Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1996, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996
Préttir
Lögreglumaður krefst bóta eftir að hafa blásið lifi i deyjandi flkniefnaneytanda með lifrarbólgu:
Rikið segir að hann
hafi vitað um áhættuna
á lögregla aö staldra viö og hugleiöa hvort bjarga á deyjandi fólki, spyr lögreglumaðurinn
Hans Markús Hafsteinsson, lög-
reglumaður í Reykjavík, sem blés
lífi í langt leiddan fikniefnaneyt-
anda sem hættur var að anda, hefur
stefnt ríkinu og krefst miskabóta
þar sem í Ijós kom að neytandinn
var með smitandi lifrarbólgu. Neyt-
andinn lést þegar komið var með
hann á sjúkrahús en Hans fékk ekki
vitneskju um sjúkdóm hans fyrr en
2 vikum síðar. Eftir það tók við
margra mánaða gríöarleg óvissa hjá
honum og fjölskyldu hans auk þess
sem Hans varð að víkja úr starfi
tímabundiö, í „sóttkví“.
Það sem er athyglisvert i málinu
eru vamir ríkisins gegn 400 þúsund
króna skaðabótakröfu lögreglu-
mannsins. Hans telur að í vörn rík-
islögmanns felist í raun sú ómann-
lega afstaða að lögreglumenn eigi að
staldra við og hugsa málið þegar
þeir standa yfir deyjandi fólki.
Lá án þess að anda
í götunni
„Þetta gerðist þannig að við feng-
um tilkynningu um mann liggjandi
á götu i vesturbænum í mjög slæmu
ástandi," sagði Hans viö DV í gær.
„Við lögreglumenn komum fyrstir á
vettvang en kallaö hafði verið á
sjúkrabíl. Þegar við komum að
manninum var hann hættur að
anda og við töldum hann líka kom-
inn með hjartastopp.
Þaö kom í minn hlut að beita
blástursaðferðinni og ég notaði til-
heyrandi maska sem leiðir blástur-
inn niður í manninn en út um ann-
að op. Það reyndist síðan ekki virka
þannig að loft úr manninum fór upp
í mig. Við náðum síðan að halda
manninum gangandi en því miður
var hann úrskurðaður látinn þegar
hann kom á sjúkrahús.“
Fjölskyldan
í hættu
„Tveimur vikum eftir atburðinn
hringdi rannsóknarlögreglumaður í
mig og sagði að hinn látni hefði ver-
ið með smitandi lifrarbólgusjúkdóm
og ráðlagði mér að fara til læknis.
Mér brá mjög - sérstaklega vegna
þess að ég hafði haft eðlilegt sam-
neyti við mína fjölskyldu eftir at-
burðinn. Ef ég hefði smitast væru
mínir nánustu líka í hættu," sagði
Hans.
í ljós kom að hinn látni hafði ver-
ið langt leiddur af fíkniefnaneyslu -
neyslu sem talin er hafa leitt til
hinnar smitandi lifarbólgu sem jafn-
vel er ekki hægt að lækna.
Sóttkví og gríöarleg óvissa
Hans sagði að næstu vikur og
mánuðir hefðu liðið í mikilli óvissu.
Eftir rannsókn hefði læknir reynd-
ar ekki talið miklar líkur á að hann
hefði smiiast en gat þó ekki útilok-
að það.„En óvissan var mikil í fjöl-
skyldunni og álagið gríðarlega mik-
ið,“ sagði Hans. „Síðan ráðlagði
læknirinn mér að hætta störfum í
tvo mánuði og ég var því hafður í
eins konar sóttkví."
Á aö láta deyjandi fólk
liggja?
Varðandi dómsmálið segist Hans
ákaflega undrandi á því með hvaða
hætti ríkið grípur til vama:
„Ég hafði starfað í yfir 20 ár hjá
lögreglunni þegar þetta gerðist. Mér
finnst því viðbrögð og varnir ríkis-
ins mjög hastarleg. Ég vissi ekki að
maskinn væri ekki verið i lagi,“
sagði Hans.
í vörn ríkisins í málarekstrinum
kemur fram að Hans hefði mátt
vera það ljóst að hann væri að taka
áhættu með búnaði sem „ekki virð-
ist hafa verið í fullkomnu lagi“ -
hann hefði vitað af því þegar hann
hóf lífgunartilraunimar að svokall-
aðan einstefnuloka hefði vantað.
Þetta telur Hans i raun ekki
skipta máli. Á vöm ríkisins í mál-
inu megi skilja að lögreglumenn
jafht sem aðrir eigi að staldra við og
hugleiða hvort þeir eigi að bjarga
deyjandi fólki - sú staðreynd sé sér-
staklega ámælisverð. -Ótt
Mál Ingólfs:
Aldrei
dregið
neitt
undan
- segir formaöurinn
„Af hálfu Björgunarsveitar Ing-
ólfs hefur aldrei verið reynt að
þagga neitt niður i þessu máli. Við
fórum heim til hjónanna og drengj-
anna strax um kvöldið og síðan með
þeim til lögreglunnar með öll gögn
sem skiptu máli, svo sem lista með
nöfnum allra sem í þessa ferð fóm,
bæði hinna bamanna og hjálpar-
sveitarmanna," segir Sigurþór
Gunnarsson, formaður Björgun-
arsveitar Ingólfs, við DV.
