Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1996, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996
35
Fréttir
Sveitarfélög kaupa jörð á 13 milljónir:
Sorp verður
urðaö í Fiflhotti
DV.Vesturlandi:
Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi gengu í gær frá kaupum á
jörðinni Fíflholti fyrir hönd sveit-
arfélaganna á Vesturlandi og er
kaupverðiö 13 milljónir. Búist er
við að í byrjun næsta árs verði
byrjað að urða sorp í Fíflholti á
Mýrum í Borgarbyggð en búið er
að auglýsa deiliskipulag fyrirhug-
aðs urðunarsvæðis í Fíflholti.
Framkvæmdin er nú þegar komin
í umhverfismat og á að skila tillög-
um og leggja fram athugasemdir
við deiliskipulagið fyrir 3. október
til Skipulags ríkisins.
„Við vonumst til þess að öll
sveitarfélög á Vesturlandi taki þátt
í þessu. Þetta eru tímamót í holl-
ustumálum Vestlendinga því
þama er komin ein stór lausn í
staðinn fyrir margar smáar. Urðun
á sorpi hefur veriö vandamál hér á
Vesturlandi og nú er það leyst,“
sagði Pétur Ottesen, sem sæti á í
sorpnefnd Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi.
Ekki mun vera búið að taka
ákvörðun um hvernig félagsform
verður á þessu sorpfélagi en menn
munu hallast mjög mikið að hluta-
félagsformi. -DVÓ.
Hjartasjúklingar í Eyjafirði:
Hafa fært sjúkrahúsinu
tæki fyrir um 10 milljónir
DV, Akureyri:
Félag hjartasjúklinga á Eyja-
fjarðarsvæöinu færði lyflæknisdeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
um helgina að gjöf mjög fullkomið
gangráðsgreiningartæki fyrir
hjartasjúklinga að verðmæti um
hálf milljón króna, auk þess sem fé-
lagið gaf deildinni farsíma til notk-
unar fyrir lækna deildarinnar. Fé-
lagið, sem er sex ára um þessar
mundir, hefur stutt vel við bakið á
lyflæknisdeildinni þar sem hjarta-
sjúklingar eru meðhöndlaðir og á
þessum sex árum fært deildinni
tæki sem samtals eru að verðmæti
um 10 milljónir króna.
„Þetta tæki gefur okkur mögu-
leika á að nota mun fullkomnari
gangráða en til þessa, bæði við að
koma gangráðunum fyrir og eins til
að stilla þá eftir þörfum hverju
sinni. Þetta tæki bætir og eflir þá
þjónustu sem við getum veitt,“ seg-
ir Bjöm Guðbjömsson, yfirlæknir
lyflæknisdeildar sjúkrahússins, sem
veitti tækinu viðtöku.
Félag hjartasjúklinga á Eyjafjarð-
arsvæðinu hefur barist fyrir þvi að
ráðinn yrði annar hjartasérfræðing-
ur að Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri, en einn sérfræðingur starfar
Björn Guðbjörnsson yfirlæknir t.v. veitir gangráðsgreiningartækinu viðtöku
úr hendi Gísla Eylands, formanns Félags hjartasjúklinga við Eyjafjörð.
DV-mynd mó
þar og sinnir í raun og veru öllu
Norðurlandi og austur á firöi eða
svæði þar sem búa um 40 þúsund
manns. Bjöm Guðbjömsson yfir-
læknir segir að læknaráð sjúkra-
hússins sé sammála um nauðsyn
þess að ráðinn verði annar hjarta-
sérfræðingur við sjúkrahúsið og í
því sambandi hafi það farið fram á
heimild fyrir nýrri stöðu við lyf-
læknisdeildina. -gk
Slitlag lagt í Skötufirði
og á Flateyrarveg
DV, ísafirði:
Þessa dagana er verið að ganga
frá lagningu bundins slitlags á ný-
uppbyggðan veg úr Ögumesi áleiðis
inn í Skötufjörð við ísafjarðardjúp.
Þar mun vera um 12 km kafla að
ræða sem gjarnan hefur veriö tal-
inn sá leiðinlegasti í öllu Djúpinu
fram til þessa.
