Þjóðviljinn - 31.03.1983, Page 3
Fimmtudagur 31. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra, benti á að auka þyrfti annað hvort framlag lífeyrissjóða til húsnæðis-
framleiðslu og skuldbindingar bankakerfisins - eða að öðrum kosti verði að koma til skattlagning, sem gæti
t.d. orðið jafngildi 1 söluskattsstigs.
Frá ráöstefnu um atvinnuhorfur í byggingariönaöi:
Ástandið sérlega
erfitt á Norðurlandi
Þátttakendur á ráðstefnunni voru á einu máli um að nú þyrfti að koma til
pólitískur vilji stjórnmálamannanna til að beina þróun húsnæðismála á
betri veg.
Laugardaginn 26. tnars
héldu sveina- og meistarafélög
byggingariðnaðarins, fram-
leiðendur einingahúsa og
Verkamannasamband íslands
ráðstefnu um atvinnuhorfur í
byggingariðnaði. I fréttatil-
kynningu sem þessir aðilar hafa
sent frá sér um ráðstefnuna
segir:
Um þessar mundir veldur þróun
byggingariðnaðar þungum áhyggj-
um þrátt fyrir sæmilegt ástand á
einstaka stað, eins og t.d. á Vest-
fjörðum.
Ástandið er sérlega erfitt á
Norðurlandi, einkum Akureyri og
Húsavík. Þátttakendur á ráðstefn-
unni voru á einu máli um að nú
þyrfti að koma til pólitískur vilji
stjórnmálamannanna til að beina
þróun mála á betri veg.
Félagsmálaráðherra benti á að
auka þyrfti annað hvort framlag líf-
eyrissjóða til húsnæðisframleiðslu
og skuldbindingar bankakerfisins
að öðrum kosti verði að koma til
skattlagning, sem gæti t.d. orðið
jafngildi 1% söluskattsstigs, til
þess að leysa fjármagnsvanda
húsnæðisframleiðslunnar.
Þróun kaupmáttar er afgerandi
fyrir þróun í byggingariðnaði,
ásamt stefnu í lánamálum. Enn
sem komið er hafa Byggingar-
sjóður verkamanna og Byggingar-
sjóður ríkisins getað staðið við
skuldbindingar sinar. Þessir sjóðir
hafa aldrei staðið jafn sterkir og
um þessar mundir vegna tilkomu
vísitölutryggingar lána.
Á undanförnum 5 árum hefur
fjárframlag til íbúðabygginga
aukist að raungildi um 36,7%.
Sá vandi sem byggingariðnaður-
inn stendur frammi fyrir um þessar
mundir er fyrst og fremst af völdum
aflabrests á árinu 1982 og versn-
andi viðskiptakjara landsins við út-
lönd.
Einnig kom fram á ráðstefnunni
að nú virðist margt benda til að
húsnæðisþörf dreifbýlisins sé sums-
staðar fullnægt. Erfitt er að selja
fasteignir úti á landi, enda hefur
fyrrnefndra erfiðleika fyrst og
fremst gætt þar. Menn óttast því að
þetta geti leitt til byggðaröskunar;
að fólk streymi á ný á höfuðborgar-
svæðið, þar sem atvinnuástand í
byggingariðnaði fari versnandi
utan þess.
Einkennandi fyrir íslenskan
byggingariðnað er hversu mörg
smáfyrirtæki eru á þessum markaði
með 1-5 starfsmenn. Meðallífs-
lengd þessara fyrirtækja er 3-5 ár.
Það kemur til af því að samkeppni
er hörð, verktakar undirbjóða hver
annan í baráttu um verkefni með
þeim afleiðingum að þeir fara á
hausinn.
Einnig er það ríkjandi stefna við
lóðaúthlutun á höfuðborgarsvæð-
inu að lóðum er þar úthlutað til
einstaklinga, sem verður til þess í
reynd að fjölda einstaklinga er fal-
ið að reisa heilu borgarhverfin.
Á ráðstefnunni var varað við öf-
und gagnvart núverandi verka-
mannabústaðakerfi, sem er elsta
sjálfseignabústaðakerfi landsins,
stofnað 1929. í stað-þess ætti að
beina kröftunum að því að bæta
önnur húsnæðiskerfi landsmanna.
Milli 10 og 12 þúsund manns
starfa að byggingariðnaði í
landinu, eðaum 10% alls vinnuafls
á íslandi.
Þessi starfsgrein verður einna
fyrst fyrir barðinu á samdrætti í
efnahagslífi þjóðarinnar.
Auk þess að byggingarstarfsemi
í landinu hefur dregist saman, hef-
ur innflutningur einingahúsa og
húsgagna skapað verulegan vanda.
Nú mun Félagsmálaráðuneytið
birta innan skamms auglýsingu þar
sem ekki verður leyfð tollaf-
greiðsla innfluttra húsa, nerna fyrir
liggi vottorð frá Rannsóknastofn-
un byggingariðnaðarins um að við-
komandi hús standist íslenskar
gæðakröfur.
Innflutningur húsgagna hefur
þegar leitt til þess að nú er mark-
aðshlutdeild innlendrar húsgagna-
framleiðslu um 40%.
5. umferö í landsliðsflokki á Skákþingi íslands
Ágúst Karlsson
náði forystu
Ágúst Karlsson úr Hafnarfirði
náði óvænt forystunni á Skákþingi
íslands sem nú stendur yfir í húsa-
kynnum Taflfélags Reykjavíkur
við Grensásveg. Ágúst vann einn af
efstu mönnum mótsins, Hilmar
Karlsson, í 5. umferð og þar sem
Svíinn Dan Hansson tapaði fyrir
Gylfa Þórhallssyni frá Akureyri
missti hann forystusætið.
