Morgunblaðið - 22.07.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1981
29
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
I0100KL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
Goethe, Schiller
o g Nýalssinnar
og svo fjöldamargt fallegt. Og svo
eru það margir, sem safna gulli
sér til gamans og oft líka til
gagns. Þetta er svo auðvelt með
gullið, það fer svo lítið fyrir því og
auðvelt að flytja það. Þið gætuð
flutt það ókeypis út um allt land,
en ekki bara til þorpanna í
nágrenninu, eins og fisksaltið, sem
er svo þungt og fyrirferðarmikið.
Menn, jafnvel á afskekktustu
stöðum, geta verið búnir að safna
sér í gulltönn úr íslensku gulli um
sjötugt, eina eða fleiri eftir efnum
og ástæðum. Já, það er ekki ónýtt
að eiga slíkt í ellinni, og það mætti
líka líta á þessar tennur sem
viðurkenningu frá þjóðinni, því að
vitanlega hefur rikið orðið að
greiða mestan hlutann af fram-
leiðslukostnaði gullsins.
Til hamingju með fyrirtækið.
Sigurður Pétursson
„Hugi Lokason" skrifar í
Velvakanda 16. júlí og seg-
ist vera stoltur af því sem
íslendingur að til skuli vera
hé- slíkir menn sem „Nýj-
alssinnar" (rétt: Nýalssinn-
ar), en þó nefnir hann þá í
sömu andrá og ýmsar Aust-
urlandahreyfingar trúar-
legs eðlis og jafnvel í sam-
bandi við þá sem halda að
jörðin sé hol að innan og
þar búi fólk. Við þetta
síðasta er það að athuga, að
heimspekingurinn Jochen
Kirchhoff í Berlín hefur
sýnt fram á að meginhluti
mannkynsins og ekki hvað
sízt menntamenn „hugsa og
láta sér finnast" að jörðin
standi kyrr, og aðrir hlutar
alheimsins komi sér ekki
við. (Hið „geocentriska" eða
„ptólemeiska" hugarfar.)
Þó að menn viti hið rétta,
fylgja þeir því ekki, og væri
gaman að heyra hvað H.L.
hefur að segja um þá af-
stöðu. H.L. minnist í skrifi
sínu á Goethe og Schiller
og Helga Pjeturs og kenn-
ingar þeirra, en hvað Ný-
alssinnum viðvíkur gefur
hann enga vísbendingu um
hvað þeir vilja, og skal ég
því með fáum orðum reyna
að bæta þar úr. Rannsókn á
draumum er undirstaða
starfseminnar og getur
hver sem vill gagnrýnt það
sem þar fer fram og borið
fram rök sín. Menn eru
beinlínis hvattir til að
skoða, skilja og gagnrýna.
Það er náttúrufræðilegt at-
riði, en ekki trúarlegt — ég
endurtek: náttúrufræðilegt
en ekki trúarlegt, að fjar-
hrif og hugsanaflutningur
eiga sér stað. Og um leið og
því hliði er hrundið upp
skín tilveran öll í nýju ljósi,
og er þó hin sama og áður.
Þorsteinn Guðjónsson
sjást fyrirhugaðar bryggjur á Tjörninni.
Á uppdrættinum
Þessir hringdu . . .
Athugasemd
við mynd
ÁlfheiAur Ingadóttir, formaA-
ur UmhverfismálaráAs, hringdi
og gerði athugasemd við mynd af
módeli af Tjarnarbryggjum er
birtist í Velvakanda í gær. Sagði
hún að myndin væri ekki af þeim
bryggjum sem þarna væru fyrir-
hugaðar, heldur væri hér um að
ræða skipulagshugmynd sem hefði
verið hafnað.
Ekki hefur enn verið gert módel
af bryggjunum sem fyrirhugað er
að byggja í Tjöminni og verða því
þeir sem áhuga hafa á að sjá
hvernig mannvirkin eiga að líta út
að láta sér nægja að grína í
skipulagsuppdráttinn sem birtist
hér að ofan.
Halda uppteknum
hætti með mjólkina
Húsmóðir bað Velvakanda að
koma á framfæri þessari athuga-
semd í sambandi við mjólkurmál-
ið. „Þær umkvartanir sem gerðar
hafa verið síðustu daga varðandi
skemmda mjólk virðast ekki hafa
verið teknar alvarlega af þeim
sem stjórna þessum málum. Á
föstudaginn var keypti ég mjólk
sem stimpluð var 21.07. (seinasti
söludagur 21. júlí). Á mánudag fer
ég aftur og þá er enn til sðlu mjólk
stimpluð 21.07. Það er nú ekki
leyfilegt að stimpla svona langt
fram í tímann eftir því sem mér
hefur skilist — og mér finnst
þetta sýna að þeir taka umkvart-
anirnar ekki alvarlega og ætla að
halda uppteknum hætti."
BÁTAR
Ný sending af Terhi plastbátunum var aö koma. Terhi
eru ósökkvanlegir og viöurkenndir af siglingamála-
stofnun íslands. Tryggiö ykkur bát áöur en þessi
sending selst upp. Gott verð.
Terhi„245“
Lengd: 2,40 m
Breidd: 1,25 m
Þyngd: 45 kg
Terhi“385“
Lengd: 3,80 m
Breidd: 1,50 m
Þyngd: 100 kg
Terhi„440“
Lengd: 4,40 m
Breidd: 1,75 m
Þyngd:145 kg
Sýningarbátar á staðnum.
Vélar & Tæki hf.
Tryggvagata 10.
Símar 21286 og 21460.
Stálklæðning með níðsterkri pvc
húð á þök og veggi.
Mikið litaúrval. Allir fylgihlutir.
varanleg og fagleg lausn. Mjög
hagstætt verð.
Tilboð yður að kostnaðarlausu.
Sala og uppsetningarþjónusta:
Íi S.S.innréttingar Sími 21433
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al'GLYSINGA-
SÍMINN F.R:
22480