Morgunblaðið - 10.08.1986, Qupperneq 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. AGUST 1986
I I IV4I KVIKMYNDANNA
•i
Bertolucci
kvikmyndar
„Hinsta keisarann“
íKína
Talsverðar tafír hafa orðið á því
að Bemardo Bertolucci geti
byijað á nýju myndinni sinni sem
hann hefur undirbúið síðustu fímm
árin, en nú hafa þær gleðifregnir
borist að hann hóf tökur 4. ágúst
síðastliðinn.
Myndin heitir „Hinsti keisarinn"
(The Last Emperor) og fjallar um
Pu-Yi sem varð keisari yfír Kína
aðeins sex ára aldri og var keisari
í nákvæmlega sjötíu ár. Pu-Yi fékk
stöðu garðyrkjumanns við keisara-
höllina eftir að kommúnistar tóku
völdin og stofnuðu Alþýðulýðveldið
Kína.
Bertolucci ætlar að taka alla
myndina í borginni Beijung og mun
myndin kosta litlar 25 milljónir
dollara, sem er mikið, en framleið-
andinn Jeremy Thomas bendir á að
kostnaðurinn myndi margfaldast
væri myndin tekin í Evrópu eða
Bandaríkjunum. Bertolucci fær
meira að segja að fílma inni í mörg-
um frægum byggingum í Kína, en
til þessa dags hefur slíkt talist guð-
last, eða á maður að segja flokks-
last.
Tökur áttu að hefjast um pásk-
ana en af því gat ekki orðið þar
sem Sean Connery, sem átti að
vera í einu aðalhlutverkinu, var
upptekinn við Vilhjálm í „Nafni
rósarinnar" á Ítalíu. Svo Bertolucci
fékk Peter O’Toole í hans stað,
hann mun leika írskan sérvitring á
mála hjá keisaranum. Keisarann
sjálfan leikur John Lone, Kínverji
sem gerir það gott vestanhafs, lék
meðal annars í „Ári drekans" eftir
Cimino.
Og fyrir þá sem vilja vita meira,
þá mun Vittorio Storaro stjóma
myndavélinni. Vittorio Storaro er
einn alfremsti kvikmyndatökumað-
ur í heimi, og nægir að nefna þrjár
myndir því til sönnunar: „11 con-
formiste" eftir Bertolucci sjálfan,
„Apocalypse Now“ eftir Coppola og
„Rauðliðana" eftir Warren Beatty.
Bernardo Bertolucci hefur ekki
gert kvikmynd síðan 1980, en
hún er hann byrjaður á „Hinsta
keisaranum“ og tekur myndina
í Kína.
Regnboginn:
Mestur
konunga
Richard Gere leikur Davíð kon-
ung, Qárhirðinn unga sem
sigraði Golíat, vann mikla sigra í
orrustum og gerðist mestur kon-
unga. Svo segir í Biblíunni og nú
hefur ástralski leikstjórinn Bmce
Beresford, sem er þekktastur fyr-
ir Breaker Morant, fest þessa sögu
á fílmu. Regnbogínn sýnir.
John Lone leikur Pu-Yi.
„Mig langar
bara að
segja sögur“
segir leikstjórinn
IMeil Jordan
Neil Jordan, höfundur myndar-
innar Úlfadraumar, las í blaði
um glæpamann sem kærður var
fyrir hrottalegar líkamsárásir. Mað-
urinn sagði fyrir réttinum að hann
hefði verið að vemda gleðikonur
fyrir yfírgangsemi melludólganna.
Vandinn sem þessi maður stóð
frammi fyrir var sú að gleðikonum-
ar vissu ekki af eða kærðu sig ekki
um þessa vemd.
Svo Neil Jordan fór að fá hug-
myndir eftir að hafa lesið um þenna
Don Kíkóta öngstrætanna. Afrakst-
urinn var kvikmyndin „Mona Lisa“.
Bo Hoskins leikur gamalreyndan
krimma sem fær þann óvænta
starfa hjá gömlum félaga í undir-
heimunum að aka gleðikonunni
Simone til og frá vinnu.
„Ég vissi alltaf að þessar aðalper- Neil Jordan, leikstjóri
sónur sögunnar yrðu að vera
algerar andstæður í útliti," segir
Neil Jordan. Bílstjórinn átti að vera
miðaldra, lágvaxinn, þéttur á velli,
því sem næst sköllóttur og einstak-
lega ósmekklegur í klæðaburði;
hver annar en Bo Hoskins hæfði
því hlutverki? Þegar Hoskins hafði
tekið að sér hlutverk bílstjórans var
eftirleikurinn auðveldur: gleðikonan
Simone var ung, hávaxin og dökk
á hömnd; hana leikur Cathy Tyson,
ung bresk leikkona á uppleið.
„Mig langar bara að segja sög-
ur, það er eini metnaðurinn minn í
lífinu,“ segir Neil Jordan, „og seg
þær vel.“ Hann er íri og fékk þ
ungan breskan rithöfund, Davi
Leland, til liðs við sig. Leland þes
þekkti betur til slangursins á meði I
gleðikvennanna heldur en Jorda
sjálfur. Leland sýndi Jordan fyrst
uppkast af handritinu um það ley
sem Jordan var að ljúka við „Úlfa
drautnana" sína.
Bo Hoskins var kosinn besti karl
leikarinn á kvikmyndahátíðinni
Cannes í vor.