Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1996, Page 17
16
MIÐVKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996
íþróttir
Frjálsar íþróttir:
Sunna og Bjarni
voru sigursælust
Bjami Þór Traustason úr FH
og Sunna Gestsdóttir úr USAH
urðu sigursælust á meistaramóti
íslands 15-22 ára sem fram fór á
Laugardalsvellinum um síöustu
helgi.
Bjami sigraði í fjórum grein-
um, 100 og 200 m hlaupum, 110 m
grindahlaupi og langstökki, og
auk þess var hann í sigursveit-
um FH bæði í 4x100 og 4x400 m
boðhlaupum.
Sunna sigraði í 100 og 200 m
hlaupum og í 100 m grinda-
hlaupi.
Magnús Aron Hallgrímsson,
FH, sigraði bæði í kúluvarpi og
kringlukasti.
Guðleif Harðardóttir, ÍR, setti
stúlknamet í sleggjukasti, 35,10
metrar. Þá setti sveit HSK
sveinamet í 4x100 m boðhlaupi,
46,55 sekúndur.
FH-ingar unnu til 10 íslands-
meistaratitla á mótinu og USAH
kom næst með 4 titla.
-VS
Hestaíþróttir:
Suöurlandsmót-
inu ekki frestaö
Sá orðrómur hefur farið um
landið að Suðurlandsmótinu í
hestaíþróttiun, sem haldið verð-
ur um næstu helgi, hafi verið
frestað.
Að sögn Steinunnar Gunnars-
dóttur, sem er í framkvæmda-
nefnd, hefur verið hringt í knapa
sem ætla aö keppa á Suðurlands-
mótinu og þeim sagt að heyrst
hafi að mótinu hafi verið frestað.
En það er ekki rétt. Mótiö
verður haldið. Reynt verður að
halda mótið á laugardeginum
eingöngu og verður keppt á
tveimur völlum.
Um sömu helgi verður haldið
metamót á Kjóavöllum, velli
Andvara í Garðabæ.
-E.J.
Semur Pallister?
Forráðamenn Manchester
United eru hikandi þessa dagana
hvort þeir eigi að framiengja
samning sinn viö Gary Pallister
um eitt ár og gæti sá samningur
verið upp á 100 milljónir. Pallist-
er hefúr ekki náð sér að fullu af
bakmeiðslunum en hann hefur
samning út þetta tímabil.
Keane ekki með
Allt bendir til þess að
Manchester United verði án
þriggja sterkra leikmanna þegar
það leikur gegn Juventus í
meistaradeildinni síðar í mánuð-
inum. Eric Cantona tekur út
leikbann og þeir Phil Neville og
Roy Keane eru meiddir. Keane
fór í uppskurö á dögunum og
vonaðist Alex Ferguson, stjóri
United, til að hann yrði ldár fyr-
ir leikinn en svo verður ekki.
Ferillinn í hættu
Ferili Nígeríumannsins Kanu,
sem nýverið gekk í raðir Inter
Milan frá Ajax, gætið verið í
hættu. Kanu, sem er 20 ára gam-
ail, hefur átt við veikindi að
stríða í hjarta og gæti þurft að
framkvæma á honum hjarta-
skurö.
Hvað gerir Keegan?
Roy Evans, stjóri Liverpool,
óskaði eftir því við forráðamenn
Newcastle að fá Les Ferdinand
til liðs við félagið. Evans bauð
Newcastle Neil Ruddock fyrir 5
milljónir punda og 1,5 milljónir
punda að auki ef Ferdinand
kæmi. Svariö sem Kevin Keegan
gaf Liverpool var aö hann væri
aðeins tilbúinn að skipta á leik-
mönnum ef Stan Collymore væri
inni í myndinni.
DV
Boltagjöf DV í 1. deildinni í knattspyrnu:
Gunnar efstur
með 14 bolta
- Baldur Bjarnason og Ólafur Gottskálksson koma næstir
Gunnar
Oddsson, fyrir-
liði Leifturs,
hefur verið
besti leikmað-
ur 1. deildar-
innar í knatt-
spymu í sum-
ar, að mati
íþróttafrétta-
manna DV. Hann er með flesta bolta
í einkunnagjöf blaðsins, hefur feng-
ið 14 bolta í jafnmörgum leikjum
Ólafsfirðinga.
