Skírnir - 01.04.1910, Blaðsíða 52
148
Holdsveikissaga.
3. Húsin handa hinum sjúku skulu vera hentug, lekalaus
með trétúðu gegnum mæninn, svo að reykur og sagga-
loft frá sjúklingunum komist út, og svo gerð, að þeir
þoli við fyrir kulda og frosti, og svo að þjónustufólk-
ið geti því betur gætt þeirra. Hreppstjórar líti eftir
þessu og kæri til sýslumanns, ef misbrestur verði á.
4. Spítalajarðirnar má að eins byggja áreiðanlegum,hyggn-
um, sparsömum, guðhræddum, ráðvöndum, reglusöm-
um, starfsömum og trúverðugum mönnum. Umsjónar-
menn hafi skýra samninga við hann. Haldi hann þá,
er ábúðin ótakmörkuð.
5. Ráðsmennirnir taki eins marga holdsveika og efni
spítalanna leyfa, en með umsjónarmanna samþykki.
Fremur skal taka þá í ráðsmenskustöðuna, sem ekki
eiga mörg börn, svo þau dragi ekki mjólk frá sjúkl-
ingum. Árstillag fær ráðsmaður frá spítalanum, 5
hundruð fyrir karlmanD, en 4 hundruð með kven-
manninum, er greiðist í góðum og gildum landaurum,
helmingurinn fyrirfram, til þess að hægt verði að afla
sér nægra vista í tíma.
6. Ráðsmenn skulu sjá sjúklingunum fyrir nægu uppeldi
(fæði, ljósi og klæðum). Sóknarprestar hafa eftirlit með
með því og spyrja þá um, hvort nokkur misbrestur sé
á. Sé svo og ráðsmenn þverskallist, skal presturkæra
þegar til umsjónarmannanna.
7. Ráðsmenn haldi nægilegt fólk til þjónustu hinum
sjúku.
8. Skyldir eru ráðsmenn til að lesa guðsorð fyrirsjúkling-
ungunum daglega, annaðhvort sjálfir eða láta aðra
gjöra það. Guðsorðabækur tiltekur biskup og séu keypt-
ar á kostnað spítalanna. Á sunnudögum og helgidög-
um skal lesa guðspjallið og skýra það, ef sjúkl-
ingar komast ekki í kirkju, og skal ennfremur senda
eftir presti, ef þeir óska.
9. Sýna skal sjúklingunum stillingu í umgengni og vin-
semd. Telja um fyrir þeim, ef þeir eru vanstiltir, og
hugga þá með guðsorði.