Morgunblaðið - 22.07.1981, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ1981
Terelynebuxur kr. 144,-. Terelyne-
blússur kr. 226,- Gallabuxur, dömu og
herra, 2 snlö kr. 145,-. Flauelsbuxur
kr. 136,- Sokkar kr. 8,-. Regnföt kr.
175,-. Úlpur, skyrtur, nærföt o.fl.
ódýrt.
Andrés, Skólavörðustíg 22
•I
FASTEIGNAMIÐLUN
SVERRIR KRISTJÁNSSON HEIMASÍMI 42822
FJÖLNISVEGI 16, 2. HÆÐ, 101 REYKJVÍK
VINSAMLEGA ATHUGIÐ AÐ VIÐ ERUM
FLUTTIR ÚR HREYFILSHÚSINU
FELLSMÚLA 26 AÐ FJÖLNISVEGI 16,
2. HÆÐ
Sérhæö í Vesturbæ
Til sölu 118 fm sérhteö, 1. hæð ásamt geymslu í kjallara
og bílskúrsrétti. Góð útborgun nauösynleg. íbúöin er
laus.
Háabarð — Einbýlishús
Til sölu ca. 100 fm einbýlishús á einni hæö ásamt ca. 30 fm
bílskúr Hornlóö, mikið útsýni. Getur losnaö fljótt.
Safamýri
Til sölu ca. 117 fm 4—5 herb.
íbúö á 4. hæö. Laus fljótt.
Leirubakki
Til sölu 2ja herb. íbúö á 2. hæö.
Þvottaherb. á hæöinni.
Fellsmúli
Til sölu 4—5 herb. 115 fm
endaíbúó á 1. hæö, (ekki jarö-
hæö). Suöur- og austursvalir. í
skiptum óskast góö 3ja herb.
eöa stór 2ja herb. íbúö á
svipuöum slóöum eða sem
næst gamla bænum.
Vantar - Vantar - Vantar - Vantar - Vantar
Hef mjög góóan kaupanda aö góöri 3ja herb. íbúö, helst á svæöinu
Fossvogur og allt vestur á Mela. Mikil útb.
Hef mjög góðan kaupanda aö rúmgóöri 3ja herb. íbúö eöa 4ra
herb. íbúö innan Elliöaáa, helst á 1. eöa 2. hæö. Losun í nóv. nk.
Hef góóan kaupanda að einbýlishúsi ca. 200 fm. Æskileg
staösetning á Stórageröissvæöi og kaupanda aö einbýlishúsi í
Fossvogi eöa aö vönduöu húsi nálægt gamla miöbænum.
Hef góóan kaupanda að einbýlishúsi ca. 145—155 fm á einni
hæö. á Flötum, í Stekkjahverfi, Kópavogi eóa Noróurbæ.
Hef góóan kaupanda aö raöhúsi eöa einbýlishúsi f smföum í
Hafnarfiröi, Kópavogi eöa Seltjarnarnesi.
Hef mjög fjársterkan kaupanda aö raöhúsi, einbýlishúsi eöa
sérhæö. Eignin þarf ekkl aö vera laus fyrr en eftir 12—18 mánuöi.
Verzlunarhæð í Múlahverfi
Til sölu ca. 400 fm verzlunarhaBð í Múlahverfi ásamt ca.
100—200 fm lagerplássi. Laust til afhendingar í okt. nk.
Raðhús í Kópavogi
Til sölu 2x125 fm raðhús ásamt ca. 30 fm bílskúr við
Vogatungu. í húsinu eru m.a. 6 svefnherb. Húsiö gefur
möguleika á aö innréttuö sé litil séríbúö á jaröhæö. Laus
fjótt. Ýmis eígnaskipti koma til greina svo sem aö taka
upp í 2ja—3ja eöa 4ra herb. íbúö eöa bein sala.
Kópavogsbraut — Einbýlishús
Til sölu einbýlishús sem er ca. 150 fm, kjallari, hæö og ris
ásamt ca. 40 fm bílskúr, sem er fokheldur. Stór og mjög
mikið ræktuö lóð. í húsinu eru m.a. 5—6 svefnherb. o.fl.
Góóur staöur. Útsýni. Laust fljótt.
Æsufell — Lyftuhús
Til sölu 2ja herb. íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. íbúöin er laus
strax. Mikiö útsýni yfir bæinn.
Hjarðarland —
Mýrarás í Seláshverfi
Til sölu plata undir 190 fm hús
ásamt bílskúr.
