Morgunblaðið - 24.07.1974, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLl 1974
— Hæstu
gjaldendur
Framáald af bls. 3.
Jens Olsen Sæmundsson,
Hvammur 328.296
Félög:
Islenskir Aðalverktakar
s.f. 1.484.031
Hafblik h.f. 1.419.830
Félag Vatnsvirkja h.f. 1.335.499
Sandnám Suðurnesja 412.967
Miðneshreppur:
Einstaklingar:
Heildargjöld:
Ólafur B. Erlingsson,
Hlíðargata 22 1.357.950
Pétur Hafst. Björnsson, Suðurgata 26 652.758
Karl Einarsson, Vallargata 21 619.435
Friðrik Björnsson, Tjarnargata 8 , 594.486
Sólmundur Jóhannsson, Vallargata 25 490.285
Félög: Miðnes h.f. 2.672.454
Jón Erlingsson h.f. 2.295.354
Hörður h.f. 1.107.244
ísl. Aðalverktakar s.f. 1.093.561
Atli h.f. 892.419
Gerðahreppur: Einstaklingar: Heildargjöld:
Guðbergur Ingólfsson, Gerðavegur 16 1.801.408
Guðmundur Jónsson, Rafkelsstaðir 1.501.391
Karl Sig. Njálsson, Garðbraut 88 839.947
Guðm. Þórarinsson, Gerðavegur 2 498.270
Njáll Benediktsson, Garðbraut 84 480.782
Félög: Dverghamrar h.f. 3.925.582
Isstöðin h.f. 1.557.779
Hólmsteinn h.f. 1.384.922
Sveinbjörn Árnason h.f. 1.237.087
Asgeir h.f. 1.055.006
Njarðvfkurhreppur: Einstaklingar: Ingvi Þorgeirsson, Grænás 3 1.384.777
Guðmundur Gestsson, Brekkustígur 31 1.302.952
Skarphéðinn Jóhannsson,
Hæðargata 5 1.017.574
Einar Guðmundsson, Reykjanesvegur 10 954.080
Sigurður G. Eiríksson, Hjallavegur 1 876.097
Félög: Islenzkir Aðalverktakar 3.809.599
Ellert Skúlason h.f. 2.762.239
Steypustöð Suðurnesja 2.116.409
Svavar Skúlason h.f. 1.698.214
Islenzkur Markaður 1.176.800
Vatnsleysustrandarhreppur:
Einstaklingar: Guðlaugur Aðalsteinsson,
Nýibær 442.126
Kristján R. Guðmundsson,
Hafnargata 20 342.135
Magnús Sigurðsson, Aragerði 13 332.059
Félög: Vogar h.f. 1.563.812
Valdimar h.f. 1.063.998
Garðahreppur: Einstaklingar: Sverrir Magnússon, Stekkjarflöt 25 2.119.945
Jóhann Þorbergsson, Bakkaflöt 4 1.856.253
Kristin Olsen, Haukanes14 1.718.716
Alfreð Elíasson, Haukanes 28 1.689.103
Hörður Sævaldsson, Smáraflöt 17 1.631.499
Félög: Stálvík h.f. 4.071.138
Nökkvi h.f. 1.035.056
Bessastaðahreppur: Einstaklingar: Reynir Guðbjörnsson, Björk 694.330
Björgvin Björgvinsson, Bjarnastaðir 459.488
Hannes Kristinn Davíðsson,
Þórukot 449.492
Gunnlaugur Halldórsson,
Hof 424.868
Arnar Guðbjörnsson, Hákot- 419.753
Seltjarnarnes: Einstaklingar: Guðrún F. Magnúsdóttir, Skólabraut 53 1.340.773
Páll G. Jónsson, Barðaströnd 9 1.325.616
Björn Jónsson, Barðaströnd 11 1.232.548
Jóhann Ólafsson,
Melabraut 30 1.129.493
Stefán örn Stefánsson,
Melabraut 32 1.069.104
Ingvar Vilhjálmsson,
Unnurbraut 2 1.008.747
Félög:
Hólar h.f. prentsm.
Bygggarður 1.662.265
Iðunn hf. prjónast.
Skerjabraut 1 1.529.235
Skarð h.f.
Bygggarður 732.027
Arnarkaffi h.f.
Bygggarður 559.706
Þórir h.f.
