Morgunblaðið - 10.08.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986
B 23
Liðsmenn Grimsby Town ásamt gestgjöfum sínum með málverkið af skipinu fræga í salarkynnum
SVFÍ.
GRIMSBY TOWN:
Borg, skíp, strönd, málverk
Hér á landi eru nú staddir liðs-
menn enska fótboltaliðsins
Grimsby Town í nokkurs konar
vináttuheimsókn, enda hafa
tengsl samnefndrar borgar við
ísland verið margvísleg í gegnum
tíðina. Að frátöldum þorskastríð-
um, sem fáir nenna að ræða að
ráði lengur á ensk-íslenskum
mannamótum, hafa samskipti
íbúa Grimsby og íslenskra sjávar-
plássa oft komið sér vel í gegnum
tíðina: íslendingar björguðu t.d.
þeim skipverjum er bjargað varð,
er togarinn sá er bara sama heit-
ið og fótboltaliðið sem nú er í
heimsókn, Grimsby Town, sem
fórst hér við land árið 1946 og
enn sigla íslenskir sjómenn á
Grimsby, þar sem einnig er starf-
rækt hið íslenska fisksölufyrir-
tæki Fylkir.
En það er einmitt í boði Fylkis
og Þróttar, íþróttafélagsins á
Neskaupstað, sem liðið Grimsby
Town er hingað komið. Þegar
þetta er ritað hefur liðið aðeins
leikið einn vináttuleik við íslenskt
lið, en það var gegn Skagamönn-
um sl. miðvikudag og sigruðu
gestirnir með 5 mörkum gegn 2.
Um helgina átti síðan að sækja
heim Neskaupstað og leika gegn
Þrótti og á mánudaginn fær síðan
IBV í Vestmannaeyjum að spreyta
sig í viðureign við þessa góðu
gesti.
í hófi sem Slysavarnafélag Is-
lands efndi til sl. fimmtudag í
tilefni heimsóknarinnar, rakti
framkvæmdastjóri SVFÍ, Hannes
Þ. Hafstein, ýmsa þætti í sam-
skiptum íslendinga og Grims-
bybúa, bæði hvað varðaði
björgunaraðgerðir á sjó og annað.
í hófinu voru einnig staddir m.a.
Jón Olgeirsson framkvæmdastjóri
Fylkis í Grimsby og jafnframt
fiskkaupmenn þaðan, er skipta
við íslensk skip, einnig voru þama
Magni Kristjánsson, skipstjóri í
Neskaupstað, fulltrúi Þróttar og
aðalskipuleggjandi heimsóknar-
innar og Ragnar Þorsteinsson, en
hann var bóndi á Höfðabrekku í
Mýrdal þegar togarinn Grimsby
Town fórst og tók þátt í björgun
skipvetja. Færðu liðsmenn fót-
boltaliðsins SVFÍ málverk af
togaranum að gjöf og þótti mönn-
um fara vel á því að nafnið
Grimsby Town skyldi nú tengjast
íslandi með jafn ánægjulegum
hætti og þessari heimsókn, réttum
40 árum eftir strandið á söndun-
um.
„Grafískar“
bakraddir
gegn
vímu
Eins og fram hefur komið að
undanfömu hafa ýmsir aðilar
skipað sér í sveit til þess að segja
neyslu vímuefna stríð á hendur.
Nefnast samtökin einu nafni Vímu-
laus æska og koma þar margir
hópar til sögu, m.a. þeir sem starfa
að málefnum unglinga, SÁÁ og
Lionshreyfmgin á Islandi, svo
nokkrir séu nefndir. Þá hafa lista-
menn einnig verið ólatir við að
leggja hönd á plóginn til styrktar
þessu málefni, sem varðar okkur öll.
Þessa dagana eru nokkrir valin-
kunnir tónlistarmenn að ljúka
upptökum á breiðskífu til styrktar
Vímulausri æsku, sem áætlað er
að komi út um það leyti sem kennsla
hefst í skólum í haust. Upptökurnar
fara fram í Stúdíó Mjöt og allir er
nálægt verkinu koma gefa vinnu
sína.
Þegar ljósmyndari Morgunblaðs-
ins átti leið um hljóðverið sl.
fimmtudagskvöld, voru þeir
Grafík-menn, Rafn Jónsson, Rúnar
Þórisson og Helgi Bjömsson að
syngja inn bakraddir í eitt lagið sem
verður á styrktarplötunni og eins
og má sjá á meðfylgjandi mynd,
skorti ekkert á að þeir lifðu sig inn
í verkið.
Aðrir, sem leggja fram krafta
sína við gerð skífunnar, eru m.a.
Skriðjöklamir, Bjami Tryggvason,
Cosa Nostra, Herbert Guðmunds-
son, Magnús Þór Sigmundsson og
nafni hans Eiríksson. Þar við bæt-
ast auðvitað aðstandendur Stúdíó
Mjöt og hinir ýmsu tæknimenn. Það
er því dágóður hópur sem þama
leggur góðu málefni lið og verður
áhugavert að heyra árangurinn með
haustinu.
Þeir Michael Lyons, framkvæmdastjóri Grimsby Town (t.v.), en
hann lék áður með Everton, og Kevin Moore, fyrirliði liðsins.
Eigendur hinna „Grafísku" bakradda taka lagið í Stúdíó Mjöt af
mikilli innlifun.
Svefnbekkur með yflrhillu, dýnu og 3 púðum kr.
10.720,-.
8 skúffu kommóður kr. 4.210,-.
6 skúffu kommóður kr. 3.430,-.
4 skúffu kommóður'kr. 2.750,-.
Hæglndastóll kr. 2.290,-.
Oll húsgögnin eru spónlögð með slitsterkri plastfilmu
í eikarlit, kvistafuru og hvítu.
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK
AF BARNAHÚSGÖGNUM TÖKUM VIÐ
HEIM OG ÞAU MUNU SELJAST UPP
Á NOKKRUM DÖGUM
HÉR ER VERÐIÐ
Svefnbekkur með endahlllu, dýnu og 3 púðum kr.
9.280,-.
Skrifborð lengd 120 sm kr. 3.600,-.
Klæðaskápur breidd 80 sm kr. 5.960,-.
Bókahilla breidd 60 sm kr. 2.880,-.
Skrifborðsstóll kr. 2.000,-.
Svefnbekkur með dýnu og 3 púðum 190x70 sm, kr.
6.530 ,- með góðu bómullarefni.
Svefnbekkur með dýnu og 3 púðum
kr. 6.530,- með góðu bómullarefnl.
Skrifborð lengd 150 sm kr. 4.690,-.
Bókahilla breidd 90 sm kr. 3.510,-.
Skrifborðsstóll kr. 2.000,-.