Morgunblaðið - 10.08.1986, Síða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986
Rætt við Elías Jónsson um málefni kafara á íslandi:
„Það opnast fyrir
manni nýr heimur
<«
Köfun hefur verið stunduð hér á landi æði lengi, en öryggismál
og námskeiðahald eru hugtök sem ekki hafa fylgt henni í gegnum
tíðina. Einn er sá maður sem gengið hefur fram fyrir skjöldu og
beitt sér fyrir slíku, m.a. með námskeiðahaldi, en það er Elias Jóns-
son lögregluvarðstjóri á Keflavíkurflugvelli og kafari með meiru.
Til að fræðast aðeins um hvernig köfunarmál standa í dag var vísasta
leiðin að króa Elías af og hreinlega spyrja hann um þessi mál.
Elías í kennarasætinu á Reykjanesi.
„Þau hafa verið í ólestri, það er
ekki hægt að segja annað og það
þarf miklu meira til en ég hef verið
að gera til þess að koma málunum
í viðunandi horf. Það eru einkum
fræðslu- og öryggismál sem hafa
verið vanrækt, það hafa orðið alltof
mörg köfunarslys á íslandi vegna
einskærrar fákunnáttu. Þá hefur
alls konar drasl til köfunar verið á
boðstólum og ýmsir álitið að þeir
gætu bara labbað út og farið að
kafa eftir að hafa fest kaup á ein-
hverju vita ónothæfu dóti. Mér
hefur alltaf ofboðið þetta og því var
það að hugmyndin um köfunamám-
skeið fæddist.
- Við vomm að ræða saman
yfír kjötbollum, Ingi Þór Þorgríms-
son hjá Farfuglahreyfingunni og ég,
og komumst að þeirri niðurstöðu
að aðgerða væri þörf og fómm síðan
að þróa hugmyndina að koma nám-
skeiðum í gang. Fyrst varð að finr.a
stað. Eftir að hafa kynnt okkur
hvað væri í boði aðeins um tvo staði
að ræða, Reyki í Hrútafirði og
Reykjanes á Vestíjörðum. Það
þurfti að haldast í hendur góð að-
staða til köfunar og góð aðstaða
fyrir þátttakendur námskeiðsins.
Síðamefndi staðurinn varð fyrir
valinu, hann uppfyllti skilyrðin bet-
ur. Fyrstu námskeiðin vom í
fyrrasumar, tvö talsins og í sumar
hefur þegar eitt verið haldið.“
Ánægður með áhugann og út-
komuna?
„Þátttakendur á fyrsta nám-
skeiðinu vom 11 talsins og því
síðara í fyrra 17 og 12 á því sem
lokið er í sumar. Þátttakendur em
úr öllum áttum, frá flestum lands-
hlutum og úr hinum fjölbreytileg-
ustu stéttum, lögi-egluþjónar,
sjómenn, starfsmenn Hafrannsókn-
ar og þannig mætti halda áfram.
Útkoman. Þetta myndi ekki ganga
svona vel nema vegna þess að nám-
skeiðinu em haldin uppi í sveit. Af
fenginni reynslu myndi ég ekki
reyna það einu sinni að halda svona
hóp saman innan borgarmarkanna.
Samheldnin verður einstök þegar
menn em saman uppi í sveit á svona
erilsömu námskeiði, við vitum til
þess að menn halda enn sambandi,
kafa saman og stundum verða köf-
unarferðimar að heilu fjölskyldu-
skemmtunum. Nú, þú spurðir um
útkomuna, hún er kannski ekki
áþreifanleg, en maður veit þó að
þeir sem námskeiðin sækja em til
muna kunnugri sporti sínu heldur
en áður en námskeiðið var haldið.
Svo miðla þeir vonandi fleimm af
reynslu sinni.“
Látum vera hvort erfítt er að
halda köfunamámskeið í Reykjavík
eða nágrenni af félagslegum ástæð-
um, en er aðstaða til köfunar
yfirleitt góð í og við Reykjavík?
„Aðstaðan á Reykjanesi er ein-
hver sú besta sem fæst hér á landi,
tær sjór, fjölbreytileíki bæði í lands-
lagi á botni og dýralífí. Um aðstöð-
una í Reykjavík skulum við láta
okkur nægja að segja að skyggni
í sjónum sé ekki gott. Hins vegar
er rétt að það komi fram, að það
hefur hent afar marga sem stíga
sín fyrstu spor í köfun, að þeir ger-
samlega heillast. Það opnast fyrir
þeim nýr heimur sem er vægast
sagt fjölbreytilegur. Flestir ánetjast
því köfun sem íþrótt. Þetta er e.t.v.
sambærilegt við fjallgöngur, þú ert
alltaf að gera sama hlutinn, en það
ber alltaf eitthvað nýtt og framandi
fyrir augu.“
Hver em helstu verkefni kafara
á íslandi?
