Þjóðviljinn - 31.03.1983, Page 27
Fimmtudagur 31. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 27
um helgina
Tónleikar SA TT
2. apríl nk._____
Grýlurnar
Puppets
Tónleikar verða haldnir í
Klúbbnum laugard. 2. apríl á
vegum SATT frá kl. 21-23.30.
Hljómsveitin PUPPETS kem-
ur þar fram í fyrsta skipti opinber-
lega kl. 21.45. Hljómsveitina
skipa: Ásgeir Bragason, Richard
Korn, Eiríkur Hauksson og Sig-
urgeir Sigmundsson.
Kl. 22.45 koma svo Grýlurnar
fram.
Gálgi til prófunar
Vélsmiðja Olsen í Njarðvíkum
mun á laugardaginn kl. 10 prófa
nýjan gálga sem nota á við að
skjóta út björgunarbátum í
skipum. Karl Olsen hefur hannað
gálgann og hefur hann staðist allar
kröfur sem Siglingamálastofnun
hefur sett.
Björgunarbát verður skotið úr
Bergþóru KE-5 og fer athöfnin
fram í landshöfnum í Njarðvík.
Úr myndaseríu eftir Keystone:
„Hrun kirkjunnar“.
Andkristileg
sýning
Á morgun, föstudaginn langa,
kl. 14.00 verður opnuð í sýning-
arsal súrrealista, Skruggubúð,
samsýning 40 súrrealískra lista-
manna, þar af 30 erlendra, sýning
á andkristilegri list.
Að sögn forráðamanna
Skruggubúðar er sýning þessi sett
upp sem mótvægi við kirkjulista-
sýninguna sem nú stendur yfir að
Kjarvalsstöðum.
Sýningin stendur yfir til 20.
apríl og er opin alla virka daga
nema mánudaga frá 17-21 og um
helgar frá 15-21.
íslenskur
jarðvegur og
steinaldar-
músik
Sigurður Magnús Sólmundar-
son hcldur myndlistarsýningu í
félagsheimili Olfusinga í Hvera-
gerði dagana 31. mars til 4. apríl
nk.
Petta er fjórða einkasýning
Sigurðar auk nokkurra samsýn-
inga. Állar myndirnar eru unnar
úr íslenskum jarðvegi svo sem-
gosefnum hverasvæða, mislitu
grjóti ásamt timbri, járni og ýms-
Sýning að Hamraborg 12
Þór Magnússon heldur sýningu
á olíumálverkum og teikningum
að Hamraborg 12, Kópavogi dag-
ana 2. apríl tii 30. apríl.
Þór er Vestur-íslendingur og
hefur búið hér á iandi síðastliðið
ár. Þetta er hans fyrsta sýning á
íslandi.
Sýning Þórs Magnússonar
verður opnuð nk. laugardag kl.
eitt og stendur til klukkan níu um
kvöldið. Hún verður síðan opin á
virkum dögum frá kl. 9-6 og um
helgar frá kl. 2-6.
Figurativskur expressionismi
A morgun kl. 20 opnar Jó-
hanna Kristín Yngvadóttir sýn-
ingu í Nýlistasafninu Vatnsstíg
3b.
Þetta er fyrsta einkasýning
hennar. Á sýningunni verða tólf
olíumálverk í fígúartívum ex-
pressioniskum anda, unnin á
undanförnum þremur árum.
Jóhanna stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1972 - ’76 og að því loknu
fjögurra ára framhaldsnám við
Ríkisakademíuna í Amsterdam.
Hún hefur áður tekið þátt í
nokkrum samsýningum og er þar
helstar að nefna U.M. sýninguna
á Kjarvalsstöðum og Gullströnd-
in andar í vetur.
Sýningin er opin milli kl. 16 og
22 alla dagana. Henni lýkur 10.
apríl.
Tónleikar á Borginni
Hljómsveitin Þeyr heldur hljómlcika á Hótel Borg á laugardaginn
annan apríl frá 9-12. Þeir bera yfirskriftina „Kristnihald undir á-
hrifum“. Boðið verður upp á ýmis fleirir skemmtiatriði. Aðgangseyri
verður stillt í hóf.
um gróðri.
Laugardaginn 2. apríl frá kl.
3-5 e.h. verður af og til flutt
steinaldarmúsík, leikin á grjót.
Flytjendur eru Jón Björgvinsson
og Kristrún Gunnarsdóttir, bæði
úr Reykjavík.