Forysta Gunnars er þó naum því
á hæla hans koma Baldur Bjama-
son úr Stjömunni og Ólafur Gott-
skálksson úr Keflavík með 13 bolta
hvor.
íþróttafréttamenn DV gefa leik-
mönnum 1. deildar 1 bolta ef þeir
leika vel, 2 bolta ef þeir leika mjög
vel og 3 bolta ef þeir eiga frábæran
leik.
Þrír meö þrjá bolta
Það er sjaldgæft að leikmenn fái 3
bolta og þaö hefur aðeins þrisvar
gerst í sumar. Heimir Guðjónsson
úr KR (gegn ÍBV), Rastislav Lazorik
úr Leiftri (gegn ÍA) og Kjartan
Sturluson úr Fylki (gegn KR) em
þeir einu sem hafa náð því marki í
fyrstu 14 umferöum 1. deildarinnar.
Fjórir hafa þrisvar veriö
„menn leiksins"
DV velur ennfremur „mann leiks-
ins“ í hverjum leik 1. deildarinnar.
Fjórir leikmenn hafa hlotið þann
titii þrivegis en það era þeir Guð-
mundur Benediktsson úr KR, Bald-
ur Bjamason úr Stjömunni, Ólafur
Gottskálksson úr Keflavík og Zoran
Ljubicic úr Grindavik.
Hér á eftir koma þeir leikmenn
sem flesta bolta hafa fengið í sumar
í hveiju liði fyrir sig. í sviga fyrir
framan er hve oft viðkomandi hefur
verið maður leiksins:
Akranes
Bjami Guðjónsson..............(2) 12
Alexander Högnason............(1) 10
Ólafur Þóröarson..............(2) 10
Haraldur Ingólfsson...........(2) 9
Zoran Miljkovic ...................7
Steinar Adolfsson..................6
Jóhannes Harðarson.................6
Þórður Þórðarson...................6
KR
Brynjar Gunnarsson................12
Heimir Guðjónsson.............(1) 10
Einar Þór Danielsson..........(1) 10
Guðmundur Benediktsson .......(3) 9
Ríkharður Daöason ............(1) 9
Þormóður Egilsson..................9
Leiftur
Gunnar Oddsson ...............(2) 14
Sverrir Sverrisson............(1) 10
Pétur Bjöm Jónsson.................9
Baldur Bragason ..............(1) 7
Gunnar Már Másson.................7
Auöun Helgason.....................7
ÍBV
Hermann Hreiðarsson.............(1) 11
Hlynur Stefánsson...............(2) 9
Ingi Sigurðsson ..............(1) 7
Friörik Friðriksson ..........(1) 7
ívar Bjarklind................... 5
Steingrímur Jóhannesson.........(1) 4
Stjarnan
Baldur Bjamason.................(3) 13
Bjami Sigurösson .............(2) 9
Goran Kristófer Micic.............8
Reynir Bjömsson ...................8
Helgi Björgvinsson..............(1) 8
RagnarÁmason......................5
Valur
Láms Sigurðsson.................(1) 10
Jón Grétar Jónsson ...........(1) 8
Sigþór Júlíusson..................8
Gunnar Einarsson................(1) 6
Salih Heimir Porca ...........(1) 6
Kristján Halldórsson .........(1) 6
Fylkir
Ólafur Stígsson..................11
Þórhallur Dan Jóhannsson.........10
Finnur Kolbeinsson..............(1) 9
Kjartan Sturluson ............(1) 9
Enes Cogic ....................... 7
Aðalsteinn Víglundsson ............7
Kristinn Tómasson...............(1) 7
Keflavík
Ólafur Gottskálksson............(3) 13
Jóhann B. Guðmundsson...........(2) 9
Haukur Ingi Guönason..............7
Kristinn Guöbrandsson.............6
Gestur Gylfason.................(2) 5
Karl Finnbogason................5
Eysteinn Hauksson...............5
Grindavík
Guöjón Ásmundsson................10
Zoran Ljubicic................(3) 9
