Morgunblaðið - 23.08.1991, Qupperneq 13
13
//m/Mwo/i
Vaxbormr jakkar
f rá Englandi
Verð frá
kr. 9*41 5 til
ms'm
Kr<3
KRINGLU
Borgarkringlunni,
sími 679955
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1991
Umdæmisþing Kiwanis-
manna á Hótel Sögn
ÍSLENSKIR og færeyskir Kiw-
anismenn halda umdæmisþing á
Hótel Sögu dagana 29.-31. ágúst
næstkomandi.
Umdæmisþing er æðasta vald í
málefnum Kiwanishreyfmgarinn-
ar í hveiju landi fyrir sig og fara
þar fram umræður sem móta starf
H HINN árlegi Göngudagur fjöl-
skyldunnar verður haldinn laugar-
daginn 24. ágúst, en aðildafélög
UMFÍ og BÍS sjá um framkvæmd
á hverjum stað fyrir sig. Þessi uppá-
koma hefur verið fastur liður í starf-
semi ungmennafélaga og skáta
undanfarin 10 ár og er tilgangurinn
að sameina alla íjölskylduna í að
njóta útiveru og skoða landið.
Kunnugir fararstjórar eru með í
þessum ferðum. Nokkir aðilar nota
sunnudaginn 25. og er það auglýst
nánar á viðkomandi stöðum. Gang-
an í Reykjavík fer frá Rafveituhús-
inu í Elliðaárdal kl. 14 á laugar-
dag og getur fólk mætt þar á tíma-
bilinu 14-17 og er hugmyndin að
fólk gangi þar um dalinn og næsta
nágrenni. A svæði USAH í Húna-
vatnssýslu verður gengið sunnu-
daginn 25. ágúst um Giljárgil sem
er náttúruperla í hjarta sýslunnar,
endað verður með sundlaugina á
Húnavöllum. Á Fáskrúðsfirði
verður líka farið á sunnudegi og
gengið inn að skógræktasvæðinu
og þar í kring og endað með grill-
veislu. Fólk er hvatt til að vera með
og taka þátt í hressandi útivist og
allir fá afhent merki göngudagsins.
■ BÍLADELL UKVÖLD verður á
Hótel Islandi föstudagskvöldið 23.
ágúst. Meðlimir í Fornbílaklúbbi
Islands ijölmenna fyrir utan
skemmtistaðinn og gefst gestum
kostur á að líta glæsivagna. Iee-
landic Models bjóða gestum upp á
fordrykk og dömuilminn Adidas
Woman og herrailminn Adidas Ac-
tive Bodies. Innandyra verður nýj-
asti Citroén bíllinn kynntur, Citro-
en XM. Icelandic Models sýna nýj-
ustu herralínuna frá Herrafata-
verslun Birgis og hin landsþekkta
dansandi fjölskylda sýnir sam-
kvæmisdans. Fatafellan Mette
Larsen skemmtir og hljómsveitin
Papar leikur fyrir dansi. Kynnir
verður Rósa Ingólfsdóttir. Laug-
ardaginn 24. ágúst býður Hótel Is-
land gestum sínum að sjá hina
landsþekktu dansandi fjölskyldu en
þau sýna samkvæmisdans. Fatafell-
an Mette Larsen kemur fram.
og stefnu Kiwanisklúbba. Sam-
hliða og fyrir þingið fer fram
umfangsmikil fræðsla varðandi
embættismenn klúbbanna.
Þingið sitja fulltrúar frá 44
klúbbum á íslandi og Færeyjum.
Sérstakir gestir verða Georges
Palluat forseti Evrópusambands
Kiwanismanna (KIE), Lars-Göran
Svensson umdæmisstjóri Kiwanis
í Skandinaviu (Norden), og Alfred
Proviasi, fulltrúi alheimsforseta
Kiwanishreyfingarinnar.
Fornbíladagur í
Arbæjarsafni
FÉLAGAR úr Fornbílaklúbbi íslands sýna sunnudaginn 25. ágúst
kl. 13.30—17.00 í Árbæjarsafni úrval bifreiða frá fyrri hluta aldarinn-
ar, bæði fólksbíla, vörubíla og jeppa og svara spurningum gesta um
þá. Einnig fer gamli T-Ford frá Þjóðmiiyasafninu um svæðið.
