Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1996, Blaðsíða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
Afmæli
Jón Kristinn Óskarsson
Jón Kristinn Óskarsson, yfirvarö-
stjóri Ritsímans í Reykjavík, til
heimilis að Smyrlahrauni 26, Hafn-
arfirði, varð sextugur á sunnudag-
inn var.
Starfsferill
Jón Kristinn fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp og i Hafnarfirði.
Hann lauk loftskeytaprófi 1955 og
símritaraprófi og hefur sótt fjölda
námskeiða vegna starfa sinna.
Jón Kristinn starfaði á stutt-
bylgjustöðinni í Gufunesi 1955-65,
var varðstjóri á loftskeytastöðinni
og ritsímanum í Vestmannaeyjum
1965-73, hóf þá störf hjá Ritsíman-
um í Reykjavík og hefur verið þar
yfirvarðstjóri undanfarin ár.
Jón Kristinn lék um sjötíu og
fimm leiki með FH i meistaraflokki
karla í handbolta á árunum 1956-61,
var formaður íþróttafélagsins Þórs í
Vestmannaeyjum, formaður hand-
knattleiksráðs Vestmannaeyja í
nokkur ár, sat í aðalstjóm FH, var
varaformaður handknattleiksdeiid-
ar FH, sat í stjóm handknatt-
leiksráðs Hafnarfjarðar í átta ár og
formaður þess í sex ár, sat i stjórn
Handknattleikssambands fslands
um sjö ára skeið og þá
m.a. formaður móta-
nefndar HSÍ, formaður
landsliðsnefhdar kvenna
og móttökustjóri er-
lendra liða, hefur verið
varaformaður Gaflara-
deildar FH undanfarin ár
til 1995, var formaður
Vestmannaeyjadeildar
Félags íslenskra síma-
manna á tímabili, for-
maður starfsmannadeild-
ar Ritsimans í fjögur ár
og starfaði þá í samn-
inganefnd Félags íslenskra síma-
manna, formaður skemmtinefndar
FÍS i nokkur ár, er ritari stjórnar
Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar,
sat í áfengisvarnarnefnd Hafnar-
ijarðar fyrir Alþýðuflokkinn í átta
ár og hefur verið félagi í Oddfellow-
reglunni sl. fimmtán ár.
Fjölskylda
Jón Kristinn kvæntist 3.10. 1959
Sigurborgu Hlíf Magnúsdóttur, f.
30.1. 1932, hjúkrunardeildarstjóra á
Sólvangi í Hafnarfirði. Hún er dótt-
ir Magnúsar Friðrikssonar, bónda á
Þrándarstöðum í Eiðaþinghá í Suð-
ur-Múlasýslu, og Sigur-
bjargar Ásgeirsdóttur
húsfreyju.
Börn Jóns Kristins og
Sigurborgar Hlifar eru
Sigríður Ósk Jónsdóttir,
f. 7.3. 1960, húsmóðir og
nemi í viðskiptafræði við
HÍ, búsett í Hafnarfirði,
en maður hennar er Ólaf-
ur S. Björnsson húsa-
smíðameistari og er son-
ur þeirra Ólafur Snær, f.
8.9. 1993, en dætur Sigríð-
ar frá fyrra hjónabandi
eru Erla Dís Amardóttir, f. 13.1.
1982, Lovísa Amardóttir, f. 29.12.
1985, og Hafdís Amardóttir, f. 3.8.
1987; Magnús Rúnar Jónsson, f. 10.1.
1962, verkamaður í Hafnarfirði; Ás-
dís Stefanía Jónsdóttir, f. 29.5. 1963,
húsmóðir og prentsmiður í Kópa-
vogi, en sambýlismaður hennar er
Sigurður H. ívarsson, innkaupa-
stjóri Lyfjaverslunar íslands, og era
börn þeirra þríburarnir Ásrún
Dóra, Dagrún Björk og Heiðrún
Sunna, f. 26.1.1994, og Róbert Ingi, f.
6.12. 1995; Óskar Steinn Jónsson, f.
20.5. 1967, bústjóri Nesbús á Vatns-
leysuströnd, en kona hans er Þór-
hildur Ásgeirsdóttir, húsmóðir og
naglasnyrtir, og eru börn þeirra
Margrét Hlif, f. 6.2. 1989, og Stefán
Öm, f. 12.10. 1992; Sigurbjörg Guð-
rún Jónsdóttir, f. 1.10. 1971, nemi í
hjúkrunarfræði við HÍ, búsett á Sel-
fossi en sambýlismaður hennar er
Jón Ragnar Ólafsson sölumaður og
er sonur þeirra Daníel Freyr, f. 3.10.
1991.
Systir Jóns Kristins er Ásdís
Bjamey Óskarsdóttir, f. 13.11. 1939,
húsmóðir í Keflavík, gift Gísla Jóns-
syni, starfsmanni við íþróttahúsið í
Keflavík, og eiga þau fjögur börn.
