Skírnir - 01.04.1910, Blaðsíða 89
Ritfregnir.
18»
Sig. Júl. Jóhannesson: Kvistir, Kostnaðarmaðui- Jólu
Jóliannesson, Rvík, 1910,
Höf. þessa ljóðasafn er ungur lœknir í Ameríku. Áður hefir
birst eftir hann lítill ljóðabæklingur, en öll eru þau kvæði — eða
vel flest — tekin upp í þetta safn. — Oneitanlega kennir margra
kurla í þessum »Kvistum« Sigurðar, enda eru yrkisefnin margs
konar. Honum hættir stundum til þess að leiða menn i hægðum
sínum hversdagslegar brautir, án þess að bregða nokkurri nýstár-
legri eða heillandi birtu yfir sviðið. Þau kvæðin eru of mörg,
sem skortir eld og skerpu, og er það illa farið, því að þau draga
skugga á eftir sór yfir önnur, sem eiga betra föruneyti skilið, —
og þau eru ekki allfá. Yfirleitt má segja um þetta ljóðasafn að
það só ekki svipmikið, en yfirbragðsþýtt og ekki ólíklegt til vin-
sælda. í>að ber vott um mannúðarþel höfundarins, drengilegan
hugsunarhátt og þjóðrækni. En máli og kveðandi er allvíða ábóta-
vant. — Aftan við safnið eru tvö æfintýri í draumgervi, annað um
himnaríki, en hitt um spillingu íslenzkrar tungu og þjóðernis í
Reykjavík. — Frágangur frá útg. hendi er hinn vandaðasti. Fram-
an við bókina er mynd höf.
B. B.
Tímarit kaupfélaga og samvinnufélaga, III, árg. 8. h.r
IV. árg. 1. h. Ritstjóri: Sigurður Jónsson,
Tímarit þetta er mesta nytsemdar- og fróðleiksrit. Það flytur
fjölda velsaminna hagfræðisritgerða og verzlunartíðinda, sem varða
alla þá, er nokkuð hirða um verzlunar og atvinnu þrifnað landsins,
jafnt bændur sem kaupmenn. í þessum heftum er t. d. ágæt hug-
vekja um vöruvöndun eftir ritstjórann, Sigurð bónda á Yztafelli,
og »Pistlar« um kaupfélagsskap og samvinnu eftir Jón Jónsson
Gauta, ritaðir af fjöri og þekkingu. Ritið á það skilið, að því sé
meiri gaumur gefinn en raun hefir á orðið til þessa.
B. B.