Albert Sævarsson..............(1) 8
Ólafur öm Bjamason................6
Milan Stefán Jankovic ............5
Hjálmar Hallgrímsson..............5
Breiöablik
Hgjmdin Cardaklija...........(2) 11
Pálmi Haraldsson..................9
Sævar Pétursson...................9
Hreiöar Bjamason .................7
Amar Grétarsson...............(1) 6
Kjartan Einarsson.................6
KR-ingar meö flesta bolta
KR-ingar hafa fengið flesta bolta
samanlagt, 90 talsins, en
Skagamenn era aðeins einum bolta
á eftir þeim. Boltamir hafa skipst
þannig á liðin, fjöldi leikmanna sem
fengið hafa bolta er í svigum:
KR.............................90(14)
Akranes........................89 (15)
Leiftur........................86 (14)
Fylkir.........................76 (12)
Breiðablik ....................71 (12)
Stjaman........................67 (13)
ÍBV ...........................65(17)
Valur..........................64(13)
Keílavík.......................61 (13)
Grindavík .....................60 (13)
-VS
Launahæstir
í bresku knattspyrnunni
Fabrlzlo Ravanelll, Mlddlesboro
Alan Shearer, Newcastle
Glaniuca Vlalli, Chelsea
Ruud Gullit, Chelsea
Dennis Bergkamp, Arsenal
2.060.000
2.060.000
2.060.000
Branco, Middlesboro 1.854.000
Faustino Asprilla, Newcastle 1.648.000
Paul Gascoigne, Rangers 1.648.000
Juninho, Middlesboro 1.648.000
David Glnoia, Newcastle 1.545.(
4.326.000
3.090.000
Ravanelli fær 17
milljónir á mánuði
Margir leikmenn í ensku úrvals-
deildinni í knattspymu fá svimandi
há laun. Fáir komast þó í háifkvisti
við ítalska „silfurrefinn", Fabrizio
Ravanelli, sem er á sannkölluöum
forstjóralaunum hjá Middlesboro.
Ravanelli fær hvorki meira né
minna en rúmar 4,2 milljónir ís-
lenskra króna í laun á viku, eða um
17 milljónir í mánaðarlaun.
Næsti maður, sem er sjálfur dýr-
asti knattspymumaður heims, Alan
Shearer, má sætta sig við að vera í
öðru sæti með „aðeins" rúmar 12
milljónir á mánuði.
Hér að ofan gefur að líta tíu
launahæstu leikmennina í úrvals-
deildinni í vetur. -VS
Öll 1. deildar liðin með á
opna Reykjavíkurmótinu
ÖU 1. deildarliöin, 12 að tölu, taka þátt í opna Reykjavíkurmótinu í
handknattleik karla sem hefst á fimmtudaginn og lýkur á sunnudags-
kvöldið. Auk þess verða fimm lið úr 2. deild með, Víkingur, Fylkir, KR,
Breiðablik og Hörður frá ísafirði.
Liöunum 17 hefúr verið skipt í fjóra riðla sem era þannig skipaðir:
A-riðill: Valur, Fram, Selfoss, Víkingur og Fylkir.
B-riðill: KA, ÍR, KR og Afturelding.
C-riðill: Stjaman, FH, HK og Afturelding.
D-riðill: Haukar, Grótta, ÍBV og Hörður.
Mótið hefst klukkan 17.30 á morgun, fimmtudag, og er leikið bæði í
Seljaskóla og Austurbergi. Tvö efstu liðin í hveijum riðli komast áfram
og 8-liða úrslitin verða leikin klukkan 18 og 19.30 á laugardagskvöld.
Lokaleikimir verða síðan í Austurbergi á sunnudaginn og þá verða und-
anúrslitaleikimir klukkan 13 og 14.30, leikurinn um þriðja sætið kiukk-
an 18.15 og sjáifur úrslitaieikurinn hefst klukkan 20. -VS
Austfjaröaliðin í 3. deild
Tvö Austfjarðaiið tryggðu sér í gær sæti í 3. deildinni í knattspymu að
ári en síðari undanúrslitaleikimir í 4. deild vora þá spilaðir.
