Morgunblaðið - 24.07.1974, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JULÍ 1974 J 3
Konstantin Karamanlis
forsætisráðherra á ný
KONSTANTIN Karamanlis
hinn nýi forsætisráðherra
Grikklands var um langt árabil
einn virtasti stjórnmálamaður
landsins og forsætisráðherra
frá 1955 fram í júnf 1963, er
hann sagði af sér í mótmæla-
skyni við heimsókn Páls þáver-
andi Grikkjakonungs til
Lundúna. Talið er, að sú heim-
sókn hafi vakið þær hræringar,
sem síðar urðu til þess, að bylt-
ingin var gerð í apríl 1967.
Karamanlis er 67 ára að aldri
oglögfræðingur að mennt.
Hann hóf stjórnmálaafskipti
sín árið 1932, var kjörinn á þing
fyrir Populistaflokkinn árið
1935 og átti óslitið sæti á þingi
fram til þess tima, að hann
sagði af sér. Hann tók fyrst sæti
í stjórn árið 1952, er Papagos
var forsætisráðherra og er
Papagos lézt var Karamanlis
skipaður forsætisráðherra.
Hann stofnaði þá flokk sinn
Róttæka þjóðarsambandið og í
kosningunum 1956 fékk
flokkurinn hreinan meirihluta
á þingi, 165 sæti af 300.
Karamanlis sagði 3 sinnum af
sér og boðaði til nýrra kosninga
og bætti jafnan við fylgi sitt. Sá
tími, sem hann var forsætisráð-
herra Grikklands, er talinn
stöðugasta stjórnmálatímabil
landsins og stjórnir hans þóttu
mjög sterkar, þótt Karamanlis
væri oft sakaður um kosninga-
svik. Er byltingin var gerð fór
Karamanlis í útlegð til Parísar,
þar sem hann hefur dvalið
fram til þessa. Hann hefur þó
ekki setið aðgerðalaus, en haft
þar opna skrifstofu og haldið
uppi harðri gagnrýni á grfsku
herforingjastjórnina. Þegar til-
raunin til byltingar var gerð á
sl. ári var Karamanlis sakaður
um að hafa ásamt Konstantin
konungi staðið að undirbún-
ingnum. Það voru foringjar í
sjóhernum, sem að tilrauninni
stóðu, en hún komst aldrei í
framkvæmd. Alltaf þegar rætt
hefur verið um möguleika á að
koma á lýðræðisstjórn í Grikk-
landi á ný hefur nafn Kara-
manlis verið nefnt í sambandi
við embætti forsætisráðherra
og flestir hafa talið honum ein-
um treystandi til að mynda
nýja lýðræðisstjórn. Það hefur
nú komið á daginn, að herfor-
ingjarnir eru einnig á því máli.
Þessi mynd var tekin sl. laugardag, skammt frá hafnarborginni Kyrenia, þegar tyrknesk herskip bjuggu
sig undir að halda þangað og koma þar f land hermönnum og vopnum.
— Nýr forseti
Framhald af bls. 1
— en f kvöld virtist sem fyrr
segir, að kyrrð væri komin á, þótt
menn væru þvf viðbúnir, að sá
friður væri ennþá heldur ótrygg-
ur.
0 Lfklegt er, að friðarráðstefn-
an um Kýpur, sem ákveðið hefur
verið að halda með fulltrúum
Brctlands, Grikklands og Tyrk-
lands — og væntanlega áheyrnar-
fulltrúa frá Bandarfkjunum og
e.t.v. fleiri rfkjum — hefjist held-
ur seinna en til stóð sakir þeirra
breytinga, sem orðið hafa f Grikk-
landi (sjá fréttina þaðan) en von-
ir höfðu staðið til, að fundur þessi
gæti hafizt þegar klukkan 2 á
morgun.
