Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1996, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996
11
I>V
Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra:
Ekki áhugi á yfir-
töku heilsugæslu
DV, Fljótum
Á ársþingi Samtaka sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra (SSNV), sem
haldið var fyrir skömmu, urðu tals-
verðar umræður um yfirtöku sveit-
arfélaganna á rekstri grunnskólans
og einnig á frekari tilfærslu verk-
efha frá ríki til sveitarfélaga. Á
þinginu kom berlega fram, að sveit-
arstjórnarmenn hafa vemlegar efa-
semdir um tilflutning heilsugæsl-
unnar í landinu yfir til sveitarfé-
laga, en hugmyndir þar að lútandi
hafa verið í gangi um hríð.
Var m.a. bent á að sveitarstjóm-
armenn hafi verið svo uppteknir af
yfirfærslu grannskólans undanfarin
misseri, að umræða um breytingu á
rekstri heilsugæslunnar sé nánast
ekki hafin. í þessu sambandi kom
m.a. fram að viða séu heilsugæslu-
stöðvar og sjúkrahús samrekin og
ljóst að óhagkvæmt og kostnaðar-
samt verði að skilja þar á milli. Með
aukinni tæknivæðingu og uppbygg-
ingu hátækni sjúkrahúsa aukist
mikilvægi þess að öll heilbrigðis-
þjónusta lúti sömu yfirstjórn.
Þannig verði jafhræði þegnanna
best tryggt ásamt rekstrarlegri hag-
kvæmni.
I lok þingsins var seunþykkt sam-
hljóða tillaga þar sem skorað var á
stjóm SSNV að leita samráðs við
stjóm Sambands íslenskra sveitar-
félaga og önnur landshlutassamtök
sveitarfélaga um endurskoðun á
framkomnum hugmyndum um yfir-
töku sveitarfélaga á rekstri heilsu-
gæslu í landinu. -ÖÞ
„Það hefur bjargað okkur að hér er læknir á neyöarvakt. Paö hefur komiö í veg fyrir alvarleg tílfelli," segir Helga Þor-
bergsdóttir, hjúkrunarfræöingur á heilsugæslustööinni í Vík í Mýrdal. DV-mynd ÞÖK
Hjúkrunarfræðingurinn í Vík á vaktinni allan sólarhringinn:
Neyðarvaktin komið í
veg fyrir alvarleg tilfelli
- segir Helga Þorbergsdóttir i Vík í Mýrdal
„Það hefur bjargað okkur að hér
er læknir á neyðarvakt. Það hefur
komið í veg fyrir alvarleg tilfelli.
Það ríkir fullkomlega óviðunandi
ástand í þessum málum hér og á
öllu Suðurlandi," segir Helga Þor-
bergsdóttir, hjúkrunarfræðingur á
heilsugæslustööinni í Vík í Mýrdal.
Helga, sem jafhframt er héraös-
hjúkrunarfræðingur á Suðurlandi,
er eini hjúkranarfræðingurinn á
heilsugæslustöðinni og er því á vakt
allan sólarhringinn. Héraðslæknir-
inn er einn þeirra sem sögðu upp
störfum en er á staðnum og sinnir
neyðarvakt. Helga segist ekki sjá
fyrir neina lausn í deilunni. Hún
segist engan veginn anna öllu þvi
sem heilsugæslan sinni að öllu
jöfiiu.
„Það er eðli heilsugæslunnar að
þetta er hópvinna. Læknirinn kem-
ur með sína þekkingu, hjúkrunar-
fræðingurinn með sína og svo fram-
vegis. Ef allt á að ganga upp verður
öll þessi þekking að koma saman.
Það era ýmsir hlutir sem sitja á
hakanum meðan þetta ástand var-
ir,“ segir Helga.
„Það er ótrúlegt að horfa upp á
það í hvaða farveg þessi deila er
komin. Hjúkrunarfræðingar um allt
Suðurland hafa miklar áhyggjur af
þessari deilu. Þetta er slíkt niður-
brot á starfsemi heilsugæslustöðva
aö það er áhyggjuefni," segir Helga.
„Allar ráðstafanir sem gerðar
hafa verið síðan deilan hófst era
bráðabirgðaráðstafanir sem leysa
engan vanda en fresta honum ein-
göngu. Það er líka ljóst að það tekur
langan tíma aö vinna upp þann
skaða sem hlýst af þessu ástandi,"
segir Helga. -rt
Prúðbúnir
í fótbolta
Oft getur veriö erfitt fyrir unga
drengi aö sitja á sér í veðurblíðunni
- sól, gras og bolti úti í garöi.
Þessir prúöbúnu drengir, Ríkaröur
Schmidt og Andrés Garðar Andrés-
son, voru staddir í brúökaupsveislu
bróöur síns á Bíldudal nýlega og
laumuöu sér út í garö úr veislunni í
fótbolta. Sumariö er stutt og ungir
drengir nota sólina og blíöuna
óspart hvort sem þeir eru í brúö-
kaupi eöa ööru. DV-mynd RS
_____________________________Fréttir
Nýja slökkvibíla
fýrir
„fornbílana"
- og Eyþing vill niðurfellingu „vasksins“
landinu sé víða óviðunandi. Uppi-
staðan í bifreiðaeign margra
slökkviliða séu fornbílar sam-
kvæmt almennri viðmiðun og
sama sé að segja um annan bún-
að. Þá segir í greinargerðinni að
fram undan hjá mörgum slökkvi-
liðum landsins sé að kaupa nýja
slökkvibíla til að leysa af hólmi
gömlu Bedford bílanna en 56 slík-
ar bifreiðir munu enn vera í notk-
un víðs vegar um landið.
-gk
DV, Akureyri:
Aðalfundur Eyþings, samtaka
sveitarfélaga á Norðurlandi
eystra, samþykkti á aðalfundi sín-
um að skora á Alþingi og ríkis-
stjóm að beita sér fyrir breyting-
um ó lögum og reglum þannig að
endurgreiddur verði virðisauka-
skattur af kaupum slökkviliða á
tækjum og búnaði ætluðum til
björgunar- og slökkviliðsstarfa.
í greinargerð með ályktuninni
segir að tækjakostur slökkviliða í
Nyja fimman til sölu!
BMW 520ia, árg. 1997, til sölu, ssk., ABS, airbag o.fl.,
vínrauöur metallic. Verö 3.800.000 stgr., ath.
skipti á ódýrari. Til sýnis og sölu á staðnum.
Litla bílasalan, Skógarhlíð 10 - sími 552 7770
KARATE ReykiavSl'
Reykjavik-Vesturbæ
Byrjendanámskeið
eru að
hefjast!!!
Barnaflokkar
frá fimm ára
Unglingaflokkar
Fullorðinsflokkar
Karatedeild HK
Karatefélag Vesturbæjar Símar: 555-3435 og 555-3436