Morgunblaðið - 05.08.1971, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1971
Geioge Harmon.
Coxe:
Græna
Venus-
myndin
27
Hann var alitilegur og virtist
biátt áfram og vingjarnlegur.
— í>að er kabarettþáttur í
þessu, sem ég er að setja upp
núna, sagði hann. — Það er enn
ekki búið að skipuleggja hann.
Það er rétt hugsanlegt . . . ég
skal hafa þig í huga, Tony.
Tony ljómaði ailur. Hann
sagði, að það gæti verið ágætt,
og svo fór hann. Murdock fann,
að Louise var að horfa á hann,
og hann var sjálfur að horfa
á Tony og loks sneri hann sér
að Watrous.
— Hvar hefur þú þekkt hann?
— Ég átti einu sinni smá
knæpu, sem hét 44-kliúbburinn
i 51-götu. Tony lék þar í
hljómsveitinni um eitt skeið.
—- Hann hlýtur að hafa verið
afskaplega ungur þá.
— Það var hann, sagði Watr-
ous. — Rétt sloppinn út úr
gagn fræðaskólan um.
Aðalhljómsveitin kom nú inn
og tók að þenja sig. Þau sátu
þegjandi stundarkorn en þá fór
Louise að hafa sig til. Hún
sagðist endilega þurfa að fara.
Watrous samsinnti því. Hann
sagði, að bezt væri að hætta
hverjum leik . . . og bað svo
um reikninginn.
— Hugsaðu ekki um hann,
sagði Murdock. — Ég ætla að
vera hérna dálítið enn.
— Gott og vei. Watrous
hneppti að sér frakkanum,
og þjónninn kom með reikning-
íntn. Watrous rétti fram höndina
og tók hann.
— Biddu við, sagði Murdock.
— Það var ég, sem stakk upp á
að fara hingað.
— Þegar Watrous fer, borgar
G.J. -BÚÐIN AUGLÝSIR
Vorum að taka upp saumaða rococóstóla. Verð frá 1 289 kr.,
30 gerðir,- — Píanóbekki, púða, allt mjög ódýrt, útsaumaða
kaffidúka með servíettum, járn á klukkustrengi í mjög fjöl-
breyttu úrvali, frá 4 cm upp í 30 cm.
G. J. BÚÐIIM. Hrísateigi 47.
__________________ Næg bílastæði.
Spænska er eitt af 5 mest töluðu
tungumálum í heiminum (nr. 4 ef
kinverska er ekki talin með). _______________
Lærið spiínslu á auðveldan hátt
hjá spönskum blaðamanni og rithöfundi.
Einkatímar - hóptímar
Þeir sem áhuga hafa sendi nöfn sín og simanúmer
á afgreiðslu Morgunbiaðsins, merkt: „7777".
2.000.000.o« — Tvær ntilljónir — L000.000.oo
Hef kaupendur að góðum einbýlishúsum —
raðhúsum — sérhæðum.
Útborgun 2 milljónir króna og jafnvel meira.
Vantar góða 3ja herb. íbúð í Austurborginni.
Staðgreiðsla.
Fasteignamiðstöðin, Austurstræti 12,
símar 20424, 14120. — Heima 85798.
Watrous, sagði Watrous. Farðu
ekki að stæla við mig.
Murdoek stóð upp og horfði
á eftir þeim. Hann pantaði
drylkk, til þess að geta haldið
i borðið, en gekk svo yfir að
barnum. Steve var nú ekkert
sérlega önnum kafinn, og brátt
kom hann að endanum þar sem
Murdock stóð.
— Er ekki hérna einhver ná-
ungi, sem teiknar myndir af gest
unuim ?
— Jú, stundum, sagði Steve.
Heitir CaroW. Nokkuð góður.
—- Já, ég hef heyrt hann
nefndan. Hvað fær hann fyrir?
— Það fer allt eftir þvi,
hvað gesitirnir tíma að borga.
Kaimski tvo dali. Kannski fimm.
