Morgunblaðið - 24.07.1974, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JULÍ 1974
ycjowuypð
Jeane Dixon
Spáin er fyrir daginn f dag
Hrúturinn
21. niarz. —19. apríl
Ef þú sýnir klókindi og lælur undan f
minni háttar málum, kanntu að vinna
stærri sigra. Reyndu að halda deiltim f
skefjum. Endilega verður að Ijúka af
venjuhundnum störfum til að árangur
eftir vikuna verði með eðlilegum hætti.
Nautið
20. apríl — 20. maí
Aðgættu hvernig málin hafa þróazt á
núverandi stig áður en þú tekur að þór
verkefnið. Af ferðalögum leiðir rugling
og óvissu. Byrjaðu daginn snemma með
léttri lund.
&
Tvíburarnir
21. maí — 20. júní
Það, sem áður virtist klappað og klárt, er
sfður en svo ákveðið og verður tilefni
endalausra deilna. Vertu þolinmóður og
reyndu að byggja upp varanleg sambönd.
Krabliinn
21. júní — 22. júlí
Allir hafa allt á hornum sér f dag. Þú
getur verið hreykinn af frammistöðu
þinni þegar yfir lýkur. Farðu snemma f
háttinn f kvöld.
%
í
Ljúnið
2.'$. júlí — 22. ágúsl
Engínn sérstakur greiði endist þér f
alian dag. Ef þú telur þig luma á ein-
hverju sérstöku f pokahorninu skaltu
halda þvf leyndu um sinn. Betra tæki-
færi gefst sfðar tíl að koma þvf á fram-
færi.
Mærin
mMll 23. ágúsl — 22. scpt.
Haltu þig við viðurkenndar aðferðir
þangað til búið er að sanna ágæti nýrra
aðferða. Leitaðu sjálfur svara við
spurníngum þfnum. Ástamálin eru f
ládeyðu hjá þér, og það er fullt eins gott.
g
Wn
*h\ Vogin
23. scpl. — 22. okl.
Þú ert ákaflega gagnrýninn þessa
stundina og það eru reyndar fleiri. Þú
nærð góðu forskoti ef þú forðast persónu-
legar illdeilur og dóma um aðra. Sfðdegis
ætti þér að gefast íæri á að láta Ijós þitt
skfna.
Drekinn
22. okt. — 21. nóv.
Leynimakk gerir aðeins íllt verra.
Starfaðu samkvæmt viðurkenndum venj-
um, og stattu við gerða samninga. Þá
verður þú á grænni grein ef eitthvað fer
úrskeiðis.
Boganiaðu rinn
22. n óv. — 21. des.
Vinir þfnir vilja þér vel, og leyfðu þeim
það. Stofnaðu ekki til rifrildis út af fjár-
málum. Hættu við aukaferðalög, undir-
búðu þig vel og ruddu öllum hindrunum
úr vegi.
Stoingeilin
22. (Ics. — 19. jan.
Taktu annað fólk eins og það er. Leyfðu
þeim að fara sfnu fram án afskipta
þinna. Þannig færð þú Ifka sjálfur bezt
næði til þínna starfa.
Vatnsberinn
20. jan. — 18. feb.
Minni háttar óþægindi halda áfram.
Snurðra hleypur á þráðinn f samningum,
upplýsingar eru ónákvæmar og ferðir
bregðast. Þú ættir að geta lært eitthvað
af þessu öllu saman.
Fiskarnir
19. feb. — 20. marz.
Ef þú heldur áfram rólegri ferð þinni,
tapar þú ekki skyninu fyrir mannlegri
virðingu og rétti annarra til að njóta
hennar. Þú getur enn þá komizt nær þvf
að ná fullkomnun.
X-0
LJÓSKA
KÖTTURINN FELJX