Morgunblaðið - 28.07.1998, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Hótað að eitra
SVONA Kekó minn, umhverfísráðherra skal aldeilis verða sektaður og sviftur ef það svo mikið
sem hvarflar að honum að veita leyfi til að eitra fyrir þig.
Urskurður félagsmálaráðuneytis um Yesturbyggð
Kosningar gildar en
vinnubrögð ámælisverð
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
telur það ámælisverð vinnubrögð
hjá sýslumanninum á Patreksfirði
að hafa ekki fylgt formreglum laga
um kosningar til Alþingis við fram-
kvæmd utankjörfundaratkvæða-
greiðslu í heimahúsi og á sjúkrahúsi
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í
Vesturbyggð.
Ráðuneytið telur hins vegar ekki
að sýnt hafi verið fram á að þeir
ágallar, sem voru á framkvæmdinni,
hafi haft áhrif á úrslit kosninganna
og hefur því synjað kröfu um að
kosningamar verði endurteknar.
Kæran barst frá konu á Patreks-
firði, sem taldi að sýslumaður, sem
jafnframt var kjörstjóri við utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslu, og
varamaður í uppstillingamefnd
sjálfstæðisfélagsins á Patreksfirði,
hefði haft óeðlileg áhrif á úrslit
kosninganna með því að sjá um ut-
ankjörstaðakosningu vegna aug-
ljósra tengsla við eitt framboðið.
Vesturbyggðarlistinn hefði haft tvo
menn inni í bæjarstjórn þar til að
talningu utankjörfundaratkvæða
kom en þá hafi fjórði maður Sjálf-
stæðisflokksins komist inn á kostn-
að annars manns af Vesturbyggðar-
listanum.
Vegna meðferðar málsins vék
Þórólfur Halldórsson úr sæti sýslu-
manns en úrskurðamefnd, sem
settur sýslumaður skipaði, úrskurð-
aði að ekki væri tilefni til að endur-
taka kosningamar. Þann úrskurð
staðfesti félagsmálaráðherra í gær.
I úrskurði ráðuneytisins segir að
sú staða að kjörstjóri utan kjör-
fundar sé virkur í stjómmálastarfi á
viðkomandi stað og sjái sjálfur um
t.d. utankjörfundaratkvæðagreiðslu
í heimahúsi og á sjúkrahúsi geti
verið óheppileg.
„Þegar litið er til gagna málsins
og að ekki hefiu- verið sýnt fram á
að sýslumaðurinn hafi í krafti stöðu
sinnar haft áhrif á úrslit kosning-
anna er það niðurstaða ráðuneytis-
ins að málsatvik þessi geti ekki leitt
til ógildis sveitarstjómarkosning-
anna í Vesturbyggð sem fram fóm
23. maí 1998,“ segir í úrskurði ráðu-
neytisins. Þar segir ennfremur að
ljóst sé af gögnum málsins að ekki
hafi verið fylgt formreglum laga um
kosningar til Alþingis við fram-
kvæmd sýslumanns á utankjörfund-
aratkvæðagreiðslu í heimahúsi og á
sjúkrahúsi. „Em slík vinnubrögð
ámælisverð, en með vísan til rök-
semda í hinum kærða úrskurði
verður, eins og á stendur í máli
þessu, ekki talið að sýnt hafi verið
fram á að þeir ágallar hafi haft áhrif
á úrslit kosninganna," segir í úr-
skurðinum.
" Mikið úrval efna!
Flísefni frá Bandaríkjunum frá 1.045 kr. m.
Flísefni frá Ítalíu frá 1.195 kr. m.
Teygjuefni í buxur og kjóla frá 1.565 kr. m.
Einlit dragta- og kjólaefni með fiskibeinamynstri
frá 1.595 kr. m.
Svart, beige, dökkbrúnt, off white og dökkblátt.
-búðirnar
Laugavegurinn eftir endurbætur
Um 200.000
steinar og gang-
stéttarhellur
Guðjón Borgar Hilmarsson
Búið er að opna
Laugaveg milli
Frakkastígs og
Barónsstígs íyrir umferð
bíla og gangandi fólks
eftir miklar endurbætur.
Guðjón Borgar
Hilmarsson, kaupmaður í
Spörtu, hefur ásamt Jóni
Sigurjónssyni hjá Jóni og
Óskari borið hitann og
þungann af baráttunni
fyrir endurbótunum.
„Við sem vomm í
stjóm gömlu Laugavegs-
samtakanna hófum þessa
baráttu árið 1991 með
viðræðum við þáverandi
borgaryfirvöld. Við gerð-
um samkomulag við
Markús Örn Antonsson,
þáverandi borgarstjóra,
um hönnun þessarar
framkvæmdar og þá var ákveðið
að hún skyldi unnin í nánu sam-
starfi við kaupmenn við Lauga-
veg. Skipuð var nefnd í þessu
sambandi sem ég, ásamt Jóni
Sigurjónssyni, hef setið í síðan
fyrir hönd Laugavegssamtak-
anna.“
Guðjón segir að Öm Sigurðs-
son arkitekt hafi verið fenginn til
að hanna endurbæturnar og síð-
an hafi verið haldnir ótal fundir
um málið og þrír borgarstjórar
komið að því.