KVA vann stórsigur á Bolungarvík, 8-2, á heimavelli sínum og
samanlagt, 11-2. Róbert Haraldsson skoraöi 4 mörk og þeir Aron
Haraldsson, Atli Kristinsson, Dragan Stojonovic og gamia brýnið Bjami
Kristjánsson skoruðu mörkin fyrir KVA. •
Á Höfn unnu heimamenn í Sindra 2-1 sigur á Létti og samanlagt 4-2.
Gunnar Ingi Valgeirsson og Hermann Stefánsson gerðu mörk Sindra en
Engilbert Friðriksson fyrir Létti. -GH
Tveir Blikar fengu leikbann
Á fundi aganefndar KSÍ í gærkvöld voru fjórir leikmenn úr 1. deild
úrskurðaðir I leikbann. Breiðabliksmennimir Hajrudin Cardaklija og
Radendko Maticic, Gylfi Einarsson úr Fylki og Vaismaðurinn ívar
Ingimarsson.
í 2. deild var Davíð Garðarsson, Þór, úrskurðaður í tveggja leikja bann
og þeir Davíð Ólafsson, FH, Sævar Guðjónsson, Fram, Ólafur
Brynjólfsson, ÍR og Siguröur Sighvatsson, Víkingi, í eins leiks bann. -GH
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996
33
í
íþróttir
Ólafur Jóhannesson, sem hefur gert gófia hluti meö
lifi Skallagríms, gefur hér lærisveinum slm gófi ráfi I
Laugardalnum í gær. DV-mynd Brynjar Gauti
Torrey John til Njarðvíkinga:
„Við vorum mjög ánægöir með Tor-
rey John á æfingunni og viljum endi-
lega fá hann til liðs við okkur. Ég geri
mér mjög góðar vonir um að við skrif-
um undir samning við hann í hádeginu
á morgun," sagði Hrannar Hólm, þjálf-
ari Njarðvíkinga í körfuknattleik í
samtali við DV í gærkvöld.
Almenn ánægja var með frammi-
stöðu Torrey John á æfingunni og
segja má að almennt séu Njarðvíkingar
mjög ánægðir með að fá þennan snjalla
leikmann í sínar raðir.
„Það er auövitað of snemmt að segja
að þetta sé klappað og klárt fyrr en
blekið er komið á pappírinn. Báðir að-
ilar vora hins vegar mjög jákvæðir eft-
ir æfinguna," sagði Hrannar enn frem-
ur. Samkvæmt heimildum DV er ör-
uggt að gengið verður frá samningnum
í hádeginu í dag.
Torrey John mun leika fyrsta leik
sinn meö Njarövíkingum er Njarðvík
mætir Keflavík í Reykjanesmótinu
annað kvöld kl. 20.00.
Keflvíkingar fá liðsstyrk
Hjörtur Harðarson, sem lék með
Grindvikingum í fýrra, er genginn til
liðs við Keflvíkinga og leikur meö þeim
í vetur.
-ÆMK/-SK
Ásgeir Elíasson og strákarnir hans í Framlifiinu stefna
hrafibyri upp í 1. deildina afi nýju eftir sigurinn á
Skallagrími í gær kvöld. DV-mynd Brynjar Gauti
Staðan orðin sterk hjá Frömurum
- eftir 3-0 sigur á Skallagrími í toppslag 2. deildarinnar í gærkvöld
1- 0 Þorbjöm A. Sveins (35.)
2- 0 Þorvaldur Ásgeirs (56.)
3- 0 Sævar Guöjónsson (70.)
„Við stefndum að þessu
og nú ætlum við bara að
klára mótiö með stæl og
vinna þá þijá leiki sem
eftir era. Við duttum svo-
lítið niður í fyrri hálfleik
en eftir að við skoraðum
fór þetta að ganga betur
og við lékum vel í síðari
hálfleik,“ sagði Þorbjöm
A. Sveinsson, leikmaður
Fram, við DV eftir sigur á
Skallagrími, 3-0, í
toppslag 2. deildarinnar í
knattspymu á Laugar-
dalsvellinum í gær.
