Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Blaðsíða 27
íslenzkum lætur nærri að reikna með, að landbúnaður í
Noregi sé um 20 sinnum umfangsmeiri en hér á landi.
Þessi samanburður verður þó ekki gerður hér, enda er norsk
rannsóknastarfsemi fjölbreyttari en sú íslenzka, þannig að
seilast þarf til stofnana utan rannsóknamála hér á landi til
að samanburður verði réttur.
LOKAORÐ
Kynning sú, sem hér hefur verið gerð á langtímaáætlun
Norðmanna í landbúnaðarrannsóknum, er ýmsum ann-
mörkum haldin. í fyrsta lagi skal bent á þann, að saman
fléttast bein þýðing á álitsgerðinni og viðbætur og dæmi um
íslenzk rannsóknamál, án þess að ljóst sé í hvert skipti, hvað
er þýtt og hvað eru viðbætur. Þetta á ekki að þurfa að valda
vandræðum, þar sem álitsgerðin sjálf er aðgengileg hverjum,
sem vill kynna sér hana.
Þá er ástæða að minna á, að efnið hefur verið stytt mjög
og eru þá mörg álitamálin um, hvað velja ber og hverju
hafna.
Tilgangurinn með að koma þessu á framfæri er sá, að
vekja athygli á þeirri gloppu í tilraunamálum okkar, að
engin heildaráætlun skuli vera til í tilraunamálum land-
búnaðarins á íslandi. Það hefur verið gert með því að benda
á, hvernig unnið er að þessum málum í Noregi, en hliðstætt
veðurfar og hliðstæð skilyrði eru til að stunda landbúnað
víða um Noreg og á íslandi. Það og fjölmargt fleira veldur
því, að af Norðmönnum er unnt að taka nokkurt mið í
þessum efnum.
ÞAKKARORÐ
Eg þakka Haraldi Árnasyni, skólastjóra við Bændaskólann á
Hólum, fyrir að hafa gefið mér tækifæri til að vinna þetta
verk við skólann.
29