Ennfremur verður efnt til kapp-
aksturs á kassabílum í kringum
safntorgið. Hefst það kukkan 15
og mun keppt í þremur aldursflokk-
um: 7-8 ára, 9-10 ára og 11-12
ára. Tveir keppendur verða með
hvern bíl, ökumaður og annar sem
ýtir.
Auk þess verður á safnsvæðinu
lummubakstur, harmóníkuleikur,
skósmíði, tóvinna og vefnaður.
Fastar sýningar eru ætíð opnar og
sömuleiðis eru kaffiveitingar í Dill-
onshúsi.
Á slóðum
Ferðafélags
íslands
Gönguferð um gosbeltið, 10. ferð
eftir Sigurð
Kristinsson
Ferð A: Dyradalur - Jórukleif
- Hestagjá
Lagt er af stað frá Umferð-
armiðstöð, austanmegin, kl.
10:30 hinn 25. ágúst. Ekið er
eftir nýja Nesjavallaveginum
austur í Dyradal, þar sem gang-
an hefst. Ganga má eftir hryggn-
um vestan Dyradals og halda
beint til norðurs í Folaldadali,
sem eru austan móbergskambs
þess er Sköflungur nefnist.
Verða þá á hægri hönd nokkrir
tindar á hrygg vestan Sporhellu-
dals. í framhaldi þess hryggjar
eru Hátindur (425 m) og Jórut-
indur og skal einnig hafa þá á
hægri hönd. Við norðurenda Jór-
utinds liggur gata niður og er
þar skemmtileg leið niður í Hest-
vík en í þetta sinn verður haldið
áfram norður fyrir Jórugil og
beygt sunnan Litla-Sandfells
fram á brún Jórukleifar. Þar
fæst afbragðs útsýn yfír vatn
og hraun með fjallaklasa í bak-
grunni til allra átta. Við gilið í
kleifinni gerist þjóðsagan um
bóndadótturina Jóru, sem var hið
versta flagð. Er ljótleiki þeirrar
sögu alger andstæða við útsýn
þá er við blasir frá kleifinni.
í þessari útsýn er haldið til
landnorðurs eftir Jórukleif og
síðan eftir Svínahlíð, sem fer
smálækkandi að Grafningsvegi,
þar sem hann beygir frá Þing-
vallavatni og liggur upp fyrir
vestan tún á Heiðabæ. En göng-
uleiðin liggur yfir veginn og síð-
an er vatninu fylgt allt á Rauðuk-
usunes. Almannagjá hefst þar í
nesinu, nefnist fyrst Hrútagjá
en síðar Lambagjá og Hestagjá
heitir hlutinn næst fyrir sunnan
Kárastaðastíg, þar sem vegurinn
liggur niður í gjána. Kafgras er
í botni Hestagjár. Mjög gott er
að ganga eftir stíg, sem fylgir
eystri og lægri brún gjárinnar
bak við sumarbústaðina við vat-
nið. 'Gott er að koma í bíl við
Valhöll.
Einnig má fara í byijun gegn-
um Dyr og ganga norðúr Spor-
helludal, Illagil gengur norður
Þarna eru nú ógrynni af beijum.
Við Jórugeil er 60-80 m hækkun
að fara upp á kleifina til að fá
meiri útsýn og losna við akveg-
inn. Síðan er leiðinni fylgt eins
og áður er lýst.
Ferð B: Skálabrekka -
Rauðukusunes - Hestagjá
Lagt er af stað frá Umferðarm-
iðstöð kl. 13 og ekið að Móa-
kotsá. Þar er gengið niður að
Þingvallavatni. Síðan er haldið
meðfram því eins og lýst var hér
á undan. Þetta er mjög létt ganga.
Hittumst heil.
Höfundur er fyrrverandi
kennari.
"ei
v
■ I
frá honum og vestan þess eru
Vegghamrar. Ganga má á brún
þeirra og austan við Jórutind og
Hátind að götunni áðurnefndu.