Með sigrinum stigu Framar-
ar stórt skref i átt að 1. deild-
ar sætinu sem þeir
misstu í fyrra
en Skallagrímsmenn, sem
hafa komið svo mikiö á óvart
í sumar, eru langt frá því að
vera úr leik i baráttunni um
1. deildar sætið. Fram er meö
34 stig í efsta sæti, Þróttur 32
og Skallagrímur 30 þegar
þremur umferöum er ólokið.
Borgnesingar voru vel inni í
leiknum I fyrri hálfleik.
Framarar byrjuðu að visu
betur en um hálfleikinn miðj-
an fóru Skallagrímsmenn aö
bita frá sér og fengu nokkur
ágæt færi. Þorbjöm Atli kom
Frömurum á bragðið með lag-
legu skaUamarki eftir fína
fyrirgjöf Ásgeirs Halldórsson-
ar og snemma i síðari hálf-
leik bætti Þorvaldur við öðm
marki eftir góðan undirbún-
ing Þorbjöms. Þetta mark sló
gestina út af laginu og Safa-
mýrarpiltamir höfðu leikinn
í hendi sér eftir það. Sævar
Guðjónsson innsiglaöi svo
sigurinn með skallamarki eft-
ir homspymu.
Framarar þurftu svo sem
engan stórleik til að innbyrða
þennan sigur. Gestimir stóðu
vel í þeim 1 fyrri hálfleik en
gáfúst snemma upp í þeim
síðari og því gátu Framarar
leikið afslappað eftir það.
Bestur í jöfiiu liði Fram var
Þorbjöm Atli, sem ávallt
skapaði hættu með hraða sín-
um. Hólmsteinn Jónasson
var á köflum sprækur og Ant-
on Bjöm og Þorvaldur
Ásgeirsson stóðu fyrir sínu.
Hjá Skailagrími var Björn
Axelsson einna bestur og þeir
Valdimar Sigurðsson og Frið-
rik markvörður léku ágæt-
lega. Borgnesingar stóðu vel
uppi í hárinu á toppliðinu í
fyrri hálfleik en eftir að hafa
lent undir fór að haila undan
fæti.
Ætlum aö berjast til
þrautar
„Fyrri möguleikinn er nú úti
en viö eigum þann síðari eft-
ir sem er leikurinn gegn
Þrótti um næstu helgi. Við
höfum alls ekki gefið 1. deild-
ar sætiö upp á bátinn og ætl-
um að berjast til þrautar. Við
fengum fyrstu 2 mörkin á
okkur á slæmum tima og það
sló okkur út af laginu," sagði
Valdimar Sigurðsson, fyrir-
liði Skallagríms, eftir leikinn.
Maður leiksins: Þorbjöm •
Atli Sveinsson, Fram.
-GH
Runar Kristinsson
hefur verifi afi gera
gófia hluti hjá Ör-
gryte. Samningur
hans við sænska lifi-
ifi rennur út í haust
og þjálfari Örgryte
vill ólmur halda I
hann og gera nýjan
samning vifi KR-ing-
inn fyrrverandi. r-
DV-mynd EJ /
Forráðamenn Örgryte eru mjög ánægðir með Rúnar Kristinsson:
Vilja ólmir semja
aftur við Rúnar
Kalle Björklund,
þjálfari sænska
úrvalsdeildar-
liðsins Örgryte,
er yfir sig
ánægður með
rammistöðu
Rúnars Krist-
inssonar hjá fé-
laginu. í viðtali
við DV í gær
hældi hann Rún-
ari á hvert reipi
og segir íslending-
inn hafa tekið mikl-
um framforum frá því
hann kom til félagsins í
fyrra.