Foreldrar Jóns Kristins vora Jón
Guðmundur Óskar Jónsson, f. 25.12.
1900, d. 8.12. 1958, togarasjómaður í
Reykjavík og Hafnarfirði, og Guð-
rún Sigríður Stefánsdóttir, f. 27.3.
1907, d. 13.1. 1987, húsmóðir.
Jón Kristinn heldur upp á afmæl-
ið í veitingahúsinu Hraunholti,
Dalshrauni 15, Hafnarfirði, þann
27.9. kl. 20.00. Vonast þau hjónin eft-
ir að sem flestir frændur, frænkur,
vinir og kunningjar sjái sér fært að
mæta.
Jón Kristinn Óskars-
son.
Geir Benediktsson
Geir Benediktsson,
starfsmaður hjá Dún- og
fiðurhreinsuninni, Vatns-
stíg 3, Reykjavík, til
heimilis að Háteigsvegi 6,
Reykjavík, er fimmtugur
í dag.
Starfsferill
Geir fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp, fyrstu
árin að Miklubraut 16
sem þá var kölluð
Bræðrahöllin en húsið
var byggt af sex systkinum í lok
seinni heimsstyrjaldarinnar og var
faðir Geirs eitt systkinanna. Geir
flutti svo níu ára með foreldram
sínum að Kirkjuteigi 29 þar sem
hann átti heima fram á unglingsár.
Snemma á ævinni kom í ljós að
Geir átti ekki samleið með jafnöld-
ram sínum við hefðfundið bóknám
en naut smíðakennslu á
barnaskólaaldri.
Er foreldrar hans stofn-
settu Dún- og fiður-
hreinsunina á sjötta ára-
tugnum hóf hann störf
við fyrirtækið og hefur
starfað þar síðan. Hann
hefur um þrjátíu ára
skeið sett svip sinn á
miðborg Reykjavíkur á
ferðum sínum í fyrirtæki
og stofnanir en viðmót
hans og framkoma hafa
aflað honum fjölda vina í Reykjavík
og víðar. Vegna stálminnis á nöfn
og persónur er hann óvenju trúr
vinum sínum og kunningjum þótt
leiðir skiljist um langan tíma og er
jafnan viðbúið að hann hitti vini og
kunningja hvar sem leiðir hans
liggja, innanlands sem utan.
Eftir að Geir flutti af heimili for-
eldra sinna bjó hann um skeið hjá
bróður sínúm, Ólafi, en átti að öðru
leyti heima í Breiðholti hjá systur
sinni, Lilju, og hennar fjölskyldu
þar til hann flutti í sambýlið að Há-
teigsvegi 6, Reykjavík, þar sem
hann býr nú.
Á síðari árum hefur Geir notið
fullorðinsfræðslu í Brautarskóla og
verið virkur meðlimur í leikhópn-
um Perlufestinni.
Fjölskylda
Hálfsystur Geirs, samfeðra, eru
Magdalena Benediktsdóttir, f. 12.1.
1932, búsett í Jacsonville í Flórída,
gift William Wood; Ólöf Benedikts-
dóttir, f. 11.4. 1933, búsett í Reykja-
vík, gift Höskuldi Jónssyni.
Hálfsystkini Geirs, sammæðra,
eru Susanna Kristinsdóttir, f. 13.7.
1935, gift Kristni K. Ólafssyni; Reyn-
ir Kristinsson, f. 2.10. 1937, búsettur
á Stokkseyri, kvæntur Pálínu Jóns-
dóttur.
Alsystkini Geirs eru Lilja Bene-
diktsdóttir, f. 23.12. 1939, búsett í
Snæfellsbæ, gift Guðjóni Petersen;
Ólafur Benediktsson, f. 4.2.1944, bú-
settur í Reykjavík, kvæntur Ólöfu
Ólafsdóttm-.
Foreldrar Geirs: Benedikt Ólafs-
son, f. 19.8. 1910, forstjóri Dún- og
fiðurhreinsunarinnar, Vatnstíg 3,
og Svava Ámadóttir, f. 16.4. 1914, d.
17.11. 1971, húsmóðir.
Þriðja kona Benedikts Ólafssonar
er Þórunn Sigurjónsdóttir, f. 12.2.
1930, húsmóðir.
Geir tekur á móti gestum í félags-
heimili múrara að Síðumúla 25,
Reykjavík, milli kl. 18.00 og 20.00.
Geir Benediktsson.
Fréttir
Minjasafnið á Hnjóti í Örlygshöfn:
Á fimmta þúsund
gestir í sumar
Hátt í fimm þúsund gestir hcifa
komið i sumar í Minjasafn Egils
Ólafssonar á Hnjóti í Örlygshöfn í
Vestur-Barðastrandarsýslu. EgiU
Ólafsson safnvörður vonast tU að á
næsta sumri verði hægt að taka í
notkun nýbyggingu safnsins.