Fer allt eftir því, hvemiig þeiim
fiin.nst myndin.
Murdock hlustaði á hljómsveit
ina og beið meðan Steve var að
blanda í tvö giös fyrir þjón-
inn. Þegar hann komst að, sagði
hann.
— Hann va,r ektki hérna í
kvöld ?
— Nei, sagði Steve. — Og
heldur ekki í gærkvöld. Það
kom einhver kóni og spurði
um hann, og sagðist vilja láta
teikna sig. Einhver kunningi
hans hafði fengið mynd af sér
og nú vildi hann sjálfur fá
mynd. Steve þurrkaði af borð-
iniu. —- En Caroil var bara
ekki hérna. Svo að náunginn
beið og vildi fá að vita, hvar
hann vaari. Ég sendi loksins
Tony — hann er kunningi
Carrolls — heim til hans —
Carroil býr skammt héðan — og
bað hann að segja honum að
koma og vinna sér inn nokkra
aura. En hann var ekki heima
og missti því af þessu.
— Um hvaða ieyti var þetta,
Steve?
— Um það bil kortéri fyrir
ellefu.
Murdock sneri sér á olbogan-
um og leit á hljómsveitina.
Hann sá hana ekki almennilega
— fremur en annað þarna inni.
Hann horfði samt fast, en á
þessari stundu var það samt hug
urinn en ekki augun, sem sá.
Loksins spurði hann Steve, hvar
Tony ætti heirna og þegar hann
hafði fengið heimiilisfangið,
sneri hann aftur að borðinu og
talaði við þjóninn. En allt í
einu kom Tony úr hljómsveit-
arklefanum og gekk að borðinu.
Murdock sagði honum að setj
ast og bað um drykk handa
honum. Lorello afþakkaði það.
— Það er meiri kallinn þessi
Watrous, sagði hann. — Ég er
feginn, að hann skyldi hlusta á
tríóið mitt.
Murdock talaði um tríó-
ið stundarkom. Hann sagðist
vera hrifinn af þvi og útsetn-
ingamar væru góðar, og hver
hefði gert þær.
Lorello brosti og klappaði
á brjóstið á sér.
— Þú fórst alveg framhjá mér
á Italiu, sagði Murdock. — Ég
frétti samt, að þú hefir verið
þar á ferðinni. Var það gaman?
Lorello sagði, að það hefði
verið ágætt. Hann sagðist vera
með hjartasjúkdóm, svo að her-
inn hefði ekki viljað sig,
en samt þóttist hann hafa getað
Við skerum pöruna frá
fyrir yður.
Það er yðar hagur.
Biðjið þvi kaupmann yðar
aðeins um ALI BACON.
L000.000.oo - Tvær milljónir — L000.000.oo
Sl 1.1) & l' ISKIjll
Hrúturinn, 21. niarz — 19. april.
Félagar þínir og keppinautur siuAla að einhvers konar streitu
sem kemur niður á þér.
Nautið, 20. april — 20. maí.
Ættin^jar þfnir koma þér í dálítiiin vanda, og þú þarft að
átta þiii dálítið áður en þú tekur afstöðu til kans.
T\ íbtirarnir, 21. mal — 20. júní.
I öllum skarkalanum finnur þú sannleikskorn, ef þú leitar
vel. f»ú verður að vinua vel.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
l»ött þú sýnir félagslyndi, skeminir það ekki fyrir þér viðskipti.
IJónið, 23. júlí — 22. ágúst.
l»ér oimast vfðari sjóndeildarhriiiKur en öðrum, og reyndu að
sanna mál þitt.
Meyjar, 23. ágíist — 22. septeniber.
1*ví fleiri smáatriðum, sem þá mátt sleppa í dag, þeim mun
liagkvæmura fyrir þig: sjálfan.
Vogin, 23. september — 22. október.
Kinkaniálin eiga Img: þinn allan í dag’, og þú lætur starfið
lönd ok leið, að því er be/.t verður séð.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Keyndu að fara fram á einhverjar kjarabætur, ojj gerðu
fulla grein fyrir eig:in ágræti. Sýndu hvað f þér býr.
