Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1996, Blaðsíða 36
LOTT*
til mjki/s að vino0
\ »
(19) (20) (27
KIN
FR ETTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fuilrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
Próflaus og
með hass
Laust eftir miðnætti í gærkvöld
stöðvaði lögreglan í Reykjavík ung-
——an ökumann sem reyndist próflaus.
Við leit á piltinum fannst hassmoli
í bílnum. Ekki reyndist ástæða til
þess að stinga manninum í steininn
en lögreglan hefur með virku eftir-
liti undanfarið stöðvað nokkuð
marga ökumenn sem freistast hafa
til þess að keyra próflausir. Vildi
lögreglan vekja athygli á ábyrgðar-
leysi slíks aksturs, tryggingafélögin
ættu endurkröfurétt á þetta fólk
vegna tjóna og ítrekuð brot gætu
haft fangelsisvist í för með sér. -sv
Héraðsdómur:
Maður
- dæmdurí
öryggis-
gæslu
Maður, sem réðst á aldraðan
stjúpföður sinn og veitti honum al-
varlega áverka á augum í íbúð á
Kleppsveginum í sumar, var í gær
dæmdur í öryggisgæslu í Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Maðurinn verð-
ur vistaður í öryggisgæslu á viðeig-
’^índi stofnun og getur áfrýjun ekki
breytt þeirri gæslu.
Maðurinn var talinn ósakhæfur
vegna geðveilu og þar af leiðandi
ekki talinn ábyrgur gerða sinna. í
dómnum kemur fram að hann er
talinn hættulegur umhverfi sfnu og
því dæmdur til vistunar í öryggis-
gæslu. -RR
Slys í Granda:
Missti fram-
an af fingri
Vinnuslys varð í verksmiðju
Granda á Norðurgarði í gærkvöld.
hv^Piltur missti þá um einn sentímetra
framan af litla frngri vinstri handar.
Hann var að vinna við þrif á færi-
bandi pökkunarvélar. -sv
Sjúkrahús Reykjavíkur:
Ljós fyrir
þyrlu skemmd
Átta ljósker af fjórtán á þyrlupall-
inum við Sjúkrahús Reykjavíkur
voru skemmd um helgina. Ljósin eru
hugsuð til þess að auka öryggi í sam-
bandi við sjúkraflug og hefur Ben-
óný Ásgrímsson flugmaður sagt ljós-
in hafa bjargað mannslífum. Hér
.^•^'æri því um mjög alvarlegan verkn-
að að ræða. Ljóst er að tjónið hleyp-
ur á hundruðum þúsunda króna. -sv
L O K I
Iðnaðarmenn með kröfur um 15 prósenta kaupmáttaraukningu á 3 árum:
Verkamannafélögin vilja
sömu krónutöluhækkun
- við það myndi launabilið minnka umtalsvert
„Við erum ekki endanlega bún-
ir að ganga frá okkar kröfum. En
við höfum rætt um að ná upp
sama kaupmætti hér og í Dan-
mörku fram til aldamóta. Það þýð-
ir 4-5 prósenta kaupmáttaraukn-
ingu á ári næstu 3 árin. Sú tala
hefur líka verið i umræðunni hjá
félögunum að undanfómu enda
þótt ekkert sé endanlega ákveðið,"
sagði Örn Friðriksson, formaður
Samiðnar, í samtali við DV.
Rafiðnaðarmenn eru með mjög
svipaðar kröfur eða 15 prósent
kaupmáttaraukningu á nokkrum
árum eins og það er orðað í sam-
þykkt þeirra.
Sem kunnugt er eru launataxtar
iðnaðarmanna mun hærri en
verkamanna. Samkvæmt heimild-
um DV er nú um það rætt hjá
verkamannafélögunum að um-
reikna kröfu iðnaðarmanna, um 5
prósent kaupmáttaraukningu á ári
næstu 3 árin, yfir í krónutölu sam-
kvæmt töxtum iðnaðarmannafé-
laganna. Þá tölu vilja menn gera
að kröfu um launahækkun til
handa verkafólki. Við það myndi
launabilið minnka til muna.
Og krafa Hlífar í Hafnarfirði,
sem samþykkt var á félagsfundi í
síðustu viku, um að verkamanna-
laun hækki um 21.600 krónur á
næstu tveimur árum, er mjög
nærri þessari tölu.