Aukning er á gestafjölda frá síð-
asta sumri og segir EgiU að aðsókn-
in vaxi jafnt og þétt. Minjasafnið á
sér sögu allt frá árinu 1946 þegar Eg-
Ul hófst handa við að safna munum
og sögulegum verðmætum sem
minna á lífsbaráttu og atvinnusögu
Vestur- Barðastrandarsýslu og þjóð-
arinnar í heUd. Þá var EgiU nýkom-
inn úr búfræðinámi, 25 ára að aldri.
Upp úr árinu 1960 var hann kominn
með vísi að byggðasafni á loftinu í
íbúðarhúsi sínu á Hnjóti. Á áttunda
áratugnum gaf EgiU Vestur-Barða-
strandarsýslu safnið og á meðal
skilmála sem fylgdu gjöfinni var að
sýslan tæki að sér að byggja yfir
safnið og var það gert. Fyrir fjórum
árum var hafist handa við stækkun
þeirrar byggingar og eru fram-
kvæmdir vel á veg komnar.
EgiU, sem er fyrrverandi flugvall-
arvörður á Patreksfjarðarflugvelli,
er einnig mikUl áhugamaður um
flugsögu íslendinga. Það leiddi til
þess að hann stofnaði á Hnjóti Flug-
minjasafn EgUs Ólafssonar sem nú
er í eigu Flugmálastjórnar og sam-
gönguráðuneytisins. Meðal muna
þar er gamalt flugskýli og flugstöð
og sérstaka athygli vekur flugvél af
Antanovgerð en það er tvíþekja af
stærstu gerð einshreyfUsvéla sem
framleiddar hafa verið í heiminu.
Forseti íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, heimsótti Minja-
safn Egils Ólafssonar á laugar-
daginn var ásamt fríðu föruneyti í
opinberri heimsókn til sunnan-
verðra Vestfjarða.
-jþ
Egill Olafsson safnvörður í minjasafninu sem við hann er kennt.
DV-myndir Jón Þórðarson
Til hamingju
með afmælið
24. september
90 ára
Björg Haraldsdóttir,
Austurbyggð 17, Akureyri.
Daníel Daníelsson,
DvalarheimUinu Höfða,
Akranesi.
80 ára
Valdemar Gíslason,
Norðurgötu 21, Sandgerði.
Kristján Pálsson,
Hlíf, Torfnesi, ísafirði.
70 ára
Dóróthea Marteinsdóttir,
Vitastíg 17, Reykjavík.
Marinó Davíðsson,
Gnoðarvogi 66, Reykjavík.
Hann er að heiman.
Guðmundur Sigurðsson,
Bárðarási 5, HeUissandi.
Magnús K. Randrup,
Sörlaskjóli 22, Reykjavík.
Ingvi Sæmundsson,
Borðeyrarbæ, Bæjarhreppi.
60 ára
Pétur Þ. Sveinsson,
Grenigrund 3, Kópavogi.
Erna Pálsdóttir,
Skólagerði 25, Kópavogi.
Auðiu- Bergssveinsdóttir,
Lindargötu 57, Reykjavík.
Margrét Hallgrímsdóttir,
Seljalandi 3, Reykjavík.
Halldóra Guðbjartsdóttir,
Stóra-Múla I,
Saurbæjarhreppi.
Ólöf E. Gísladóttir,
Útgarði, EgUsstöðum.
Áslaug Jónína
Sverrisdóttir,
Bárugötu 40, Reykjavík.
50 ára
Ólafur Jónsson,
Neðstabergi 18, Reykjavík.
Kristín Þórhallsdóttir,
Lækjarhvammi 15,
Hafnarfirði.
Margrét Dóróthea
Maronsdóttir,
Engjaseli 69, Reykjavík.
Sigurjón Pálsson,
Brimhólabraut 35,
Vestmannaeyjum.
Gylfi Gunnarsson,
Árholti 5, ísafirði.
Guðbrandur Gústafsson,
Ártúni 4, Siglufirði.
40 ára
Danuta Cieciera,
Fjarðargötu 13, Þingeyri.
Sigurbergur Björnsson,
Blönduhlíð 9, Reykjavík.
Gissur Þór Grétarsson,
Norðurtúni 6, Sandgerði.
Haraldur Erlendsson,
Aðalstræti 37, Þingeyri.
Skúlína Hlíf Kjartansdóttir,
Beykihlíð 6, Reykjavík.
Haraldur Auðunsson,
Hvassaleiti 155, Reykjavík.
Hulda Katrín Ólafsdóttir,
Auðbrekku 2, Kópvogi.
Davíð Aðalsteinn
Sverrisson,
Þórðargötu 14, Borgamesi.
Ásdis Eiðsdóttir,
Kálfagerði, Eyjafjarðarsveit.
Derek Þór Penning,
Hjarðarhaga 36, Reykjavík.