Bogmaöiirinn, 22. nóveniher — 21. deseniber.
Kf þú liefur skipulagt eitthvað verkefni, skaltu koma því f
frainkvamid sem fyrst.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Heyndu að njóta lífsins dálítið ineðan þú leggur að nýju til
atlögru við fjármálin.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
It«‘glur og' ósbyggja um fullkomnara kerfi og stjórn eru þér
ærið umhugsuiiarefni, en ]»ú verður að lialda áfram upptekn-
u m hætti samt.
Eiskarnir, 19. febrúar — 20. nrnrz.
Mögul«kikar fyrirfiiinast á því að þú g«*tir endurheimt fjármnni
þína og byrjað á nýjan l«úk.
(
*
hjálpað dálitið til. Hann sagð-
ist vona að geta farið þangað
aftur þegar hann hefði unnið
sér dálitið inn.
— Þú hefur sjálfsagt kynnzt
mörgum innlendum? sagði Mur-
dock. — Þú hefur þurft að bera
skilaboð til hermannanna, og
flytja bréf og þess háttar?
— Já, vitanlega. Aðallega
vildu strákarnir láta mig koma
við hjá mönmum þeirra og segja
þeim, að þeim liði vel.
— Þú færðir Bruno Andrada
eitthvað, var það ekki?
Murdock horfði beint á hann
er hann sagði þetta. Það var eitt
hvert hálfbros á andlitinu á
Lorello, og hann opnaði munn-
inn og sagði: -— Ég . . .
Einhverjum glampa brá fyrir
í augunum, en hann var sam-
stundis horfinn aftur. En svo
starði hann beint á Murdock,
án þess að neitt yrði úr þeim
lesið, og nú var brosið eins og
stirðnað.
— Hver . . .? sagði hann.
Murdock endurtók nafnið.
Hann vissi, að nú þýddi ekki
annað en ganga beint að efn-
inu. Hann hafði reynt að veiða
svarið upp úr Tony eftir
krókaleiðum, en það hafði mis-
tekízt. Hann hafði séð viðbrögð-
in í svipnum á Lorello og þau
viðbrögð höfðu vakið ofurlítinn
vonarneista hjá honum, en það
nægði honum ekki. Hann sagði.
—■ Þú fluttir bréf hingað fyr-
ir hann. Til Georgs Damon,
Dökka andlitið á Lorello varð
algjörlega sviplaust. Of svip-
laust. Hann ýtti til öskubakk-
anum með grönmuim fiinigrumuim
og tók að snúa honum í hrinig
Nei, ekki ég. Þú átt við
hann Georg Damon, náungann,
sem er með Listamarkaðinn ? Ég
vissi ekki einu sinni, að hann
ætti neitt skyldfólk á ftaliu.
— Hefur lögreglan noklcuð
talað við þig enn?
Lorello dró snöggt að sér
andann og sagði: Lögreglan? í
hvaða erindum?
— Þú veizt, að Andrada próf-
essor var myrtur einhvern
tíma í nótt sem leið, er það ekki?
-— Jú, ég var rétt áðan að
lesa um það. Þú skilur, að ég
fer alltaf seint á fætur og stund
um ekki nema rétt í kvöldmat-
inn. Ég ias um þetta í kvöld-
blaðinu, eftir að ég kom í
vinn'U. Hann leit upp. — Ég skil
þetta ekki, Murdock . . . ég á
við, hvað . . .
— Þú fórst heim til Andrada
um daginn. Hljómsveitin þagn-
aði snögglega og Murdock fann,
að hann var að æpa. Hann hik-
EinangriÓ
með
GLASULD
glerullarskölar
til einangrunar á
heita- og kaldavatns-
leiðslum.
glerullarmottur
í mörgum breiddum
með álpappír
og vindþéttum pappír
" með asfaltpappír
og vindþéttum pappír
með asfaltpappír.
Fæst í helztu
byggingavöru-
verzlunum.