Þjóðviljinn - 31.03.1983, Side 19
Fimmtudagur 31. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Vigfús Árnason, kennari
Kveðja frá
Iðnskólanum í Reykjavík
Vigfús Árnason var kennari í
hárskurði við Iðnskólann í Reykja-
vík frá ársbyrjun 1969 og nú síðustu
árin deildarstjóri í þeirri grein.
Hann var eins og sönnum rakara
sæmir ekki einungis meistari í sinni
grein heldur meistari í mannlegum
samskiptum bæði til orðs og æðis.
Vigfús var í senn einstaklega
skapgóður, kíminn og jákvæður.
Þessir eiginleikar nutu sín vel í
kennarastarfinu og leiddu til góðs
samstarfs við nemendur, sveina og
meistara í greininni.
Við samstarfsmenn Vigfúsar
vissum að hann átti við langvarandi
veikindi að stríða. Hann var þó ein-
att glaður og reifur.
Þannig munum við hann mörg úr
góðum fagnaði skömmu áður en1
hann veiktist hinsta sinni.
Skólinn þakkar honum farsæl
störf og vottar eiginkonu og ætt-
ingjum samúð sína.
Ingvar Ásmundsson
Styrktarfélag vangefinna 25 ára:
Hyggur á húsbyggmgu fyrir sambýli
Hinn 23. mars sl. voru 25 ár liðin
frá stofnun Styrktarfélags vangef-
inna, en það var stofnað í Kirkju-
bæ, félagsheimili Oháða safnaðar-
ins, og voru stofnendur þess um
120.
Aðdragandinn að stofnun fé-
lagsins var sá, að þann 10. febr.
1958 kom fámennur hópur áhuga-
fólks um málefni vangefinna
saman til þess að ræða um úrbætur í
þessum efnum og hugsanlega fé-
lagsstofnun. Niðurstaða þessa
fundar, og annarra, sem á eftirfóru
varð sú, að stórt átak þyrfti að gera
til þess að bæta hag vangefinna hér-
lendis og um það átak þyrftu
aðstandendur og áhugafólk að
sameinast til þess að ýta við ráða-
mönnum.
Félagsstofnuninni var þegar í
upphafi tekið mjög vel. Fjöldi fólks
kom til starfa fyrir félagið og áhugi
á framgangi þess mjög mikill. Til
marks um dugnað þeirra, sem
þama ruddu baut er það, að fyrsta
dagheimili félagsins, Lyngás við.
Safamýri, tók til starfa í júní 1961
en þegar á stofnárinu hafði félagið
tekið á leigu húsnæði fyrir leik-
skóla fyrir vangefin börn í borg-
inni.
Féiagið rekur nú þrjú dagvistar-
heimili í eigin húsnæði, Lyngás,
Bjarkarás og Lækjarás og dvelja
um 100 vistmenn á þessum stofn-
unum. Þá á félagið og rekur tvö
sambýli þar sem búa 16 manns og
þriðja sambýli félagsins tekur til
starfa fyrri hluta þessa árs.
Árið 1981 var stofnsettur vern-
daður vinnustaður, Ás, í húsnæði
Læjaráss. Þar starfa 13-14 manns
við ýmiss konar framleiðslu. Mjög
er brýnt að vinnustofan komist sem
fyrst í stærra og hentugra húsnæði,
en vöntun á vernduðum vinnustöð-
um fyrir öryrkja hér í borg er til-
finnanlegur.
Þá á félagið sumarbústað á Kjal-
arnesi og þar dvelja margir vist-
menn af hinum ýmsu stofnunum í
Reykjavík og nágrenni á hverju
sumri.
Nú, í tengslum við 25 ára afmæl-
ið, var tekin fyrsta skólfustunga að
4 raðhúsum, en þar hyggst félagið
koma upp sambýlum og skamm-
tímaheimili fyrir vangefna.
Reykjavíkurborg úthlutaði fé-
laginu þessum lóðum í lok síðasta
árs og gaf eftir gatnagerðargjöld af
húsunum. Skammtímaheimilið
verður rekið í samvinnu við Félags-
málastofnun borgarinnar og mun
bæta úr mjög brýnni þörf á skamm-
tímavistun.
