Morgunblaðið - 05.08.1971, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1971
itti ■ ■ 11 ■ i ■■ ■ i n ■■■ tit n» i ■■ 'i
i KVIKMYNDA
HÚSUNUM
iiii
★★★★ Frábær, ★★★ mjög góð, ★★ góð,
★ sæmileg, O léleg, fyrir neðan allar hellur,
Sig. Sverrir
Pálsson
Erlendur
Sveinsson
Sæbjörn
V aldimarsson
Háskólabíó:
„WILL PENNY“
Will Penny er miOaltla Kúreki,
sem þekkir ekkert nema strit.
Eftir langan nautarekstur ter
hann ásamt félögum sinum til
bæjaríns til aO fá sér vin og
konur. Á leiOlnni verOa þeir fyr
ir árás Quints og sona hans,
sem fara um stelandi og drep-
ur Will einn þeirra. Faöirinn
hótar aO hefna þess, en Will
ræOur sig á nautabýll, þar
sem hann á aO gæta úthaga. Á
hann aO hafa aðsetur 1 af-
skekktum kofa. Er þangaö kem-
ur, er kona íyrir 1 kofanum,
en fylgdarmaOur hennar hafOl
svikiO hana er þau voru á leiO
til Caliíorniu. En Quint kemur
einnig og pyntar Wíll, en
konan hjúkrar honum. En bóf-
arnir snúa aftur og taka þau til
fanga. ViO illan leik tekst Will
að komast undan, og ná i sina
fyrri íélaga til hjálpar . . . .
★★★ Mynd, sem fjallax á
nærfærinn hátt um erfiðleika
aldraðs kúreka, . sem ekkert
kann fyrir sér — annað en
reka nautgripi. Með hjálp
snilldarlegxar kvikmynda-
töku Lucien Ballards, tekst
leikstjóranum að skapa lit-
ríka persónu, og D. Pleasence
er hryllilega skemmtilegur,
sem umsnúinn Bibliu-þyljari
oe borDari.
★★ Óvenjuliega raunsaer
vestri. Kúrekarnir skitugir
og illa klæddir, mannlegir og
af þeim allur gervi-glans.
Heston sómir sér vel í sínu
karlmannlega hlutverki. Kvik
myndatakan góð, en ofbeld-
inu gert óþarflega hátt undir
höfði.
Stjörnubíó:
„GESTUR TIL
MIÐDEGISVERÐAR"
Joey Drayton, dóttlr blaðaútgef-
anda í San Franslsco, og John
Prentice, fella hugi saman í
skemmtiferð á Hawai. Hennl er
það ekkert vandamál að hann er
blökkumaOur. Hann gerir sér aft
ur á móti ljós þau vandamál sem
þau munu verða að horfast I
augu við áður en til hjónabands
kemur, enda reyndari, og fjórtán
árum eldri en hún. Feður þeirra
leggjast lika gegn ráðahagnum
og gengur á ýmsu. Eftir margs
konar átök endar myndin með
lokaræðu föður Joey’s. Hann
beinir orðum sínum til ungu
elskendanna, og gerir grein fyr
ir þeirri ákvörðun sem hann
hefur tekið, eftir vandlega um-
hugsun.
★★★ Kramer er laginn við
að hræra í tilfinningum áhorf
andans. En er nokkurt vanda
mál að lynda við svo yfirskil
vitlega góðan og gáfaðan
negra, sem Poitier er látinn
leika? Þetta vandamál þarfn
ast miklu nánari ígrundun-
ar en Kramer veitir okkur.
Síðasta mynd S. Tracy og
verðugur minnisvarði um
hann.
★★★ Vel gerð mynd um
efni, sem kemur öllum við,
ekki sizt því fólki, sem setur
jafnaðarmerki milli tilfinn-
inga og væmni. Góð upp
bygging tæknilega (t.d. Dray
ton hjón mynduð í spegli)
sem efnislega (Drayton og ís
sölustúlkan). Látlaus kvik-
myndun, jafn og góður leik-
ur.
★★ Góður leikur, þjált og
vel skrifað handrit. Sem bet
ur fer eru kynni okkar af
kynþáttavandamálum að
mestu leyti af afspurn, þvl
er erfitt að gera sér grein
fyrir hversu gagnlegan boð-
skap myndin flytur. Persónu
lega finnst mér hún ekki
rista nógu djúpt, né stinga á
kaununum, aðeins skemmti-
mynd.
Laugarásbíó:
FLUGHETJURNAR
Brynie MacKay hafði i siO-
ari heimsstyrjöldinni getið sér
góðan orOstir serii flugmaöur í
8. flugher Bandarikjanna, en
stundar nú íragtflutninga I N-
Afriku. Hefur hann afnot af
gamalli Dakota-vél og meO hon-
um er íélagi hans, Mike Brewer.
Vegna lélegra viðskipta tekur
Brynie aO sér aO fljúga meO
smyglfarm fyrir Lee Harris —
aðeins eitt flug — en með
þvingunum tekst Lee aO fá þá
til frekara samstarfs. Lee á sér
frillu, Elenu, en Brynie og hún
fara fljótlega að gefa hvort
öðru auga. Mike kemst aO þvi,
aO Lee ætlar aO koma þeim fé-
lögum íyrir kattarnef og hyggst
nú taka til sinna eigin ráOa.
O Formúlumynd af gamla
Hollywood-skólanum, mjög
yfirborðskennd og frábitin
öllum kvikmyindalegum til-
þrifum. Hinar heimspeki-
legu vaingaveltur, sem öðmi
hvoru skjóta upp kolliinum,
eru bæði veikburða, og rugl-
ingslegar og aldrei gerð nein
skil.
