Morgunblaðið - 19.06.1968, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1968
21
Karlakór
kórinn á
ÞESS hefur^ oft verið getið í
fréttum frá ísafirði, að þar væri
blómlegt söng- og tónlistarlíf.
Við fengum að kynnast þessu
nokkuð af eigin raun síðastlið-
inn föstudag, er Karlakór fsa-
fjarðar og Sunnukórinn, alls um
70 manns, sungu hér í Gamla
Bíó. Söngstjóri var Ragnar H.
Ragnar, sem verið hefur söng-
stjóri kóranna Sl. 20 ár, og er
söngför þess farin jafnframit í
tilefni þessa afmælis. Söngskrá-
in var mjög fjölbreytt, alls 20
lög eftir innlenda og erlenda
höfunda. Það sem einkenndi
mest söng kóranna var frábær
sönggleði — sungið var af hjart-
ans list, sem hreif áheyrandann
með sér. Enginn skyldi ætla, að
slík gleði fáist, nema allir leggi
mikinn tíma, fyrirhöfn og alúð
við söngstarfið. Báru kórarnir
þess merki, að það hafði verið
gert.
Það gerði söngskrána tilbreyt
ingarmeiri, og þar skiptust á
karlakór, blandaður kór og
kvennakór, með og án undir-
söngurinn víða blæfagur og lit-
ríkur. Sérstaka athygli vakti
söngur kvennakórsins. Hann hef
ur á að skipa mörgum góðum
röddum, sem skiluðu sínu hlut-
verki með prýði. Ánægjulegt var
að heyra einsöng Margrétar
Finnbjörnsdóttur í Ave Maria
eftir Schubert, og jók það áhrif
söngsins, að Margrét skartaði ís-
Isafjarðar
Isafirði
lenzkum þjóðbúningi — peysu-
fötum, — sem hún bar með sóma.
Karlakórinn er einnig skipað-
ur mörgum góðum röddum. Ein-
söngvarar með honum voru
Gunnlaugur Jónasson, er söng
Litla skáld eftir föður sinn, Jón-
as Tómasson, og Gunnar Jóns-
son, er söng Rósina eftir Árna
Thorsteinsson í raddsetningu
söngstjórans. Hafa þeir góðar
raddir og fóru vel með h'lutverk
sín.
Sunnukórinn og karlakórinn
sungu m.a. tvö lög eftir Jónas
Tómasson: fslands fáni og Rjúfi
nú strengleikar. í seinna laginu
söng Guðmundur Guðjónsson ó-
perusöngvari einsöng. Og loka-
lag söngskrárinnar var Dónár-
valsar eftir J. Strauss. Náði
sönggleðin þar hámarki sínu.
Ragnar H. Ragnar er dugleg-
ur og röskur söngstjóri, skap-
heitur, og ætlar auðsæilega öllu
sínu söngfólki að „gera skyldu
sína“. Hann á til að laða fram
ljúfar og fínar línur, jafnframt
því að sýna karlmennsku og
þrótt þar sem það á við, en beit-
ir þó hófsemd í meðferð radd-
anna.
Herdís Jónsdóttir söng þrjú
einsöngslög með undirleik Ragn
ars, og kom þá fram, að hann er
einnig góður píanóleikari og und
irleikari. Herdís hefur mjögfagr
an sópran og ótvíræðar tónlistar
gáfur, sem reyndi sérstaklega á
— Sunnu-
í Hjarðmærinni eftir söngstjór-
ann, frumlegu lagi, sem gerir
miklar kröfur til raddarinnar.
Vakti lagið og flutningur þess
mikla hrifningu áheyrenda. Auk
þess söng Herdís tvö lög eftir
Sigv. Kaldalóns mjög smekklega,
og í einu lagi söng hún tvísöng
með karlakórnum.
Þá sýndi Ragnar að hann er
kunnáttumaður í raddsetningu,
því hann hefir útsett fyrir kór
mörg lögin sem sungin voru. Það
má lengi deila um hvað lög vinna
eða tapa við að klæðast öðrum
búningi en tónskáldin hafa búið
þeim upphaflega, sérstaklega
hafi þau unnið sér hefð í hugum
áheyrenda um langan tíma, en
óneitanlega getur það stundum
verið góð tilbreytni að heyra
slíkt. — Þá má geta lags eftir
Sigurð D. Franzson,' Nina-Nana
Ladina, með söngtríói þeirra Her
dísar Jónsdóttur, Kristjönu Jóns
dóttur og Sigrúnar Einarsdótt-
ur, — skemmtilegt lag, fínlegt
og létt. Sigurður hefur verið
raddþjálfari kóranna. Eru þá ó-
talin nokkur lög, innlend og er-
lend, sem kórarnir sungu.
Undirleikari með kórunum var
Hjálmar Helgi Ragnarsson, son-
ur söngstjórans. Skilaði hann
hlutverki sínu með prýði, og þó
hann sé enn ungur að árum er
hann þó auðheyrilega enginn við
vaningur.