Ráðagerði 445.620
Mosfellshreppur:
Einstaklingar:
Guðjón Haraldsson,
Markholt 14 1.054.732
Guðmundur Magnússon,
Leirvogstunga 2 1.043.213
Haukur Þórðarson,
Reykjalundur 1.034.730
Jón M. Guðmundsson,
Suðurreykir 1 820.254
Thor O. Thors,
Lágafell 1.281.543
Þorlákur Ásgeris 866.358
Félög:
Hengill s.f. 779.435
Kaupfélag
Kjalarnesþ. 1.156.118
EN-Lmapar h.f. 686.799
Alafoss h.f. 7.844.381
Kjalarneshreppur:
Einstakiingar:
Sigurbjörn Eiríksson,
Alfsnes 1.550.324
Olafur Friðriksson,
Fólkvangur 1.092.853
Jón Sverrir Jónsson,
Varmidalur 495.383
Hilmar Helgason,
Fitjar 493.255
Björn Kjartansson,
Fitjakot 446.430
Félög:
B.M. Vallá h.f. 3.445.281
Vinnuvélar h.f. 1.278.015
Björn og Gylfi s.f. 344.992
Kjósarhreppur:
Einstaklingar:
Jóhann Ellertsson,
Meðalfell 519.800
Þorsteinn Ingimarsson,
Flekkudalur 332.137
— Taylor
Framhald af bls. 2
— Er maðurinn þinn beizkur
út í Islendinga?
„Nei, alls ekki. Ég talaði við
hann rétt áðan; hann sagðist að
vfsu vera leiður yfir þessu, en
hann kvartaði ekki yfir ls-
lendingum. Þvert á móti hældi
hann ykkur öllum, sérstaklega
áhöfninni og skipherranum á
Þór, sem hann sagði að hefði
sýnt mikinn drengskap og góða
sjómennsku. Ilann hefði aðeins
verið að vinna sitt starf og gert
það vel.“
— Alþingi
Framhald af bls. 28
stæðisflokkurinn hefði samþykkt
hana. Alþýðubandalagið hefði
hins vegar hafnað þessari tillögu,
en þá hefðu Alþýðuflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn fallið frá
henni.
Gunnar Thoroddsen sagði
síðan, að Alþýðuflokkurinn, Al-
þýðubandalagið, Framsóknar-
flokkurinn og Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna hefðu
ákveðið að standa sameiginlega
að kjöri varaforseta í sameinuðu
Alþingi og forseta efri og neðri
deildar. Sjálfstæðismönnum
hefðu hins vegar verið boðin störf
varaforseta í sameinuðu Alþingi
og í deildum. Þeir myndu á hinn
bóginn ekki óska eftir kjöri til
þeirra starfa. Gunnar Thoroddsen
sagði að lokum, að Sjálfstæðis-
flokkurinn harmaði, að tilraunir
til samkomulags skyldu hafa farið
út um þúfur.
Þórarinn Þórarinsson tók þvf
næst til máls um þingsköp.
Sagðist hann taka undir með
Gunnari Thoroddsen, að æskilegt
hefði verið, að samkomulag hefði
tekizt. Það hefði verið mat Fram-
sóknarflokksins, að Alþýðu-
flokkurinn hefði þá sérstöðu á
Alþingi nú eins og oft áður, að
vænlegast hefði verið að ná sam-
komulagi um formann hans sem
forseta sameinaðs Alþingis.
Þá sagði Þórarinn Þórarinsson,
að formenn þingflokka Alþýðu-
flokksins, Alþýðubandalagsins,
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna og Framsóknarflokksins
hefðu f sfðasta tilboði sfnu gefið
Sjálfstæðisflokknum kost á fyrsta
varaforseta sameinaðs Alþingis
og fyrsta varaforseta í báðum
deildum. Þetta væri nokkru
meira en hann hefði haft á sfðasta
kjörtímabili. Því miður hefði ekki
náðst samkomulag um þessa til-
lögu. Kosning þingforseta færi
því fram án allsherjarsamkomu-
lags.
Því næst fór fram kjör fyrsta
varaforseta sameinaðs Alþingis.
(Jrslit urðu þau, að fyrsti varafor-
seti var kjörinn Eðvarð Sigurðs-
son með 34 atkvæðum vinstri
flokkanna fjögurra. Einn seðill
var ógildur. Á honum var nafn
Eysteins Jónssonar. Þingmenn
Sjálfstæðisflokksins 25 að tölu
skiluðu einnig auðum seðlum.
Annar varaforseti sameinaðs
Alþingis var kjörinn Vilhjálmur
Hjálmarsson með 33 atkvæðum
þingmanna vinstri flokkanna, en
tveir þeirra skiluðu þó auðum
seðlum. Þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins skiluðu einnig auðum
seðlum.
Skrifarar f sameinuðu þingi
voru kjörnir Lárus Jónsson og
Jón Helgason. I kjörbréfanefnd
voru kjörnir: Matthías Á.
Mathiesen, Pálmi Jónsson, Eyjólf
ur Konráð Jónsson, Jón Skafta-
son, Tómas Árnason, Jónas Árna-
son og Karvel Pálmason.
