Morgunblaðið - 18.09.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1974
27
* *
IÞROTTAFREITIR MORCUNBTADSINS
HLAUPIÐ OG
SPYRNTÁN
ÁRANGURS
Einn leikmanna Porta-
down bindur enda á
sóknaraðgerðir Her-
manns Gunnarssonar og
Harðar Hilmarssonar.
ENN hafa Valsmenn ekki tapað
Evrópubikarleik á heimavelli,
né heldur unnið. 1 gærkvöldi
gerðu þeir jafntefli við norður-
frska liðið Portadown, ekkert
mark var skorað. Leikurinn var
með afbrigðum lélegur, en
Valsmenn voru þó jafnan
skárri aðilinn, og hefðu átt að
sigra, ef metið er eftir gangi
leiksins og tækifærum. En það
eru ekki alltaf jólin, ekki f
knattspyrnunni fremur en
öðru, og Valsmenn náðu sér
aldrei á strik f leiknum f gær og
sýndu ekkert af því sem færði
þeim bikarmeistaratitilinn s.l.
laugardag. Allir leikmenn
Valsliðsins, að tveimur undan-
skildum, léku undir getu. Það
var gremjulegt fyrir Valsmenn
að vinna ekki sigur yfir þessu
frska liði sem sennilega er það
slakasta sem sótt hefur okkur
heim f Evrópubikarkeppni.
Verða knattspyrnuunnendur að
bfða morguns til þess að sjá
betri knattspyrnu, en þá keppir
Real Madrid við Fram á
Laugardalsvellinum.
Ekkert efamál er að vallar-
skilyrðin áttu drjúgan þátt í
þvf hversu leikurinn var léleg-
ur. Eftir rigningarnar að
undanförnu er völlurinn orð-
inn mjög blautur og þungur, og
hvað eftir annað mátti sjá leik-
menn beggja liða mistakast illa
það sem þeir ætluðu sér, er þeir
runnu í blautu grasinu. Kom
þetta jafnvel enn verr niður á
Valsmönnum, þar sem trarnir
munu öllu vanari að leika á
blautum völlum.
En þótt Valsmönnum tækist
ekki að sigra í leiknum f gær-
kvöldi er engan veginn öll nótt
úti hjá þeim að komast f aðra
umferð. Með þvf að leika örlftið
betur f leiknum á írlandi eiga
þeir alla möguleika á sigri, eða
jafntefli mcð mörkum, sem
nægir þeim. Þvf verður ekki
trúað að óreyndu að Valsmenn
geti ekki unnið lið sem Porta-
down, jafnvel þótt það leiki f.
heimavelli sfnum. Leikmenn
írska liðsins virðast flestir
hverjir vera fremur æfingalitl-
ir. Hreyfingar þcirra eru þung-
lammalegar og knattmeðferð
a.m.k. ekki betri en hjá Vals-
mönnum.
t leiknum f gærkvöldi lögðu
trarnir greinilega höfuð-
áherzlu á að verjast og berjast.
Hvorutveggja bar hjá þeim góð-
an árangur. Oft var það þannig
að allir leikmennirnir, nema
Sigurður Dagsson Valsmark-
vörður, voru á vallarhelmingi
frska liðsins, og þar hvorki
gekk né rak. Knettinum var
spyrnt á milli af mikilli
ónákvæmni, og Iftið gert til
þess að reyna að byggja upp
skipulagðar sóknaraðgerðir
eins og valsmenn gerðu f leikn-
um á móti Akurnesingum á
laugardaginn. Það var þvf oft-
ast meira fyrir tilviljun en
vinnu er mark Portadown
komst f hættú, og þá var Ifka
öllu klúðrað.
Mikið fum var á Valsmönn-
um f þessum leik. Það var sem
þeir ætluðu sér að skora tvö
mörk f hvert skipti sem þeir
nálguðust mark Portadown, og
ákafinn gerði trunum auð-
veldara fyrir að verjast. Leik-
menn Vals fengu lfka Iftinn
frið, þar sem leikmcnn Porta-
down komu jafnan vel á móti
þeim, og létu þá aldrei f friði.
Þeir áttu einnig sfna möguleika
til markaskorunar, en bæði var
að þeir voru ákaflega
ónákvæmir f spyrnum sfnum,
og eins það að Sigurður Dags-
Valur og
Porta-
down
gerðu
jafn-
tefli
0:0
son lét engan bilbug á sér finna
f markvörzlunni.
Tvfvegis f leiknum f gær varð
dómaranum, sem kom frá
Luxemburg alvarlcga á f mess-
unni, er hann dæmdi ekkert er
varnarleikmenn Portadown
handfjölluðu knöttinn innan
vítateigs. Var hann f bæði
skiptin rækilega falinn á bak
við f jölda leikmanna og sá ekki
hvað fram fór. A.m.k. f annað
skiptið var vftaspyrna eini rétti
dómurinn og mikið má vera ef
svo hefur ekki einnig verið f
hitt skiptið.
