Morgunblaðið - 22.07.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ1981
11
Tvær skáldsögur
eftir unga höfunda
- meðal bókanna
frá Máli og menn-
ingu í haust
TVÆR nýjar skáldsöKur eítir
unga íslcnska höfunda eru meðal
þeirra bóka, sem Mál og menning
mun senda frá sér i haust, að þvi
er Þorleifur Hauksson fram-
kvæmdastjóri bókaforlagsins
tjáði blaðamanni Morgunblaðs-
ins. Skáldsögur þessar eru eftir
þá Einar Kárason og Kristján
Jóhann Jónsson, en þeir eru
báðir ofarlega á þritugsaldri.
Bók Kristjáns er hans fyrsta, en
Einar hefur áður sent frá sér
ljóðabók. — Þorleifur sagði þetta
athyglisverðar bækur, sem væru
þess virði að gefa gaum að, báðar
nútimaskáldsögur.
Af öðrum bókum Máls og menn-
ingar í haust sagði Þorleifur að
nefna mætti að út kæmi
smásagnasafn eftir Tryggva Em-
ilsson, en nú er lokið útgáfu á
endurminningum hans í þremur
bindum. Þá kemur út kennslubók í
sálarfræði, og ný bók um heim-
spekileg málefni eftir Brynjólf
Bjarnason fyrrum menntamálar-
áðherra. Þá kemur í haust út
fyrsta bindi í ritsafni Sverris
heitins Kristjánssonar, og hefur
það að geyma ritgerðir um Is-
landssögu. Þorleifur sagði að
óhemjumikið athyglisvert efni
væri til eftir Sverri, og myndi
ritsafn hans, sem fyrirhugað væri
að yrði í fjórum bindum, hvergi
nærri gera því tæmandi skil.
Af erlendum bókum þýddum má
nefna að út kemur Meistarinn og
Margrita eftir M. Bulgakov, í
þýðingu Ingibjargar Haraldsdótt-
ur blaðamanns, og endurútgefin
verður bókin Grænn varstu dalur,
i þýðingu Ólafs Jóh. Sigurðssonar.
Þá kemur út fimmta bindið í
ritsafni Williams Heinesens, og
nefnist þessi bók Kvennagullið í
grútarbræðslunni. Þýðinguna hef-
ur Þorgeir Þorgeirsson gert. Þá
verður frumútgefin hér á landi (á
sama tíma og í Svíþjóð og fjórum
löndum öðrum) ný bók eftir
Astrid Lindgren, barnabókahöf-
undinn vinsæla. Hin nýja bók
nefnist Ronja ræningjadóttir, og
er í þýðingu Þorleifs Haukssonar,
sem áður hefur þýtt verk sama
höfundar.
Margt fleira er á döfinni hjá
Máli og menningu í haust, bæði
nýjar bækur og endurútgefnar
Kærir lögreglu
fyrir handtöku
FORSTÖÐUMAÐUR félagsheim-
ilisins að Skúlagarði i Keldu-
hverfi hefur kært lögregluna á
Raufarhöfn fyrir að handtaka sig
og verður mál hans tekið fyrir
hjá embætti sýslumannsins á
Húsavík. Sigurður Gizurarson
sýslumaður tjáði Mbl., að hér
virtist um nokkurn misskilning
að ræða vegna kostnaðar við
Lundapysj-
um stolið
KASSA með lundapysjum innan-
borðs var stolið úr skemmu á
Reykjavikurflugvelli á sunnu-
dagsmorgun, en lundapysjur
þessar voru i eigu sjódýrasafns i
Baltimore i Bandarikjunum. Var
einn kassi tekinn af fjórum sem i
skcmmunni voru.
Síðar kom kassinn fram á Sel-
fossi, en þar voru teknir menn
grunaðir um ölvun við akstur.
Kassarnir þrír sem ekki voru
teknir eru nú farnir áleiðis til
Bandaríkjanna og pysjurnar með.
löggæzlu á dansleik i Skúlagarði
sl. föstudagskvöld og greindi
hann svo frá málavöxtum:
Aðalreglan varðandi löggæzlu
við skemmtanahald er sú að tveir
lögreglumenn annist gæzlu og
greiðir ríkið þá kostnaðinn. Sé
talin þörf á 3. manni skal inn-
heimta kostnað hjá þeim er heldur
skemmtun. Við afgreiðslu á leyfi
varðandi skemmtanahald í Skúla-
garði virðist á ferðinni misskiin-
ingur milli lögreglunnar á Húsa-
vík og Raufarhöfn þannig að 3
lögreglumenn annast gæzluna, en
talið var að tveir nægðu. Greiðslu
var krafizt hjá hljómsveitinni, en
forstöðumaður Skúlagarðs sagði
það rangt þar eð aðeins hefði verið
rætt um tvo lögreglumenn við
störf. Var forstöðumaðurinn
handtekinn og færður til Raufar-
hafnar til yfirheyrslu en sleppt
næsta morgun.
Sigurður Gizurarson sýslumað-
ur sagði mál forstöðumannsins
verða tekið fyrir. á morgun, en
hann myndi hafa samráð við
dómsmálaráðuneytið um lausn
þess.
Slasaðist illa og er
meðvitundarlaus
SAUTJÁN ára stúika slasaðist
talsvert þegar hún hrapaði niður
60 metra ókleift bjarg í Hjörleifs-
höfða á fimmtudagsmorgunn.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Vík, fór stúlkan ásamt
þremur félögum sínum upp á
höfðann að vestanverðu, en þegar
upp var komið kastaði stúlkan
niður trefli, sem hún var með.