Eftirtaldir 20 þingmenn voru
kjörnir til setu í efri deild: Geir
Hallgrímsson, Þorvaldur G. Krist-
jánsson, Jón Arnason, Oddur
Ólafsson, Steinþór Gestsson, Jón
G. Sólnes, Axel Jónsson, Albert
Guðmundsson, Ásgeir Bjarnason,
Einar Ágústsson, Halldór Ás-
grímsson, Ingi Tryggvason, Jón
Helgason, Steingrímur Her-
mannsson, Eggert G. Þorsteins-
son, Jón Ármann Héðinsson,
Ragnar Arnalds, Geir Gunnars-
son, Helgi Seljan, Stefán Jónsson.
Þingsetningarfundinum var
síðan slitið og boðað til funda í
deildum. Forseti neðri deildar var
kjörinn Gils Guðmundsson með
22 atkvæðum þingmanna vinstri
flokkanna, en einn þeirra skilaði
auðu. Ragnhildur Helgadóttir
fékk 17 atkvæði þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins. Gils Guðmunds-
son mun ekki sitja þetta auka-
þing.
Matthías Bjarnason kvaddi sér
hljóðs og gerði athugasemd við
það, að nýkjörinn forseti neðri
deildar væri nú staddur í Caracas
f Venesuela og yrði þar alllengi.
Beindi hann fyrirspurn til sjávar-
útvegsráðherra um það, hvort for-
seti deildarinnar væri væntan-
legur áður en aukaþinginu yrði
slitið. Lúðvík Jósepsson sagðist
ekki vita, hversu lengi aukaþingið
myndi standa né heldur hvenær
þingforseti kæmi til landsins.
Fyrsti varaforseti neðri deildar
var kjörinn Ingvar Gfslason með
22 atkvæðum þingmanna vinstri
flokkanna, en einn þeirra skilaði
þó auðum seðli. Sautján þing-
menn Sjálfstæðisflokksins skil-
uðu auðum seðlum.
Annar varaforseti var kjörinn
Benedikt Gröndal með 22 at-
kvæðum vinstri flokkanna, en
þeir hafa 23 þingmenn í deild-
inni. Þórarinn Þórarinsson fékk
eitt atkvæði. Sextán af 17 þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins
skiluðu auðum seðlum. Einn seð-
ill var ógildur; á honum var nafn
Bjarna Guðnasonar.
Skrifarar neðri deildar voru
kjörnir: Páll Pétursson og Ellert
B. Schram.
Forseti efri deildar var kjörinn
Ásgeir Bjarnason með 12 at-
kvæðum þingmanna vinstrí flokk-
anna. Jón Árnason fékk 8 atkvæði
þingmanna Sjálfstæðisflokksins f
deildinni.
Fyrsti varaforseti efri deildar
var kjörinn Eggert G. Þorsteins-
son með 12 atkvæðum. Auðir seðl-
ar voru átta. Annar varaforseti
efri deildar var kjörinn Helgi
Seljan með 12 atkvæðum. Auðir
seðlar voru átta. Skrifarar efri
deildar voru kjörnir Ingi
Tryggvason og Steinþór Gestsson.
— ísborg
Framhald af bls. 28
búnu á Isborgin að flytja sement
á ýmsar Norðurlandshafnir.
Samkvæmt upplýsingum Slysa-
varnafélags Islands tilkynnti Is-
borgin Siglufjarðarradíói um kl. 4
í nótt, að skipið hefði fengið á sig
brotsjó um 18 sjómílur norðvest-
ur af Tjörnesi. Virtist skipverjum
sem eitthvað hefði brotnað að
framanverðu, en allt virtist þó í
bezta gengi. Klukkan rúmlega sjö
tilkynnti síðan Siglufjarðarradíó
Slysavarnafélaginu, að það væri
nýbúið að hafa samband við Is-
borgina, sem segði að leki væri
kominn að skipinu og á því nokk-
ur slagsfða. Var þá ákveðið að
breyta stefnu skipsins og sigla þvf
undir Flatey á Skjálfanda. Haft
var samband við strandferðaskip-
ið Heklu, sem var á lfkum slóðum
og Isborgin, og það beðið að fara
til aðstoðar. Einnig gerði Slysa-
varnafélagið slökkviliðinu á
Húsavík aðvart og bað um, að það
léði dælur og gerðar voru ráðstaf-
anir til að útvega þaðan bát, er
flytti dælurnar út að Isborginni.
Einnig var haft samband við
slökkviliðið á Siglufirði, það beð-
ið um að lána dælur og reynt að fá
bát til að flytja þær til móts við
Isborgina.
Hekla fylgdist með Isborginni
inn undir Flatey, en þegar þangað
kom var komin um 35 gráða slag-
síða á skipið. Tók skipstjórinn þá
það ráð að sigla skipinu á land
rétt fyrir innan Víkurhöfða, sem
er yzt í Skjálfanda norðvestan-
verðum — skammt innan við Flat-
eyjarsundið.