Nicholas Sampson sagði f út-
varpsávarpi í dag, þegar tilkynnt
hafði verið um skipan nýja forset-
ans, að hann hefði gert skyldu
sína við Kýpurbúa með því að
taka við forsetaembætti, þegar
þess þurfti með á dögunum, en
vegna friðarviðræðnanna, sem
hefjast ættu í Genf á næstunni,
þarfnaðist þjóðin reynslu
Cleridesar.
Litið var á skipan hins nýja
forseta sem tilraun byltingar-
manna til að friðmælast við
Tyrki, sem hafa náð góðri fótfestu
á Kýpur, hafa þar á meðal hafnar-
borgina Kyrenia alveg á sínu
valdi. Clerides hefur áður gegnt
forsetaembætti i fjarveru
Makariosar og er sagður hafa
mjög gott samband við tyrkneska
minnihlutann. Hann hefur frá því
í júní 1968 stjórnað viðræðum við
fulltrúa hans.
Eitt af fyrstu verkum Clerid-
esar eftir eiðíökuna var að hafa
samband við yfirstjórn liðs S.Þ.
og fullvissa hana um, að hann
15 ára skólastúlka frá Limasol á
Kýpur skýrði grátandi frá þvf,
sem hún hafði séð þar, þegar hún
var komin heil á húfi til Eng-
lands. Hún kvaðst bæði hafa séð
morð og nauðganir. Fjölskyldu
sfna hafði hún misst f átökunum.
mundi beita sér fyrir því, að
vopnahlé yrði haldið. Síðan lagði
hann til við leiðtoga tyrkneska
þjóðarbrotsins, Rauf Denktash,
að þeir gæfu í sameiningu út
áskorun til landsmanna um að
leggja niður vopn.
VERJANDI EOKA-MANNA
Clerides er 54 ára að aldri,
fæddur f Nikosiu, menntaður f
Englandi. Hann var í brezka flug-
hernum í heimsstyrjöldinni
síðari, en hóf að henni lokinni
lögfræðinám í London og mál-
flutningsstörf árið 1951. Hann var
verjandi margra EOKA-manna
frá Kýpur, sem höfðu verið hand-
teknir vegna baráttu þeirra gegn
yfirráðum Breta á Kýpur.
Clerides tók þátt í Lundúnaráð-
stefnunni um framtíð Kýpur 1959
og var dómsmálaráðherra í bráða-
birgðastjórn eyjarinnar þar til
1960, að hún fékk sjálfstæði. Þá
var hann um sumarið kjörinn til
þings og mánuði síðar kjörinn for-
seti þess og hefur verið það síðan.
Nokkru eftir að Clerides hafði
tekið við forsetaembætti skýrði
Bulent Ecevit forsætisráðherra
Tyrklands frá því á þingfundi í
Ankara, að aðgerðum Tyrkja á
Kýpur væri lokið, þeim árangri
væri náð, sem til hefði verið
ætlazt — þeir hefðu aldrei ætlað
sér að hernema eyjuna. Hann
kvað sigurinn hins vegar hafa
verið dýrkeyptan, — 57 tyrknesk-
ir hermenn hefðu fallið, 184 særzt
og 242 væri saknað. Hann sagði
ekkert um tölu fallinna Kýpur-
búa, sem taldir eru skipta þús-
undum, né um ferðamenn, en
óttazt er, að margir þeirra hafi
beðið bana í átökunum. A.m.k. tíu
gistihús eyðilögðust í átökunum,
sum af loftárásum, önnur af eld-
sprengjum og er ekki vitað,
hversu margir hafa látið þar lffið.
