Morgunblaðið - 10.08.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986
B 31
Louis Gossett er vitanlega fræg-
astur fyrir að leika liðþjálfann í
„ An Officier and A Gentleman".
Dennis Quaid hefur ekki fengið
mörg aðalhlutverk, en áður hef-
ur hann leikið í Breaking Away,
Jaws 3-D, og The Right Stuff.
Ovmirnir Wiilis og Jeriba sem
þeir Dennis Quaid og Louis
Gossett leika.
Bíóhúsið sýnir
„Enemy Mine“
vægu skilyrði: kvikmyndin yrði ekki
tekin á Islandi heldur einhvetju
heitara landi. Þótt það væri dálítið
erfið ákvörðun fyrir stjómendur
Fox-fyrirtækisins þá voru þeir fljót-
ir að komast að niðurstöðu. Þeir
samþykktu allar kröfur Petersons.
Kostnaður við myndina fram að því
nam um fímm milljónum dollara
(sem em rúmlega 200 milljónir
íslenskra króna).
Louis Gossett sagði síðar að hon-
um hefði Iíkað vel dvölin á íslandi
og þótti miður að geta ekki klárað
myndina hér.
Kvikmyndatökur hófust á íslandi vorið 1984
Wolfgang Peterson fór með lið
sitt út í eyna Lanzarote sem er
nálægt Suður-Afríku. Þar voru öll
útiatriðin tekin, en síðan var filmað
í kvikmyndaveri í Þýskalandi, sama
kvikmyndaverði og hann hafði not-
að við tökur á Sögunni endalausu.
Wolfgang Peterson hefur gert flöl-
margar kvikmyndir, vann að þeim
í Þýskalandi í hart nær tuttugu ár
en hlaut ekki alþjóðahylli fyrr en
hann gerði Kafbátinn (Das Boot)
árið 1980. Það var ákaflega merki-
leg kvikmynd sem sýnir að hann
er jafn fær um að gera raunsæar
og alvarlegar myndir og hugmynd-
arík bamaævintýri sem Sagan
endalausa og Enemy Mine bera
vitni um.
náðu þeir filmu sem tók tíu sekúnd-
ur að sýna og þann bút var ekki
einu sinni hægt að nýta því sakleys-
islegur máfur hafði flogið yfir
svæðið. Enemy Mine gerist á fjar-
lægri plánetu einhvers staðar í
framtíðinni og þar eiga íslenskir
máfar ekki heima!
Svo gerðist það að leikstjórinn
Loncraine var rekinn og Þjóðvetjinn
Wolfgang Peterson ráðinn í staðinn.
Petersen var þá nýbúinn með „Sög-
una endalausu" og því eftirsóttur.
Hann samþykkti að leikstýra
Enemy Mine, en með einu mikil-
^c.
Bíóhöllin hóf sýningar á stór-
myndinni Ovinanáman
(Enemy Mine) skömmu fyrir versl-
unarmannahelgi en nú hefur
myndin verið færð niður í Bíóhúsið
og þar mun hún verða næstu daga.
Enemy Mine ættu íslendingar að
þekkja ef til vill betur en aðrir þar
sem mikið var um hana fjallað í
íslenskum fjölmiðlum þegar tilraun
var gerð til að taka myndina hér á
landi vorið 1984.
Það er óhætt að segja að mikið
gekk á við gerð Enemy Mine. Bret-
inn Richard Loncraine var ráðinn
leikstjóri og voru sendir menn hing-
að til lands til að finna þekkilega
staði til kvikmyndatöku. Þeir fundu
staði við Skógarsand og úti í Vest-
mannaeyjum. Loncraine kom svo
hingað til lands sumarið 1984
ásamt aðalleikurunum Louis Gos-
sett og Dennis Quaid og ótal
aðstoðarmönnum.
Myndin var framleidd á vegum
Twentieth Century Fox og ekkert
til sparað. Enemy Mine átti raunar
að vera ein vandaðasta og dýrasta
kvikmynd fyrirtækisins það ár. En
kvikmyndatökur gengu illa, sem
dæmi má nefna að einn daginn
Aliens"
Ahugi á geimvfsindamyndum
minnkar ekki þótt hugmyndr
imar þynnist-út með hvetjum degi.
Nú hefur verið-gert framhald ' af
„Aliens“. Ripley, sem Signoúrey
Weaver lék, var sú elna sem íifði'
fyrstu myndina; nú er spurning'
hvað um hana varð.
Það eru leikstjórinn James Cani-
eron og framleiðandinn Gale Anne
Hurd sem standa að Aliens, þau
hin sömu sem stóðu að „Tortím-
andanum“ með . Schwarzenegger:
Þau sögðu að fyrri myndin (frábær
að þeirra mati) væri einfaldlega um
tíu litla negrastráka út í geimnum,
en seinni myndin væri öllu hressi-
legri, í henni væri atburðarásin
hraðari og líflegri. Signourey Wea-
ver leikur Ripley í framhaldinu og
hefur hún fengið til liðs við sig
fleiri frá jörðu til að beijast við
fjandvininn úti í geimnum.
Aliens var svo frumsýnd seint í
júlí og viti menn hún gæti orðið ein
vinsælasta mynd ársins.
v: .
Signourey Weaver og litla hnátan Carrie Henn leika stærstu hlutverkin í „Aliens“