„Ja, þau em alltaf að aukast.
Það em svokallaðar skrúfukafanir,
köfun í tengslum við hafnar- og
virkjanagerð og eldisker og svo
síðast en ekki síst það sem mörgum
finnst skemmtilegast, að bjarga
sokknum bátum. Margir láta sér
hins vegar nægja sportköfun. Það
skortir í raun varla verkefni. Það
skortir hins vegar aðhald í öryggis-
málum eins og ég gat um áðan.
Mörg hörmuleg slys hafa verið al-
ger óþarfi og hafa stafað af
fákunnáttu. Við höfum gert strang-
ari kennsluáætlun en áður var, það
þarf betri lög, nýjar reglugerðir og
betri reglur en þær sem til em eða
til em ekki. Námskeiðin em von-
andi bara byijunin á betra gengi í
þessum efnum. Það góða við þau
er, að þátttakendur finna strax á
sér mun, á hveijum degi bætist ný
vitneskja við þá sem fyrir var auk
þess sem samvinna og samheldni
þroskast. Einn, sem var á nám-
skeiði hjá okkur, hafði aldrei kafað
áður, en hann varð svo heillaður
að hann fór til útlanda til þess að
mennta sig betur og er þangað kom
taldist hann vera með betri gmnn-
menntun en gekk og gerðist meðal
annarra nemenda. Samt eru nám-
skeiðin aðeins 10 daga löng. Við
náum merkilegum árangri, nám-
skeiðin em sambærileg að gæðum
við námskeið erlendis og til muna
ódýrari en gengur og gerist ytra.
Svona þarf þetta líka að vera, við
verðum að vera trúverðugir til þess
að eftir framtakinu verði tekið, því
þannig er mál vexti, að það em fjöl-
margir aðilar starfandi við köfun,
sem hafa til þess engin réttindi þar
eð menntun þeirra við köfun er
engin.“
Fá menn atvinnukafararéttindi á
námskeiðunum á Reykjanesi?
„Nei, en áhugamannaskírteini fá
þeir hins vegar, hitt er bundið tals-
verðum vandkvæðum, að kafararnir
sem hafa réttindi til að þjálfa menn
upp í „atvinnuréttindasviðið", em
allt of fáir. Við emm bara nokkrir
skarfar og það er enn eitt málið sem
mætti vera í betri farvegi. Enn eitt
mætti nefna og af því að endalaust
er hægt að halda áfram er best að
hafa það lokaorðin: Góður búnaður
fæst á íslandi nú orðið, en það er
ekki heiglum hent að festa kaup á
slíku, slík og þvílík er tollunin á
þessum vömm. Tollafsláttur af köf-
unarvömm, sérstaklega öryggis-
tækjunum, ætti að vera felldur inn
sérstaka löggöf, það má ekki vefj-
ast fyrir köfumm hvort þeir hafi
ráð á bestu tækjum sem til em.
Slíkt gæti kostað líf...
- gg-
Ástandið á mannskapnum eftir
námskeið ...
Ilmandi nýbakað
krvddbrauð & smiör
rúqbrauð & smiör
fint brauð & smiör
qróft brauð & smiör
Ekkert að fela.
H
Ý VERÐLÆKKUN: Pú smyrð eftir smekk, þunnt fyrir krónu, þykkt fyrir þrjár. Smjörbragðið stendur fyrir sínu.
Marokkó:
Hassan
tilbúinn
til átaka
Kabat, AP.
HASSAN konungur Marokkó
segir að þrátt fyrir hinn um-
deilda fund hans og Simonar
Peres, forsætisráðherra ísraels,
muni Marokkó leiða hugsanlegt
strið arabaríkja gegn ísrael.
Hassan lét þessi orð falla á frétta-
mannafundi í konungshöllinni í
Rabat þar sem eingöngu vom við-
staddir fréttamenn frá arabaríkjun-
um. „Ef til átaka kemur munu
Marokkóbúar verða í bijósti fylk-
ingár araba á vígvellinum," sagði
Hassan konungur.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur fundur þeirra Hassans
og Peres mælst illa fyrir í nokkmm
arabaríkjum, einkum Sýrlandi og
Alsír.
Marokkó fær á ári hveiju 140
milljón dollara aðstoð frá Banda-
ríkjamönnum. I her landsins em
110.000 menn og notast þeir nær
eingöngu við bandarískan og
franskan vopnabúnað.