Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Blaðsíða 49
ATHUGANASVIÐ OG AÐFERÐIR
Tilraunir þær, sem tekin voru sýni úr, eru á túni Gróðrar-
stöðvarinnar við Akureyri. Tekin voru sýni úr tveim til-
raunum. I annarri tilrauninni er gerður samanburður á
N-áburðartegundum og ber sú númerið 5—45. Hefur þessí
tilraun staðið samfleytt síðan árið 1945. Þær N-áburðarteg-
undir, sem þarna eru reyndar og saman bornar eru: Kalk-
saltpétur, kjarni (ammoníumnitrat) og stækja (ammoníum-
súfat), auk þess eru í tilraun þessari N-áburðarlausir reitir.
Hin tilraunin, sem sýni voru tekin úr, er tilraun með
samanburð á mykju og tilbúnum áburði, númer 136—
63. í Jreirri tilraun eru áburðarlausir reitir. í töflu 1 er gef-
ið áburðarmagn og tegund á þá reiti, sem sýni til dýra-
talningar voru tekin úr. Þar er einnig sýnt hvenær sýni
voru tekin úr reitunum. Jarðvegur sá, sem tilraunir þessar
eru á settar, er móajarðvegur. Þarna hefur verið tún í meir
en hálfa öld, tekið í ræktun á fyrstu árum Ræktunarfélags
Norðurlands upp úr síðustu aldamótum. Ekki hefur verið
borinn búfjáráburður á tilraunalandið eða tún næst Jwí í
Tafla 1. Áburðarmagn og áburðartegundir á reiti, sem sýni
til dýratalninga voru tekin úr sumarið 1970,
ásamt dagsetningu á sýnatöku.
Tilraun Áburður kg hrein efni á hektara Sýni
Nr. Liður N P K tekið
a 0 30 63 27/7
5-45 b 82 Ivjarni (NH^NO,) 30 63 27/7
c 82 Stækja (NH4(S04)2) 30 63 27/7
d 82 Kalksaltpétur 30 63 27/7
a 0 0 0 10/8
136-63 c £ 20 tonn af mykju á hektara. Tilbúinn áb. Jafngildi af NPK 20 10/8 10/8
tn af mykju.