Að mínu mati liggur það
alveg ljóst fyrir að Rúnar er
mun betri leikmaður en hann
var í fyrra. Erlendum leik-
mönnum hefúr oft gengið erfið-
lega að fóta sig í All Svenskan
fyrstu árin og þaö var einnig
þannig hjá Rúnari í fyrra er
hann kom fyrst til okkar. Þá
átti hann sljömuleik í fyrsta
leiknum með Örgryte en eftir
það var leikur hans mjög
gloppóttur. Á þessu keppnis-
tímabili hefúr hann sýnt mun
meiri stöðugleika og er án efa
ein af stjömunum í liði Ör-
gryte,“ sagði Björklund í sam-
tali við DV í gær.
„Einkunnir Rúnars segja
meira en mörg orö“
Björklund sagði enn fremur
í gær að Rúnar hefði fengiö
mjög góðar einkunnir hjá
sænskum fjölmiðlum fyrir
frammistöðu sína í leikjum
með Örgryte.
„Hann er í 2.-4. sæti yfir þá
leikmenn sem bestar einkunn-
ir hafa fengið og það segir
meira en mörg orð um frammi-
stöu hans. Rúnar hefúr verið
aö skora mikið af mörkum fyr-
ir okkur þrátt fyrir að hann
hafi leikiö nokkuð aftarlega á
vellinum eða í stöðu vinstri
miö’jumanns og vinstri bak-
varðar. Ég hef að vísu notað
hann sem þriðja sóknarmann í
nokkrum leikjum gegn ákveðn-
um andstæðingum okkar í
deildinni.. Það fer alveg eftir
því við hvaða lið við erum að
leika hvar á vellinum ég nota
Rúnar.“
„Viljum ólmir semja aft-
ur viB Rúnar“
- Nú rennur samningur
Rúnars við Örgryte út í haust.
Ætlið þið að halda í hann?
„Framhald Rúnars hefur
ekkert verið rætt en það er al-
veg Ijóst að við viljum ólmir
halda i hann og gera við hann
annan samning. Rúnar er það
góður leikmaður. Rúnari og
hans fjölskyldu virðist líða
mjög vel hér í Gautaborg og
hann hefur fallið mjög vel inn
í leikmannahópinn hjá okkur.“
- Hafa önnur lið verið að
spyijast fyrir um Rúnar hjá
Örgryte?
„Nei, ekki svo ég viti. til.
Eins og staðan er nú kemur r
ekkert annað til greina en
semja aftur við Rúnar og erum
við staðráðnir í að gera allt
sem i okkar valdi stendur til
að hafa hann áfram innan okk-
ar raða,“ sagði Kalle Björk-
lund.
íslenska landsliöið í knattspyrnu:
Mætir liöi Tékklands í fyrsta skipti
íslendingar mæta Tékkum í vináttulandsleik í knattspyrnu
sem fram fer í Jablonec í Tékklandi í dag og hefst klukkan 15 að
íslenskum tíma.
Ljóst er að uni afar erfiðan leik verður að ræða fyrir íslenska
liðið því eins og kunnugt er slógu Tékkar hressilega í gegn í Evr-
ópukeppninni í sumar með þvi að hreppa þar silfurverölaunin.
í leiknum í dag tefla þeir fram sex leikmönnum sem spiluðu
úrslitaleik EM gegn Þýskalandi.
íslendingar hafa ekki áöur mætt Tékkum eftir að þeir urðu
sjálfstæöir fyrir nokkrum áður en léku hins vegar fimm sinnum
gegn liði Tékkóslóvakíu. Þar var yfirleitt um jafnar viðureignir
að ræða, fyrsti leikurinn, árið 1981, tapaðist reyndar 6-1, en síö-
an gerðu liðin jafntefli, 1-1, og Tékkóslóvakía vann síðan 2-1,
1-0 og 1-0.
íslenska liðið kom til Tékkóslóvakíu í fyrrakvöld og hefur æft
þrisvar saman þai'. Þetta er síðasti leikur íslands fyrir leikina í
undankeppni HM síðar í haust en þeir eru gegn Litháen 5. októ-
ber, Rúmeníu 9. október og írlandi 10. nóvember. -VS
4-