Þjóðviljinn - 31.03.1983, Qupperneq 21
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Aætlun sjónvarpsins um leikgerð 1983:
Þrjú verk
tekin upp í ár
Tvíleikur
Kempinski og
verk eftir
Kjartan Ragn-
arsson og
Sveinbjörn I.
Baldvinsson
Áætlunumleikgerð
sjónvarpsins fyrir árið 1983 var
samþykktásíðastafundi
útvarpsráðs og var ákveðið að í
ár verða unnin þrjú leikrit til
flutnings í sjónvarpi. Hér er um
að ræða leikrit eftir Kjartan
Ragnarsson, Sveinbjörn
Baldvinsson og svo verður
tekinn upp Tvíleikur Kempinski
sem Þjóðleikhúsið sýndi fyrri
part vetrar á Litla sviðinu.
Framlag sjónvarpsins til
leiklistarmála í ár er með rýrara
móti, en talið er að efni tengt
leiklist unnið á þessu ári taki um
160 mínútur í flutningi, en í
meðalári erflutningstími u.þ.b.
400mínútur. HinrikBjarnason
forstöðumaður Lista- og
skemmtideildar sjónvarpsins
var spurður hverju það sætti að
svo mikið væri gengið á hluta
leiklistarinnar.
„Því er ekki að neita að leiklistar-
efni verður í algeru lágmarki í ár og
man maður tæplega eftir öðru eins.
Ég geri ráð fyrir að hin bága staða
sjónvarpsins leiki þarna stóra
rullu. A.m.k. verður tekið upp efni
sem tekur alls 160 mínútur í flutn-
ingi en þar er þó ótalið barnaleikrit
sem vonandi verður unnið í ár þó
svo engar ákvarðanir hafi verið
teknar um það ennþá“, sagði
Hinrik.
Enn á eftir að sýna nokkur verk
frá síðasta ári s.s. Ofvitann í leik-
gerð Kjartans Ragnarssonar, Ás-
geir, eftir Ásu Sólveigu og Hver er
sinnar gæfu smiður, eftir Þorstein
Marelsson. Ekki er loku fyrir það
skotið að þau verk sem tekin verða
upp i ár verði sýnd í sjónvarpinu
seinni part árs. Sveinbjörn Bald-
vinsson hefur skrifað verk sem
heitir Allt í lagi og Kjartan Ragn-
arsson á eftir að fullvinna aðra af
tveimur hugmyndum sínurn um
leikverk. Þemað Faðir og sonur: og
Matreiðslunámskeið mun standa
Sveinbjörn I. Baldvinsson
Kjartan Ragnarsson
honum næst hvað framlag hans
varðar.
Gert er ráð fyrir að upptökur á
öllum þrem verkunum fari fram í
stúdíói.
- hól.
Nýtt fyrirtæki: Marel h.f.
Sem kunnugt er hefur fyrirtækið
Framleiðni sf. unnið ötullega að því
á undanförnum árum að þróa
hverskonar tölvubúnað til nota í
frystihúsum og öðrum flskvinnslu-
stöðvum. Hefur starfsemin þró-
ast svo ört að hún rúmast nú ekki
lengur innan ramma fyrirtækisins.
Hafa m.a. borist tilmæli um
framleiðslu og þjónustu á þessu
sviði frá öðrum atvinnugreinum en
fiskvinnslunni svo sem slátur-
húsum og iðnaðarfyrirtækjum.
Því hefur nú verið ákveðið að
stofna sérstakt fyrirtæki unt þessa
starfsemi, sem þjónað gæti sam-
vinnuhreyfingunni í heild. Var
fyrirtækið stofnað 17. mars og
nefnist Marel hf.. Eigendurnir eru
Sambandið, Samvinnusjóður ís-
lands hf. og flestöll frystihúsin, sem
selja framleiðslu sína á vegum Sjá-
varafurðadeildar. Er þetta fyrsta !
fyrirtækið, sem Samvinnusjóður-
inn gerist aðili að, en hann var, sem
kunnugt er, stofnaður á sl. ári.