Á sýningunni verða ennfrem-
ur til sýnis og sölu handunnir
gripir, gerðir úr tré.
leiklist
íslenska óperan:
Ein sýning verður hjá Islensku óper-
unni um páskana á óperettunni Mika-
dó eftir Gilbert og Sullivan. Sú breyting
verður á flutningi þessaar óperettu
sem verður 2. páskadag kl. 21.00, að
Jón Stefánsson organisti viö Langholt-
skirkju m.a. tekur við tónsprotanum af
Garðari Cortez. Þetta verður 7. sýn-
ingin á Míkadó.
Leikfélag Reykjavikur:
Skilnaöur Kjartans Ragnarssonar
verður sýndur I Iðnó i kvöld en aðrar
sýningar verða ekki hjá Leikfélaginu
yfir páskahelgina. Næstu sýningar eru
á þriðjudags- og miðvikudagskvöld en
þá verður nýjasta verkiö, Guðrún eftir
Þórunni Sigurðardóttur, sýnt.
Þjóðleikhúsið:
Silkitromman, hin vinsæla ópera eftir
Atla Heimi Sveinsson verður tekin til
endursýningar hjá Þjóðleikhúsinu nú
um páskana. Fyrsta endursýningin
verður í kvöld kl. 20.00 og önnur sýn-
ing á annan í páskum á sama tíma.
Aöeins verða fimm sýningar á þessu
vori á óperunni, en um næstu mán-
aðamót fer hópurinn með sýninguna á
mikla alþjóðlega leiklistarhátið í Car-
acas i Venesúela.
Þá verður Lína langsokkur auðvitað á
ferðinni i Þjóðleikhúsinu um helgina.
Sýnt veröur I dag, skirdag kl. 15.00, og
á sama tíma annan í páskum.
kirkjuleg verk sem unnin hata veriö á
síðustu árum og nærri 30 gamlir kirkju-
munir.
Langbrók:
Hjördís Bergsdóttir opnar sýningu á
tauþrykki en þetta er fyrsta einkasýn-
ing Hjördisar. Handþrykktar lengjur
eða púðar sem hægt er að kaupa eða
panta á sýningunni.
Listasafn ASÍ:
Kristján Guðmundsson og Ólafur Lár-
usson sýna skúlptúra, teikningar,
bækur og málverk þar sem ævintýrin
og sofandi prinsessur eru í aðalhlut-
verkum.
Listmunahúsið:
Samsýning 7 ungra og vel þekktra
listamanna. Alls 50 verk á mjög fjöl-
breyttri sýningu. Siðasta sýningar-
helgi.
Norræna húsið:
Þeir Arni Ingólfsson, Daði Guðbjörns-
son, Helgi Þ. Friðjónsson, Kjartan Óla-
son, Kristinn G. Harðarson, Tumi
Magnússon og Valgarður Gunnars-
son sýna málverk, grafik og teikningar.
Þessir myndlistamenn hafa sýnt víöa
heima og erlendis undanfarin ár og eru
yfirleitt tlokkaðir undir svokallað nýja
málverk.
(tilefni sýningarinnar gefa þeir félagar
út grafíkmöppu í fimmtiu eintökum.
Sigríður Gunnarsdóttir sýnir listrænar
Ijósmyndir í anddyrinu.
myndlist
Ásmundarsalur:
Fjórir ungir menn hafa tekið sig saman
undir nafninu MING til að sýna lista-
verk sín um páskana.
Þetta eru þeir Magnúz Gezzon, sem
sýnir olíumálverk, Ingibjörg V.
Friðbjörnsdóttir með málverk, Nanna
K. Skúladóttir sýnir olíumálverk og
Gunnar Árnason sýnir skúlptúra.
Viö opnunina á skirdag kl. 14.00 leikur
Ashildur Haraldsdóttir á flautu og Ás-
geir Þórhallsson les eitt og annaö úr
bókum sinum.
Félagsheimili Ölfusinga:
Sigurður Magnús Sólmundarson opn-
ar sýningu í dag kl. 14.00 i félagshei-
mili Hvergerðinga og stendur sýningin
til 4. apríl n.k.
Allar myndirnar á sýningunni eru unnar
úr íslenskum jarðvegi, gosefnum, mis-
litu grjóti, timbri og járni. Kaffiveitingar
á staðnum.
Galleri Djúpið:
Ákveðið hefur verið að framlengja
málverkasýningu Skúla Ólafssonar
sem opnaði þann 26. mars siðastliðinn
i Gallerí Lækjartorg. Meiningin var að
sýningunni lyki þann 4. apríl næstkom-
andi en vegna góðrar aðsóknar verður
hún opin til 10. apríl. Þegar hafa sjö
myndir selst.
Háholt: Hafnarfirði:
Sigurður Haukur Lúövígsson sýnir
vatnslita og olíumyndir sem allar eru til
sölu.