Veður var svo vont á þessum
slóðum, að ekki þótti þorandi að
senda bát frá Húsavfk með
dælurnar heldur var Seláin, sem
lá í Húsavfkurhöfn, fengin til að
fara að hinu nauðstadda skipi,
Með Selá fór einnig flokkur
björgunarsveitarmanna, er höfðu
meðferðis slöngubát til að flytja
dælurnar milli skipanna, svo og
froskmaður.
Selá kom að ísborg laust fyrir
hádegið og hélt þá Heklan áfram
ferð sinni. Var sfðan eins og áður
segir unnið að því að lagfæra
skemmdirnar til bráðabirgða
fram eftir degi. Að sögn Harrys
Steinssonar skipstjóra á tsborg-
inni kom mikill hnykkur á skipið,
er brotsjórinn reið á það, en engin
meiðsli urðu þó á mannskapnum
um borð.
— Grikkland
Framhald af bls. 1
reynslulaus f utanrfkismálum.
Hann hefur verið viðskiptamála-
ráðherra, er menntaður
„teknokrati", en tók við utanríkis-
ráðherraembættinu af Spyridon
Tetenes, sem var andvfgur stefnu
hinna herforingjanna f Kýpur-
málinu.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í Aþenu, að herfor-
ingjarnir hafi ekki átt annarra
kosta völ en Ieita til reyndra
stjórnmálamanna vegna Genfar-
viðræðnanna, því að enginn
þeirra hafi treyst sér til að halda
nógu vel á málum Grikklands þar.
Er sagt, að Gizkis forseti hafi
lagt á það áherzlu við stjórnmála-
mennina, sem sátu ofangreindan
fund f dag, að herforingjarnir
mundu nú snúa sér aftur að her-
málum, en láta þá um að greiða úr
innan- og utanrfkispólitfskum
vandamálum þjóðarinnar.
Fundinn í dag sátu m.a. fjórir
fyrrverandi forsætisráðherrar,
þeirra á meðal Panayotis
Kanelluopoulos, sem var forsætis-
ráðherra, þegar herforingjarnir
tóku völdin, og Stepharos
Stephanopoulos. Einn formaðjr
Miðsambandsins, Georg Mavros,
Petros Garoufalias fyrrum land-
varnaráðherra og Evangeios
Averoff Toosita, sem var utan-
ríkisráðherra í stjórn Karamanlis
1958—1963.
AUir þessir menn að
Stephanopoulos undanteknum
hafa setið í stofufangelsi í lengri
eða skemmri tfma — og sumir
oftar en einu sinni — á stjórnar-
tfð herforingjanna vegna gagn-
rýni á stefnu þeirra og aðfarir.
Mavros var sfðast f marz sl. send-
ur til fangabúða á Jaroseyju, en
látinn laus tveimur mánuðum
síðar vegna harðra mótmæla er-
lendis frá.
Ekkert hefur heyrzt frá
Konstantin fyrrverandi konungi
Grikklands um atburðarásina f
heimalandi hans, en talsmaður
hans sagði f London í kvöld, að
hann fylgdist gjörla með því, sem
fram færi.
Auglýsing
um reglur vegna niðurgreiðslu á verði brennsluolíu til
islenzkra fiskiskipa, er landa afla sínum og taka olíu
hérlendis.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur falið Seðlabanka
Islands að auglýsa eftirfarandi reglur um niður-
greiðslu á verði brennsluolíu til íslenzkra fiski-
skipa, er landa afla sínum og taka olíu hér-
lendis, sbr. 4. gr. laga nr. 28/1974 um
tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verð-
bólgu:
1 Ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða
niður verð á brennsluolíu til íslenzkra
fiskiskipa, er landa afla sínum hér-
lendis frá 1. júní 1974, sbr. ákvæði
4. gr. laga nr. 28/ 1 974.
2. Sömu reglur gilda um ofangreindar
niðurgreiðslur og giltu fyrir tímabilið
frá 1 janúar til 31. maí s.l. með þeirri
undantekningu, að aðeins verður
greitt niður verð á brennsluolíu til
íslenzkra fiskiskipa, er landa afla
sínum og taka olíu hérlendis. Gerist
það, að skip sigli með aflann og selji
erlendis og hafi fengið brennsluolíu
hérlendis á niðurgreiddu verði, skal
það ekki fá brennsluolíu á niður-
greiddu verði hérlendis næstu 30
daga frá því að olían var tekin.
3. Seðlabanki íslands annast áfram
greiðslur til olíufélaganna vegna sölu
þeirra á brennsluolíu til fiskiskipa.
Reykjavík, 22. júlí 1974.
SEÐLABANK! ÍSLANDS