Tilgangur þessa nýja félags er að
vinna að alhliða hönnun, fram-
leiðslu, kaupum og sölu á rafeinda-
tækjum og skyldum búnaði, innan-
lands og utan, svo og tilheyrandi
þjónusta og starfsemi. Félagið
tekur yfir þá starfsemi í framleiðslu
rafeindatækja, sem verið hefur hjá
Framleiðni sf. frá 1979, þ.e.
framleiðslu á vogurn og tölvubún-
aði fyrir fiskvinnslustöðvar, sem
selt hefur verið undir fram-
leiðslumerkinu MAREL.
Formaður stjórnar hins nýja
fyrirtækis er Þorsteinn Ólafsson,
fulltrúi, en framkvæmdastjóri er
Gylfi Aðalsteinsson. Aðsetur þess
er að Suðurlandsbraut 32.
_______- nihg.
r
Gigtarfélag Islands:
Gigtlækn-
ingastöð
senn
ígagnið
Aðalfundur Gigtarfélags íslands
var nýlega haldinn. Á fundinum
kom fram að aðal verkefni félags-
ins síðastliðið ár var innrétting
Gigtlækningastöðvarinnar í Ár-
múla 5. Það verkefni er nú það vel
á veg komið, að ef ekkert óvænt
tefur mun stöðin taka til starfa með
haustinu. ,
Fjölmörg félög, fyrirtæki og ein-
staklingar hafa stutt þetta verkefni
með myndarlegum fjárframlögum.
Erfðafjársjóður hefur síðan fjár-
magnað þetta verkefni og fleiri op-
inberir aðilar. Öllum þessum aðil-
um voru færðar þakkir á fundinum.
í skýrslu stjórnar kom fram að
skuldir eru félaginu þungur baggi
og einnig mun innbú allt kosta mik-
ið fé. I tilefni þessa vill félagið
minna alla stuðningsmenn á gíró-
reikning félagsins nr. 304050.
í Gigtlækningastöðinni sannast
málshátturinn að „Margt smátt
gerir eitt stórt“.
Píslarsaga 1983
Marianella García-
Villas
Ljóð
eftir
Ingólf
Sveinsson:
Einhverntíma
þegar pálmablöðin bœrast
í kvöldkyrrðinni
og góðlynd nóttin
kemur með frið og öryggi
verður þín minnst.
Einhverntíma
þegar jörðin grœr upp
af blóði þínu
og ungir draumar svífa
inn í nýja veröld
verður þín minnst.
Einhverntíma
segir gömul kona
sögu um unga stúlku
sem lét lífið
í von þess
að lítil börn
mœttu vaxa
til frelsis
Pá verður þín minnst
Marianella García-Villas.
Marianella García-Villas var myrt í
heimalandi sínu El-Salvador 13. mars
1983.
TILBOÐ
Páskaegg
Nóa páskaegg
Leyft Okkar
verð verð
nr. 2 40.- 31.40
nr. 3 79.- 62.00
nr. 4 130.- 102.00
nr. 5 189.- 148.30
nr. 6 336.- 263.60
Mónu páskaegg
nr. 2 60.- 46.60
nr. 4 120.- 93.15
nr. 6 160.- 125.50
nr. 8 210.- 164.70
nr. 10 315.- 247.00
OPIÐ TIL HÁDEGIS LAUGARDAG
MATVÖRUBÚÐIR
KRON
~|Q)) KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS
Opið hús í
kosningamiðstöð
Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi og 1. deild Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík gangast fyrir oþnu húsi í
kosningamiðstöð Aljpýðubandalagsins að Hverfis-
götu 105, fimmtudaginn 7. apríl kl. 20.30.
Gestir kvöldsins: Elsa Kristjánsdóttir og Svava Jak-
obsdóttir.
Nánar auglýst síðar
Jndirbúningsnefndin
Kaffiboð
V/*/#' fyrir Iðjufélaga
65 ára og eldri verður í Súlnasal, Hótel Sögu
sunnudaginn 10. apríl n. k. kl. 15.
Miðar verða afhentir á skrifstofu félagsins
Skólavörðustíg 16.
Iðja, félag verksmiðjufólks.
Kosningastarf
um páska
Kosningamiðstöð Alþýðubandalagsins í
Reykjavík verður opin sem hér segir um há-
tíðirnar:
Skírdag kl. 10-19 lokað.
Föstudaginn langa lokað.
Laugardaginn 2. apríl kl. 10-19.
Páskadag lokað.
Annan í páskum 13-17.
UMFERÐAR
RÁO
Góö orö ^
duga skammt.
Gott fordæmi
skiptir mestu
máli