Það er því ljóst, bæði af mótuð-
um kröfum Rafiðnaðarsambands-
ins og Hlífar í Hafnarfirði, að
launakröfurnar verða háar að
þessu sinni. Það er líka ljóst af
ummælum Guðmundar Gunnars-
sonar, formanns Rafiðnaðarsam-
bandsins, og fleiri verkalýðsleið-
toga að 60 þúsund króna launa-
hækkun ráðherranna og fleiri
embættismanna í fyrra er notuð
sem viðmiðun. -S.dór
Þorsteinn Pálsson með Alain Juppé, forsætisráðherra Frakka, sem jafnframt
gegnir stöðu borgarstjóra Bordeaux. DV-mynd Jón Hákon Magnússon
Keflavíkurflugvöllur:
Leikfang en ekki sprengja
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
fékk tilkynningu um torkennilegan
poka sem skilinn hefði verið eftir
uppi í fríhafnarsvæði Leifsstöðvar i
gær. Þegar í stað var svæðið rýmt
og sprengjusérfræðingar Landhelg-
isgæslunnar kallaðir á vettvang.
Ótti manna reyndist ástæðulaus því
saklaust barnaleikfang reyndist í
pokanum. Enginn fannst eigandinn
og það er því í vörslu lögreglunnar.
-sv
Vaxtahækkun Seðlabankans:
Fullharkalegar
aðgerðir
- segir hagfræðingur ASÍ
„Þarna er verið að grípa til full
harkalegra aðgerða. Menn eru að
vinna út frá veikum vísbendingum.
Vextir eru mjög háir þannig að að-
hald í hagkerfinu er þegar í gangi.
Við hefðum talið eðlilegra að takast
á við verðlagið í tengslum við úti-
standandi loforð ríkisstjórnarinnar
vegna GATT-samninganna. Það er
athyglisvert að bankinn hafnar
skýringum Þjóðhagsstofnunar á
auknum viðskiptahalla. Bankinn
virðist vera meira sammála okkur í
að þetta sé skammtímagusa," sagði
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
ASÍ, við DV um vaxtahækkun
Seðlabankans í gær um 0,4% í við-
skiptum við innlánsstofnanir. Seðla-
bankinn ákvað jafnframt að hækka
lausafiárhlutfall banka og spari-
sjóða úr 10 í 12% frá næstu mánaða-
mótum.
Með vaxtahækkuninni segist
Seðlabankinn vera að draga úr
þenslu í efnahagslífinu og verð-
bólgu, sem orðin sé meiri en í við-
skiptalöndum okkar. -bjb
Þorsteinn Pálsson hitti Alain Juppé:
Sýndi áhuga á aukn
um samskiptum
„Við ræddum um samskipti Is-
lands og Frakklands. Það kom vel
fram hjá honum sem öðrum að það
er mikill áhugi á auknum samskipt-
um landanna, bæði í sjávarútvegi
og á öðrum sviðum. Það var
ánægjulegt að finna að frönsk
stjómvöld sýna þennan vilja," sagði
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra en um helgina hitti hann
óvænt að máli Alain Juppé, forsæt-
isráðherra Frakklands, í tilefni af
heimsókn sinni til dótturfyrirtækis
SÍF í Suðvestur-Frakklandi, Nord-
Morue í Jonzac. Verksmiðja Nord-
Morue var opnuð formlega eftir
gagngerar endurbætur en frásögn af
því er í öðmm stað í DV í dag.
Þorsteinn talaði við Juppé í ráð-
húsi Bordeaux þegar hann átti að
hitta aðstoðarborgarstjóra borgar-
innar. Borgarstjóri er nefnilega
Juppé sem gegnir þeirri stöðu þrátt
fyrir að vera forsætisráðherra.
Þorsteinn hitti sömuleiðis í
Frakklandsferðinni kollega sinn, Di-
dier Quentin, og bauð honum að
koma í opinbera heimsókn til ís-
lands á næsta ári. -bjb
Veðrið á morgun:
Allhvasst
norövest-
anlands
Á morgun er búist við austan-
og norðaustankalda en allhvössu
norðvestanlands. Skúrir verða
einkum sunnan- og austanlands
og einnig á Vestfiörðum. Á Norð-
ur- og Vesturlandi verður lengst
af þurrt. Hiti verður á bilinu 4 til
12 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36
Kvöld- og
helgarþjónusta
NSK
kúlulegur
Poulxen
Suðurlandsbraut 10 - Slmi 568 6499