Skömmu áður en Ecevit hélt
ræðu sína sagði varaforsætisráð-
herra landsins, Neemettin
Erbakan, í viðtali við fréttamenn
í Ankara, að eina leiðin til að
leysa vandamál Kýpurbúa til
frambúðar væri að skipta eyjunni
milli Grikkja og Tyrkja. Ekki
sagði Erbakan, hvort hann mælti
þar fyrir munn stjórnar Ecevits,
en þess má geta, að hann er leið-
togi þjóðfrelsisflokksins, sem
gekk til * stjórnarsamstarf við
Ecevit og flokk hans og kann yfir-
lýsing hans því að vera í pólitísk-
um tilgangi gefin. Hann sagði, að
Tyrkir mundu ekki láta hafnar-
borgina Kyreniu aftur af hendi og
bætti við: „Við verðum að vona,
að við missum ekki f Genf þann
hernaðarlega ávinning, sem við
höfum nú náð.“
FERÐAFÓLK FLUTT BURT
Liðsmenn Sameinuðu þjóðanna
hafa verulega látið til sín taka i
Nikosiu í dag, þeir tóku flugvöll-
inn þar eftir bardaga og loftárásir
tyrkneskra og grískra og tryggðu
þar með örugga lendingu fyrir
liðsstyrk, er þeir eiga von á. Kurt
Waldheim gerði í dag ráðstafanir
til að fjölga í gæzluliðinu um
helming og fékk jákvæðar undir-
tektir bæði frá Finnum, Svíum,
Dönum, Austurríkismönnum, og
Astraliumönnum. Auk þess hafa
Bretar sent til Kýpur um 600
Hinn nýi forseti Kýpur, Clafcos
Clerides.
manna lið til að aðstoða við friðar-
gæzlu.
Nokkrir Kanadamenn úr liði
S.Þ. féllu í varðstöð við grænu
línuna svonefndu, sem skiptir
svæðum grískra og tyrkneskra
Kýpurbúa. Var gerð árás á þá
af beggja hálfu og áður en þeir
höfðu fengið fyrirskipun um að
svara henni voru nokkrir menn
úr liðinu fallnir.
Þúsundir ferðamanna hafa ver-
ið á Kýpur að undanförnu og
verulegur hluti þeirra nú þegar
verið fluttur burt, en öðrum safn-
að saman í hópa, þar sem reynt er
að liðsinna þeim. Rúmlega átta
huhdruð norrænir ferðamenn eru
saman komnir í brezkri herstöð
og var byrjað að flytja þá burt i
dag með sænskum Herkúlesvél-
um. Þá hafa brezk og bandarísk
skip verið í förum frá Kýpur með
ferðamenn, sem hafa gjarnan ver-
ið fluttir um borð i skipin með
þyrlum.
í kvöld hafði verið komið á
skipulagðri upplýsingastarfsemi
á flugvellinum í Nikosiu fyrir
ferðafólk, einnig hafði verið
skipulagt tjaldstæði og fólkinu
séð fyrir matvælum.
Áður hafði verið komið á um-
fangsmikilli loftbrú milli London
og Kýpur og þangað flutt matvæli
lyf, hjúkrunargögn og önnur
hjálpargögn.
— 30 daga
varðhald
Framhald af bls. 28
sækjandinn framkomu skipstjór-
ans stórlega vftaverða, en gat þess
jafnframt, að eftir að varðskipið
hefði stöðvað togarann og varð-
skipsmenn farið um borð í hann,
hefði Taylor skipstjóri í hvívetna
sýnt fyrirmyndarframkomu.
Benedikt Blöndal verjandi
Taylors viðurkenndi brot ákærða
og bað honum hinnar vægustu
refsingar fyrir fiskveiðibrotið.
Hann gat þess í varnarræðu sinni
að fyrri refsi- og sektardómar yfir
Taylor skipstjóra væru nú fyrndir
samkvæmt íslenzkum lögum, sem
gera ráð fyrir að refsidómar fyrn-
ist á fimm árum.