O Bakgrunnur þessar mynd-
ar er nokkuð forvitjnilegur.
En frámunalélegt haindrit og
ódýr kempusálfræði gera að
engu vondr um að einhverja
skemmtun megi hafa af mynd
inni.
Tónabíó:
MAZÚRKI Á RÚM-
STOKKNUM
Skólastjóraskipti standa fyrir
dyrum í heimavistarskólanum.
Um tvo kennara er aO ræða
sem eftirmenn, þá Max M. (Ole
Sþltoft) og Herbert Holst, en
Max er i uppáhaldi hjá nem-
endunum og íráfarandi skóla-
stjóri er einnig hlynntur hon-
um. Þar er þó einn galli á, þvi
að svo kveöur á um I reglum
skólans, aO skólastjórinn skuli
„vera kvæntur maöur“. Max hef
ur hins vegar aldrei veriO viO
kvenmann kenndur, og aOeins
mánuOur til stefnu. Nemendurn-
ir gripa til sinna ráOa og senda
honum fatafellu, en Max flýr
undan ágengni hennar. Fráfar-
andl skólastjórafrú kemur Max
óvænt til hjálpar, en einníg
koma tvær dætur eins skðla-
formannsins mjög náiO viO sögu.
★ Sami söguhöfundur og
sami aðalleikari og í Sytten
og því ekki kynlegt, þótt ár-
angurinn sé svipaður. Ann-
ars virðast stjómendur
Tóruabíós vera hræddir við,
að klámbylgjuna sé að lægja,
úr því þeir hlaupa til að
sina 1-árs gamla kynlifs-
mynd, meðan aðrar oft betri
myndir, þurfa að bíða í 3-4
ár.
★★ Blaindað hinni kunnu
dönsku kímni verður hið
djarfa ekki klæmið, heldur
einungis góðlátleg skemmt-
un þeim, sem ekki hafa
áhyggjur af framtíð siðmenn
ingarinnar. Tæknilega vel
unnin. Klippiingar eru fram-
úrskarandi og tónlistin einkar
skemmtileg.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma í kvöld ki.
8.30 að Kirkjustræti 2. AHir
velkomnir.
Saumnstúlkur ósknst
Uppl. milli kl. 1—5 (ekki í síma).
H. GUÐJÓNSSON
skyrtugerð,
Ingólfstræti 1 A, 3. hæð
____________(gegnt Gamla bíói).
Farfuglar — ferðamenn.
K.F.U.M. — K.F.U.K.
Samvéra fyrír félaga og gesti
þeirra verður í fétegsheimiiinu
við Holtaveg í kvöld kl. 8.30.
Kvöldvökudagskrá, veitingar.
FERÐAKLVBBURIM
BLÁTINDUR
Hálendisferð
örfá sæti laus.
Ferðaklúbburinn Blátindur
Austurstræti 14, s. 16223 og
12469.
Farfuglar — ferðamenn
7.—8. ágúst:
1. ferð í Kerlingafjöll,
2. ferð í Þórsmörk.
Upplýsingar í skrifstofunni
Laufásvegi 41, sími 24950.
Farfuglar.
SUMARLEYFISFERÐIR
7.—18. ágúst.
Ferð um miðhálendið. Fyrst
verður ekið til Veiðivatna, það
an með Þórisvatni, yfir Köldu-
kvísl, um Sóleyjarhöfða og
Eyvindarver í Jökuldal (Nýja-
dal). Þá er áætlað að aka
norður Sprengisand, um Gæsa
vötn og Dyngjuhál'S til öskju.
Þaðan verður farið í Herðu-
breiðarlindir, áætlað er að
ganga á Herðubreið. Þaðan
verður ekið í Hvannalindir. —
Farið verður um Mývatns-
sveit.um Hólmatungur, að
Hljóðaklettum og og Ásbyrgi.
Ekir verður um byggðir vest-
ur Blöndudal og Kjalveg til
Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar í skrif-
stofunni, Laufásvegi 41, sími
24950, sem er opin alla virka
daga frá 9—6. Laugardaga frá
9—12. Þátttaka tilkynnist sem
fyrst. — Farfuglar.
Skiptafundur
verður haldinn í þrotabúi Jóhannesar Pálssonar, Borgarnesi,
föstudaginn 9. ágúst nk. kl. 16 í sýsluskrifstofunni, Borgarnesi.
Gerð verður m. a. grein fyrir rekstri og lokun á fyrirtæki bús-
ins og sölu helztu eigna þess.
Skiptaráðandinn í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu,
Þorvaldur Einarsson e. u.
Uppboð
Áður auglýst uppboð á eignum þrotabús Kjöts og rétta hf. og
verzlunarinnar Föt og sport hefst að Strandgötu 4 í dag kl. 5
siðdegis. þar verða seld kæliborð og búðarborð.
Uppboðinu verður síðan fram haldið í húsnæði Alþýðubrauð-
geröarinnar að Strandgötu 32. Meðal uppboðsmuna eru verzl-
unaráhöld, matvara og fatnaður.
Ennfremur verður selt málverk eftir Svein Björnsson.
Greiösla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
ö BlLAR
SELJUiU IDAC
Plymouth Barracuda '70 með
Power stýri og Power
bremsum. Ekinn aðeins
10.000 kílómetra.
Plymouth Belvedere II, 1967
Plymouth Belvedere I, 1966
Plymouth Valiant '67
Dodge Coronet '66
Meroedes Benz 220 S '62
Land-Rover, dísill, '64
Volkswagen 1500 '70
Vofkswagen 1300 '67
Rambler Rebel '67
Rambler American '67.
ÖVOKULLH.F.
Chrysler-
umboðið
Hringbraut 121
sími 106 00