Síðan hélt fólkið niður á ný. Þegar
niður var komið ákvað stúlkan að
klifra upp bjargið og ná í trefilinn,
sem ekki hafði farið alla leið
niður.
Kleif stúlkan upp 80 metra hátt
bjarg, sem lögreglan telur ókleift,
og var komin um 60 metra upp,
þegar torfa gaf sig og hún hrapaði
niður.
Stúlkan var flutt með sjúkrabíl
frá Vík til Reykjavíkur, og liggur
nú á Borgarspítalanum, en hún
kom þangað klukkan 8 á fimmtu-
dagsmorgun. Samkvæmt upplýs-
ingum Mbl. er stúlkan mikið
slösuð, höfuðkúpubrotin, mjaðm-
argrindarbrotin og axlarbeins-
brotin. Hún var meðvitundarlaus
þegar komið var með hana á
spítalann og er það enn.
Grunaður
um íkveikju
KVEIKT var i anddyri hússins að
Tunguseii 8 í Reykjavík aðfara-
nótt laugardagsins.
Var gleðskapur í einni íbúð
hússins, og var einum gestanna
vísað frá, en skömmu seinna
kviknaði eldur við útidyrahurðina
og er gesturinn grunaður um að
vera valdur að brunanum. Hann
ber við minnisleysi.
Fljótlega tókst að ráða niður-
lögum eldsins, en gluggatjöld sem
í anddyrinu voru, brunnu.
Söfnuðu nærri 50 þús-
und kr. í boðhoppinu
UM ÞAÐ bil 47 þúsund krónur
höfðu i gær safnast eftir boðhopp
unglinganna i Þróttheimum frá
Reykjavik til Hveragerðis, en pen-
ingunum var safnað til Blindrafé-
lagsins. Skúli J. Björnsson for-
stöðumaður félagsmiðstöðvarinnar
Þróttheima tjáði Mbl. að söfnunar-
féð myndi nema 50 þús. kr. alls, en
það verður í fyrstunni lagt í banka
og afhent Blindrafélaginu i haust.
Alls tóku 47 unglingar á aldrinum
13 til 17 ára þátt í þessu boðhoppi á
laugardaginn, en í vetur hafa ungl-
ingarnir fjallað á ýmsan hátt um
ýmsa minnihlutahópa í þjóðfélaginu,
fatlaða, vangefna og blinda og varð
þessi hugmynd til hjá unglingunum
sjálfum. Leiðin var 45 km og tók
hoppið 5 stundir og 2 mínútur. Hver
þátttakandi hoppaði 50 m spöl i senn
og var meðalhraðinn 8,96 km á klst.,
en alls var leiðin 965 50 m kaflar.
Veður var fremur leiðinlegt, rok
og rigning, en Skúli sagði alla
ánægða eftir þetta nýstárlega verk-
efni, sem gekk að óskum nema hvað
2 til 3 bílstjórar, hefðu virzt hafa
takmarkaða þolinmæði og fóru þeir
hægra megin fram úr hópnum á
leiðinni.
Sendiherrar
færa Karli
hjónasængina
NÚ ERll hinir ýmsu aðilar í
(>ða önn að bollaieggja hvað
gefa cigi brúðhjónum ársins,
ef ekki aldarinnar, Karli
Bretaprins og lafði Diönu. i
brúðkaupsgjöf. Mun i þeim
málum vera tekið tillit til
óska, sem berast úr Bucking-.
ham-höll, eftir óbeinum leið-
um. að sjálfsögðu.
Það tíðkast að erlendir
sendiherrar, búsettir í Breta-
veldi, slái sér saman þegar
um slíkar gjafir er að ræða.
Þegar hinir erlendu sendi-
menn hófu að þreifa fyrir sér
varðandi hugsanlegar óskir
hjónaleysanna kom í ljós að
það væri helst hjónarúm sem
þau „vanhagaði" um. Það
verða því að öllum líkindum
fulltrúar erlendra ríkja þ.á m
íslands, sem sjá munu Karli
og Díönu fyrir hjónasæng-
inni. Sendiherra íslands í
London er Sigurður Bjarna-
son.
Igamladaga
var hægtaó fá bilaleigubíl
í London
íþnádaga
íyrir aðeins £22
Það er hægt ennþá!
Margir halda að bílaleigubílar séu
svo dýrir, að það sé venjulegum
ferðamanni ómögulegt að nota þá í
Bretlandi. Þetta er mikill misskilning-
ur.
Hér einu sinni var hægt að fá leigðan
bíl í tvo daga t.d. laugardag og
sunnudag, og greiða í leigu u.þ.b.
£25 sterlingspund. Þetta er hægt
ennþá, þrátt fyrir verðhækkanir og
verðbólgu.
Þú getur fengið Ford Fiesta eða Mini
Metro fyrir £11,00 á dag, og 100 mílur
innifaldar. Á sama hátt kostar Fiat
Strada £12.00 á dag.
Svo eru sumir sem segja að England
$ sédýrtland.
FLUGLEIDIR
Þú þarft ekki að gera langar áætlanir
fyrirfram. Við bókum þig á fyrsta
gististaðinn, en móttökustjórinn þar
sér um að bóka þig á það næsta - og
síðan koll af kolli. Þú ákveður vega-
lengdina, sem þú ætlar að aka í einu,
og átt vísan gististað þegar þú
kemur á staðinn. Allt eftir þínu eigin
vali.
Eitt geturðu bókað. Gamla, góða
London breytist stöðugt með tíman-
um, en England heldur áfram að vera
hrífandi. Þú kynnist því best á bíla-
leigubíl á viðráðanlegu verði. Apex
fargjaldið til London með Flugleið-
um kostar aðeins kr. 2.465.-
Traust fölk hfá góöu felagi