Morgunblaðið - 15.10.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1980
I
Mikið hefur verið að Kera við sildarsoltun hjá Pólarsild á
Fáskrúðsfirði undanfarið. (Ljósm. Alberi Kemp).
Fáskrúðsfjörður:
Með þúsund tuimur
á 2 sólarhringum
Dollar í
552 kr.?
KAUPGENGI Bandaríkjadollars
var í byrjun vikunnar skráð 537
krónur, en hratt gengissig hefur
verið í gangi undanfarið. Stein-
grímur Hermannsson, sjávarút-
vegsráðherra, var spurður að því í
gær hver væru mörk gengissigsins.
Svaraði hann því á þá leið að vísa
til áætlunar Þjóðhagsstofnunar um
afkomu frystihúsa. Þar segir um
rekstur húsanna: „Miðað við gengi
dollars 552 krónur væri reksturinn
líklega hallalaus".
Asmundur
fulltrúi VR
á ASÍ-þingi
SJÁLFKJÖRIÐ var innan Verzl-
unarmannafélags Reykjavikur
um það hverjir skuli verða
fulltrúar félagsins á ASÍ-þingi,
sem haldið verður í nóvember-
mánuði. Aðeins kom fram einn
listi. listi stjórnar félagsins með
nöfnum 45 VR-félaga.
Á listanum er að finna nafn
Ásmundar Stefánssonar, fram-
kvæmdastjóra Alþýðusambands
íslands, en hann gekk í félagið í
júlímánuði síðastliðnum. Til þess
að menn séu kjörgengir til trúnað-
arstarfa innan ASÍ þurfa menn að
vera félagar einhvers aðildarfé-
lags ASÍ.
Fá.skrúúsíirði M. oktúber.
MJÖG mikil síldveiði hefur verið
siðustu daga og hefur aflinn
einkum fengizt í Reyðarfirði og
Mjóafirði. í gær lönduðu 10 bátar
hér samtals 2600 tunnum. í dag
verður landað úr 8 bátum um
1500 tunnum. Aflahæsti báturinn
bæði í gær og í dag er Sigurður
ólafsson SF 44. Hann var með
550 tunnur i gær og um 450
tunnur i dag. Er þá heildarafli
hans orðinn um 3.800 tunnur.
Skipstjóri á Sigurði ólafssyni er
ólafur Þorbjörnsson og hefur
hann landað megninu af afla
sinum á vertiðinni hér á Fá-
skrúðsfirði.
Bergur Hallgrímsson fram-
kvæmdastjóri einu söltunarstöðv-
arinnar, sem hér starfar, Pólarsíld
hf, sagði í samtali við fréttamann,
að nú hefði verið saltað í 8500
tunnur hjá fyrirtækinu. Við sölt-
unarborðin er pláss fyrir 38 stúlk-
ur og hefur alltaf verið fullskipað
í söltuninni frá því í byrjun
september. Staðið hefur verið við
frá hádegi fram á kvöld þangað til
í þessari törn núna, að byrjað
hefur verið 8 á morgnana og í
gærkvöldi var saltað til klukkan
22.30. í morgun var svo byrjað
aftur klukkan 8 og er reiknað með
að söltun á þessum afla ljúki í
kvöld. — AJbert.
Metsala í Grímsby:
1054 kr. fyrir kílóið
VÉLBÁTURINN Kristján Guð-
mundsson frá Eskifirði fékk
hæsta meðalverð í islenzkum
krónum. sem fengizt hefur er
skipið seldi afla sinn i Grimsby í
gær og mun meðalverðið einnig
vera með því bezta í sterlings-
pundum.
Báturinn landaði 41 tonni og
fengust 43,2 milljónir króna fyrir
aflann, meðalverð 1.054 krónur á
kíló. Fiskurinn þótti mjög góður
og fór í 1. gæðaflokk. Skipstjóri á
Kristjáni Guðmundssyni er Þórir
Björnsson. Báturinn var á línu
fyrir austan og hefði siglt með
meiri afla ef bræla hefði ekki
hamlað veiðum.
Stjórn Flugleiða ræddi Atlantshafsflugið:
„Bíðum enn eftir endanlegu
svari ríkisstjórnarinnar"
- segir Örn O. Johnson stjórnarformaður Flugleiða
„LTJÓRN FLugleiða bíður enn
eftir endanlegu svari frá ríkis-
stjórninni varðandi áframhald
Atlantshafsflugsins.“ sagði Örn
O. Johnson stjórnarformaður
Flugleiða í samtali við Mbl. í
gær að loknum stjórnarfundi
þar sem bréf fjármálaráðherra
til Flugleiða var m.a. til um-
ræðu.
„Við væntum svars frá ríkis-
stjórninni á næstu dögum,“ sagði
Örn, “enda brýn nauðsyn að þessi
mál upplýsist mjög fljótlega þar
sem tíminn er að renna frá okkur
og taka þarf hið bráðasta ákvörð-
un um það með hvaða hætti
framhald verður á rekstri Flug-
leiða eftir 1. nóvember. í bréfi
fjármálaráðherra eru atriði sem
þarfnast frekari skýringa og við
verðum að afgreiða þessi mál á
næstu dögum, því það eru marg-
ar ákvarðanir sem kalla á. Fjöldi
fólks bíður svara varðandi
endurráðningu, sölukerfi okkar
er í biðstöðu og fleira og fleira er
háð afgreiðslu þessa máls, en
samþykkt hluthafafundar á
framhaldi Norður-Atlantshafs-
flugsins var eins og kunnugt er
skilyrt því að jákvæð svör bærust
frá ríkisstjórn íslands við þeim
fjárhagslegu atriðum sem stjórn-
völd og Flugleiðir hafa rætt að
undanförnu."
