Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1996, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996
7
DV Sandkorn
Héraösfrétta-
blaðið Austur-
land í Neskaup-
stað á 45 ára af-
mæli um þess-
ar mundir.
Fyrsti ritstjóri
þess var sá
frægi bæjar-
stjóri í Nes-
kaupstað,
Bjarni Þórðar-
son. Hans er
minnst í blað-
inu vegna afmælisins. Til eru niarg-
ar góðar sögur af Bjama. Eitt sinn í
bæjarstjóratíð hans var gamall sjó-
maður í Neskaupstað talinn vera
orðinn óhæfur að sjá um sig sjálfur
og vildu ættingjar koma honum á
elliheimilið. Bjarni hjálpaði til við
að fá pláss og síðan var sá gamli
fluttur þangað. Honum líkaði vistin
illa og kenndi Bjarna um allt sam-
an. Síðan strauk hann. Honum var
aflur komið á elliheimilið og enn
strauk hann og fór beint á fund
Bjarna Þórðarsonar á bæjarskrif-
stofunni. Hann ruddist inn á Bjama
og lamdi í borðið og sagði þetta
ekki ganga lengur, hann vÚdi ekki
vera á elliheimilinu. Bjami sagði að
hann yrði að vera þar. Þeir deildu
um þetta þar til sá gamli sagði að
þeir skyldu bara heyja einvígi út af
þessu. Þeir skyldu fá sér byssur og
fara út á Bakkabakka og berjast.
„En það er svo assskoti langt þang-
að,“ sagði Bjarni. „Hvað ert þú að
kvarta sem bara þarft að ganga
aðra leiðina," svaraði sá gamli.
Einvígið
Slæm prentvilla
Varla mun sú
bók hafa verið
gefin út að ekki
fmnist í henni
prentvilla. í
nýjustu slma-
skránnieru
prentvillur og
sumar slæmar.
Þar segir að
símanúmer
Hagkaups sé
563-1000. Þetta
er hins vegar
símanúmer læknasetursins í Domus
Medica. Og þegar þangað er hringt
svarar rödd af stmsvara sem segir
að maður sé kominn í samband við
Domus Medica og verði stmtöl af-
greidd i réttri röð. Síðan er farið að
segja frá hvert sé símanúmerið í
Hagkaupi. Slæm mistök þetta þar
sem margir þurfa að hafa samband
við þessi fyrirtæki.
Góð kirkja
í bókinni Þeim
varð á i mess-
unni segir frá
lítilli stúlku
sem átti heima
beint á móti
Háteigskirkju.
Hún kom eitt
sinn að máli
við sóknarprest
sinn eftir
bamaguðsþjón-
ustu og sagði
alvörugefm.
„En hvað það er sniðugt að hafa
svona kirkju þar sem konur geta
skipt á eiginmönnum." „Hvaö áttu
við, bam?“ spurði klerkurinn for-
viða. „Jú, ég hef oft séð ungar kon-
ur í brúðarkjól vera leiddar upp
kirkjutröppumar af gömlum mönn-
um og svo koma þær út hálftíma
síðar með miklu yngri mönnum."
Hegningin
Við sögðum frá
vísunni hans
Egils Jónasson-
ar um hvanna-
rótarbrennivín-
ið og magasárið
í siðasta Sand-
komi. Það var
bara fyrri
helmingur sög-
unnar. Áður en
Egill varð góð-
ur af magasár-
inu flutti lækn-
ir hans, Daníel
Daníelsson, burt frá Húsavík. Eitt
sinn fór Egill að heimsækja hann
og dvaldi hjá honum nokkra daga.
Meðan á dvölinni stóð komu vinir
Daníels í heimsókn eitt kvöldið.
Læknirinn náði I sjeneversbrúsa og
skenkti gestum sínum í staup. Líka
Agli. Hann sagðist hafa smakkaö á
fyrst þaö var sjálfur læknirinn sem
bauð honum. Um nóttina fékk hann
slæmsku í magann og orti þá aðra
vísu til Drottins.
Enn ertu herra að hegna mér,
hart er að búa við öfund slika.