Núverandi stjórn Styrktarfélags
vangefinna skipa: Magnús Krist-
insson, formaður, Davíð Kr. Jóns-
son, varaformaður, Ragnheiður S.
Jónsdóttir, ritari, Árni Jónsson
gjaldkeri og Hafliði Hjartarson,
meðstj. Framkvæmdastjóri er
Tómas Sturlaugsson. _ mi,g
Aðalfundur KRON
AðaMundur
Iðnaðarbanka íslands hf. árið 1983 verður
haldinn í Súlnasal Hótel Sögu kl. 14:00,
laugardaginn 9. apríl 1983.
Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf
samkvæmt ákvæðum 18. gr. samþykkta
bankans.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir hluthöfum eða umboðsmönnum
þeirra í Aðalbanka að Lækjargötu 12, 3.
hæð, dagana 5. apríl til 8. apríl, að báðum
dögum meðtöldum.
Reikningar bankans fyrir árið 1982, ásamt
tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja,
verða hluthöfum til sýnis á sama stað.
Tillögur, sem hluthafar vilja ieggja fyrir
fundinn, þurfa að hafa borist bankaráðinu
skriflega 7 dögum fyrirfundinn.
Reykjavík, 25. febrúar 1983
Bankaráð
IÐNAÐARBANKA ÍSLANDS HF.
Iðnaðarbankinn
Lausar stöður
Rekstrarhagn-
aður 3,1 milj. kr.
Aðalfundur Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis var
haldinn á Hótel Sögu sunnudag-
inn 27. mars. Fundinn sátu um
100 fulltrúar.
Fundinum stjórnuðu Sigurður
Magnússon og Vilhjálmur Jónsson
en fundarritari var Jónas Hólm-
steinsson.
Ólafur Jónsson, formaður fé-
lagsins, og Ingólfur Ólafsson,
kaupfélagsstjóri, fluttu skýrslur
um rekstur og hag félagsins á liðnu
ári. Kom þar m.a. fram, að rekst-
ursafkoma félagsins var svipuð og
árið áður. Heildarveltan varð 162
miljónir og er það 53% aukning
miðað við fyrra ár. Niðurstaða
efnahagsreiknings er 102 milj. kr.,
þar af eigið fé 63%. Rekstrarhagn-
aður varð 3,1 miljón.
Stærsta verkefni KRON um
þessar mundir er undirbúningur að
stórversluninni í Holtagörðum,
sem áætlað er að opna seinni hluta
þessa árs.
Úr stjórn áttu að ganga Guð-
mundur Ágústsson, Gylfi Kristins-
son og Jón Þór Jóhannsson. Guð-
mundur gaf ekki kost á sér áfram
en í stað hans var Sigurður Magn-
ússon kosinn. Þeir Gylfi og Jón Þór
voru endurkjörnir. Endur-
skoðandi var kjörinn Hrafnkell
Björnsson og varaendurskoðandi
Sigurður Ármannsson.
-mhg
Fjórar stöður fulltrúa við embætti ríkisskatú
stjóra, rannsóknardeild, eru hér með aug-
lýstar lausar til umsóknar frá 15. apríl n.k.
Hér er um að ræða tvær stöður löglærðra
fulltrúa og tvær stöður þar sem viðskipta-
fræðipróf er æskilegt, þótt einnig komi til
greina menn með verslunarskólapróf eða
samvinnuskólapróf og staðgóða þekkingu
og reynslu \, bókhaldi.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist skattrannsókn-
arstjóra, Skúlagötu 57, Reykjavík, fyrir 11.
apríl n.k.
Reykjavík 18. mars 1983
Skattrannsóknarstjóri.
Tii sýnis
Ufandi ungar í báðum búðunum
Sjötugur
Þriöjudaginn 5. apríl verður 70 ára Hilmar
H. Grímsson tyrrverandi innheimtumaður
Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Hann verður
að heiman á afmælisdaginn.
Póstsendum
Blómabúðin
mis
Engihjalla 2
Kaupgarði Kópavogi.
Simi 46086.
BREIÐHOLTSBLéM
Amarbakka 2 Simi 79060.
Opið skírdag kl. 8—21
Lokað föstudaginn langa
Opið laugardag kl. 8—21
Lokað páskadag
Opið annan í páskum kl. 8
-21