Sigurður stundaði nám hjá Finni Jóns-
syni listmálara á sínum tima og einnig i
málaraskóla Finns Jóhanns Briem.
Opið til 17. apríl.
Hamraborg 12, Kópavogi:
Þór Magnússon sýnir olíumálverk og
teikningar frá 2. apríl til 30.
Fyrsta einkasýning Þórs sem er V-
(slendingur.
Hallgrimskirkja:
( anddyrinu stendur nú yfir sýning á 50
teikningum eftir Barböru Árnason sem
unnar e'ru við Passíusálma Hallgríms
Péturssonar. Opið frá kl. 16-22.
Hásselbý-höllin í Stokkhólmi:
. Ef einhver lesenda Þjóðviljans á leið
um Stokkhólm næstu vikur, þá getur
hann litiö inn í menningarmiðstöðina i
Hásselbýhöll þar sem á morgun verö-
ur opnuð samsýning 9 islenskra
myndlistamnanna undir heitinu Is-
lenskt landslag.
Kjarvalsstaðir:
Geysimerk sýning á islenskri kirkjulist i
öllum sölum. Hátt á annað hundrað
Nýlistasafnið:
Jóhanna Kristín Yngvadóttir opnar sina
fyrstu einkasýningu. Hún sýnir 12 olíu-
málverk í fígúratívum expreessionisk-
um anda unnin á síðustu þremur árum.
Stendur til 10. apríl.
Rauða húsið Akureyri:
Jón Gunnar Árnason opnar sýningu i
dag þar sem hann sýnir sambland af
málverki og skúlptúr og um leið um-
hverfisverk þar sem áhorfandinn
gengur inn i verkið sjálft og verður hluti
af því.
Safnahúsið á Selfossi:
23 félagar i Myndlistarfélagi Ámes-
sýslu eru með sölusýningu á verkum
sínum, alls 80 talsins. Málverk, vatns-
litamyndir, teikningar, skúlptúr, textil
og hnýtingar. Opið kl. 14-22.
Skruggubúð:
Á morgun, föstudaginn langa opna
Skruggumenn alþjóðlega andkristi-
lega sýningu sem að þeirra sögn er til
mótvægis við kirkjusýninguna á Kjarv-
alsstöðum. Yfir 20 listamenn sýna, þar
af 30 erlendir.
tónlist
Q4U i Safari
Hljómsveitin Q4U mun leika í veitinga-
húsinu SAFARI fimmtudaginn 7. apríl
n.k. og að öllum likindum verður þá á
þeim stað einnig hljómsveitin SONUS
FUTURAE.
Bræðrafélag Dómkirkjunnar:
Kirkjukvöld verður í kvöld, skirdags-
kvöld, í umsjá KFUM og K í Dóm.kir-
kj.unni. Martin Hunger Friðriksson
dómorganisti leikur á orgel. Séra Þórir
Stephensen flytur ávarp. Sigurður
Pálsson formaður KFUM í Reykjavik
flytur erindi: Það byrjaði allt í Dóm.kir-
kj.unni. Jóhanna G. Möller syngur ein-
söng og Einar Th. Magnússon les úr
fösturæðum eftir Friðrik Friðriksson.
Dómkirkja Krists konungs:
Fimmtudagur, 31. mars, skirdagur, kl.
18 hámessa.Eftir messuna verður
hinu alhelga altarissakramenti stillt út
á altarið og verður stöðug tilbeiðsla
frammi fyrir þvi til miðnættis. Fyrsta
altarisganga barna í messunni.
Föstudagurinn langi, 1. apríl, kl. 15,
krossferillinn og guðsþjónusta.
Laugardagur, 2. apríl, kl. 22.30, páska-
vaka, um 23.45 hefst biskupsmessa.
Sunnudagur, 3. apríl, páskadagur, kl.
10.30 hámessa, kl. 14.00 lágmessa.
Mánudagur, 4. april, 2. páskadagur, kl.
10.30 hámessa.
Barðstrendingafélagið heldur hóf
Barðstrendingafélagið í
Rcykjavík hefur haldið fólki,
eldra en 60 ára, sem ættað er úr
Barðastrandasýsluni eða hefur
haft þar langa búsetu, samsæti á
skírdag.
Þessi sanikoma verður í Dom-
us Medica við Egilsgötu, fimmtu-
daginn 31. mars nk. og hefst kl
14.00.
Að vanda verður kvennadeild
félagsins með kaffi og kræsingar á
borðum. Svala Nielsen mun
syngja.
Vonast er til að sem flestir eldri
Barðstrendingar sjái sér fært að
koma og njóta dagsins.
kv"‘
Frá skírdagsskcmmtun
félagsins á síðasta ári.