Skírnir - 01.04.1909, Qupperneq 20
116
Um sjúkrasamlög.
þá verður útlátaskyldan að hvíla á samlaginu. Strjál-
bygðin er mikið mein að þessu leyti, en við getum — til
bráðabirgða — áætlað að útgjöld samlaga bér fyrir lækn-
ishjálp og fyrir að vitja læknis og lyfja verði 3 krónur
á hvern félagsmann. Þessi útgjöld eru þó efalaust nú
víðast hér á landi miklu minni, en þessu nemi; það mun
hver sveit sanna, ef menn bera sig saman. Mjög mörg
sveitasamlög, þau er ekki eiga langt til læknis, mundu
komast af með 11/2 — 2 kr. á mann.
L y f. I dönskum samlögum er sá kostnaður til upp-
jafnaðar 2x/2 króna á hvern félagsmann á ári, 1908 t. d.
2 kr. 45 aurar og 1907 2 kr. 61 eyr. Hér á landi eru lyf
að vísu lítið eitt dýrari, og þau lyf, sem áfengi er í, tals-
vert miklu dýrari vegna tollhækkunar á áfengi; en Dan-
ir eru miklu meiri meðalahítir en Islendingar, og mun
því vel í lagt, að ætia 21/2 krónu á mann í kaupstöðum
fyrir lyf; til sveita mundi þessi kostnaður vafalaust ekki
nema meiru en í1^—2 kr. á mann.
S j ú k r a h ú s. I öðrum löndum eru sjúkrahús til í
hverjum bæ og hverju héraði og kostuð af almanna fé
og þeim lagt svo mikið úr sveitasjóðum, amtssjóðum, eða
rikissjóði, að alþýðumenn fá vist í þeim fyrir krónu með-
gjöf á dag, og þar alt í talið, fæði og hjúkrun, læknis-
hjálp, lyf og umbúðir. Sumstaðar er meðgjöfin enn lægri
(t. d. 85 aurar á dag), en stundum líka nokkru hærri (t.
d. 1 kr. 25 aur.). Hér á landi eru sjúkrahúsin fá og alt
sparað við þau af hálfu sýslusjóða og landssjóðs; sjúkling-
arnir verða því miklu harðara úti, og mun láta sem næst,
að allur kostnaður sjúklinga, sem þeir sjálfir verða að
greiða, nemi til uppjafnaðar 2 kr á dag. Af því að sjúkra-
húsin eru fá og legukostnaður hár og landíð strjálbygt,
þá fara miklu færri sjúklingar i sjúkrahús hér en í öðr-
um löndum, miðað við fólksfjölda; hér fara menn ekki í
sjúkrahús nema brýna nauðsyn beri til. Það mundi lengi
haldast, þó að sjúkrasamlög kæmust á fót, og þess vegna
mundi sjúkrahúskostnaður íslenzkra sjúkrasamlaga ekki
ná því, sem tíðkast í útlendum samlögum, en þar er þessi