Önnur úrslit í 5. urnferð urðu
sem hér segir: Sævar Bjarnason
vann Sigurð Daníelsson, Magnús
Sólmundarson vann Halldór G.
Einarsson og Elvar Guðmundsson
vann Hrafn Loftsson. Jafntefli
gerðu Áskell Örn Kárason og Sig-
urður Daníelsson.
Staðan að loknum 5 umferðum
er þessi:
1. Ágúst Karlsson 4 v.
2. -3. Dan Hansson og Gylfi Þór-
hallsson 37: v.
4. Elvar Guðmundsson 3 v. + 1
biðskák.
5. -7. Sævar Bjarnason, Magnús
Sólmundarson og Hilmar Karlsson
2'h v. + 1 biðskák hver.
8. Hrafn Loftsson 2 v.
9. Halldór G. Einarsson 17i v.
10. Áskell Örn Kárason 1 v. + 1
biðskák.
11. Sigurður Daníelsson 'h v. + 1
biðskák.
12. Björn Sigurjónsson 'h v.
í Áskorendaflokki er Pálmi Pét-
ursson frá Akureyri efstur eftir
fjórar umferðir með 372 vinning.
Guðmundur Gíslason frá ísafirði
er í 2. sæti með 2'h vinning og
biðskák.
í gærkvöldi voru tefldar biðskák-
ir en 6. umferð verður tefld í dag og
hefst kl. 14.
-hól.
Bókmenntaverðlaun frœðsluráðs:
Guöni Kolbeinsson
og Ólafur Haukur
Guðni Kolbcinsson og Ólafur
Haukur Símonarson hlutu bók-
menntaverðlaun fræðsluráðs sem
afhent voru í gær í Höfða. Verð-
launin taka til bestu frumsömdu
barnabókarinnar á árinu 1982 og
best þýddu barnabókarinnar á
sama ári. Guðni skrifaði bókina
Mömmustrákar sem hlaut afbragðs
viðtökur, bæði hjá börnum sem
gagnrýnendum og Ólafur Haukur
þýddi bók danska rithöfundarins
Bjarna Reuter, VerÖld Busters.
Það var Davíð Oddsson borgar-
stjóri sem afhenti verðlaunin.
Guðni hlaut 15 þús. krónur í verð-
laun og Ólafur 10 þúsund krónur.
„í æsku var mér kennt að það
væri sjálfsögð kurteisi að þakka
fyrir sig þegar vel er gert”, sagði
Guðni þegar hann veitti
verðlaununum viðtöku,....og það
er best að segja það eins og er að ég
er rígmontinn með að hafa hlotið
þessi verðlaun”, sagði hann enn-
fremur.
1 áliti dómnefndar, segir að bók
Guðna sé skrifuð af hreinskilni og
ástríki, efnismeðferð sé létt og
leikandi. Bókin Mömmustrákar
fjallar um strák sem elst upp með
móður sinni, ferðast um landið
með henni og lendir í ýmsum ævin-
týrum.
Ólafur Haukur sagði eftir að
hafa tekið við verðlaununum að
fyrst og fremst gæti hann þakkað
höfundi bókarinnar fyrir verð-
launin. Þarna væri mjög góður höf-
undur á ferðinni sem gaman hefði
verið að þýða. Hann sagði að bókin
fyllti á vissan hátt eyðu í barnabók-
menntir hér á landi. Bókin væri dá-
lítið á skjön við það sem hér kemur
á markað, full af fantasíu og húm-
or. Fyrir sína parta, kvaðst Ólafur
vera ánægður með að hafa orðið
svo vel ágengt í samkeppninni um
sálir barnanna, hún væri mikil hér á
landi.
-hól.
Herstöðvaand-
stæðingar
Gíróseðlar fyrir félagsgjöldum voru sendir út
fyrir röskum mánuði. Heimtur hafa ekki verið
sem skyldi og fjárhagsstaða samtakanna er
enn bágborin. Greiðið því félagsgjöldin sem
fyrst og styrkið þannig baráttustöðu samtak-
anna.
Samtök herstöðvaandstæðinga
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða og bif-
hjóla í Kjósar-, Kjalarnes- og
Mosfellshreppum og á Seltjarn-
arnesi 1983.
Skoðun fer fram sem hér segir:
Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfelishreppur:
mánudagur
þriðjudagur
miðvikudagur
fimmtudagur
Skoðun fer fram við
hreppi.
Seltjarnarnes:
mánudagur
þriðjudagur
miðvikudagur
11. apríl
12. apríl
13. apríl
14. apríl
Hlégarð í Mosfells-
18. apríl
19. apríl
20. apríl
Skoðun fer fram við félagsheimilið á Seltjarn-
arnesi.
Skoðað verðurfrá kl. 8.15-12.00 og 13.00-
16.00 alla framantalda daga á báðum
skoðunarstöðunum.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi
skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoð-
un skulu ökumenn leggja fram fullgild öku-
skírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiða-
gjöld séu greidd, að vátrygging fyrir hverja
bifreið sé í gildi og að bifreiðin hafi verið
Ijósastillt eftir 1. ágúst s.L Athygli skal vakin
á því að skráningarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma ökutæki sínu til
skoðunar á auglýstum tíma, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og ökutækið tekið úr umferð hvar
sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að
máli. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu, Bæjar-
fógetinn á Seltjarnarnesi 29. mars 1982.
Einar Ingimundarson.