Eins og sagt var frá í DV ákvað
stjóm sveitarinnar i fyrrakvöld að
aðstoða hjálparsveitarmanninn sem
tveir drengir saka um að hafa veist
að sér í bíl sveitarinnar á leið í og
úr Þórsmörk þann 1. júní sl. en
maðurinn hefur dvalist í Danmörku
síðan snemma í sumar og hefur
ekki enn verið tekin af honum
skýrsla í tengslum við lögreglurann-
sókn málsins og ekki hægt að ljúka
rannsókn þess af þeim sökum. Kon-
an, sem fór utan með honum í sum-
ar, dvelur hins vegar hér á landi og
samkvæmt heimildum blaðsins hef-
m- verið tekin af henni lögreglu-
skýrsla í málinu.
Sigurþór segir að bæði maðurinn
og konan hafi starfað í sveitinni um
þriggja ára skeið og sé saga þeirra
beggja innan sveitarinnar og utan á
þeim tíma flekklaus. DV óskaði eft-
ir því við konuna í gær að fá henn-
ar sjónarmið í málinu. Hún óskaði
ekki eftir því að tjá sig um málið.
-SÁ
I Vík
Guömundur Elíasson, oddviti í Vfk, stendur hér í fjöruboröinu. Engin höfn, en nú er mikill vilji fyrir því hjá fbúunum
aö bæta úr þvf. Draumurinn er höfn sem geti tekiö viö fiskiskipum og stærri skipum. DV-mynd ÞÖK
Möguleikar á byggingu hafnar í Vík kannaöir:
Höfum hug á höfn
- segir Guömundur Elíasson oddviti
DV.Vík í Mýrdal:
„Því er ekki að neita að hugur
okkar hefur lengi staðið til þess að
ÞO getur svarað þessari
spurningu með þvf að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Ji
Nel
rödd
KSINS
904 1600
Er of vægt tekið á
kynferðisafbrotum
gagnvart börnum?
fá nýja höfn. Það var hér útgerð fyrr
á öldinni og menn drógu hér björg í
bú. Við höfum fullan hug á því að
hér verði komiö upp höfn. Það mál
er reyndar til skoðunar hjá Vita- og
hafnamálastofnun þessa dagana,"
segir Guðmundur Elíasson, oddviti
í Vík í Mýrdal, um möguleika þess
að gerð verði höfn í byggðarlaginu
þar sem nú er hafnleysa og hjólahát-
um einum fært að róa.
Margir horfa nú til þess að gerð
verði höfn í Vik í Mýrdal. Rökin fyr-
ir þeirri framkvæmd segja menn
vera þau að þar með sé hægt að
landa loðnu á staðnum og skipa út
vikri. Bent er á að hægt yrði að
frysta loðnu og hrogn á staðnum
þann stutta tima sem sú vertíð
stendur.
„Það er alveg ljóst að höfnin
myndi gjörbreyta öllu hér í atvinnu-
legu tilliti og viö hljótmn að stefna
aö þvi,“ segir Guðmundur. -rt
Hæstarettarlogmenn móðgaðir
Á gestalista Þorsteins Pálssonar
dómsmálaráöherra fyrir vígslu nýja
Hæstaréttarhússins á morgun er
hvergi að finna hæstaréttarlögmenn.
Samkvæmt heimildum DV ríkir
mikil óánægja í þeirra hópi með
þetta og sagði einn lögmannanna að
þeir væru í raun móðgaðir.
Hæstaréttarlögmenn gagnrýna að
þingmenn og héraösdómarar væru
t.d. teknir fram fyrir þá. -bjb
Stuttar fréttir
Sauðnaut flutt inn
Til athugunar er á Austur-
landi að flytja sauðnaut inn til
landsins. Samkvæmt RÚV hefur
tillaga þess efnis frá fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins veriö sam-
þykkt í bæjarstjóm Eskifiarðar.
Ólafur hættir
Ólafur Tómasson hefur óskað
eftir því að hætta sem póst- og
símamálastjóri um næstu ára-
mót þegar Pósti og síma verður
breytt i hlutafélag. Guðmundur
Bjömsson, sem verið hefur að-
stoðarpóst- og símamálastjóri,
verður forstjóri hlutafélagsins.
Endurskoðaö kerfi
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
borgaiTáði vilja að nýtt leiða-
kerfi SVR verði tekið til endur-
skoðunar. Þeir telja að ekki sé
hægt að hunsa athugasemdir
vagnstjóra.
Deilt í Mosfellsbæ
Hatrammar deilur em á milli
íbúa í tvíbýlishúsi í Mosfellsbæ.
Samkvæmt RÚV er m.a. deilt um
gluggafiöld, lóð og rafmagnstöflu
og hefur þurft að kalla til lög-
reglu.
Matfrekir þorskar
Rannsóknir Hafrannsókna-
stofnunar benda til að þorsk-
stofninn á íslandsmiðum éti á
bilinu 1-3 milljónir tonna á ári.
Þetta kom fram á RÚV.
Svavar Gests látinn
Hinn landskunni og dáði tón-
listarmaður og útvarpsmaður
með meiru, Svavar Gests, er
látinn, sjötugur aö aldri.
Halldór fordæmir
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra fordæmir aðgerðir
íraka og segir Saddam Hussein
bera fulla ábyrgð á því sem er að
gerast. Þetta kom fram á RÚV.
Ný salmonella
Folöld hafa fundist dauð í
girðingum á þremur stöðum á
landinu. Samkvæmt Sjónvarp-
inu er óttast að salmonellu sé um
að kenna.
Ólafur fjárfestir
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur
ásamt risafyrirtækjunum Sony
og Microsoft fiárfest í bandar-
ísku fyrirtæki fyrir á annan
milljarð króna. Þetta kom fram í
Sjónvarpinu. -bjb