staðsetja.
Þessi truflaði maður reynir af
fremsta megni að ná sambandi
við stúlkuna og umgengst hana
af vandvirkni og umhyggjusemi.
En ekki tekst honum að skilja
hennar hugsunarhátt. Hún reyn
ir aftur á móti allt sem hún get-
ur til að sleppa eða láta vita af
sér, en án árangurs. Hún er lok-
uð inni sem fangi geðbilaðs
manns, sem er ekki þægileg til-
finning og erfitt að meta hvað
eru eðlileg viðbrögð í slíku ti'l-
felli. Ekki fæ ég þó varist þeirri
hugsun, að flestar konur myndu
með sinni eðlislagni í að stjórna
karlmönnum, ná valdi yfir manni
sem þessum, sem hefur svo
marga snögga bletti í tilfinn-
ingalífinu. Henni tekst það ekki
og eykur á tortryggni og skiln-
ingsleysi hans með mörgu því
sem hún gerir.
Þessi skortur á sambandi mil'li
þeirra, þó að þau talist við, er
eitt af sjú'kdómseinkennum okk-
ar tíma. Við getum setið í stofu
og talað hvert sem er í heimin-
um, innan stuttrar stundar, en
foreldrar ná ekki sambandi við
börn sín, kynslóð skilur ekki
aðra kynslóð, stéttir skilja ekki
né skynja þarfir annarra stétta,
þjóðir vantreysta þjóðum og
sam/t er alltaf verið að tala. Það
er talað án þess að ná sambandi
í hugsunarhætti.
riði sem ég vildi breyta í leik
hans. Stamp hefur sézt hér áð-
ur í Modesty Blaise, en annars
að mestu í litlum hlutverkum.
Aðalhlutverk leika Samantha
Eggar og Terence Stamp. Leik-
ur hann hlutverk sitt af kunn-
áttu og sni'Ili í senn og við at-
hugun dettur mér í hug eitt at-
OPAL SOKKABUXUR
eru framleiddar úr úrvals crepegami.
OPAL SOKKABUXUR
eru framleiddar af stærstu sokkaverk-
smiðju Vestur-Þýzkalands.
OPAL SOKKABUXUR
eru fallegar og fara sérlega vel á fæti.
OPAL SOKKABUXUR
eru á mjög hagstæðu verði.
OPAL SOKKABUXUR
seljast þess vegna bezt.
Kaupið aðeins það bezta
Kaupið OPAL SOKKA
og SOKKABLXIiR
Einkaumboðsmenn:
Kr. Þorvaldsson & Co. heildverzl.
Grettisgötu 6, símar 24730 og 24478.
Húsmæður
Til sölu eða leigu er um 200 ferm. húsnæði í nýju
húsi vestarlega í Skipholti II. hæð, sérhitalögn.
Allt fyrsta flokks.
Upplýsingar í síma 11820.
KVIKMYNDIR