Mýrarsel
Til sölu ca. 210 fm raöhús
ásamt garöstofu og ca. 50 fm
bílskúr. Húsiö selst fokhelt.
Teikningar og nánari uppl. á
skrifstofunni. Upp í kaupin má
ganga 2ja—4ra herb. íbúö.
Safamýri
Til sölu ca. 96 fm 3ja herb. íbúö
á jaröhæö ásamt ca. 85 fm
geymslurými í kjallara.
Kjarrhólmi
Til sölu ca. 90 fm 3ja herb. íbúö
á 1. hæö. Falleg íbúö.
Hegranes — Arnarnesi
Til sölu einbýlishús í smíðum.
Mosfellssveit
Til sölu 831 fm byggingarlóö
undir einbýlishús.
Snorrabraut
Til sölu 103 fm neöri sérhæö
ásamt 2 herb. í kjallara og
bílskúr, í príbýlishúsi viö
Snorrabraut. íbúöin er laus
fljótt.
Digranesvegur
Til sölu 107 fm 4ra herb. íbúð í
þríbýlishúsi. Bílskúrsréttur.
Laus fjótt. Mikiö útsýni.
Hverfisgata
Til sölu 3ja herb. íbúð.
Dalsbrekka
Til sölu rúmgóö 2ja herb. íbúö á
jaröhæö.
Reynilundur — Einbýli
Til sölu ca. 220—230 fm einbýlishús sem er hæð og ris
ásamt ca. 50 fm bílskúr. í húsinu eru m.a. 4—5 svefnherb.,
2—3 stofur, eldhús, böö o.fl. Húsiö er mikiö nýstandsett á
smekklegan hátt. Skipti á minna einbýli í suöurhluta
Kópavogs æskileg.
Solumaóur Baldvin Halslmnason, haimaaimi 387M.
Málflutningsstofa,
Sigrídur Asgsirsdóttir hdl.,
Hafsteinn Baldvinsson. hrl.
Alfreð Jóhannsson forstjóri ísfugls kynnir hér fyrir bim. ýmsar vörunýjungar frá fyrirtækinu. Honum til
hæxri handar stendur Bjarni Ásgeir Jónsson og til hægri handar Jón Guðmundsson á Reykjum en þeir eiga
sæti í stjórn fyrirtækisins. Ljósm. Mbi. rax.
*
Isfugl:
„Stöðugt unnið að endurbótum44
AlifuKÍasláturhúsið ísfugi hef-
ur nú verið starfrækt i nær tvö ár
eða frá því i ágústbyrjun 1979. Af
þvi tilefni átti Mbl. stutt spjali
við Alfreð Jóhannsson forstjóra
þess fyrir skömmu.
Sagði hann að þegar húsið hefði
verið byggt hefði verið stuðst við
ströngustu heilbrigðiskröfur við
alla uppbyggingu hússins enda
hafi slátrun fram að þeim tíma
verið framkvæmd við skilyrði, sem
engan veginn samrýmdust nútíma
kröfum um heilbrigði og hollustu-
hætti. Sagði Alfreð að Isfugi hefði
verið fyrsta fyrirtæki sinnar teg-
undar á Islandi til þess að hljóta
fullgilt leyfi heilbrigðisyfirvalda
til slátrunar og sölu alifugla.
„Þegar húsið var byggt var í það
keyptur fullkominn tækjabúnaður
og var hann valinn í samráði við
heilbrigðisyfirvöld hér á landi og
sérfræðinga á þessu sviði erlendis.
Til dæmis má nefna að keypt var
sjálfvirk þvottavél fyrir flutn-
ingakassa undir Iifandi fugla. Vél-
in þvær kassana og sótthreinsar
þá eftir notkun. Sérstakt tæki er
notað sem aflífar fuglinn á sek-
úndubroti með raflosti og einnig
má nefna sérstakt tæki fyrir
sjálfvirka reitingu sem talið var
heppilegt að hafa vegna afkasta
hússins." Þá gat Alfreð þess að
stöðugt væri unnið að því að bæta
- segir Alferð Jóhanns-
son forstjóri
við vélakost, auka hagræðingu,
afköst og vörugæði.