Þeir tveir Valsmenn sem
virkilega stóðu uppúr í þessum
leik voru þeir Dýri Guðmunds-
son, sem var langbezti maður
vallarins, og Sigurður Dagsson,
sem varði Valsmarkið mjög vel.
Áhöld voru um hvort Dýri gæti
leikið þennan leik sökum
meiðsla sem hann varð fyrir í
bikarúrslitaleiknum á laugar-
daginn. En þegar á hólminn var
komið barðist hann bezt allra
Valsmanna, stöðvaði flestar
sóknir tranna og eini maðurinn
f Valsliðinu sem reyndi að
byggja upp með spyrnum sfn-
um — horfa fyrst og spyrna
sfðan. Þá átti Jóhannes Eð-
valdsson allgóðan leik — samt
ekki eins góðan og oftast áður f
sumar og Sigurður Jónsson stóð
fyrir sfnu. Aðrir leikmenn Vals
voru greinilega ekki í jafnvægi,
og sérstaklega var sókn liðsins
bitlftil og Iftt ógnandi f leik
sfnum. Það var helzt er Her-
mann Gunnarsson kom inná f
seinni hálfleik, að svolftið lifn-
aði yfir henni, en Hcrmann átti
nokkrar laglegar sendingar á
samherja sfna, sem ekkert varð
svo úr.
Sumir lcikmanna frska liðs-
ins virðast vera hreinustu ungl-
ingar, enda mun vera svo að lið
þetta er nánast uppcldisstofn-
un fyrir önnur lið, sem meira
geta greitt leikmönnunum.
þyngsiasvipur var eigi að sfður
yfirbragð liðsins og aðeins einn
leikmaður þess var verulega at-
hyglisverður, Terry Kingon, en
ságerði marga hluti laglega.
I STUTTU MÁLI:
UEFA-bikarkeppnin
Laugardalsvöllur 17. septem-
ber
Urslit: Valur — Portadown 0:0
Aminning: Engin
Ahorfendur: 5062.
Real-Madrid
leikmennimir
meðal áhorf-
enda í gær
MEÐAL áhorfenda að leik Vals
og Portadown á Laugardalsvell-
inum i gærkvöldi voru leikmenn
spánska liðsins Real Madrid, sem
hingað eru komnir til þess að
keppa við Fram i Evrópubikar-
keppni bikarhafa. Vafalaust
hefur þeim ekki litist knattspyrna
sú, sem boðið var upp á I leik
þessum, stórfengleg, og hyggja
sjálfsagt gott til leiksins á morgun
við Fram.
En mikið má vera ef Framarar
eiga ekki eftir að sýna af sér
meira spariandlit í leiknum við
Real Madrid en Valur sýndi
Portadown, og vonandi megna
Framararnir að veita þessum
knattspyrnusnillingum verðuga
keppni. Við íslenzkum sigri býst
enginn í leiknum á morgun, en
góða knattspyrnu vilja allir sjá.
Forsala aðgöngumiða að leikn-
um hefst úr tjaldi við Utvegs-
bankann kl. 13.00 í dag, og er
fólki ráðlagt að tryggja sér miða i
tíma og forðast þannig þrengsli
við völiinn, eins og t.d. voru er
leikur Vals og Portadown hófst í
gærkvöldi. Búast má við að fljót-
lega seljist upp i stúku á leikinn.
Þess má svo geta að spánsku
kapparnir munu I dag, kl. 17.30
æfa á Framvellinum og freista
þess að kynnast þar með „íslenzk-
um aðstæðum".
Framhalds-
stofnfundur
FRAMHALDSSTOFNFUNDUR
íþróttafélags fatlaðra verður
haldinn n.k. fimmtudag að Hátúni
12, 2. hæð. Allir sem áhuga hafa,
jafnt fatlaðir sem heilbrigðir eru
boðnir velkomnir á fundinn, sem
hefst kl. 20.30.
lOmeð
11 rétta
I FIMMTU leikviku Getrauna
komu fram 10 seðlar með 11 rétta
leiki og koma kr. 29.500,00 í hlut
hvers vinningshafa. Fyrir 10 rétta
verður vinningurinn kr. 2.000,00,
en 62 seðlar komu fram með 10
rétta.
Golfkeppni
HIN árlega golfkeppni hand-
knattleiksmanna fer fram á
Grafarholtsvellinum sunnudag-
inn 22. september og hefst kl.
13.30. Keppt verður í tveimur
flokkum
Glímuþing
11. GLIMUÞING Glímusambands
Islands verður haldið að Hótel
Esju sunnudaginn 20. október
n.k. og hefst kl. 13.00.
Borg
sigrar
SIGURGANGA hins 18 ára
tennissnillings frá Svlþjóð, Björn
Borg heldur stöðugt áfram. Um
helgina sigraði hann í opna
bandaríska meistaramótinu fyrir
atvinnumenn. Mætti Borg Hol-
lendingnum Tom Okker I úrslit-
um og fóru leikir þeirra 7—6,
6—log 6—1.