Örn O. Johnson
Morgunblaðið hafði samband
við Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra í gærkvöldi og spurði
hann um afgreiðslu ríkisstjórn-
arinnar varðandi Atlantshafs-
flug Flugleiða. Dr. Gunnar
kvaðst ekki vilja tjá sig um málið
á þessu stigi, en það væri áfram
til meðferðar hjá ríkisstjórninni.
Gunnar Thoroddsen
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra:
„Málið áfram til meðferðar hjá stjórninni'
ASÍ ákveður í
dag aðgerðir
VSÍ segist þegar hafa samþykkt
7,5% launahækkun að meðaltali
NEFND sú, sem 14 manna
nefnd ASÍ kaus í fyrradag til
þess að gera tillogur um
aðgerðir í kjaradeilunni sat
á tveggja klukkustunda
fundi í gær. Árdegis í dag
verður svo fundur í 14
manna nefndinni og eftir
hádegið i 43ja manna nefnd-
inni, þar sem endanlega
verða teknar ákvarðanir um
verkföll, sem búizt er við að
verði starfsgreina- eða lands-
hlutaverkföll, tímabundin. í
gær ræddi framkvæmda-
stjórn VSÍ stöðu samninga-
viðræðna.
I fréttatilkynningu frá Vinnu-
veitendasambandinu segir, að í
framhaldi af tillögu sáttanefndar
og hótunum ASÍ um verkfallsað-
gerðir, hafi verið ákveðið að
leggja tillögur um viðbrögð af
hálfu VSÍ fyrir 60 manna sam-
bandsstjórn VSÍ og er hún kvödd
saman í dag klukkan 16. Á fundi
framkvæmdastjórnarinnar í gær
voru lagðir fram útreikningar
hagdeildar VSÍ á þeim kaup-
hækkunum, sem VSÍ hefur þegar
fallist á í formi flokkatilfærslna
og almennra launahækkana. Sú
hækkun nemur 7,5% að meðal-
tali. Útreikningar hagdeildarinn-
ar sýna, að sáttatillagan myndi
þýða 11% launahækkun að með-
altali. Launahækkun ellefu
neðstu launaflokka BSRB var um
6%.
Fiskhækkun
framundan
vestan hafs?
FRAM kom á blaðamanna-
fundi með sjávarútvegsráð-
herra í gær, að menn gera sér
nokkrar vonir um hækkun
þorskblokkar á Bandaríkja-
markaði á næstu mánuðum.
Kom fram á fundinum, að
seljendur frystra sjávaraf-
urða telja nú mun léttari
róður á þessum markaði held-
ur en á tímabili í ár og að því
erfiðleikatímabili, sem verið
hefur á þessum mikilvæga
markaði, sé nú að ljúka.
Skattvísitalan 145:
4-5 milljarða króna
aukning skattbyrði
SAMKVÆMT þeim upplýsingum,
sem Mbl. aflaði sér í gær, þýðir
skattvísitalan i fjárlagafrum-
varpi Ragnars Arnalds 4ra til 5
milljarða króna aukna skatt-
byrði, en frumvarpið gerir ráð
fyrir skattvisitölu 145 meðan
hækkun kauptaxta milli 1979 og
80 er talin 48%. -
INNLENT
í athugasemdum við tekjuhlið
fjárlagafrumvarpsins kemur m.a.
fram, að álagður eignarskattur
einstaklinga og félaga í ár er um 2
milljörðum króna hærri, en áætl-
un fjárlaga 1980 og að nettóálagn-
ing tekjuskatts einstaklinga er 1,5
milljörðum umfram fjárlagaáætl-
un. Samkvæmt fyrirliggjandi
álagningartölum hefur álagður
tekjuskattur félaga numið röskum
10,6 milljörðum króna á þessu ári,
en í fjárlögum fyrir árið 1980 er
tekjuskattur félaga áætlaður 10
milljarðar króna. Þannig er þessi
álagning röskum 4 milljörðum
krónum meiri en fjárlög yfir-
standandi árs reikna með.
Olína Björnsdóttir
á Sauðárkróki látin
SÍÐASTLIÐINN mánudagsmorg-
un andaðist i sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki ólina Björnsdóttir
Aðalgötu 5 þar í bæ, á 78. aldurs-
ári. Ilún hafði átt við rnikla
vanheilsu að búa síðustu mánuði.
Ólína var fædd á Skefilsstöðum á
Skaga 23. maí 1903, dóttir Björns
bónda þar Ólafssonar og konu hans,
Guðrúnar Björnsdóttur. Ólína var
tvígift. Fyrri maður hennar var
Snæbjörn Sigurgeirsson bakara-
meistari. Hann andaðist 1932. Sið-
ari maður Ólínu er Guðjón Sigurðs-
son bakarameistari og fyrrum bæj-
arfulltrúi á Sauðárkróki. Með
mönnum sínum eignaðist Ólína níu
börn, og eru sjö þeirra enn á lífi.
Ólína rak um langt skeið veit-
ingasölu á Sauðárkróki og hún tók
mikinn þátt í atvinnurekstri eigin-
manna sinna. Á Sauðárkróki tók
Ólína virkan þátt í störfum ýmissa
félaga, svo sem Kvenfélags Sauð-
árkróks. Hún vann mikið að mál-
efnum Sjálfstæðisflokksins, var
einn af stofnendum Sjálfstæðisfé-
lags Sauðárkróks, og formaður þess
mörg síðustu árin. Hún þótti alls
staðar góður liðsmaður, hún naut
trausts og virðingar samferða-
manna sinna.
óllna Björnsdóttir