Skírnir - 01.04.1909, Blaðsíða 75
Hitt og þetta um drauma.
171
féð er alt hvítt og fer óðfluga, þá veit það á hvassviðri
ásarnt úrkomunni. — Egg og fuglar eru sömuleiðis fyrir
úrkomu, og skyr og mjólk. — En rauðir stórgripir eru
hlákuboðar og brennivín og vatnavextir sömuleiðis.
Eg veit vel, að þetta verður hiátursefni sumum mönn-
um, að heyra þetta og lesa. En þetta drauma-»skrök«
er svo algengt og rótgróið í þjóðlíflnu, að það á rétt á sér
til rannsóknar, og þegar sannanir koma fram fyrir áreiðan-
leik þess, þá verður að taka, þær trúanlegar.
En það er satt, að sannanir eru ekki algildar i þessu
máli, eða svo góðar, sem lögrétta dómstólanna ákveður
fullgildar, meðan sannanirnar eru að miklu leyti sögu-
sagnir. Þó vil eg ekki láta véfengja það, sem eg segi
frá sjálfs mín reynd í þessum efnum. Og þegar sannorðir
menn segja mér frá sinni reynd, þá tek eg það trúanlegt.
En þó er þetta ekki sannanir á þvílíkan hátt, sem það
er t. d. sönnun fyrir tilveru sólarinnar, að sólargeislarnir
skína í andlit vort. —
Eg hefi nefnt nokkur atriði, sem boða sérstök veðra-
brigði í draumi. En ekki nefni eg þá drauma með sér-
stökum dæmum daga eða manna. Þó mætti nefna marga
menn, sem dreymt hefir fyrir veðrum og hafa sagt draum-
ana áður en veðrin komu fram. En þau dæmi eru svo
mörg, að stjörnur himins eru ekki fleiri, né hárin á höfði
mannsins. Draumar fyrir gestkomum eru og margir. Og
einn þann draum ætla eg nú að segja, af því að hann er
spánnýr og gerðist á heimili sjálfs mín (í vetur) og var
sagður áður en gesturinn kom.
Hjá mér eru tvær mæðgur að heimilisfangi og dreymdi
báðar mjög á sömu leið sömu nóttina: þær dreymdi kven-
mann, ókunnan, með kníf í höndum og brá hún á sig
knifnum og datt í sama vetfangi niður. Þetta var aðal-
atriði draumanna og hirði eg ekki að segja þá með ná-
kvæmara hætti. En næsta dag kom á bæ minn maður
nokkur, sem korninn er af merkum mönnum. En á heim-
ili eins merkismannsins, forföður hans, kom það fyrir, að
þar dó stúlka af knífstungu og fanst dauð að morgni dags