Ræður þeirra tóku um það bil
eina klukkustund, en er hér var
komið tilkynnti Erlendur Björns-
son bæjarfógeti, að mál skj pstjór-
ans yrði tekið til dóms. Var nú
gert réttarhlé, en um hádegi
komu dómendur og allir aðilar að
máli þessu saman og hlýddu á
dómsuppkvaðningu Erlends
Björnssonar. Las hann dómsorðin
I heyranda hljóði, en þau voru
síðan þýdd á ensku af dómtúlki
fyrir hinn ákærða. Virtist hann
taka málalokum með stillingu.
Dómsorðin voru undirrituð af Er-
lendi bæjarfógeta og meðdómend-
um hans, Einari Magnússyni og
Trausta Magnússyni, og eru svo-
hljóðandi:
Ákærði sæti fangelsi í 30 daga,
ákærði greiði 1,2 milljónir króna í
sekt til landhelgissjóðs Islands og
komi 6 mánaða varðhald í stað
sektarinnar verði hún ekki greidd
innan 4ra vikna frá birtingu dóms
þessa. Allur afli og veiðarfæri,
þar með taldir dragstrengir,
togarans C.S. Forester skulu vera
upptæk til landhelgissjóðs Is-
lands. Akærði greiði allan sakar-
kostnað, þar með talin sak-
sóknaralaun í ríkissjóð, kr. 75
þúsund, og laun verjanda
Benedikts Blöndal, kr. 75 þúsund.
Dómi þessum skal fullnægt að
lögum“
Verjandi Taylors skipstjóra til-
kynnti skömmu eftir dómsupp-
kvaðninguna, að Richard Taylor
óskaði eftir að áfrýja dómi þess-
um til Hæstaréttar Islands.
Þessu næst hófu umboðsmenn
eigenda togarans undirbúning að
því að ganga frá nauðsynlegum
tryggingum vegna máls þessa til
að fá leyfi fyrir Taylor til að sigla
togaranum heim til Hull. Krafizt
var alls í tryggingarfjárhæð kr.
7,6 millj. — til greiðslu sektar 1,2
millj., til greiðslu tryggingar
vegna nærveru Taylors, er dómur
gengur í Hæstarétti 500 þús.,
vegna hins upptæka afla
3.890.000 kr., vegna hinna upp-
tæku veiðarfæra kr. 1.345.000 og
vegna alls kostnaðar sakarinnar
kr. 700 þúsund. Að þessu trygg-
ingum frádregnum og settum af-
henti bæjarfógetinn Taylor skip-
stjóra skipspapplrana og nokkru
eftir hádegið lét togarinn úr höfn.
Um það leyti sem dómurinn
gekk bárust þær fregnir hingað,
að varðskip hefði fundið troll-
vörpu á floti á svipuðum slóðum
og Þór tók togarann. Náði varð-
skipið vörpunni og verður hún
flutt til Reykjavíkur til nánari
athugunar og rannsóknar til að fá
úr því skorið, hvort hægt er að
segja til um eiganda hennar.
Við réttarhöldin bar Taylor því
við, að varpan hefði slitnað aftan
úr togaranum við veiðar, en í
fyrstu fregnum af þessum atburði
var sagt, að hugsanlega hefðu
togaramenn verið látnir höggva
vörpuna aftan úr togaranum I
flóttatilrauninni.
— „874-1974”
Framhald af bls. 28
munir, sem hinar einstöku þjóð-
hátíðarnefndir á landinu hafa
látið útbúa. Þá má einnig nefna,
að hestaleiga verður á svæðinu á
vegum Fáks og er hún að sjálf-
sögðu sérstaklega ætluð börnum.
Fram kom á blaðamannafundi
með forráðamönnum sýningar-
innar I gær, að þeir leggja áherzlu
á, að sýningin er liður í þjóð-
hátíðarhaldi landsmanna. Búast
þeir við góðri aðsókn, ekki færri
en 50 þúsund manns. Vönduð sýn-
ingarskrá hefur verið gefin út I
tilefni sýningarinnar og kostar
hún 150 krónur.