Guðmundur Krisfjánsson, rekstr-
arstjóri hjá Vegagerðinni á Isafirði,
sagði að flokkur sem unnið hefur að
lagningu slitlags á Barðaströnd
komi til þessa verks, sem og lagn-
ingar slitlags á Flateyrarvegi. Tals-
verðar endurbætur hafa verið gerð-
ar á veginum frá Flateyri þar sem
hann tengist veginum upp Breiða-
dal. Þar var þröng brú fjarlægð og
sett ræsi í staðinn og vegurinn
breikkaður og vegarstæði lagfært. Á
þennan kafla verður nú lagt bundið
slitlag. -HK
Tafir á kennslu í Austurbæjarskólanum:
Enginn ánægður en menn
láta sig hafa það
- segir Héðinn Pétursson yfirkennari
„Málið er að það var hafist
handa um síðustu páska við gagn-
gera endurnýjun á húsnæði Austur-
bæjarskólans. Vandamálið nú er að
viö fáum ekki unglingadeildarstof-
urnar fyrr en í lok þessarar viku,
sem er nokkuð á eftir áætlun. Það
þýðir það að unglingamir okkar eru
í annars konar prógrammi á meðan.
Yngri deildimar era búnar að fá
sínar stofur og kennsla hafln þar.
Enda þótt við hefðum viljað að lag-
færingunum yrði lokið áður en
skólastarfið hófst þá er það nú svo
að lífíð býður ekki alltaf upp á það
sem maður óskar sér og þá er bara
að taka því,“ sagði Héðinn Péturs-
son, yfirkennari Austurbæjarskól-
ans, en þar era framkvæmdir við
endurbætur á skólahúsnæðinu
orðnar á eftir áætlun.
Héðinn segir að enda þótt það
pirri fólk eitthvað að húsnæðið
skuli ekki vera tilbúið á réttum
tíma sé hér um svo mikla og vel
heppnaða endumýjun og bætta að-
stöðu að ræða að umburðarlyndi
fóiks sé æði mikið þess vegna.
„Það er aftur á móti alveg rétt að
þegar kennaramir komu að sínu
húsnæði til að hefja undirbúning
skólastarfsins vora aðstæður þeirra
mjög erflðar. Þeir samþykktu hins
vegar á fundi að setja bara undir sig
hausinn og hefjast handa hvað sem
húsnæðinu liði. Auðvitað var eng-
inn ánægður en þetta veröur allt í
lagi,“ sagði Héðinn Pétursson.
-S.dór
Sunna Borg og Þráinn Karlsson hafa leikiö fieiri hjón en þau hafa tölu á.
DV-mynd gk
Samtals á fjölunum í sjö áratugi:
Við erum búin að
leika ótalmörg hjón
DV, Akureyri:
Leikarar Leikfélags Akureyrar,
Þráinn Karlsson og Sunna Borg, sem
um árabil hafa verið í hópi helstu
máttarstólpa félagsins, eiga saman-
lagt 70 ára leikafmæli á þessu ári.
Þráinn hefur 40 ára leiklistarferil að
baki og 30 ár era síðan Sunna steig í
fyrsta skipti á fjalirnar.
Þau hafa ekki leikið saman hjá
LA allan þennan tíma en þó frá ár-
inu 1979 eða í 17 ár og oftar en ekki
borið uppi sýningar í gamla Sam-
komuhúsinu.
Sunna hóf leiklistarferil sinn 19
ára á Akureyri en flutti um tíma til
Reykjavíkur en Þráinn hefur haldið
tryggð við Akureyrarleikhúsið allan
tímann. Og oft hafa þau leikið „sam-
an“ ef svo má segja.
„Við höfum a.m.k. mjög oft leikið
hjón og kærustupör, enda sérðu
bara hvað við eram samrýmd," segfe-.
ir Sunna. Þau voru sammála um
það að sennilega sé Bar-Par eitt af
eftirminnilegustu leikritum þeirra
en það léku þau hátt í 100 sinnum
og fóra einnig með það verk sem
hefur aðeins tvo leikara innanborðs
til Reykjavíkur. Og ávallt gerðu þau
stormandi lukku í þessu verki þar
sem þau léku reyndar 14 hlutverk
allt í allt. „Við lékum líka mjög eft-
irminnileg hjón í Horft af brúnni en
við höfum ekki tölu á hvað við höf-
um leikið oft í sama leikritinu. Ætli
það sé ekki a.m.k. 40 sinnum og það
á eftir að gerast oftar ef okkur end-
ist líf og heilsa og samkomulagið
verðrn- alltaf svona gott,“ sögðu þau
Sunna og Þráinn.
ÍSLÍENSKA ÓPERAN
__mn
GALDRA LOFTUR
Ópera eftir Jón Ásgeirsson
7. sýning laug. 14. sept.
8. sýning laug. 21. sept.
Sýning hefst kl. 20.00.
Miöasala
er opin kl. 15-19
nema mánudaga
og til kl. 20
sýningarkvöld.
Sími 551-1475,
bréfsími552-7384.
-•r
LOTTOsiaw
9 0 4 - 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Lottósíma DV tii að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
og Kínó ♦
LOTTÓsMw
9 0 4 * 5 0 0 0