Eftir að hafa hlustað á fsa-
fjarðarkórana verður manni
hugsað til þess hve góður og
mikill efniviður er til sönglífs í
hinum dreifðu byggðum utan
höfuðborgarinnar.' Mest virðist
velta á að forustumenn fáist, og
í því efni hafa ísfirðingar verið
við forustu af Jónasi Tómassyni
tónskáldi, sem verið hafði lífið
og sálin í sönglífi ísfirðinga frá
því um 1910, var stofnandi ofan-
getinna kóra og stjórnandi
þeirra um langt árabil.
Húsið var fullskipað áheyrend
um og var gestum fagnað með
húrrahrópum og miklu blóma-
regni.
Gunnar Sigurgeirsson.
- MINNING
Framh. af bls. 18
Mjög lét Steindóra sér annt um
velferö barna sinna, að þau yrðu
góðar og nýtar manneskjur og
ekki síður eftir að börnin stofn-
uðu sín eigin heimili og barna-
börnin fæddust. Allar stundir var
hún vakin og sofin í umhyggju
sinni fyrir þeim.
Ég vil með þessum fátæklegu
orðum þakka henni fyrir alla
vinsemd við mig frá okkar fyrstu
kynnum og þá sérstaklega fyrir
alla þá ástúð og skilning sem hún
sýndi börnum mínum, og veit ég
að ég mæli hér einnig fyrir múnn
annarra tengdabarna hennar.
Steindóra var alla tíð trúuð
kona og guðrækin og kom það
bezt fram í veikindum hennar,
að hún kveið ekki dauða sínum.
Þa'ð yrði tekið vel á móti henni
handan við landamæri lífs og
dauða. Ég efast ekki um að svo
hafi verið.
H.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar verða hringprjónavél
og flatprjónavél, taldar eign Lokbrár h.f., seldar á
nauðungaruppboði að Grensásvegi 46, fimmtudag-
inn 20. júní n.k. kl. 14.30.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Bylgjubreytar
Ferðamenn bylgjubreytar fyrir talstöðvabylgjur
til tengingar við bíttæki, fyrirliggjandi,
verð kr. 1300.
HLJÓMUR, Skipholti 9, sími 10278.
Söiumaður óskast
Viljum ráða sölumann. Aðeins duglegur maður á
góðum aldri með nokkra starfsreynslu kemur til
greina.
PLASTPRENT H.F.,
Grensásvegi 7.
Borgfirðingafélagið í Reykjavík
efnir til skemmtiferðar í Borgarfjörð n.k. laugar-
dag 22. júní. Kvöldvaka og Jónsmessubál. Góðir
skemmtikraftar með í ferðinni meðal annars Skafti
og Jóhannes.
Farmiðar fást hjá Þórarni Magnússyni Grettis-
götu 28 sími 15552 þurfa að sækjast fyrir kl. 19.00
á föstudag.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar, hrl. og Bruna-
húseignarinnar Lækjarkinn 24 Hafnarfirði, þing-
lesin eign Úlfars Berg Sigurðssonar, seld á nauð-
ungaruppboði, sem háð verður á eigninni sjálfri
föstudaginn 21. júní 1968, kl. 3.00 e.h.
Uppboð þetta var auglýst í 13., 15. og 17. tölu-
blaði Lögbirtingablaðsins 1968.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
A8 kröfu Benedikts Sveinssonar, hdl., og fleiri
kröfuhafa verða eftirtaldar bifreiðar seldar á opin-
beru uppboði við Bílaverkstæði Hafnarfjarðar við
Reykjavíkurveg fimmtudaginn 27. júní 1968, kl. 6
síðdegis: G-911, G-2093, G-2960, G-4710, R-20120,
Y-2072 og 0-1168.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 14. júní 1968.
Steingrímur Gautur Kristjánsson, ftr.
handyðHdy
m/mfi ms> aðeinq bnn/ wrpurrkun
CLEANS
PAINTWORK
I WITHA Vi/IPE
MHENS TILES • FLOORS BfiT-
Límlklennd óhreinindi? Fitukemnd óhreininidi? Leðjutoennd óhreinindi?
Handy Andy hneinsar öll óhreinindi á brott með aðeins einni yfirþurrk-
un. Nútímahúsmæður, hvar sem er, eru sammála uim það að hann sé
bezti allhliða hreinsunarlögur, sem völ er á. Handy Andy hefir öfliugan
styriklleika til að hreinsa alis konar heimiliishluiti betur, hraðar, auðVeid-
ar. Notið hann annaðhvort eiins og hann kemur úr flöskunni, eða
þynntan með vatni ef hreinsa skal stærri svæði. Þér þurfið ekki að
nota nema lítið í hvert sinn. — Handy Andy er svo kröftugur, svo
drjúgur! Kaupið hann strax í dag!
• • • hreinsar
MÁLAÐA VEGGI, VASKA, BAKAR-
OFIMA, GÓLF, betur, hraðar, auðveldar!