„Því er ekki að neita að ýmsar
mikilvægar forsendur sem gengið
var út frá þegar húsið var byggt
og gengið út frá í upphafi hafa
brugðist hvað varðar verkefni
fyrir húsið. Gengið var út frá því
þegar á uppbyggingunni stóð, að
til stæði að anna allri slátrun
fyrir Suður- og Vesturland, en nú
eru eins og kunnugt er rekin
fjögur alifuglasláturhús á þessu
svæði."
Sagði Alfreð Jóhannsson að
fyrirtækið hefði orðið að haga
rekstri hússins í samræmi við
þessar breyttu aðstæður. Hefði til
dæmis verið framkvæmd gagnger
endurskoðun á rekstri þess, sem
miðaði að því að hægt væri að
reka það með nær helmingsafköst-
um.
Ennfremur sagði Alfreð að ýms-
ir örðugleikar væru í alifuglarækt,
t.d. fóðurbætisskattur og aukin
niðurgreiðsla á öðru kjöti, ásamt
ört hækkandi fóðurverði erlendis,
hafa einnig orsakað að margir
aðilar hafa dregið saman fram-
leiðsluna tímabundið eða hætt.
Sagði Alfreð að þeir hefðu verið
„pískaðir" til þess af hinu opin-
bera að leggja sig fram við að
halda rekstrinum gangandi með
sem allra minnstum tilkostnaði.
Alfreð Jóhannsson sagði að Is-
fugl seldi nú þrjár mismunandi
tegundir af kjúklingum, væru það
Glóðarkjúklingar, Holdakjúkl-
ingar og Holda Reginkjúklingar.
Þá sagði hann að kjúklingahlutar
hefðu einnig reynst vinsælir og þá
sérpakkaðir leggir, bringur og
vængir.
„Til gamans má geta þess að
eggjaskorturinn undanfarna 6—8
mánuði hefur m.a. orsakað að
hænunum hefur ekki verið slátrað
á meðan úr þeim fást einhver egg.
Vegna þessa hefur ekki verið hægt
að bjóða upp á þessar vörutegund-
ir nema endrum og eins.
Stöðugt hefur verið unnið að
vöruþróun og nýjungum,“ sagði
Alfreð. „Af því nýjasta má nefna
svonefnt kjúklingahakk sem náð
hefur miklum vinsældum. Þá er á
döfinni að koma með sérstakan
gæðaflokk á kjúklingum, einskon-
ar stjörnuflokk. Munu bændur þá
fá hærra verð fyrir þennan flokk,
þannig að í þessu felst hvatning til
að vanda framleiðsluna. Verða
þessir kjúklingar kallaðir „Eðal-
kjúklingar", sagði Alfreð Jóhanns-
son forstjóri ísfugls að lokum.
\ r ' íl
Tómas Tómasson afhendir Sigurði Magnússyni
framkvæmdastjóra Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra myndsegulbandið, sem hann sagði að
kæmi i góðar þarfir um leið og hann þakkaði
gjöfina. LJísm. RAX
Tommahamborgarar:
Við opnun hins nýja Tomma-hamborgarastaðar á
Laugavegi bauð hann vegfarendum ókeypis
veitingar.
LjÓHin. Guðjón.
Gefur Styrktarfélagi lamaðra og
fatlaðra myndsegulbandstæki
Tommahamborgarar opnuðu
fyrir helgina nýjan hamborg-
arastað i Reykjavik og er hann
tii húsa í Verzlanahöllinni.
Laugavegi 26. Þar er á boðstól-
um sami matseðill og hjá
Tommahamborgurum á Grens-
ásvegi og verður hinn nýi stað-
ur opinn á venjulegum verzl-
unartima.
í tilefni opnuriar hins nýja
staðar og að nú er fyrirtækið
búið að selja yfir 100 þúsund
hamborgara hefur Tómas Tóm-
asson veitingamaður ákveðið að
gefa Styrktarfélagi lamaðra og
fatlaðra myndsegulbandstæki
frá Karnabæ og fylgir tækinu
ársafnot af myndum frá Vídeo-
miðstöðinni á Laugavegi 27, þ.e.
ein spóla á dag í eitt ár.
Þá hefur Tommi ákveðið að
1% af veltu fyrirtækisins muni
renna til Styrktarfélags vangef-
inna og Blindravinafélagsins, en
1% af veltu Tommahamborgara
að Grensásvegi hefur runnið til
SÁÁ og Félags einstæðra for-
eldra. Hafa þessir aðilar nú
fengið tæpar 20 þús. kr. hvor um
sig frá því fyrirtækið hóf starf-
semi sína fyrir 4 mánuðum.