„í fyrra gaf Ingibjörg Sólrún
síðan grænt ljós á að hefja fram-
kvæmdir og ráðist var í þær í
mars síðastliðnum.“
- Hvaða endurbætur voru
gerðar á þessum hluta Lauga-
vegar?
„Skipt var um allar lagnir í
götunni, akbrautin var endur-
byggð og nýjar gangstéttir lagð-
ar. Áætlað er að um 200.000
steinar og hellur hafi verið lagð-
ar í Laugaveginn við endurbygg-
inguna og það jafngildir því að
einn steinn hafi verið lagður í
götuna á hverri mínútu frá upp-
hafi framkvæmda."
- Drógu framkvæmdirnar
ekkert úr viðskiptum?
„Þær gerðu það á tímabili. í
upphafi, þ.e. í mars og apríl, vom
göngubrýr meðfram verslununum
og þá fundu kaupmenn lítið íyrir
samdrætti. I maí og júní, þegar
þungar vinnuvélar vora að störf-
um og hávaði stundum mMl,
fann ég að minnsta kosti íyrir
samdrætti í versluninni hjá mér. í
júlí komust viðskiptin síðan í eðli-
legt horf á ný. Það má hins vegar
geta þess að starfsmenn Istaks,
sem var verktaki, gerðu allt sem í
þeirra valdi stóð til að við yrðum
fyrir sem minnstri röskun."
-Verður gróðursett á þessu
svæði?
„Já, en gróður er í blóma núna
og ekki hentugt að planta trjám
á þessum árstíma. Öspum verður
á hinn bóginn plantað með
haustinu. Þær koma til með að
verða í sérstökum kerum svo
rætumar nái ekki til lagnanna.
Það verður talsvert meira af
trjám á þessum hluta Laugaveg-
arins en þeim sem
þegar var búið að end-
urbæta.
Þá verður öðram
gróðri einnig plantað
innan skamms og bekkir settir
niður fyrir þá viðskiptavini sem
vilja hvíla lúna fætur.“
Guðjón segir að búið sé að
koma fyrir lágum staumrn eða
svokölluðum pollum með reglu-
legu millibili. Þeim er ætlað að
►Guðjón Borgar Hilmarsson er
fæddur í Reykjavík árið 1956.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1976. Hann var fram-
kvæmdasfjóri knattspymudeild-
ar KR 1978-79 og þjálfaði yngri
flokka hjá KR um árabil. Frá
1974-82 lék hann fótbolta með
meistaraflokki KR. Árin
1987-89 var hann í stjórn hand-
knattleiksdeildar og frá 1992
hefur hann átt sæti í sfjórn
knattspyrnudeildar.
Guðjón opnaði verslunina
Spörtu árið 1980 ásamt eigin-
konu sinni, Kristínu Lárusdótt-
ur, og hafa þau rekið verslunina
síðan. Guðjón var í stjórn
Laugavegssamtakanna um ára-
bil. Guðjón og Kristín eiga þijú
börn.
varna því að bílum sé lagt upp á
gangstétt. Stauramir em flestir
með ljósum."
Ætlið þið ekki að opna Lauga-
veginn formlega með viðhöfn?
„Jú, hinn 6. ágúst næstkom-
andi klippir borgarstjórinn, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, á borð-
ann og í kjölfarið verður við-
skiptavinum boðið til þriggja
daga hátíðahalda með kamivals-
stemmningu."
Guðjón segir að auðvitað fari
skemmtiatriðin eftir veðri en ef
sólin verður hátt á lofti munu
verslunareigendur færa búðimar
út á götu og veitingahúsin jafnvel
bjóða viðskiptavinum sínum upp
á þjónustu undir berum himni.
„Það verða einnig ýmsar vöra-
kynningar, uppákomur, götuleik-
hús og leiktækjum verður komið
upp og allir verða með sérstök
hátíðartilboð."
- Eruð þið ekki með sam-
keppni í gangi um nöfn á torgin
tvö sem prýða nú þennan hluta
Laugavegar?
„Jú við eram með samkeppni
og veitum verðlaun þeim sem
koma með réttu nöfnin. Torgin,
sem eru fyrir framan Landsbank-
ann við Laugaveg 77 og Kjör-
garð, þjóna þeim tilgangi að vera
staður fyrir uppákomur þegar við
lokum götunum og framtíðarsýn-
in er að þau verði síð-
an yfirbyggð sem og
gangstéttimar. Það er
á hinn bóginn óákveð-
ið hvenær ráðist verð-
ur í slíkar framkvæmdir þótt
teikningar séu iyrir hendi.“
Guðjón segist að lokum vilja
þakka starfsmönnum ístaks,
borgarverkfræðingi, gatnamála-
stjóra og borgarstjóra fyrir afar
ánægjulegt samstarf.
Hátíðahöld í
þrjá daga