Átt’ekki sjálfur sjenever,
svo að þú getir bragðað lika.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
Fréttir
Kvótasvik í rannsókn:
Settu ýsu
og f latfisk
ofan á
þorsk við
vigtun
„Það er rétt að bæði lögfræðingur
okkar og lögreglan á ísafirði rann-
saka nú kvótasvik sem komst upp
um fyrir skömmu. Báturinn sem
landað var úr er Mímir ÍS en við-
takandi aflans er Norðurtanginn hf.
Málið er enn á rannsóknarstigi,"
sagði Þórður Ásgeirsson fiskistofu-
stjóri í samtali við DV í gær.
Þetta kvótasvindl var framkvæmt
með þeim hætti að ýsa annars veg-
ar og flatfiskur hins vegar voru sett
efst í kör þegar vigtað var á hafnar-
voginni.
„Rannsóknin beinist nú ekki bara
að þessu tiltekna meinta broti sem
við þykjumst hafa staðið menn að.
Lögreglan á ísaflrði rannsakar það.
Við munum svo skoða bókhald um
fyrri landanir þessa sama báts og
frystihússins sem tók við aflanum.
Þess vegna getur maður ekki á þess-
ari stundu sagt til um það hve mik-
inn afla er um að ræða,“ sagði Þórð-
ur Ásgeirsson. -S.dór
Rangárvallahreppur:
Hestur
sparkaði
í höfuð
vinnukonu
Ung vinnukona á bænum Ármóti
í Rangárvallahreppi var flutt á
sjúkrahús í Reykjavík á mánudag
eftir að hestur hafði sparkað í höfuð
hennar.
Stúlkan var að lúsaþvo hestinn og
ætlaði að bera á hann efni í fax og
tagl þegar hann sparkaði skyndilega
í hana. Hún var talsvert kvalin og
fór hún í rannsókn. Kom þá í ljós að
betur hafði farið en á horfðist í
fyrstu þvi hún slapp við beinbrot og
fékk að fara heim eftir meðferð á
sjúkrahúsinu. -Ótt
Akureyri:
Margir teknir
án öryggisbeita
DV, Akureyri:
Lögreglan á Akureyri kannaði á
mánudaginn notkun öryggisbelta í
bifreiðum í bænum. Á ákveðnum
stað í bænum voru allar bifreiðar
sem áttu leið um stöðvaðar og belta-
notkunin könnuð. Niðurstaðan varð
sú að 10 ökumenn og farþegar
reyndust „óspenntir" og verða þeir
að greiða sekt vegna þess.
Magnús Axelsson, varðstjóri hjá
lögreglunni á Akureyri, segir að
þrátt fyrir þetta sé ástandið þokka-
legt varðandi öryggisbeltanotkun-
ina þegar á heildina sé litið. Öku-
menn bera ekki ábyrgð á því að far-
þegar þeirra spenni beltin þannig
að farþegar, sem eru „óspenntir",
eru ábyrgir fyrir því og verða að
greiða sektir verði þeir staðnir að
því. -gk
Ávísanaheftum
stoliö í innbroti
Tveimur ávísanaheftum var
stolið af skrifstofu Fiskverkunar
Sigvalda Þorleifssonar að nætur-
lagi.
Talið er að farið hafi verið inn
um glugga en síðan voru dyr brotn-
ar upp með hamri á skrifstofunni.
Heftin eru frá Sparisjóði Ólafs-
fjarðar og Landsbankanum á Akur-
eyri. Lögreglan er með málið í rann-
sókn. -Ótt
afsláttur
af öllum notuðum bílum
ef um bein kaup er að ræða.
Lyklarnir okkar aanga aðeins
að góðum notuðum bílum.
Mikið úrval af góðum notuðum Hyundai, Renault,
Lada og mörgum öðrum tegundum.
Þú getur því verið viss um að gera góð kaup.
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT12
SÍMl: 568 1200 BEINN SlMI: 581 4060
Áskrifendurfá /0%
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
oWmil lihirr,,^
"cl
Smáauglýsingar
■té
I oi+A
550 5000