Skírnir - 01.04.1909, Síða 71
Mærin fráOrléans.
167
stundu fyrir hádegi, blessaði hann alla pílagríraana í kirk-
junni Saint-Louis des Franqais, en þar hafði fögur stand-
mynd af Jeanne verið látin á eitt altarið. Um kveldið
byrjaði svo sjálf kirkjuhátíðin: Triduum. Svo nefnast
þær hátíðir katólskra manna, er standa yfir þrjá daga.
Hátíðin endaði að kveldi fimtudags 22. apríl með því að
biskupinn í Tivoli hélt lofræðu um Jeanne á ítölsku.
Um alt Frakkland hafa sams konar kirkjuhátíðir,
Triduum, verið haldnar, en auðvitað bar hátíðin í Orleans
af þeim öllum. Hún var með sama sniði og vant var,
en miklu tilkomumeiri og stóð í þetta sinn fulla þrjá daga,
eða frá kveldi hins 7. maí til 10. sama mán. 40 biskupar
sóttu hana og að sama skapi fjölmentu hershöfðingjar og
liðsforingjar. Standmyndir Jeanne d’Arcs voru blómum
vafðar, og silfurpálmaviðargrein var látin á krossinn, er
reistur er hinumegin við Loire, þar sem kvenhetjan mikla
varð sár. Stórkostlegur samsöngur (500 söngvarar og ótal
hljóðfæri) var haldinn að kveldi hins 8. maí og öll borgin
var skreytt fánum og uppljómuð á kveldin.
í Parísarborg var hátíðin haldin 14., 15. og 16. mai;
í Lyon og Marseille 21., 22. og 23. maí o. s. frv.
í sumum borgum Frakklands er hún ekki um garð
gengin enn; t. d. á hún að vera í Limoges seinast í júní,
í Nantes ekki fyrri en 9., 10. og 11. nóvember næstkom-
andi.
Þóka Fkidkiksson.